Morgunblaðið - 16.03.1997, Side 1
96 SIÐUR B/C/D
63. TBL. 85. ÁRG.
SUNNUDAGUR 16. MARZ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
HUGAÐ AÐ FUGLUNUMINEPJUNNI
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ringnlreið í þriðju stærstu borg Zaire
Flugvöllurinn í
Kisangani fallinn
Kinshasa. Reuter.
UPPREISNARMENN lögðu í gær undir sig
alþjóðaflugvöllinn í Kisangani, þriðju stærstu
borg Zaire, eftir harðan bardaga í hálfan
sólarhring. Stjórnarhermenn rændu og rupl-
uðu í borginni áður en þeir lögðu á flótta,
að sögn stjórnarerindreka og starfsmanna
hjálparstofnana.
Kisangani er höfuðvígi stjórnarhersins í
gagnsókn hans gegn uppreisnarmönnum, sem
hafa náð stórum svæðum í austurhluta lands-
ins á sitt vald. Serbneskir málaliðar og banda-
menn hersins úr röðum rúandískra hútúa
hafa barist þar með stjórnarhermönnunum.
Ringulreið var í Kisangani og margir íbú-
anna, sem eru hálf milljón, söfnuðust saman
við Zaire-fljót í von um að komast í burtu á
bátum. Frönsk herflugvél Ienti á lítilli flug-
braut í borginni til að flytja 15 útlendinga á
brott.
Félli borgin yrði það mesti ósigur stjórnar-
hersins frá því uppreisnarmennirnir, sem eru
flestir tútsar, hófu sókn sína í austurhluta
landsins í október. Markmið þeirra er að
steypa Mobutu Sese Seko forseta, sem hefur
lengst af verið erlendis frá því í ágúst þegar
hann gekkst undir skurðaðgerð vegna krabba-
meins í blöðruhálskirtli.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna frestaði á
föstudag umræðu um ályktun þar sem skorað
er á uppreisnarmennina að fallast á vopna-
hlé. Ástæðan var sögð sú að miðað hefði í
samkomulagsátt í viðræðum við leiðtoga upp-
reisnarmannanna, Laurent Kabila, sem hefur
þó ekki Iéð máls á vopnahléi fyrr en samninga-
viðræður hefjist um framtíð Zaire.
Starfsmenn hjálparstofnana sögðu í gær
að margir rúandískir hútúar hefðu dáið af
völdum hungurs og sjúkdóma á flótta undan
uppreisnarmönnunum. Margir þeirra voru svo
máttfarnir að þeir urðu að skilja eftir börn sín
í frumskóginum.
Rúmlega 100.000 flóttamenn komust til
bæjarins Ubundu, sem er skammt frá Kisang-
ani, og erfiðlega hefur gengið að koma til
þeirra matvælum og lyfjum þar sem regntíma-
bilið er hafið.
Hvatt til
íhlutunar
í Albaníu
London, Tirana. Reuter.
CARL Bildt, sem stjórnar uppbyggingar-
starfinu í Bosníu, skoraði í gær á vestræn
ríki að senda hersveitir til Albaníu og binda
enda á upplausnina og stjórnleysið í landinu.
„Takmörkuð hemaðaríhlutun virðist
nauðsynleg til að sýna að Evrópuríkin séu
staðráðin í að taka á hættum í öryggismál-
um og greiða fyrir nauðsynlegu hjálpar-
starfi og kosningum," sagði Bildt. „Þar með
yrðu einnig send þau skilaboð til annarra
svæða í Evrópu að ríkin myndu bregðast
af meiri ákveðni við atburðum sem stofna
friði í hættu en í upphafi átakanna í Júgó-
slavíu.“ Þýska stjórnin kvaðst ekki ætla að
senda hermenn til Albaníu og hafa „miklar
efasemdir“ um að íhlutun væri ráðleg.
Nokkuð dró úr ólgunni í Tirana í gær-
morgun og bandarískar herþyrlur héldu
áfram að flytja þaðan bandaríska borgara.
Flutningunum var hætt á föstudag vegna
árása á þyrlurnar og Vesturlandabúa á leið
úr borginni.
Svíar í Noregi
fá áfallahjálp
SÆNSKIR nýbúar i Noregi geta nú
fengið áfallahjálp vegna „menningar-
áfallsins" sem þeir verða fyrir meðal
Norðmanna. Sænski hjúkrunarfræð-
ingurinn Ove Tangenhoff hefur birt
auglýsingar í norskum blöðum þar
sem hann býður Svíum upp á viðtals-
tíma til að hjálpa þeim að fá útrás
fyrir gremju sína í garð Norðmanna
og laga sig að norska samfélaginu.
Tangenhoff segir í viðtali við Aften-
posten að skýr menningarlegur munur
sé á frændþjóðunum tveimur og hann
byggir þá skoðun sína á eigin reynslu
og samtölum við Svía sem búa í Nor-
egi. Hann telur Svía mun agaðri og
að allt sé miklu lausara í reipunum
hjá Norðmönnum.
„Norðmenn fá sér ekki heitan mat
í morgunverð. Brauðsneið með mysu-
osti nægir ekki, þeir verða þess vegna
þreyttir og gleymnir þegar líður á
daginn," segir hann. „Svíar lifa til að
vinna, en Norðmenn vinna til að lifa.
Svíar eru metnir eftir því hversu fljót-
virkir, nákvæmir og samviskusamir
þeir eru í vinnunni. Norðmenn eru
notalegir í umgengni og taka vinnuna
ekki eins alvarlega. Þeir yppta aðeins
öxlum þegar þeir ljúka ekki verkinu
á réttum tíma. Svíar geta fyllst ör-
væntingu vegna slíkra hluta.“
Tangenhoff kveðst leggja áherslu á
að Svíar í Noregi læri „að taka lífinu
létt, eins og Norðmenn, en haldi samt
samviskuseminni og heita morgun-
verðinum".
Yarað við óflysj-
uðum eplum
BRESKA stjórnin hefur ráðlagt for-
eldrum að þvo og afhýða ávexti áður
en þeir eru borðaðir eftir að rannsókn
leiddi í Ijós að epli og ferskjur eru
stundum með allt að fjórum sinnum
meira af skordýraeitri en reglur um
hollustuvernd kveða á um. Stjórnin
lagði þó áherslu á að ekki væri ástæða
til að forðast ávexti þar sem leifarnar
af skordýraeitrinu væru í flestum til-
vikum langt undir hættumörkum.
„Hins vegar reyndist lítill hluti epla
og ferskna, meðal annars innfluttra,
vera með meira af leifunum en æski-
legt er.“
Þetta vandamál bætist við kúariðu-
fárið og ótta margra Breta við að
snæða tilbúna kjötrétti vegna frétta
um banvænar matareitranir. Viðhorfs-
kannanir benda til þess að margir Bret-
ar tortryggi yfirlýsingar stjórnarinnar
í þessum efnum og viðvörunin vegna
ávaxtanna þykir ekki likleg til að bæta
ímynd hennar meðal neytenda.
BREYTTUM 22
LIFIÐ
ER
MÉR
GOTT
NÚNA
JEPPUM
SUÐURSKAUTSLANDIÐ
18