Morgunblaðið - 16.03.1997, Qupperneq 22
22 SUNNUDAGUR 16. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Tveir íslenskir ökumenn eru að undirbúa för með tvo breytta Toyota-jeppa frá Arctic Trucks á
Suðurskautslandið í haust. Bílamir verða í þjónustu Sænsku pólstofnunarinnar og notaðir við hinar
------------ — ——— ■ ■
erfíðustu aðstæðutóLiiutninga og vísindarannsókna. Guðni Einarsson ræddi við Loft Asgeirsson
)g ökumennina Frey Jónsson og Jón Svanþórsson um þessa ævintýraferð.
hjá Arctic T
FORSAGA þess að ís-
lenskir fjallajeppar
leggja á slóðir mörgæsa er
orðin löng. Jón Svanþórs-
son, rannsóknarlögreglu-
maður, las árið 1987 grein
eftir íslandsvininn sir Peter
Scott um Suðurskauts-
landið í tímaritinu Nati-
onal Geographic. Þess má
geta að sir Peter var son-
ur pólfarans Roberts F.
Scott sem komst á pólinn,
næst á eftir Amundsen,
en sneri ekki aftur úr
þeirri ferð.
„Ég las þessa grein
og bilaðist," segir Jón
su
rannsóknarstöðvanna Wasa og Svea
á Dronning Maud landi. Meðal ann-
ars munu leiðangursmenn stunda
ýmsar jöklarannsóknir og þykktar-
mælingar í þriggja vikna ferð um
hásléttu Suðurskautslandsins.
Sænska pólstofnunin kostar dvöl ís-
lendinganna á Suðurskautslandinu.
Jeppar frá Arctic Trucks
„Jón kom til okkar fyrir tveimur
árum og spurði hvort við hefðum
áhuga á því að fara með breytta bíla
til Suðurskautslandsins," sagði Loft-
ur Ágústsson, deildarstjóri auka-
hlutadeildar Toyota. Þeir hjá P.
Samúelssyni veltu þessari hugmynd
fyrir sér og ákváðu síðan að slá til.
KAUTSLANDHI
og hlær. Hann varð
hugfanginn af
eyðilandinu _ í há-
suður frá íslandi,
sökkti sér í bækur,
las um landkönnuði
og pólfara, keypti
sér kort og gleypti
í sig allt sem hann
komst yfír um Suð-
urskautslandið.
Fljótlega vakn-
aði sá ásetningur
að komast á þessar
fjarlægu slóðir.
„Þegar ég talaði
um það við menn
þá horfðu þeir á
mig eins og ég væri
bilaður. Ég bölvaði
því oft að vera
fæddur á vitlausri
öld; að fá ekki að
taka þátt í ferðum
landkönnuðanna,"
segir Jón. Á tíma-
bili var hann búinn
að telja nokkra fé-
laga inn á að fara
með sér þama suð-
ureftir. Þeir hættu
við einn af öðrum,
enda breytast að-
stæður manna á
löngum tíma.
Morgunblaðið/Kristinn
LEIÐANGURSMENNIRNIR Freyr Jónsson og Jón Svanþórsson við annan Toyota-jeppann sem þeir fara með á Suður-
skautslandið. Stefnt er að því að breyta báðum jeppunum fyrir vorið svo hægt sé að þrautreyna þá fyrir leiðangurinn
í haust. Jepparnir, sem Arctic Tours leggur til fararinnar, verða settir á 44“ dekk, búnir skriðgír, og breytt samkvæmt
reynslu íslenskra fjallamanna undanfarin 20 ár.
ísienskt hugvit
tll ferðalaga
Á Suðurskauts-
landinu er hvorki
vegakerfi né hafnir
og ferðalög erfið.
Vísindamenn sem
starfa á Suður-
skautslandinu hafa helst notast við
snjóbíla til þungaflutninga. Snjóbíl-
amir eru dýrir, hægfara og eyðslu-
frekir en örugg farartæki. Eins eru
vélsleðar mikið notaðir en gallinn við
þá er að þeir flytja ekki mikið, eyða
miklu og veita ekkert skjól gegn
óveðrum. Jón sá í hendi sér að fjalla-
jeppar, breyttir að hætti íslenskra
jeppakarla, gætu hentað vel til ferða-
laga um Suðurskautslandið. Jeppam-
ir kosta ekki nema brot af verði snjó-
bíls. beir eru hagkvæmir í rekstri og
eyða minna eldsneyti miðað við burð-
ar- og dráttargetu en nokkurt farar-
tæki sem nú er notað á Suðurskauts-
landinu.
Jón komst í samband við sænska
vísindamenn hjá Sænsku pólstofnun-
inni (SWEDARP) en Svíar hafa
stundað margþættar rannsóknir á
Suðurskautslandinu um árabil. Hann
bar hugmyndina um íslensku jeppana
undir Svíana og var henni strax tek-
ið vinsamlega. Framkvæmdastjóri
stofnunarinnar, Olie Melander, og
samstarfsmaður hans, Ulf Hedman,
komu hingað 1994. Þeir fóru í jeppa-
leiðangra þar sem reyndi á hæfni
bílanna í snjóakstri. Svíarnir sann-
færðust um ágæti íslensku jeppanna
og töldu vel raunhæft að nota þá á
Suðurskautslandinu.
Eftir langan undirbúning hefur
verið ákveðið að þeir Jón Svanþórs-
son og Freyr Jónsson taki þátt í
þriggja mánaða löngum leiðangri
SWEDARP á Suðurskautslandið
næsta vetur. Farið verður til sænsku
Þar vó þungt að á sama tíma fór
mjög vaxandi áhugi útlendinga á
þeirri tækni sem hér hefur verið þró-
uð til aksturs í snjó. Margar fyrir-
spumir bárust að utan og breyttir
bílar voru seldir til Noregs, Þýska-
lands og Grænlands. Ferð á Suður-
skautslandið var kjörin til að beina
athygli enn fleiri að íslensku jeppun-
um.
Þátttaka P. Samúelssonar í leið-
angrinum verður í nafni dótturfyrir-
tækisins Arctic Trucks, sem vinnur
að markaðssetningu breyttra jeppa
erlendis. Fyrirtækið mun leggja fram
tvo nýja og breytta Toyota Landcru-
iser jeppa af stærri gerðinni. Leitað
verður styrktaraðila vegna ýmislegs
annars búnaðar sem þarf til fararinn-
ar, fatnaðar, myndavéla, ferðakostn-
aðar og fleira.
Jeppunum verður breytt hjá auka-
hlutadeild P. Samúelssonar í Kópa-
vogi og stjómar Freyr Jónsson
tæknifræðingur því verki. Freyr er
mjög reyndur jeppamaður, á að baki
marga kílómetra í snjó og á jöklum,
hefur verið ökumaður í leiðöngrum
Jöklarannsóknafélagsins og unnið
við jeppabreytingar hjá Toyota í
mörg ár. Freyr verður ökumaður
annars jeppans á Suðurskautsland-
inu og mun viðhald bílanna einnig
vera að miklu leyti á hans herðum.
Jón Svanþórsson mun aka hinum
bílnum.
Áætlað er að ljúka breytingum á
fyrri bílnum nú fyrir páskana. Þá
hefst reynsluakstur og endurbætur
ef þörf er á. Bílarnir verða með
ýmsum sérbúnaði, umfram það sem
þarf hér á landi, til dæmis spmngu-
grindum, sérstökum hitunarbúnaði
vegna kuldans, 220V rafli vegna
tölva og annarra tækja sem verða í
bílunum.
Þrlggja mánaða lelðangur
Bílamir fara í skip í október í
haust og eiga að verða komnir til
Höfðaborgar í Suður-Afríku hinn 24.
nóvember. Þar safnast leiðangurs-
menn saman víða að úr heiminum.
Öllum búnaði verður skipað um borð
í ísbijót sem flytur leiðangurinn að
ísrcndinni við Suðurskautslandið.
Siglingin frá Suður-Afríku tekur
um hálfan mánuð, enda er sjóleiðin
álíka og frá íslandi til Norfoik í
Bandaríkjunum. Jón segir að ef leið-
angursmenn verði heppnir þá geti
þeir lagst upp að röndinni á Riiser-
Larsen íshellunni um 150 kílómetra
frá meginlandinu, Dronning Maud
landi, hinn 20. desember næstkom-
andi. Áætlaður lendingarstaður er
beint suður af Ingólfshöfða. Annars
verði að leggjast upp að lagnaðarísn-
um, sem þó ætti að hafa brotnað frá
því þetta verður um hásumar á Suð-
urskautslandinu.
í fyrsta áfanga verður ekið eftir
stikaðri leið yflr ísinn að sænsku
bækistöðinni Wasa sem er í 300
metra hæð yfír sjávarmáli, við tinda
(nunatak) sem standa upp úr íshell-
unni á meginlandinu. Rétt hjá henni
er fínnska rannsóknarstöðin Aboa.
Frá Wasa liggur leiðin 200 kíló-
metra inn í landið að Svea rannsókn-
arstöðinni sem er við Heimafrontfjel-
len við brún hásléttunnar. Frá Svea-
stöðinni verður ekið inn á snævi-
þakta hásléttuna og farið allt upp í
um 3.000 metra hæð á jöklinum.
Áfangastaður leiðangursmanna er
77°S og 0°V. Dvaiið verður á há-
sléttunni í tvær vikur við rannsókn-
ir. Áætlað er að eknir verði 3-5
þúsund kílómetrar þar til aftur verð-
ur komið til Wasa bækistöðvarinnar.
í jeppunum verða íssjár, líkar þeim
sem notaðar hafa verið á Vatna-
jökli, og á að nota þær til að mæla
þykkt jökulhellunnar. I bílunum verð-
ur einnig tölvubúnaður af ýmsu tagi
og gera bílarnir vísindamönnunum
kieift að vinna að ýmissi úrvinnslu
gagna úti á ísnum. Þá er ætlunin
að láta bílana draga vistarverur leið-
angursmanna.
vid hjálpum-------------
MEÐ ÞINNI
hjálp
Þ ú getur tekið þátt í að viðhalda lífsvon karla,
kvenna og barna í neyð með því að hringja
í síma 562 6722 og gerast styrktarfélagi
Hjálparsjóðs Rauða kross íslands.
Framlög þín renna óskipt til hjálparstarfs
Rauða kross íslands erlendis.
Fú færð reglulega upplýsingar um
hvernig við verjum fénu.
Þú ákveður hve mikið, hve oít og hvenær þú greiðir.
+
RAUÐI KROSS ISLANDS
A plús, auglýsingastofa ehi