Morgunblaðið - 22.01.1997, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997 39
BREF TIL BLAÐSINS
Foreldravænt
menntakerfi
Frá Stefáni Sturlu Sigurjónssyni:
NÚNA tala allir um að íslensk ung-
menni séu eftirbátar annarra ung-
menna á Norðurlöndum í einstökum
fögum menntakerfisins. Mennta-
málaráðherra hefur af þessu þungar
áhyggjur. Skólamálayfirvöld hafa
sínar skýringar. Já, allir keppast við
að leita skýringa og þar er helst
leitað innan menntakerfisins, eðli-
lega, eða hvað?
Fræðingarnir báru íslensk ung-
menni saman við ungmenni á Norð-
urlöndunum og niðurstaðan varð öll-
um kunn, og við verðum að sætta
okkur við það að börnin okkar eru
eftirbátar annarra barna. En þar er
menntakerfið byggt upp á töluvert
mikið annan hátt. Um einn þátt eru
flestir sammála, það getur ekki ver-
ið hollt, líkamlega gott né þroskandi
fyrir börn sem eru að taka út líkam-
legan og andlegan þroska að sitja
við kennsluborð í allt að átta tíma
á dag. Útlendir fræðingar hafa kom-
ist að þeirri athyglisverðu niðurstöðu
að vel þjálfuð fullorðin manneskja
nái hámarksafköstum og einbeitingu
við vinnu sína, á nánast hvaða sviði
sem er, í sex klukkustundir. Auðvit-
að er hægt að bjóða íslenskum börn-
um meira en útlenskum letingjum,
þau verða líka að vinna upp heimsk-
una í raungreinunum.
Getur verið að íslenska mennta-
kerfíð sé allt í molum? Kennsludag-
urinn of langur, kennsluárið of sam-
fellt, álagið of mikið? Er menntakerfí
of bundið við gamla bændasamfélag-
ið? Krakkarnir lausir úr skólanum
fyrir lok sauðburðar og send_í sveit-
ina í geymslu yfír sumarið. I gamla
daga var ekki boðið uppá sumarnám-
skeið í öllu mögulegu og ómögulegu
til að hafa ofan af fyrir bömunum.
Skólinn á að vera geymslustaður
fyrir börn meðan foreldrarnir vinna
tvöfalda eða þrefalda vinnu fyrir
lúsarlaunum, hvar ættu börnin ann-
ars að vera? Síðan eru þau send í
sveit eða á sumarnámskeið. Þá er
búið að leysa vandamálið hvað á að
gera við börnin meðan foreldrarnir
vinna.
Norðurlöndin, sem við viljum
gjarnan geta borið okkur saman við,
byggja sitt kerfí upp á talsvert annan
hátt. í fyrsta lagi er kaupmáttur
launa það mikill fyrir sex til átta
stunda vinnudag að fólk lifír af þeim
launum einum. Og gildir það jafnt
um kennara sem aðra launþega.
Grunnskólinn er fyrir börnin en ekki
foreldrana, þeir hafa lokið sínu
skyldunámi og valið að eiga sín börn,
það gerir enginn annar fyrir þá. I
öðru lagi eru frí nemenda á Norður-
löndunum fleiri og dreifð yfir skólaár-
ið, á kostnað langs sumarfrís. Þetta
gefur kennurum einnig betra færi á
að bera saman bækur sínar á meðan
á skólaárinu stendur. í þriðja lagi líta
skólayfírvöld á menningargeirann
sem samstarfsaðila en ekki andstæð-
ing. Hér er sú skoðun nánast alger
meðal skólafólks að allt sem kallast
má list, leikþættir, tónlist, myndlist,
ballett, hafi truflandi áhrif á nemand-
ann. Leggja það jafnvel að jöfnu að
kynna listviðburð í frímínútum skól-
anna, sem er skólunum algerlega að
kostnaðarlausu, og sölumaður kóka-
kóla kynni sína vöru. Annars staðar
á Norðurlöndunum eru listfögin not-
uð í mjög ríkum mæli til að auka
skilning bama.
Getur verið að þröngsýni, vinnu-
álag, lág laun og of mikill sparnaður
5 menntakerefinu, sem ég hef aldrei
skilið því menntun einstaklingsins
er arðbærasta fjárfesting sem til er,
að þetta allt sé aðalástæðan fyrir
því að menntakerfið sé sniðið fyrir
fullorðna en ekki börnin?
STEFÁN STURLA SIGURJÓNSSON
leikari.
Um aldamót
Frá Kolbeini Þorleifssyni:
SÍÐUSTU daga hef ég tekið eftir
því, áð nú eru á ný hafnar í
Morgunblaðinu umræður um það,
hvenær næstu aldamót skuli vera.
Hér langar mig til að skjóta inn
orðum til stuðnings þeirri skoðun,
að öldin verði að byrja á árinu eitt.
Fyrst ætla ég að útskýra, hvernig
hið vestræna kristna tímatal varð
til, og síðar ætla ég að reyna að
benda á, hvers vegna ártal getur
ekki byijað á árinu núll (0)
Sú venja virðist hafa fylgt mann-
kyni um aldir, að miða tímatal þjóða
við ríkisstjórnarár kónga og keis-
ara, og var slíkt gert í kristnum
sið eftir árið 325, og var þá byggt
á tímatalsákvörðun sem Díókletían
keisari hafði látið gera nokkrum
árum áður (Anno Diocletiani), en
þessi Díókletían var sá hinn sami
sem hóf ofsóknir á hendur kristnum
mönnum í byijun 4. aldar. Þetta
létu kristnir menn sér vel líka, þar
til 200 árum síðar, að mönnum
þótti kominn tími til að miða tíma-
talið við Krist konung. Tilheyrandi
útreikninga vann skýtískur munk-
ur, sem við getum til gaman ís-
lenskað nafnið á, og kallað „Denna
litla“ (Dionysius Exiguus). Af eðli-
legum ástæðum, sem síðar verða
útskýrðar, var talan núll (0) ekki til
í hans kerfi, heldur byijaði ár Krists
(Anno Christi) á tölunni einn. Ekki
voru heldur á þeim tíma til neinar
mínusartölur í tímatalinu; þær
komu ekki til skjalanna fyrr en í
franskri bók seint á 17. öld. Saman-
ber: „Fyrir Krist“ og „eftir Krist“.
Fæðing Krists átti sér samkvæmt
þessu stað á nýársdag árið eitt.
Menn voru mismunandi fljótir að
tileinka sér þetta tímatal, sem
breiddist vestur á bóginn um trú-
boðssvæði hinnar litlu Rómaborgar
á Italíu (Hin stóra Rómaborg var
Mikligarður eða Konstantínópel)
fyrir tilstilli Gregors páfa hins mikla
og Benediktína. Norðurlönd tóku
ekki upp þetta tímatal fyrr en á
11. öld, og Rússar ekki fyrr en
löngu síðar.
II
Það hefur ruglað margan mann-
inn, sem um aldamótin hafa skrif-
að á síðum Morgunblaðsins, að síð-
ustu 300 árin hafa reiknimeistarar
Vesturlanda notað töluna núll eða
0 í upphafi talnaraða, og plúsa
síðan og mínusa út frá þeirri tölu,
sbr. hitamæla okkar, þar sem +4°
þýðir fjögurra gráðu hita, en -5°
fimm gráðu frost. Mér er sagt, að
fundur tölunnar núll (0) sem
reiknieiningar hafi á Vesturlöndum
breytt öllum reikningi á þann veg,
að framfarir hafi orðið miklar í
fræðigreininni upp frá því, mönn-
um til gleði eða hrellingar eftir
atvikum, því að öll mengun og
kjarnorka eiga þar upphaf sitt. En
forðum daga þótti það djöfullegt
athæfi, að halda því fram, að til
væri eitthvað, sem væri brot af
núlli, sem þýðir ekkert, eða þá
partur af veraldarsögu, sem væri
handan við ekkert. Þess vegna er
óhugsandi, að fyrri tíðar menn
hafi reiknað með einhveiju núll-ári
í tímatalsfræðum sínum. En vita-
skuld er erfitt fyrir fólk, sem lærir
talnaraðir, sem byija á núll-
punkti, og halda þaðan fram og
til baka í tíma og rúmi að átta sig
á þessu. En hitt er ljóst, að kristin
talnaröð í tímatali hlýtur að vera
1-10, en ekki 0-9. Því eru alda-
mótin á nýju ári 2001.
SR. KOLBEINN ÞORLEIFSSON,
kirkjusagnfræðingur,
Ljósvallagötu 16, Reykjavík.
Til höfunda
„Þeim varð
aldeilis á í
messunni“
Frá Ólöfu Árnadóttur:
ÉG LAS bók ykkar og hafði gaman
af. Þó finnst mér að ykkur hafí aldeil-
is orðið á í „messunni" í sögu um sr.
Skúla Gíslason þegar hann jarðsöng
sr. Sigurð Thorarensen.
Rétt er sagt frá, að ekkjan Sigríður
Pálsdóttir gat ekki fylgt manni sínum
til grafar og spurði tengdasoninn hvað
hann hefði sagt yfir moldum hans.
Sömuleiðis er rétt, að sr. Skúli hefði
átt að segja, að allir hefðu verið honum
vondir, bæði skyldir og vandalausir.
En svari gömlu konunnar slepptuð
þið, en einmitt það gefur sögunni gildi:
„Ekki tek ég það til mín, þvi hvorki
var ég honum skyld né vandalaus."
Með kveðju,
ÓLÖF ÁRNADÓTTIR,
Fagurgerði 5, Selfossi.
„LADY’S ONLY"
á HóteC ÖrH
föstudagskvöldið 24. janúar
„Kántrý“ kennsla og skemmtun
Innifalið:
Gisting, morgunverður af hlaðborði,
þríréttaður kvöldverður, fordrykkur
og óvæntur glaðningur.
Glens oggaman langtfram á nótí
Verð kr. 3.950
Upplýsingar og bókanir á Hótel Örk, Hveragerði.
LYKIL
HÓTEL
Lykillinn að íslenskri gestrisni.
Hveragerði - sími 483 4700, bréfsími 483 4775.
ÁRBORGARÞORRI ‘97
Selfoss, Þorlákshöfn, Stokkseyri, Eyrarbakki, Hveragerði, Ölfus
og allir aðrir landsmenn.
hORRABLÓT
Á HÓTEL ÖRK
Laugardaginn 25. janúar.
SúrtoSsætt,pungArljlA^
Innan og utan, n/ðUr f fcy/ °s S*n,An svlð
°S blótum saman.
Veislustjori:
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir.
Heiðursgestur:
Sr. Heimir Steinsson.
Omar Ragnarsson, stórgrínari,
ertir hláturtaugarnar.
Skrípalæti frá Skara Skrípó.
Hljómsveitin Pass leikur fyrir dansi
til kl. 03.00.
Verð Kr. 2.900.
LYKIL
Einstaklingar, fyrirtæki
HÓTEL
Lykillinn að íslenskri gestrisni. Hveragerði - Sími 483 4700, bréfsími 483 4775
singar
síma 483 4700.
aítarskóli
** OLAFS GAUKS
Síðustu innritunardagar
Enn er hægt að komast að í sum námskeið. Innritað daglega kl. 14-17
í skólanum, Síðumúla 17, og í síma 588-3730. Skírteinaafhending
laugardaginn 25. jtuiúar kl. 14-17. Kennsla hefst 27. janúar.
Allhabo
hliðaronnandi
iðnaoarhurð
Kelley-RT/C
hraðopnandi
plastliurð
RAYNOR
KELLEY • ALLHABO
ojjna þér
nýjar leiðir
VERKVER
Smiðjuvegi 4B • Kópovogi
S 567 6620 • Fax 567 6627