Morgunblaðið - 16.03.1997, Side 34
34 SUNNUDAGUR 16. MARZ 1997
MINIMIIMGAR
MORGUNBLAÐIÐ
JÓNÍNA
A UÐ UNSDÓTTIR
+ Jónína Auðuns-
dóttir fæddist í
Nikulásarhúsum í
Fljótshlíð 14. ágúst
1945. Hún lést á
Landspítalanum 9.
mars síðastliðinn.
Hún var dóttir
hjónanna Soffíu
Gísladóttur, hús-
móður, og Auðuns
Pálssonar, bónda
þar og að Bakka í
Ólfusi, og síðar
verkamanns á Sel-
fossi. Soffía fædd-
ist 25. september
1907, dóttir hjónanna Gísla
Gestssonar og Guðrúnar
Magnúsdóttur í Suður-Nýjabæ
í Þykkvabæ. Hún lifir dóttur
sína og býr nú á Elliheimilinu
Grund í Reykjavik. Auðunn var
fæddur 10. maí 1908. Hann
lést af slysförum 18. janúar
1966. Foreldrar hans voru
hjónin Sigriður Guðmunds-
dóttir og Páll Auðunsson frá
Nikulásarhúsum í Fljótshlíð.
Jónína var sjöunda í röðinni
af átta systkinum. Þau eru í
aldursröð: Páll, f. 12. október
1934, kvæntur Önnu Margréti
Þorláksdóttur, f. 3. mai 1938;
Gísli Gunnar, f. 5.
janúar 1937, kvænt-
ur Katrínu Ey-
mundsdóttur, f. 23.
apríl 1942; Sigríður,
f. 20. apríl 1939, gift
Birgi Halldórssyni,
21. september
d. 26. ágúst
1996; Guðmunda
Auður, f. 21. júní
1940, gift Hermanni
Ágúst, f. 9. ágúst
1933; Kristin, f. 3.
nóvember 1942, gift
Hafsteini Hjaltasyni,
f. 26. nóvember 1942;
Þuríður Guðmunda, f. 12. nóv-
ember 1943, d. 10. maí 1944;
Ólafur, f. 11. júní 1947, giftur
Sigríði Kristínu Jónsdóttur, f.
3. mars 1948.
Jónína giftist eftirlifandi
manni sínum, Gunnbirni Guð-
mundssyni, f. 23. febrúar 1944,
prentara í Prentsmiðjunni Odda,
hinn 27. desember 1975. Gunn-
björn er sonur hjónanna Guð-
mundar Kr. Guðmundssonar, f.
15. ágúst 1897, d. 12. janúar
1961, skipstjóra á ísafirði, og
Sigurjónu Jónasdóttur, f. 14.
janúar 1903, d. 9. september
1954, húsmóður. Börn Jóninu og
Gunnbjörns eru Stefán Kristján,
f. 3. júlí 1976, stúdent, og Eva
Guðrún, f. 17. október 1979,
nemi. Dóttir Jónínu og Sævars
Larsen er Kolbrún Sævarsdótt-
ir, f. 7. ágúst 1964, lögfræðing-
ur, nú við framhaldsnám í Kaup-
mannahöfn. Dóttir Gunnbjörns
og Ernu Eiríksdóttur er Áshild-
ur Bragadóttir stjórnmálafræð-
ingur.
Jónína og Gunnbjörn bjuggu
fyrstu hjúskaparárin i Breið-
holtinu, en keyptu raðhús í Graf-
arvoginum 1988 og hafa búið
þar síðan.
Jónína ólst upp í foreldrahús-
um að Bakka í Olfusi og síðar á
Selfossi. Hún lauk gagnfræða-
prófi frá Gagnfræðaskóla aust-
urbæjar 1962. Starfaði næstu
árin hjá Mjólkurbúi Flóamanna,
en hóf störf hjá pósthúsinu á
Selfossi 1965. Flutti til Reykja-
víkur 1972 og starfaði fyrst á
aðalpósthúsinu í Austurstræti.
Lauk námi í Póstmannaskólan-
um og gerðist útibússtjóri á
pósthúsinu i Breiðholti 1974. Lét
af því starfi 1976, þegar fjöl-
skyldan stækkaði, en var í hálfu
starfi á pósthúsinu til 1988. Hóf
þá störf sem skrifstofumaður
þjá Sjóvá-Almennum trygging-
um og starfaði þar til dauða-
dags.
Jónína verður jarðsungin frá
Grensáskirkju mánudaginn 17.
mars og hefst athöfnin klukkan
13.30.
Jónína heitin hóf störf hjá Al-
mennum tryggingum hf., síðar
Sjóvá-Almennum, við fjármálaþjón-
ustu um mitt ár 1988 og þá fyrst
sem gjaldkeri. Okkur samstarfs-
mönnum hennar varð fljótlega ljóst
að hér fór ákveðin og greind kona,
sem stóð fyrir sínu. En skjótt skip-
ast veður í lofti. Um haustið veikist
Jónína af því meini sem nú hefur
borið hana ofurliði, þrátt fyrir ótrú-
legan baráttuvilja hennar og löngun
til þess að fá að vera lengur með
fjölskyldu sinni og vinum. Eftir
stendur hún í hugum okkar, sem
fylgdumst með hetjulegri baráttu
hennar í öll þessi ár, sem hetja,
hetja hversdagsleikans sem lét aldr-
ei bugast. Hin síðari ár varð hún
að minnka við sig vinnu, því úthald-
ið fór þverrandi. Flesta daga mætti
hún þó til vinnu og vann sín verk-
efni hljóðlega og samviskusamlega
þótt þjáð væri. Mér finnst órúlegt
að ekki skuli vera nema fjórar vikur
síðan hún stóð með okkur í vikulega
fimmtudagskaffinu, róleg og yfir-
veguð. En svona er lífið, því fær
enginn breytt upp á sitt einsdæmi
þótt viljinn sé sterkur. Fyrir hönd
Sjóvá-Almennra trygginga hf. votta
ég ættingjum og vinum innilega
samúð vegna fráfalls Jónínu Auð-
unsdóttur. Við lærðum mikið af
návist hennar.
Sigurður Sigurkarlsson.
Mig Iangar að kveðja hana Jón-
ínu mágkonu mína með nokkrum
orðum. Hún var úr stórri barnafjöl-
skyldu eins og ég, reyndar sami
barnafjöldi eða átta systkini. Hún
var yngst þeirra og sú sem fer
fyrst. Eg held að við höfum líka
verið nokkuð líkt aldar upp, þar
sem áhersla var lögð á heiðarleika,
samviskusemi og það að standa
undir sjálfum sér. Hún var mikil
fjölskyldumanneskja og ræktaði
garðinn sinn við vini og ættingja.
Hún féll ótrúlega vel inn í okkar
skapstóru fjölskyldu og sýndi okk-
ur mikla ræktarsemi enda lærði
hún listina að taka fólk eins og
það er.
Hún var sjálf afskaplega dag-
farsprúð, og hæglát að eðlisfari en
heilsteyptur persónuleiki. Hún stóð
föst á sínu ef henni fannst það
réttlætismál en sýndi líka skilning
á skoðunum annarra. Hún gat líka
komið manni á óvart og verið hrók-
ur alls fagnaðar áður en veikindin
komu upp og lumaði þá gjarnan á
góðum brandara í góðra vina hópi.
Já, fjölskyldan í Funafold 20
hefur misst mikið eða hvaða rétt-
læti er í því að þurfa að sjá á eft-
ir eiginkonu og móður 1 blóma lífs-
ins? Því getur enginn svarað. Hún
veiktist af krabbameini fyrst 1988
þannig að baráttan var löng og
ströng. Það var mikið áfall fyrir
fjölskyldurnar þegar þetta gerðist
en allir vonuðu þá að hún kæmist
yfir þetta og sjálf var hún bjart-
sýn. Seinna tók það sig upp og
ágerðist eftir því sem lengra leið.
Hún var sannkölluð hetja í þessari
baráttu, hennar vopn var trúin sem
var óbifanleg. Þegar krabbameinið
tók sig upp í seinna skiptið hringdi
hún í mig og sagði mér frá því.
Samtalið endaði á því að hún hug-
hreysti mig frekar en öfugt. En
mér er alltaf minnisstætt að hún
sagði: „Helga mín, það eina sem
ég bið ykkur um er að biðja fyrir
mér,“ og það held ég að allir henn-
ar nánustu hafi gert.
Það sá ekki mikið á henni í þess-
um veikindum og oft viidi maður
bara loka á og hugsa, kannske það
sé ekki eins slæmt og maður held-
ur. En það var bara vegna þess
hve vel hún bar sig og leit eigin-
lega of vel út til þess að maður
tryði því hve veik hún var. En ekki
dettur mér annað í hug en að hún
hafi átt sínar erfiðu stundir og
vakað í angist yfir því að yfirgefa
börnin sín sem voru henni svo
kær. Elsku Kolbrún, Stefán og
Eva, ég veit að allt það góða, sem
hún mamma ykkar kenndi ykkur,
á eftir að skila sér í ykkar verkum.
Heimili hennar og Gunnbjöms
er gott heimili, þar sem allt er í röð
og reglu, þar var ekki kastað til
höndum því hvort sem það var
heimilið eða vinnustaðumn var
reglusemi og snyrtimennska í fyrir-
rúmi. Hún þurfti ekki að lengi að
liggja á sjúkrahúsi í lokin, það varð
bara rúmlega vika. Hann bróðir
minn hefur staðið sig eins og hetja
í þessum miklu veikindum og staðið
eins og klettur síðustu vikuna.
Elskulegi bróðir minn, Kolbrún,
Stefán, og Eva, kæra Soffía og
systkini ég og fjölskylda mín vottum
ykkur okkar dýpstu samúð.
Megi góður guð fylgja hugrakkri
mágkonu minni á ókunnum vegum.
Við sjáum, að dýrð á djúpið slær,
þó degi sé tekið að halla
það er eins og festingin færist nær
og faðmi jörðina alla
Svo djúp er þögnin við þína sæng,
að þar heyrast englar tala,
og einn þeirra blakar bleikum væng,
svo bijóstið þitt fái svala.
Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt,
svo blaktir síðasti loginn.
En svo kemur dagur og sumamótt
og svanur á bláann voginn.
(Davið Stefánsson.)
Helga og fjölskylda.
Þegar ég horfi yfir farinn veg til
að minnast góðrar mágkonu er mér
efst í huga hve alltaf var bjart yfir
henni. Það er svo ótrúlega mikil birta
yfir minningunum um Jónínu þrátt
fyrir að síðustu átta ár lifði hún við
ógn krabbameinsins. Fæstir gera sér
grein fyrir hve gífurlegt álag það
er bæði fyrir þann sem í hlut á en
líka fyrir makann og bömin.
Ég kynntist henni þegar hún og
Gunnbjöm bróðir fóru að vera sam-
an en þau giftu sig 27. desember
1975. Jónína var falleg stúlka, há
og grannvaxin, Ijóshærð og bar sig
vel. Hún var ákaflega aðlaðandi og
var óspör á sitt breiða glaða bros.
Það var samdóma álit okkar systk-
inanna að það hefði verið mikil
gæfa fyrir bróður okkar að eignast
Jónínu að lífsförunaut. Gunnbjörn
var langyngstur átta systkina, sem
á þessum tíma höfðu verið gift
lengi, búin að eignast börn og jafn-
vel bamaböm en Jónína var fljót
að gera þessa stóru fjölskyldu hans
að sinni. Hún var alveg sérstaklega
ræktarsöm að eðlisfari og var dug-
leg að halda sambandi við þá sem
henni var annt um. Það gerði hún
bæði á ljúfan og hlýjan hátt.
Milli okkar Jónínu þróaðist vin-
átta og trúnaður sem er mér mikils
virði á þessari erfíðu kveðjustund.
Stefán, eldra barn þeirra Gunn-
bjöms sem nú stendur á tvítugu,
er jafnaldri yngri sonar míns og það
tengdi okkur strax sterkum böndum
að fylgjast að með strákana sem
urðu góðir vinir þegar árin liðu.
Jónína átti fyrir dótturina Kolbrúnu
og seinna eignuðust þau Evu sem
nú er 17 ára gömul.
Jónína og Gunnbjörn voru mjög
samhent. Hún vann fyrstu hjúskap-
arárin hjá Póstinum en síðustu árin
vann hún hjá Sjóvá-Almennum. Þau
keyptu sér fyrst litla íbúð í Dverga-
bakka, fluttu sig um set yfir í Eyja-
bakka þegar fjölskyldan stækkaði
og byggðu loks raðhús að Funafold
20. Þar bjuggu þau sér fallegt heim-
ili sem átti að vera rammi um dug-
mikla fjölskyldu sem setti sér mark-
mið og vann að því með eljusemi
og dugnaði. En þau höfðu aðeins
búið rúmt ár í Funafoldinni þegar
ógæfan dundi yfir.
Að greinast með krabbamein í
blóma lífsins er reiðarslag. Við fjöl-
skyldan hennar höfum fylgst með
því hvernig hún hefur barist við
sjúkdóminn, farið í hveija meðferð-
ina á fætur annarri án þess að
bugast og án þess að verða beisk
í lund. Þvert á móti var Jónína sú
sem alltaf fylgdist með hvemig
öðrum leið, sýndi samúð og samhug
ef eitthvað bjátaði á hjá öðmm og
var tilbúin að leggja lið. Hún hefur
sýnt ótrúlegan sálarstyrk í veikind-
unum og öll þessi ár hefur hún
full trúnaðartrausts tekist á við
sjúkdóminn og haft betur í glím-
unni við hann hveiju sinni. Þess
vegna vomm við öll svo óviðbúin í
þetta sinn. Síðasta áfallið kom fyrir-
varalaust og reyndist stærra en svo
að hún treysti sér í ormstuna. Við
vomm rétt að byija að átta okkur
á hvað úrskurðurinn þýddi þegar
hún yfírgaf okkur með þeirri sömu
reisn og einkennt hafði alla hennar
langvinnu baráttu. Það er ljúft við
leiðarlok að ylja sér við góðar minn-
ingar. Við fórum í nokkur ferðalög
saman og mér em minnisstæðar
tvær ferðir sem þau Gunnbjöm og
við Sverrir fóram fyrir tveimur
árum. Sú fyrri í Landmannalaugar
og Eldgjá og sú seinni á Snæfells-
nes. Jónína var að jafna sig eftir
meðferð og hafði þurft að hlífa sér
um sinn. Ég minnist hennar þar sem
hún stendur og hallar sér upp að
Gunnbimi við brotinn bogann yfir
Ófæm, stolt en móð eftir gönguna.
Þegar við höfðum tekið myndir
sagði hún með bros á vör: „Læknir-
inn minn sagði að þó ég væri þetta
hress þá væri ég kannski ekki í
standi til að ganga á fjöll, ég ætla
að gefa honum þessa mynd.“ Við
snemm okkur undan svo hún sæi
ekki klökkvann sem sótti á okkur.
Jónína naut þess að fara inn í
óbyggðir og hún naut þess að fara
um fjörana á Snæfellsnesi, fara í
siglingu hjá Búðum og keyra upp
að jökulbrún. Þeir sem vita að það
er allt eins víst að það verði ekki
annað sumar kunna að njóta hins
einstaka sumardags.
Jónínu var margt til lista lagt.
Hún hafði gaman að því að setja
saman vísu og átti það til að gefa
okkur slík gullkorn í afmæliskort
eða við önnur sérstök tækifæri. Hún
var hugmyndarík þegar hún vildi
gleðja okkur með gjöfum, ósjaldan
bám þær hennar eigið handbragð.
Jónína var sterk kona og þegar hún
tókst á við sjúkdóm sinn fékk hún
kraft í trúnni. Hún sótti kirkju og
ef henni leið illa eða þurfti styrk
þá fór hún í bænastund í Grensás-
kirkju. Hún sótti sér trúarstyrk á
sjálfsagðan og jákvæðan hátt og
ég veit að þegar leið að því óumflýj:
anlega skipti trúin hana miklu. í
síðasta samtalinu okkar á sjúkra-
húsinu hafði hún æðmlaus orð á
því að það væri í lagi með sig, en
hún hafði áhyggjur af ástvinunum
sínum og sérstaklega hve erfitt
þetta yrði bömunum.
Elsku Gunnbjöm, Kolbrún, Stef-
án og Eva, við biðjum guð að styrkja
ykkur á þessari sorgarstund og við
vottum Soffíu, aldraðri móður Jón-
ínu, og systkinum hennar okkar
dýpstu samúð Tengdasystkini biðja
fyrir kveðjur og þakklæti til góðrar
mágkonu. Jóna, Orri og Jón Einar
senda hlýjar óskir til frændfólksins
í Funafold. Við Sverrir þökkum
góða samfylgd og vináttu. Öll eig-
um við ríkar minningar um hana
sem lét betur að gefa en þiggja.
Blessuð sé minning þín, góða
vinkona.
Rannveig Guðmundsdóttir.
Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert
bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
23. Davíðssálmur var Jónínu,
móðursystur minni, kær og nú þeg-
ar ótímabært lát hennar er óumflýj-
anleg staðreynd sem ástvinir henn-
ar standa frammi fyrir getum jafn-
vel við sem ekki eigum hennar óbif-
andi trúarsannfæringu huggað okk-
ur við þessi fallegu orð og trúað
því að nú dvelji hún í næði við vötn-
in og hvílist á gmndunum grænu
í eilífu samfélagi við þann Guð sem
hún elskaði.
Það em átta ár síðan Jóftína
greindist fyrst með þann sjúkdóm
sem nú hefur tekið hana frá okkur.
Samt sem áður kom lát hennar,
síðastliðinn sunnudag, flestum í
opna skjöldu því aðeins liðu fáeinir
dagar frá því að úrskurður um hin
óumflýjanlegu endalok lá fyrir þar
til hún kvaddi þennan heim.
Ég veit að Jónína var þakklát
fyrir þann tíma sem hún þó fékk
með manni sínum og börnum. Hún
fékk að fylgja Kolbrúnu, Stefáni
og Evu í gegnum mikilvæg ár á
þroskaferli hvers manns. Hún var
stolt af Kolbrúnu dóttur sinni þegar
hún lauk lögfræðiprófi og naut þess
að sjá hana blómstra í starfi. Hún
var sömuleiðis stolt af Stefáni þeg-
ar hann lauk stúdentsprófí síðastlið-
ið vor og ánægð sýndi hún mér rit-
gerð sem Eva hafði skrifað á fyrsta
ári sínu í menntaskóla, ritgerð sem
flallaði um stöðu kvenna og bar
vitni um það að Eva ætlaði sér
ekki minni hlut en karlkyns félagar
hennar í tilveranni.
Jónína átti stóra og sterka fjöl-
skyldu sem alltaf stóð við bakið á
henni. Systkinin vom átta, en lítil
systir lést í vöggu. Samheldni systk-
inanna sjö og vinátta var alla tíð
mikil og einstök. Systumar Sigga,
Munda, Stína og Jóna voru sterk
eining; bestu vinkonur hver annarr-
ar og ekki veit ég til að þeim hafí
nokkum tíma sinnast. Soffía, amma
mín, lifir dóttur sína í hárri elli og
er sorg hennar mikil að horfa á
eftir yngstu dóttur sinni.
Jónína var ekki nema fjórtán
árum eldri en ég, enda man ég fyrst
eftir henni þegar hún var vart af
unglingsaldri að búa sig á ball. Ég
dáðist í íjarlægð að þessari fallegu
frænku minni þar sem hún vandaði
sig mikið fyrir framan spegilinn
með alls kyns furðuleg tæki til
snyrtingar (t.a.m. töng til að bretta
upp á augnhárin) og komst síðan í
mikið uppnám vegna augnlinsna
sem hún hafði lagt í bleyti í vatns-
glas og einhver hafði skvett úr því
í vaskinn. Síðasta minning mín um
Jónínu tengist þessari fyrstu því
þegar ég kvaddi hana látna var ég
snortin af náttúmlegri fegurð henn-
ar og friðinum sem lýsti af andliti
hennar.
Fyrir hönd Qölskyldu minnar,
móður minnar, Sigríðar, og bræðra
minna, Halldórs, Birgis og Ægis,
og þeirra fjölskyldna, vil ég votta
Gunnbimi, Kolbrúnu, Stefáni, Evu
og ömmu Soffíu okkar dýpstu sam-
úð.
Soffía Auður Birgisdóttir.
Við í fjármálaþjónustunni höfum
misst kæra vinkonu og góðan fé-
laga. Það er afar erfitt að sætta
sig við það skarð sem höggvið hef-
ur verið í hópinn. Eftir að Jónína
kvaddi hefur andrúmsloftið á vinnu-
staðnum verið mjög sérstakt. Þrátt
fyrir sorg, söknuð og jafnvel innri
reiði er eins og einhver ró og friður
sé yfír okkur. Er það ekki tákn um
líðan og hugarástand Jónínu á því
ferðalagi sem hún er í dag?
Við minnumst margs þegar við
hugsum til Jónínu á þessum tíma-
mótum. Við minnumst æðmleysis
hennar gagnvart veikindum sínum
en hún þurfti að beijast við krabba-
mein í mörg ár. Jónína var mjög
glaðleg og kát kona. Hrókur alls
fagnaðar þegar við gerðum okkur
glaðan dag.
Hún var mjög vinnusöm og sam-
viskusöm. Hún skilaði aldrei verk-
efnum frá sér nema að hún væri
fullkomlega sátt við það sem hún
var að gera. Allt var vel skipulagt
þjá henni og þegar hún fór í sum-
arfrí var mjög auðvelt fyrir okkur
að ganga í störfin hennar því skýr-
ingar voru á öllu og allt sem þurfti
að gera á meðan hún var í fríi var
skráð með góðum leiðbeiningum.
i
:
i
€
í
I
X
I
<
(
(
(
(
I
(
I