Morgunblaðið - 16.03.1997, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. MARZ 1997 21
LISTIR
Morgunblaðið/ Golli
LÍFSPRJÓNIÐ - núna.
Dröfn
í Galleríi
Listakoti
DRÖFN Guðmundsdóttir hef-
ur opnað sýningu í Listakoti,
sem fjallar um minni úr
bernskunni og heitir „af mæli“.
Dröfn útskrifaðist úr Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
1993 og hefur haldið nokkrar
einkasýningar og tekið þátt í
samsýningum síðan. Hún er
þátttakandi í Galleríi Listakoti
ásamt 12 öðrum listakonum.
í Vesturheimi
í VESTURHEIMI er yfírskrift síð-
í tónleikaröð vetrar-
ins sem haldnir verða í Listasafni
íslands mánudaginn 17. mars kl.
20.30. Á efnisskránni eru fimm
verk sem samin eru í Bandaríkjun-
um þar af eru þrjú eftir bandarísk
tónskáld, þá Aaron Copland, Mich-
ael Torke og John Adams og tvö
verk eftir aðflutt tónskáld; Rúss-
ann Igor Stravinsky og íslending-
inn Árna Egilsson.
Fyrst á efnisskránni er Quiet
City eftir Aaron Copland. Copland
samdi verkið árið 1939. Yellow
pages eftir Michael Torke er næst
á efnisskránni, en Torke er fædd-
ur árið 1961 og hefur m.a. getið
sér gott orð sem höfundur ballett-
tónlistar. John Adams er af sömu
kynslóð en eftir hann flytur
kammersveitin Shaker Loops fyr-
ir 7 strengjaleikara. Árni Egilsson
hefur mestalla starfsævi sína búið
í Bandaríkjunum. Verkið sem
flutt verður á tónleikum Kammer-
sveitarinnar heitir Is it? og er
skrifað fyrir strengjakvartett.
Síðasta og jafnframt elsta verkið
á efnisskránni er Dumbarton
Oaks eftir Stravinsky en það var
frumflutt í maí 1938. Verkið
skrifaði Stravinsky undir áhrifum
frá Brandenborgarkonsertum
Bachs.
Á tónleikum Kammersveitar-
innar næstkomandi mánudags-
kvöld leikur 21 hlóðfæraleikari en
stjórnandi er Bernharður Wilkin-
son.
Líf og list Sauð-
árkróksmálara
AÐALSTEINN Ingólfsson listfræð-
ingur flytur erindi um Sauðárkróks-
málarana sunnudagskvöldið 16.
mars kl. 20.30 í Safnahúsinu á Sauð-
árkróki.
í erindi sínu mun Aðalsteinn fjalla
um ýmsa þekkta listmálara frá
Króknum, má þar nefna Jón Stefáns-
son, Sigurð Sigurðsson, Hrólf Sig-
urðsson, Jóhannes Geir Jónsson og
Elías B. Halldórsson. Eiga þeir eitt-
hvað sameiginlegt, er eitthvað sem
einkennir þá og eru þeir tengdir
Króknum og Skagafirði á einhvern
hátt í sköpun sinni er meðal þeirra
spurninga sem Aðalsteinn mun leit-
ast við að svara.
Saga
götunnar
GUÐRÚN Bene-
dikta Elíasdóttir
hefur opnað mál-
verkasýningu
sem ber yfir-
skriftina Lífið í
götunni í Listhúsi
39 við Strandgötu
í Hafnarfirði.
Göturnar sem
við göngum eru
margvíslegar og
við gefum þeim
ekki alltaf gaum. „Saga götunnar
endurspeglast í landslagi hennar,
srpungnum steinum sem máðst hafa
og markast af lífínu í götunni gegnum
tíðina. Þetta er það landslag sem
stendur okkur borgarbörnunum
næst,“ segir í kynningu.
Þetta er fyrsta einkasýning Guð-
rúnar Benediktu en hún útskrifaðjst
úr Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands 1987. Guðrún hefur starfað
við myndlistarkennslu, hönnun og
uppsetningu á ýmiskonar sýningum
og útstillingum. En í október 1995
opnaði hún ásamt þremur öðrum
listakonum Vinnustofu og listmuna-
galleríið Skruggustein og hefur
starfað þar síðan.
Sýningin stendur til 7. apríl.
Leikhústónlist í
Listaklúbbnum
NEMENDAÓPERA Söngskólans í
Reykjavík hefur verið með tvö tón-
iistarkvöld í Leikhúskjallaranum í
mars, annarsvegar Leðurblökuna
eftir Johann Strauss, hinsvegar tón-
list úr leikritum og söngleikjum.
Uppselt var á bæði tónlistarkvöldin.
Nk. mánudagskvöld 17. mars,
mun Nemendaóperan flytja valda
kafla úr báðum efnisskránum á veg-
um Listaklúbbs Leikhúskjallarans.
Húsið er opið frá kl. 20 en dagskrá-
in þefst kl. 21.
í erlenda hlutanum verður flutt
syrpa úr ameríska söngleiknum
Carousel og loks er lagasyrpa úr
söngleiknum Show Boat eftir Jerome
Kern og Oscar Hammerstein II.
26 nemendur í óperudeild koma
fram á tónleikunum. Sögumaður er
Helga Kolbeinsdóttir, píanóleikarar
Iwona Jagla og Magnús Ingimarsson
og stjórnandi Garðar Cortes.
Guðrún
Benedikta
Elíasdóttir
/■Crr
Vertu fijáls feröa þinna á bílaleigubíl.
Sumarleyfisferö um fegurstu slóðir Evrópu
er ævintýii sem gefurþér ogfjölskyldumii
ógleymanlegar stundir.
- heimsækið vini og vandamenn
1. nmí - IS.júní
8.000kr. afslátturf. fullorðna
4.000kr. afsláttur f. böm
'29.585 krJ
á mann m.v. 4 íbfl, 2 Morðna og 2 böm (2 -11 ára).
39.870kr* á mann m.v. 2 Moröna íbfl.
Oghalið íhuga:
Við bjóðum frábæra sumarleyflsdvöl í sumarhúsahverfum
í Lalandia á Lálandi og Marielyst á Falstri.
(Sji nánarferðabæklinginn Út í heim 97.)
1.1 i
-jrábærtverð - á eigin vegum umfegurstu hénið Þýsialands -
wwwmir íaprílognmí q n o n 1
8.000kr.aMátturf.fu]lorðiia Zo.jZjM.
4.000kr. aMáttur f. böm
VORTILBOÐ
á mann m.v. 4 í bfl, 2 Moröna og 2 böm (2 -11 ára)
36.910kr* á mann m.v. 2 fulloröna í bfl.
ItgQcr'bíJIíLLJZEMBORG
ðskaleiðlrtilallra átta-
" 27.815 kr.*
á mann m.v. 4 í bfl, 2 fuliorðna ug 2 böm (2 * Uára).
36.700 kr* .1 mann m.v. 2 fullorðiw í lifl.
Kynniö ykkur ferðamöguleikana í nýja bæklingnum okkar,
Flugogblll 97.
Liggur frammi á öllum söluskrifstofum og ferðaskrifstofum.
Og hafiö í huga:
Við bjóðum frábæra sumarleyfisdvöl
í sumarhúsahverfinu
Hunsruck - Ferienpark Hambachtal,
skammt fráTrier.
(Sjá nánarferðabæklinginn Út í Iteim 97.)
Hafið saiiiband viðsöhiskrifstofnrFliigleiða, umboösmenn,
fcrðaskrifstofumar cða símsöludeild Ftuglciöa í síma SOSO100
(svarað niátiud. ■ föstud. kl. 8-19ogá laugard. kl. 8-16.)
VefiirFlugleiðaálntenietinu: www.icelandair.is
NetfangfyriralmennarupplýsiiigagÍiifo@iceIandair.is
' Innifalið: Flug og bfll í B-flokki í 1 viku frá 1. aprfl til 10. sept. og tlugvallarskattar.
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferðafélagi