Morgunblaðið - 27.03.1997, Blaðsíða 1
136 SIÐUR B/C/D/E
72. TBL. 85. ARG.
FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
GLEÐILEGA PASKA!
Morgunblaðið/RAX
Lagt að deiluaðilum í
Zaire að hefia samninga
Lome, Reuter.
FORSETAR nokkurra Afríkuríkja ásamt Kofi
Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna (SÞ), freistuðu þess í gær á leiðtoga-
fundi Einingarsamtaka Afríkuríkja, að fá
deiluaðila í Zaire til að hætta bardögum og
setjast að samningaborði.
Hvorki Mobutu Seso Seko, forseti Zaire,
né Laurent Kabila, leiðtogi uppreisnarmanna,
voru viðstaddir leiðtogafundinn og fulltrúar
Kabila útilokuðu hvers kyns sáttaviðræður á
leiðtogafundinum í Lome í Tógó.
Aiþjóðlegur þrýstingur á deiluaðila um að
fallast á vopnahíé og setjast að samninga-
Hafna tilboði um sam-
stjórn með Mobutu
borði jókst í gær. „Tími viðræðna er runninn
upp, bardögum verður að linna," sagði Ann-
an. Vestrænir milligöngumenn á leiðtoga-
fundinum vonuðust til að fá deiluaðila a.m.k.
til þess að ræðast við, sem þeir hafa aldrei
gert. Fulltrúar uppreisnarmanna hafa hafnað
umleitan af því tagi og segjast einvörðungu
ætla að útskýra málstað sinn á ieiðtogafund-
Vonir um að Kabila myndi snúast hugur;
hann sýndi meiri sáttfýsi og kæmi til ieiðtoga-
fundarins í Loma, dvínuðu í gær. Fulltrúar
hans höfnuðu í gær tilboði flokks Mobutus frá
í fyrrakvöld um að deila völdum með Kabila.
Á aðeins fimm mánuðum hafa uppreisnar-
menn lagt undir sig fjórðung hins víðfeðma
lands, sem Mobutu hefur drottnað yfir frá
1965. Því var spáð í gær að skammt væri
þar til mikilvægar borgir, Lubumbashi og
Mbuji-Mayi, féllu í hendur skæruliða. Þaðan
er mikilvægum kopar-, kóbalt-, demanta- og
eðalmálmanámum stjórnað.
Lítið gagn
að litla fingri
BRASILÍSKUR dómari hafnaði í gær
skaðabótakröfu manns sem krafðist
örorkubóta fyrir að brjóta litlafingnr
í vinnuslysi á þeirri forsendu að fingur-
inn væri gagnslítill. Kröfðust lögmenn
mannsins mánaðarlegrar bótagreiðslu
sem svaraði 30% af tekjum hans er
hann slasaðist. Dómarinn sagði að ekki
hefði tekist að sýna fram á að vinnu-
færni mannsins hefði hrakað við slysið.
„Skaddaði fingurinn skiptir höndina
ósköp litlu og margir mannfræðingar
líta á litlafingur sem útvöxt, einskonar
botnlanga, sem muni rýrna og hverfa
við frekari þróun mannskepnunnar,"
sagði dómarinn.
Mundaði byssu
YASSER Arafat skaut gestgjöfum sín-
um á Sri Lanka skelk í bringu er hann
dró upp skotvopn undir kvöldverði, sem
Chandrika Kumara-
tunga forseti hélt hon-
um til heiðurs. Er for-
setinn kynnti Arafat
fyrir gestum spurði
gamall leiðtogi tamíla-
sveita í gríni hvort hann
bæri byssu í belti eins
og er hann ávarpaði
þing Sameinuðu þjóð-
anna um árið. „Þess -
þarf forseti Palestínu ekki,“ skaut Kum-
aratunga inn í en samtímis glotti Ara-
fat, smeygði hendinni inn undir ólífu-
græn klæði sín og veifaði skammbyssu,
viðstöddum til mikillar undrunar.
Erum eldri
LÍKAMSLEIFAR, 270-300 þúsund ára
gamlar, sem fundist hafa í Kenýu, sýna,
að mannskepnan er miklu eldri en hing-
að til hefur verið talið, að sögn tals-
manna alþjóðlegs vísindahóps. Beinin
eru sögð líkjast beingerð nútimamanns
miklu meira en fornmannsins. Þeir
segja fundinn benda til þess að forn-
maðurinn hafi komið fram fyrir
500-700 þúsundum ára í stað 90.000
ára. Sömuleiðis verður að þeirra mati
að færa upphaf Neanderthalsmannsins
aftar. Hann er talinn hafa verið uppi
fyrir 35.000 til 125.000 árum.
Ross reynir að sætta
Arafat og Netanyahu
Steffi Graf
laus allra mála
Bonn. Reuter.
ÞÝSKUR ríkissaksóknari aflýsti í
gær frekari rannsókn og hugsan-
legri málssókn á hendur tennis-
stjörnunni Steffi Graf fyrir meint
skattsvik. Ákvörðunin er niður-
staða samninga við Graf sem í
staðinn féllst á að greiða ótiltekna
fjárhæð til Iíknarmála.
Steffi Graf hélt fram sakleysi
sínu þrátt fyrir gjörninginn og
sagði hann ekki á neinn hátt jafn-
gilda sakaijátningu. Hið eina sem
vekti fyrir henni með samkomu-
laginu við saksóknara væri að
geta einbeitt sér að íþrótt sinni
og viðskiptalegum hugðarefnum í
stað þess að þurfa að hafa áhyggj-
ur af réttarhöldum. Málalyktir af
þessu tagi tíðkast í Þýskalandi
þegar saksóknarar komast að
þeirri niðurstöðu að málsatvik
gefi ekki tilefni til langdrægra
málaferla. Rannsókn á skattamál-
um tennisdrottningarinnar hefur
staðið í tvö ár. Faðir hennar, Pet-
er Graf, og fjármálaráðunautur
fjölskyldunnar, Joachim Eckardt,
voru nýverið dæmdir í fangelsi
fyrir stórtæk skattsvik.
Washington, Jerúsalem. Reuter.
BILL Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, kvaðst í gær hafa sent Denn-
is Ross, sérlegan sendimann sinn
í málefnum Miðausturlanda, til við-
ræðna við leiðtoga ísraela og Pal-
estínumanna þar sem hann hefði
miklar áhyggjur af deilum þeirra.
Ráðgert er að Ross ræði í dag
við Yasser Arafat, leiðtoga sjálf-
stjórnarsvæða Palestínumanna, í
Rabat í Marokkó og haldi til fund-
ar við Benjamin Netanyahu, for-
sætisráðherra Israels, síðar um
daginn. „Ross mun síðan skýra
Madeleine Albright utanríkisráð-
herra og Clinton forseta frá gangi
viðræðnanna um helgina," sagði
talsmaður bandaríska sendiráðsins
í Rabat.
Viðræður ísraela og Palestínu-
manna hafa legið niðri frá því ísra-
elar ákváðu að reisa 6.500 íbúðir
fyrir gyðinga nálægt Austur-Jerú-
salem þrátt fyrir harða andstöðu
Palestínumanna.
Átök í Ramallah
Til átaka kom í gær, sjöunda
daginn í röð, milli ísraelskra örygg-
issveita og Palestínumanna, sem
mótmæla framkvæmdunum. Átök-
in breiddust út til Ramallah á
Vesturbakkanum þar sem hundruð
araba köstuðu gijóti á ísraelska
hermenn, sem svöruðu með því að
beita táragasi og skjóta gúmmíkúl-
um. 25 Palestínumenn særðust í
átökunum. Arabar kveiktu einnig
í fánum ísraels og Bandaríkjanna
í Betlehem.
Farouk Kaddoumi, einn af for-
ystumönnum Frelsissamtaka Pal-
estínumanna, líkti Netanyahu við
Adolf Hitler og hvatti þjóðir heims
til að einangra ísrael pólitískt og
efnahagslega. Hann sagði að
arabaríkin væru reiðubúin að efna
til leiðtogafundar, hugsanlega með
þátttöku íraks, til að lýsa yfir
stuðningi við kröfur Palestínu-
manna.