Morgunblaðið - 16.03.1997, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. MARZ 1997 49
ATRIÐI úr kvikmyndinni Evitu.
REGNBOGINN
simi 551 9000
CALLERi REÚNBOCANS: MYNDLISTARSYNINC
HRAFNHILDARSIÚURÐARDÓTTUR
FRUMSYNING: ROMEO & JÚLÍA
Nútíma útgáfa af frægustu og mögnuðustu ástarsögu fyrr og síðar, eftir leikriti William Shakespeare.
Romeo og Juliet hefur oft verið nefnd Shakespeare fyrir MTV kynslóðina" og frábær tónlist frá
Garbage, Everclear, Radiohead o.fl. krýna myndina. Aðalhlutverk Brian Dennehy, John Leguizamo,
Pete Postlewaite og Paul Sorvino. Leikstjóri: Baz Luhrmann (Strictly Ballroom).
Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.20. b. \. n ára.
Tjlnefnd
Óska
verola
auna
Dagsljos.
★ ★ A
Ras 2
★ ★ ★ ★
H P
THE
11
• B**U WkkoM < alfeÍMvtfwW (Kmtin Scoö Tbomu)
• Betta MMunm i ■ilifeMiitirilrl (Juttettfe Bktochej
• BiHdi Mkstión lAMhony MlocMU)
• BmU frmRumda ténltet (dranu)
. Baati kaHMkari i a&Muty«W IRalpkOwme.)
Baata knkfnyndataka (Jotei Soale)
• Besta handrít bye*t á annarrí sOga (Anthcoy Mingríte)
• Betta tirínena ríión.un (Stuart Cral*)
•B~UW
E N G L I S H
P A T I E N T
Sýnd í samvinnu við Fjárvang hf. F JARVANGUR
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
—« lHAHI ^ . c
EVITA 5UPlfíCQP B A $ <2 0/AT
Sýnd kl. 3 og 5.
Sýnd kl. 5, 9 og 11.15..
Laugarásbíó sýnir myndina Evita
LAUGARÁSBÍÓ hefur hafið sýningar á kvik-
myndinni Evita í leikstjórn Alans Parker en
hún hlaut þrenn Golden Globe verðlaun og
er tilnefnd til femra Óskarsverðlauna í ár.
Með aðalhlutverk fara Madonna, sem leikur
titilhlutverkið, Antonio Banderas sem fer
með hlutverk sögumannsins Ché, Jonathan
Pryce sem leikur Juan Perón og Jimmi Nail
sem leikur tangósöngvarann Agustin Mag-
aldo.
Myndin er byggð á söngleik þeirra Andres
Lloyd Webbers og Tims Rice sem kom fyrst
út á hljómplötu í nóvember árið 1976 og
náði metsölu í kjölfar vinsælda lagsins „Don’t
Cry For Me Argentina". Söngleikurinn var
síðan færður upp á svið í London árið 1978
°g átti eftir að verða vinsælasti söngleikur
allra tíma en alls var hann sýndur í 2.900
skipti áður en yfir lauk. Árið 1979 var söng-
leikurinn settur upp á Broadway við álíka
miklar vinsældir.
Evita fjallar um lífshlaup Evita Mariu
Ibarguren Durate Perón sem var af fátæku
fólki komin en braust til æðstu metorða í
Argentínu og var orðin forsetafrú aðeins 27
ára að aldri. Hún tók þegar til við að laga
það sem hún taldi hafa aflaga farið í þjóðfé-
laginu og aflaði sér gífurlegra vinsælda al-
þýðunnar með því að ausa fé úr opinberum
sjóðum í byggingu þúsunda nýrra skóla,
sjúkrahúsa og annarra velferðarstofnana
sem allar báru nafn
hennar. Hún stofnaði
einnig kvennahreyf-
ingu Perónista og afl-
aði konum kosningaréttar í Argentínu. Þegar
Eva var 32 ára gömul greindist hún með
ólæknandi krabbamein og lést ári síðar.
Dauði hennar olli langvinnri þjóðarsorg í
Argentínu sem eimir eftir af enn þann dag
í dag.
Háskólabíó sýnir
myndina Kolya
Nýtt í kvikmyndahúsunum
HÁSKÓLABÍÓ hefur hafið sýingar á kvik-
myndinni Kolya eftir Jan Sverak. Myndin,
sem hlaut Golden Globe verðlaunin á dögun-
um sem besta erlenda myndin og er einnig
tilnefnd til Óskars-
verðlaúna í ár sem
besta erlenda mynd-
in, fjallar um pipar-
sveininn og kvenna-
bósann Louka sem lifir fyrir konur og dag-
inn í dag en hefur lifibrauð af því að spila
og kenna á selló.
Hann á sér þann draum stærstan að eign-
ast nýlegan Trabant og til að geta látið
þann draum rætast giftist hann rússneskri
konu pappírsgiftingu fyrir peninga, til þess
að hún g’eti fengið tékkneskt vegabréf.
Þessi snjalla leikflétta piparsveinsins
springur framan í hann þegar hin nýja eig-
inkona flyst fyrirvaralaust til Þýskalands
til að vera með raunverulegum elskhuga
sínum og skilur Kolya, 5 ára son sinn, eft-
ir hjá Louka. Louka er nú í mjög vondum
málum því það er ekki nóg með að strákur-
inn eyðileggi piparsveinslífið heldur talar
hann bara rússnesku og Louka talar bara
tékknesku. Þetta er því sérlega skondið
samband og ekki bætir úr skák að Tékkó-
slóvakía er að liðast í sundur og Rússar
eru hataðir af öllum í landinu.