Morgunblaðið - 16.03.1997, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. MARZ 1997 39
menningararfi til samtímans. í Rík-
isútvarpinu vann hann löngum að
því og fræðistörf hans og útgáfur
vitna um hið sama. En hver er mað-
urinn sjálfur að baki verka sinna?
Andrés Björnsson er maður sem
ekki lætur mikið yfir sér. Hann átti
til í útvarpinu að svara ekki beint
eða afdráttarlaust þegar mál voru
borin upp við hann, heldur nálgast
viðfangsefnið úr annarri átt og
benda á að það hefði „ýmsar hlið-
ar“, eins og hann sagði. Að þessu
kímdum við stundum starfsmennirn-
ir og kenndum við taóisma. En í
rauninni hafði þessi stíll Andrésar
góð áhrif á andrúmsloft sem löngum
vill verða spennuþrungið á fjölmiðli
þar sem hraðinn kyndir undir bráð-
læti og fljótfærni. Hann var vinsæll
af starfsmönnum enda skiiningsrík-
ur og umburðarlyndur. En þótt hann
sé ekki uppnæmur fyrir hveiju einu
fer þvi fjarri að hann sé tómlátur
um samtímamál eða bresti skoðanir
á þeim. Sína gömlu stofnun ber hann
mjög fyrir btjósti, vill veg hennar
mikinn og snýst öndverður við öllum
áróðri sem að því miðar að veikja
stöðu hennar eða torvelda henni að
sinna menningarskyldum sínum.
Þau ár sem liðin eru frá því að hann
lét af störfum hafa verið umskipta-
söm í sögu Ríkisútvarpsins, bæði inn
á við og gagnvart hinum ytri þjóðfé-
lagsöflum. Þó leyfi ég mér að ætla
að sá menningarandi sem Andrés
var svo góður fulltrúi fyrir dafni þar
enn. Hvar ætti hann annars að eiga
þroskaskilyrði í heimi fjölmiðlanna?
Síðustu árin höfum við Andrés
haft töluvert saman að sælda og af
ýmsum tilefnum. Hef ég átt margar
góðar stundir á heimili þeirra hjóna,
hans og Margrétar Vilhjálmsdóttur
á Hofsvallagötu 62, og fræðst mikið
af honum um stofnun okkar og sögu
hennar og sitthvað fleira úr menn-
ingarlífi þjóðarinnar fyrr og nú.
Andrés hefur glöggt auga fyrir
gamni jafnt og alvöru. Það leynir
sér ekki hve hann á traustar rætur
í íslenskri alþýðumenningu og á í
því sammerkt við aðra menningar-
frömuði sem leitt hafa þjóðina yfir
þröskuld nútímans. Ef tengslin við
fortíðina slitna er hætt við að menn-
ingarstofnanir okkar verði ekki ann-
að en reköld, hversu mjög sem þær
skarta yfirborðsgljáa.
Ég flyt Andrési, Margréti og fjöl-
skyldunni allri alúðarkveðju á þess-
um heiðursdegi með þökk fyrir alla
vinsemd frá fyrstu kynnum. Það er
mikið lán að hafa átt hann að í öll
þessi ár og megum við njóta hans
lengi enn.
Gunnar Stefánsson.
IOPIÐ ÖLL KVÓLD
VIKUNNARTILKL 21.00
HRINGBRAUT 119, -VIÐ )L HÚSIÐ.
Samhjálp kvema
Til stuðnings konum
sem greinast með brjóstakrabbamein
hefur „Opið hús“ í Skógarhlíð 8,
húsi Krabbameinsfélagsins, þriðjudaginn
I 8. mars kl. 20.30.
Gestur kvöldsins: Laufey Tryggvadóttir, faraldsfræðingur, flytur
erindi: Leit að orsökum brjóstakrabbameina
- umhverfi og erfðir.
Kaffiveitingar. Allir velkomnir.
Nýtt leikfiminámskeið hefst eftir páska. Upplýsingar í símum 557 2875 og 565 8577.
FASTEIGNASALA
Skipholti 50b -105 - Reykjavík
S. 55 100 90 Sími 565-5522
Atvinnuhúsnæði
Verstun - Lager - Iðnaður
Miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu
Verslunarpláss við
Fákafen, rúmlega
365 m2 á jarðhæð.
Laust strax !
í kjallara eru laus
svæði sem eru frá
350m2 til 1200m2.
Loftræstikerfi eru
fyrir hendi. Lofthæð
í kjallara er4,5 m.
Góð aðkeyrsla,
málað í hólf og gólf.
Hagstæð leiga.
Vinsamlega hafið samband við Geir í síma
557-4533, eða við Fasteignasöluna Ársali,
Björgvin, í síma 533-4200 eða 852-0667
é
AÐALFUNDUR
SLÁTURFÉLAGS SUÐURLANDS SVF.
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf.
verður haldinn á Hótel Selfossi föstudaginn
4. apríl 1997 og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 24. gr.
samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útboð B-deildarhlutabréfa
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá félagsaðilum, sem bera á fram á
aðalfundi, þurfa að vera komnar skriflega í hendur
stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund.
Reykjavík 7. mars 1997.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.
IÐNÞING 1997
Iðnþing Samtaka iðnaðarins verður
föstudaginn 21. mars nk. Þingið verður
haldið í samkomusalnum Gullhömrum
í Húsi iðnaðarins, Hallveigarstíg I.
Fomiót:
10.00
12.00
13.15
14.00
14.15
16.00
16.45
17.00
19.30
Skýrsla Hagvaxtarnefndar Sl. Opinn fundur með
þátttöku stjórnar og ráðgjafaráðs.
Setning Iðnþings.
Hádegisverður í boði Samtaka iðnaðaiins.
Ræða formanns SI, Haraldar Sumarliðasonar.
Ræða iðnaðarráðherra, Finns Ingólfssonar.
Hlé.
Efnahags- opg myntbandalag Evrópu, EMU.
Áhrif þess á íslenskt atvinnulíf.
Frummælendur:
Per Magnus Wijkman, aðalhagfræðingur,
Sveriges Industriförbund,
Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra.
Auk þess verður fjallað um mikilsverð málefni líðandi
stundar svo sem frumvarpið um Fjárfestingarbanka
atvinnulífsins hf. og stöðuna í kjaramálum.
Aðalfundarstörf og úrslit kosninga.
Ályktun Iðnþings afgreidd.
Þingslit.
Hóf Samtaka iðnaðarins í veislusalnum
Gullhömrum, Hallveigarstíg 1.
<2>
SAMTOK
IÐNAÐARINS
Aðalfundur Olíufélagsins hf.
verður haldinn miðvikudaginn 19. mars 1997
á Hótel Loftleiðum, þingsal 1-3,
og hefst fundurinn kl. 14.00
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 12. gr.
samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins
munu liggja frammi á aðalskrifstofu félagsins,
hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent
á aðalskrifstofu félagsins Suðurlandsbraut 18,
4. hæð, frá og með 17. mars,
fram að hádegi fundardags.
Stjóm Olíufélagsins hf.
BMH
Olíufélagiðhf