Morgunblaðið - 06.04.1997, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 6. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 30/3-5/4
►NÝ TEGUND hjarta-
skurðaðgerðar var nýlega
gerð á hjarta- og lungna-
skurðdeild Landspítalans
þegar stór hluti af vinstra
slegli hjarta var skorinn
brott til að gera hjartanu
kleift að starfa eðlilega á
ný. Um var að ræða fertug-
an sjúkling með of stórt
hjarta og hefur hann út-
skrifast af gjörgæsludeild
við góða líðan.
►RÍKISSTJÓRNIN hefur
að ósk ASÍ breytt frum-
varpi um skyldutryggingu
lífeyrisréttinda og starf-
semi lífeyrissjóða og
tryggt áframhaldandi fullt
forræði verkalýðshreyf-
ingar og samtaka atvinnu-
rekenda á 10% lágmarks-
iðgjandi í lífeyrissjóði. Til
hafði staðið að launamenn
gætu sjálfir ráðstafað þeim
hluta iðgjalds sem var um-
fram 10 þús. kr. á mánuði.
►FIMM ára telpa lést í bíl-
slysi við Borgarnes á
þriðjudag. Hún hét Hildur
Harpa Hilmarsdóttir til
heimilis á Engiþjalla 13 í
Kópavogi.
► HJÓN úr Hafnarfirði og
fimm ára sonur þeirra hafa
legið lífshættulega slösuð á
sjúkrahúsi eftir umferðar-
slys á Reykjanesbraut ann-
an dag páska.
►GÚSTAFBj arnason
handknattleiksmaður bætti
31 árs gamalt markamet
Hermanns Gunnarssonar
þegar hann skoraði 21
mark í sigri íslendinga á
Kínverjum i landsleik á
Selfossi. Leiknum lyktaði
31:22 íslandi í vil. Met Her-
manns var 17 mörk og sett
i leik gegn Bandaríkjunum
árið 1966.
Neikvæð áhrif af
þýskri frétt
Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða,
óttast neikvæð áhrif fyrir flugfélagið
af frétt sem þýska dagblaðið Bild Zeit-
ung birti á fóstudag þar sem fram
kemur að íslensku flugfélögin Flugleið-
ir og Atlanta séu meðal tíu flugfélaga
þar sem flugöryggi er ábótavant. Upp-
lýsingar blaðsins byggðust á niðurstöð-
um atugana þýska loftferðaeftirlitsins
sem bar fréttina til baka í gær. Til
athugunar er hjá Flugleiðum að höfða
skaðabótamál á hendur þýska blaðinu.
Aðeins verkfall
hjá RARIK
Kjarasamningur Iðju við vinnuveitend-
ur var felldur með atkvæðum 72%
þeirra félagsmanna sem þátt tóku í
atkvæðagreiðslu. Samningur RSÍ og
RARIK var einnig felldur með miklum
meirihluta en almennir kjarasamningar
RSÍ við vinnuveitendur og við ríkið
voru samþykktir með 80% atkvæða.
Verkfall rafiðnaðarmanna hjá RARIK
hófst á miðnætti á laugardag. Verk-
fall bankamanna stóð í um hálfa aðra
klukkustund aðfaranótt föstudags en
var frestað eftir að samningur náðust.
Boðuðum verkföllum flugvirkja og fé-
lagsmarina í Matvæla- og veitingasam-
bandi íslands var frestað áður en til
þeirra kom þar sem samningar höfðu
náðst. Þá var verkfalli, sem hófst í flest-
um byggðarlögum á Vestfjörðum á
miðvikudag, frestað samdægurs til 21.
apríl næstkomandi án þess þó að sam-
ið hefði verið.
Fimm í fjársvikum
Fimm menn sitja í gæsluvarðhaldi að
kröfu RLR vegna rannsóknar á um-
fangsmiklu fjársvikamáli. Alls hafa tíu
verið handteknir vegna málsins. Menn-
imir eru grunaðir um að hafa á skömm-
um tíma svikið út um 35 milljónir
króna, með því að gefa út tékka, víxla
og skuldabréf í nafni félags sem átti
engar eignir aðrar en kennitölu frá
Hagstofu íslands. Mennimir keyptu
byggingavörur, bíla og fasteign og
komu í verð með einhveijum hætti.
*
Afram átök vegna
landnemabyggða
PALESTÍNSKA lögreglan handtók í
vikunni um þijátíu félaga í íslömsku
samtökunum Jihad, en Israelar segja
þá hafa staðið að misheppnaðri tilraun
til að ráða ísraelsk skólabörn af dög-
um. Tveir Palestínumenn létu lífið I
henni en ísraelar og Palestínumenn
kenna hvorir öðrum um sprengingam-
ar. Þá létu tveir Palestínumenn lífið
í óeirðum á Vesturbakkanum, sem
hafa nú staðið í á þriðju viku. Palest-
ínumenn mótmæla fyrirhuguðum
byggðum gyðinga á hernumdu svæð-
unum en á fimmtudag lýsti Benjamin
Netanyahu, forsætisráðherra ísraels,
því yfir að stjóm stn myndi áfram
leyfa nýbyggðir, hvað sem liði mót-
mælum Palestínumanna og annarra
þjóða. Myndi hann færa Bill Clinton
Bandaríkjaforseta þau skilaboð á
fundi þeirra í þessari viku.
Albönum
heitið aðstoð
FULLTRÚAR Evrópusambandsins,
Öryggis- og samvinnustofnunar Evr-
ópu og ýmissa evrópskra ríkja, stað-
festu á fundum með Bashkim Fino,
forsætisráðherra Albaníu, í vikunni
að þau myndu veita Alböndum, mat-
væla-, efnahags- og hernaðaraðstoð
til að koma á eðlilegu ástandi í land-
inu að nýju. Mikil reiði ríkir í garð
ítala, sem leggja fram um helming
5.000 herliðs til Albaníu, ( borginni
Vlore í Albaníu, en tbúar þar fullyrða
að ítalskt herskip hafí siglt vísvitandi
á albanskan bát, með þeim afleiðing-
um að hann fórst og um áttattu manns
með honum, flest konur og börn.
►SVARINN andstæðing-
ur Mobutus Sese Seko,
forseta Zaire, var skipað-
ur forsætisráðherra lands-
ins á miðvikudag. Hann
bauð skæruliðum, sem
stefna að því að steypa
Mobutu af stóli, sæti i rík-
isstjórn sinni en þeir höfn-
uðu boðinu.
►FORSETAR Hvíta-
Rússlands og Rússlands,
Alexander Lúkasjenkó og
Borís Jeltsin, undirrituðu
á miðvikudag stytta út-
gáfu af samningi um að
ríkin tvö stofnuðu með sér
ríkjasamband. Er samn-
ingurinn var undirritaður
kom til mótmæla sjálf-
stæðissinna í höfuðborg
H víta-Rússlands.
►39 meðlimir sértrúar-
safnaðar í Suður-Kalifor-
niu frömdu sjálfsmorð i
dyrabilviku. Trúði fólkið
því að geimskip, sem væri
i felum á bak við Hale-
Bopp halasljörnuna,
myndi sækja það og flytja
út í geim.
►PAKISTANSKA þingið
samþykkti i vikunni
stj órnarskrárbreytingu
sem dregur mjög úr rétti
forsetans til að reka rík-
isstjórnir frá völdum,
skipa herforingja og hér-
aðsstjóra.
►HELMUT Kohl, kansl-
ari Þýskalands, lýsti á
flmmudag yfir að hann
hefði hug á þvi að leita
eftir endurkjöri og verða
kanslari í fimmta sinn.
FRÉTTIR
Lögmaður flytur mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur
Telur skipan barnavemdar-
mála brot á mannréttindum
„SKIPAN barnaverndarmála sam-
ræmist ekki þeirri reglu, sem kveðið
er á um í mannréttindasáttmála Evr-
ópu, að sjálfstæður og óvilhallur dóm-
stóll skuli úrskurða um réttindi og
skyldur manna,“ sagði Páll Ásgeir
Davíðsson lögmaður í samtali við
Morgunblaðið. Páll Ásgeir flutti próf-
mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær, þar sem hann hélt því fram að
heimildir bamaverndaryfirvalda til
að taka íþyngjandi ákvarðanir um
málefni foreldra og barna þeirra
stríddu gegn mannréttindasáttmá-
lanum, sem Alþingi samþykkti sem
lög árið 1994.
Umrætt mál fyrir héraðsdómi
höfðaði kona gegn bamaverndar-
nefnd Reykjavíkur, til að freista þess
að fá þijú böm sín aftur. Þau höfðu
verið tekin úr hennar forsjá þar sem
hún á við þunglyndi og óreglu að
striða og taldi bamavemdamefnd
hana óhæfa til að annast þau.
íþyngjandi ákvarðanir
„Áður fyrr var dómsmálum skipað
svo hér á landi að bæjarfógetar rann-
sökuðu mál og dæmdu í þeim, en
þessu var breytt," sagði Páll Ásgeir.
„í 6. grein mannréttindasáttmálans
er tekið skýrt fram, að þegar kveða
skuli á um réttindi og skyldur manns
að einkamálarétti eða um sök, sem
hann er borinn um refsivert brot,
skuli hann eiga rétt til réttlátrar og
opinberrar málsmeðferðar innan
hæfilegs tíma fyrir sjálfstæðum og
óvilhöllum dómstóli. Barnavernd-
arnefnd fylgist með foreldrum, tekur
skýrslur af fólki, fyrirskipar rann-
sókn á foreldrum eða börnum þeirra
og hefur þannig alla þætti rannsókn-
ar máls á sinni hendi. Nefndin getur
tekið ýmsar íþyngjandi ákvarðanir,
eins og að setja börn á vistheimili
eða kyrrsetja þau á sjúkrahúsi. Þar
með tekur hún afstöðu til málefnis
bamanna og foreldra þeirra."
Páll Ásgeir sagði að barnavernd-
armál gætu endað með að foreldrar
væru sviptir forsjá barna sinna.
„Með því er verið að taka ákvörðun
um einkamálarétt foreldranna, þann
grundvallarrétt að hafa börn sin hjá
sér. Slíkar ákvarðanir verða hlut-
lausir aðilar að taka. Þrátt fyrir að
málum sé vísað til dómstóla getur
málmeðferð barnaverndaryfirvalda
tekið allt að 7 mánuði og á þeim
tíma eru fjölskyldur sundraðar."
Páll Ásgeir sagði að þótt mál
kæmu til kasta dómstóla breytti það
engu um brotið. „Mannréttindabrot
má ekki líða, undir því yfirskini að
bætt sé úr þeim síðar. Barnavernd-
arlög miða að því að tryggja hags-
muni barna, en bamaverndaryfir-
völd em ekki hæf til að meta mann-
réttindi foreldra. Það er lögfræðilegt
álitamál, sem á að koma til kasta
dómstóla."
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Isdans á páskum
ÞÓ AÐ allir þrái að vetur kon-
ungur lini senn tökin og vorið
komi sem fyrst er ísinn og siýór-
inn jafnan kærkominn leikvöllur
barnanna. Þessir fjögur börn
sem heita Bergþór Ingi, Dröfn,
Smári Kristján og Jóhann Hall-
dór eiga heima á bæjunum Dalbæ
og Miðfelli í Hreppum og voru
að leik á lítilli tjörn í aftanskini
páskadagsins þegar smellt var
myndafþeim.
Nefndir á vegum ráðuneyta
Konur 23%
nefndarmanna
í NEFNDUM sem skipaðar hafa
verið á vegum ráðuneytanna á ár-
unum 1995-97 eru konur 434, eða
23% af heildarfjölda nefndarmanna
sem er 1902. Af 329 formönnum
nefnda eru 66 konur, eða 20%.
Þetta kemur fram í svari forsætis-
ráðherra við fyrirspurn Guðnýjar
Guðbjörnsdóttur alþingismanns.
Lægst er hlutfall kvenna í nefnd-
um landbúnaðarráðuneytisins. Þar
eru nefndannenn 66 og þar af er
ein kona. í nefndum samgöngu-
ráðuneytisins er einnig aðeins ein
kona, en þar er heildarfjöldi nefnd-
armanna 25. í nefndum sjávarút-
vegsráðuneytis eru fimm af 92
nefndarmönnum konur, eða rúm
5%.
Hlutfall kynjanna er næst því að
vera jafnt í nefndum félagsmála-
ráðuneytis en þar eru konur 69 af
172 nefndarmönnum, eða um 40%.
Samsvarandi hlutfall í heilbrigðis-
°g tryggingaráðuneytinu er 35%
og í menntamálaráðuneyti 32%. í
öðrum ráðuneytum er hlutfallið frá
12-20%.
Vestmannaeyjar
Ung- kona
kærir lík-
amsárás
KONA á þrítugsaldri hefur
kært fyrrum unnusta sinn fyr-
ir líkamsárás, eftir að hann
kýldi hana í andlitið aðfaranótt
laugardags. Konan hlaut mikla
áverka af og þurfti að sauma
sjö spor í andlitið, að sögn lög-
reglunnar í Vestmannaeyjum.
Parið mun hafa verið í teiti
um nóttina og lent í rifrildi
með fyrrgreindum afleiðing-
um.
Málið er nú í höndum Rann-
sóknarlögreglunnar í Vest-
mannaeyjum.