Morgunblaðið - 22.01.1997, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997 41
IDAG
BRIDS
Umsjön Guömundur Páll
Arnarson
í SPILI 61 í úrslitaleik
Landsbréfa og Júlíusar
Sigurjónssonar um
Reykj avíkurmeistaratitil-
inn opnaði norður á fjórum
laufum á báðum borðum.
Það var meira en AV réðu
við:
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♦ 874
* -
♦ 54
♦ ÁK987652
Vestur Austur
♦ ÁG3 ♦ 109
♦ D10983 IIIIH V ÁKG652
♦ D963 1111,1 ♦ K7
♦ D ♦ 1043
Suður
♦ KD652
♦ 74
♦ ÁG1082
♦ G
í opna salnum sátu Jón
Baldursson og Sævar Þor-
björnsson í sveit Lands-
bréfa með spil AV gegn
Jakobi Kristinssyni og 01-
afí Lárussyni:
Vestur Norður Austur Suður
Sævar Jakob Jón ólafur
- • 4 lauf 4 hjörtu Pass
4 grönd Pass 5 hjörtu Pass
Pass Pass
Jón á ekki mikið fyrir
innákomu sinni á fjórða
þrepi, svo það er skiljan-
legt að Sævar þreifi fyrir
sér með slemmu. Hann
spyr um lykilspil (ása og
trompkóng), en fær aðeins
tvö og passar því fimm
hjörtu.
Útspilið var laufgosi
upp á kóng norðurs. Tíg-
ull til baka batt enda á
vonir varnarinnar. í reynd
drap Ólafur á ásinn og
spilaði aftur tígli í þeirri
von að Jakob gæti tromp-
að, svo Jón gat hent spaða
niður í fría tíguldrottn-
ingu. En spilið má samt
vinna þótt Olafur láti tíg-
ultíuna duga. Sagnhafi
trompar laufin tvö og tek-
ur öll hjörtun. Þegar hann
spilar síðasta trompinu
lendir suður í þvingun með
spaðahjón og ÁG í tígli.
Hann verður að kasta
tígli, en þá fer blindur nið-
ur á blankan spaðaás og
tvo tígla. Síðan er tígul-
kóng spilað og blindur fær
tvo síðastu slagina.
I lokaða salnum passaði
Júlíus Siguijónsson í aust-
ur við opnun Björns Ey-
steinssonar á fjórum lauf-
um. Hermann Lárusson
vemdardoblaði í fjórðu
hendi og þá stökk Júlíus í
sex hjörtu. Sem Sverrir
Ármannsson í suður dobl-
aði og spilaði út spaða-
kóng. Það útspil tryggði
vörninni strax jþrjá slagi.
14 stig til Landsbréfa.
Áster.
i2-28
... að veita henni
ÓSKIPTA athygli.
TM Reg. U.S. Pat. Off — all rights reserved
(c) 1996 Los Angeles Tlmes Syndlcete
ÁRA afmæli. Átt-
ræður er í dag, mið-
vikudaginn 22. janúar,
Guðmundur Jónsson, bif-
reiðastjóri, Þinghólsbraut
12, Kópavogi. Hann dvelur
nú á hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð, Kópavogs-
braut 1, Kópavogi.
ÁRA afmæli. Átt-
ræður er í dag, mið-
vikudaginn 22. janúar, Pét-
ur Sigurðsson, fyrrver-
andi forsljóri Hraðfrysti-
húss Breiðdæiinga hf.
Sæbergi 5, Breiðdalsvík.
Eiginkona hans er Berg-
þóra Sigurðardóttir. Þau
hjónin eru að heiman á af-
mælisdaginn.
ÁRA afmæli. í dag,
miðvikudaginn 22.
janúar, er sjötugur Guð-
mundur J. Guðmundsson,
fyrrverandi formaður
Dagsbrúnar, Fremri-
stekk 2, Reykjavík. Eigin-
kona hans er Elín Torfa-
dóttir. Þau hjónin taka á
móti gestum föstudaginn
24. janúar í Kiwanishúsinu,
Engj ateigi 11, Reykj avík
milli kl. 17 og 19.
ÁRA afmæli. í dag,
miðvikudaginn 22.
janúar, er fimmtugur Har-
aldur H. Jónsson, raf-
virki, Sævangi 38, Hafn-
arfirði. Hann og kona
hans, Guðrún Ingólfsdótt-
ir, taka á móti gestum í
Kiwanishúsinu, Engjateigi
11, Reykjavík, í dag, af-
mælisdaginn frá kl. 17 til
20.
Hlutavelta
ÞESSIR duglegu krakkar sem eru í 7. bekk EB í
Seljaskóla stóðu fyrir fjársöfnun á dögunum. Söfn-
uðu þau 3.600 krónum sem þau gáfu í hjálparsjóð
Rauða kross Islands.
skák
Umsjón Margcir
l’ílursson
STAÐAN kom upp í þriðju
umferð á Skákþingi Reykja-
víkur, sem nú stendur yfír.
Einar Hjalti Jensson
(2.225) var með hvítt, en
Siguijón Sigurbjömsson
(1.955) hafði svart og átti
leik. Síðasti leikur hvíts var
16. b2—b4?
16. — d3! (Hættulegra en
16. - Hxf3 17. Hxd6!) 17.
cxd3?? (Ekki 17. Dxd3? -
Hxf3! en skást var 17. De4!
- Hxf3 18. Hxd6! Þá er
staðan ekki fyllilega ljós) 17.
- Rd4! 18. De3 - Rxf3+
19. gxf3 - Dxh2+ 20. Kfl
- Dhl+ 21. Ke2 -
Dxal og með heilan hrók
yfir vann svartur örugg-
lega.
Fimmta umferð á mót-
inu fer fram í kvöld í
félagsheimili TR, Faxa-
feni 12. Staðan eftir fjór-
ar umferðir er þessi:
1.-3. Þröstur Þórhalls-
son, Bragi Þorfinnsson
og'Bergsteinn Einarsson
4 v. af 4 mögulegum.
4.-5. Björgvin Víg-
lundssson og Tómas
Björnsson 37« v.
6.-17. Sævar Bjarnason,
Sigurjón Sigurbjömsson,
Sverrir Norðfjörð, Páll Agn-
ar Þórarinsson, Sigurbjörn
Björnsson, Árni H. Krist-
jánsson, Jón Garðar Viðars-
son, Jón Viktor Gunnarsson,
Stefán Kristjánsson, Halldór
Pálsson, Frímann Sturluson
og Einar Hjalti Jensson 3 v.
Alla miðvikudaga fyrirkl 17.00.
STJÖRNUSPA
*
YATNSBERI
Afmælisbarn dagsins:
Þú vinnur vel með
öðrum og hefur áhuga
á þjóðmálum.
Hrútur [2\. mars - 19. apríl) í^íj^ Vinur getur tekið illa van- lugsuðum orðum þínum í dag, og þú ættir strax að oæta þar um og biðjast af- sökunar.
Naut (20. april - 20. maí) Þú vilt gjaman reyna eitt- hvað nýtt til að bæta afkom- una, en kynntu þér málið betur og hlustaðu á góð ráð starfsfélaga.
Tviburar (21.maí-20.júní) Æít1 Þig langar að skemmta þér í dag, en vilt fara ótroðnar sióðir, og breyta örlítið til. Þú ættir að ræða málið við ástvin.
Krabbi (21. júní - 22. júlí) HÍg Hlustaðu á það sem góður vinur hefur til málanna að leggja í dag, því hugmyndir hans eru góðar og henta ykkur vel.
Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þér gefast óvæntar frístundir í dag, sem þú ættir að nota til að betrumbæta heimilið með góðri aðstoð fjölskyld- unnar.
Meyja (23. ágúst - 22. september) Samningar um fiármálin ganga hægt, og geta leitt tii ágreinings milli vina. Reyndu að sýna þolinmæði og skiln- ing.
Vog (23. sept. - 22. október) Fyrirætlanir þínar varðandi vinnuna ná loks fram að ganga, og ættu að færa þér batnandi afkomu. Slakaðu á heima í kvöld.
Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) HlfS Sláðu ekki slöku við í vinn- unni í dag, og ljúktu skyldu- störfunum snemma. Þú eign- ast nýja vini í mannfagnaði kvöldsins.
Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) Ástvinur er eitthvað miður sín í dag og þarfnast um- hyggju þinnar. Þið ættuð að gera ykkur dagamun þegar kvöldar.
Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þótt þú komir ekki öllu í verk sem þú ætlaðir þér í dag, getur þú fagnað góðu gengi. Hvíldu þig svo heima með ástvini.
Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Starfsfélagi veitir þér óvænt- an stuðning í dag við lausn á áríðandi verkefni. Þið farið svo út saman þegar kvöldar.
Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Skemmtanir eru ofarlega á baugi, og þú sækir skemmti- stað, sem þú hefur ekki heimsótt áður. Kvöldið verð- ur ánægjulegt.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Til mikils að vinna!
j
i