Morgunblaðið - 06.04.1997, Síða 2

Morgunblaðið - 06.04.1997, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 6. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ ' FRÉTTIR Gámunum skipað upp FJÓRUM gámum hafði verið skipað upp úr Vikartindi á há- degi í gær og var vonast til að takast mætti að ná tuttugu gám- um úr skipinu í gærdag. Gámun- um var raðað upp í fjörunni, þar sem tollvörður innsiglaði þá og stóð til að flytja þá til Reykjavík- ur. Ágætt veður var á strandstað í gær, logn og sléttur sjór. Starfsmenn björgunarfyrirtæk- isins Titan gátu því látið sig síga niður að gámum á þilfari skipsins, komið á þá böndum og losað um þá. Fremri krani skipsins, sem var komið í lóð- rétta stöðu í vikunni, var svo notaður til að hífa gámana í land. Reiknað er með að kran- inn nái að hífa 75% þeirra gáma, sem enn eru í skipinu, en fjórðungi þeirra verður ekki komið á land nema aftari kran- inn verði einnig réttur. Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar á Hvolsvelli á hádegi í gær hafði enn ekki sést til land- eigenda, sem hugðust girða af svæði í fjörunni. Sýslumaður Rangæinga hafði sent landeig- endum bréf, þar sem hann sagði hæpnar lagalegar forsendur fyrir slíkri girðingu. ÞEIR sem vinna við að ná gámunum þurfa að láta sig síga að þeim til að koma böndum á þá og losa um festingar þeirra. Morgunblaðið/Þorkell FYRSTA gáminum, sem næst frá borði Vikartinds með krana skipsins, slakað niður í fjöruna í gærmorgun. ►Lestrarvenjur íslendinga hafa breyst verulega undanfama ára- tugi og fagurbókmenntir hafa vik- ið fyrir öðrum tómstundum sem og annars konar ritmáli. íslending- ar eru enn jákvæðir í garð bóka og lesturs og vilja að yngri kyn- slóðin lesi. En það þarf meira til. /10 GróAi flugfélaga mikil- vægari flugöryggi? ►Bandaríska loftferðaeftirlitið borið þungum sökum. /12 Aftur mjólk í Barónsfjósinu ►innan skamms mun aftur hægt að kaupa mjólk í íjósinu, sem franski baróninn Gauldréc Boilleau byggði fyrir aldamót yfir kýrnar sínar, og mun hafa verið fyrsta mjólkurbú á íslandi. /20 Náttstaðir Nígeríu og Níger ►Áfram heldur frásögn íslenskú Afríkufaranna um slóðir þar sem þeirýmist horfðust í augu hvæs- andi kóbraslöngu eða inn gapandi byssuhlaup. /22 Framtíðin er í plastinu ►í Viðskiptum/Atvinnulífí á sunnudegi er rætt við Sigurð Odds- son framkvæmdastjóra í Plastos. /24 B ► 1-32 Kjörviðarskáld á Gelgjutanga ►Tréskip eru sem óðast að víkja fyrir fleyjum úr stáli, áli og trefja- plasti. Ffylgst er með því þegar einu síðasta vigi tréskipanna á ís- landi, Bátastöð Jóns Ö. Jónassonar á Gelgjutanga, var lokað. /1-2-16- 17 Ævintýrið um Gus Gus ►Gus Gus íjöllistahópurinn er nú tíður gestur í tísku- og tórriistar- tímaritum úti í heimi. /18 Keppnin um Ford- fyrirsætuna ►21 stúlka á aldrinum 14-19 ára munu keppa um titilinn Ford fyrir- sætan 1997 i Perlunni hinn 10. apríl nk. /29 C FERÐALÖG Milljón farþegar í millilandaflugi Skotið af haglabyssu í fjölbýlishúsi LÖGREGLAN í Hafnarfirði fékk tilkynningu um tvo skothvelli úr íbúð í fjölbýlishúsi í Hafnarfírðin- um um kl. 1 á fóstudagsnótt. Þeg- ar að var komið reyndist þar vera á ferðinni maður á miðjum aldri sem hótaði skaða sjálfan sig. Hann ógnaði hins vegar ekki öðru fólki. Maðurinn var ölvaður en mun eiga við geðræn vandamál að stríða, samkvæmt upplýsingum lögreglu. Að sögn lögreglu neitaði maður- inn að fara á geðdeild og endaði því í fangageymslum þar sem hann var yfirheyrður á laugardag. -----> ♦ <---- Þrír á slysa- deild ÞRÍR menn voru fluttir á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur eftir harð- an árekstur tveggja bifreiða á Engjaveginum í Reykjavík á tíunda tímanum í gærmorgun. Samkvæmt upplýsingum frá slysadeild voru mennimir ekki taldir mikið slasaðir. FARÞEGUM í millilandaflugi á íslenskum áætlunarflugvöllum fjölgaði um 11% á síðasta ári og farþegum í innanlandsflugi fjölg- aði um rúmlega 1%. Vöru- og póst- flutningar jukust um 23% í milli- landaflugi á síðasta ári en minnk- uðu um 20% í innanlandsflugi, samkvæmt upplýsingum frá Flug- málastjórn. Farþegar í millilandaflugi á ís- lenskum áætlunarflugvöllum voru alls 1.048.837 á sfðasta ári og þar af voru 276.958 áningarfarþegar á Keflavíkurflugvelli. I Reykjavík fjölgaði millilandafarþegum um 84% og um 10% í Keflavík. Hins vegar varð 46% fækkun á Egils- stöðum og 34% á Akureyri. Að meðaltali hefur heildarfjöldi millilandafarþega aukist um 10% á ári síðastliðin fimm ár. Vöru- og póstflutningar í milli- landaflugi jukust um 23% á síðasta ári og námu þeir alls 24.044 tonn- Fjöldi hefur auk- ist um 10% á ári síðustu fimm ár um. Vöruflutningar jukust um 26% en póstflutningar drógust saman um 2%. í Reykjavík jukust vöru- og póstflutningar um 173% og um 21% á Keflavíkurflugvelli. Síðast- liðin fímm ár hafa vöru- og póst- flutningar í millilandaflugi aukist að meðaltali um 15% á ári. Farþegum fjölgar í innanlandsflugi Farþegar í innanlandsflugi voru alls 382.087 á síðasta ári eða um 1% fleiri en árið áður. Farþegum fjölgaði á öllum helstu áætlunar- flugvöllum landsins nema einum. Farþegum fjölgaði mest á Homa- firði á síðasta ári eða um 12%. Á ísafirði varð 6% aukning, 5% í Vest- mannaeyjum og 3% á Egilsstöðum. Flugvellimir í Reykjavík, Akureyri og á Sauðárkróki vom með 1% fleiri farþega en árið áður. Á Húsavík fækkaði farþegum á hinn bóginn um 3% á milli ára. Undanfarin fimm ár hefur heild- arfjöldi innanlandsfarþega aukist að meðaltali um 3% á ári. Vöm- og póstflutningar í innan- landsflugi á síðasta ári voru 20% minni en árið áður og námu allt að 4.000 tonnum. Vöruflutningar minnkuðu um 18% og póstur um 26%. Samdrátturinn varð hlutfalls- lega mestur á Egilsstöðum eða 38% og um 22% í Reykjavík og á Húsa- vík. Flutningar minnkuðu um 19% á ísafírði, 17% á Akureyri, 12% á Hornafirði og 7% á Sauðárkróki. Að meðaltali hafa vöru- og póst- flutningar í innanlandsflugi dregist saman um 10% á ári síðastliðin fimm ár. ► 1-4 Maní ►Fomar minjar og heillandi mannllf á grískum skaga. /2 FerAapistill ►Aukin gæði með umhverfis- stjómun. /4 ÍP BÍLAR_______________ ► 1-4 Horfnir í gróAur og gleymsku ► Af bílakirkjugörðum í Banda- ríkjunum. /2 Reynsluakstur ►Musso E 23 á Eldfelli. /4 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/8/bak Stjömuspá 42 Leiðari 28 Skák 42 Helgispjall 28 Fólk í fréttum 44 Reykjavikurbréf 28 Bíó/dans 46 Skoðun 30 Útvarp/sjónvarp 50 Minningar 34 Dagbók/veður 55 Myndasögur 40 Maturogvin 4b Bréf til blaðsins 40 Dægurtónl. 14b Idag 42 Gárur 30b Brids 42 Mannlífsstr. 30b INNLENDAR FRÉTTIR: 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6 jJ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.