Morgunblaðið - 06.04.1997, Side 18

Morgunblaðið - 06.04.1997, Side 18
18 SUNNUDAGUR 6. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Píanótónleikar í Gerðarsafni JÓNAS Ingimundarson og Helga Bryndís Magnúsdóttir. m Jónas og Helga Bryndís leika fjórhent PÍ ANÓLEIKARARNIR Helga Bryndís Magnúsdóttir og Jón- as Ingimundarson leika á tón- leikum í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni, mánudagskvöld- ið 7. apríl kl. 20.30. Þau Helga Bryndís og Jónas leika fjór- hent efnisskrá með völsum og ungverskum dönsum eftir Brahms og slavneskum döns- um eftir Dvorák. Helga Bryndís á að baki langt tónlistarnám, fyrst á æskuárum í Vestmannaeyjum og síðan í mörg ár í Tónlistar- skólanum í Reykjavík, sem hún lauk með einleikaraprófi. Síðar var Helga Bryndís í framhaldsnámi bæði í Vínar- borg og Helsinki um árabil. Helga Bryndís hefur víða komið við í íslensku tónlistar- lífi, haldið einleikstónleika, tekið þátt í kammermúsík og starfað mikið með Caput- hópnum. Hún starfar við kennslu og píanóleik á Akur- eyri. Þau Helga Bryndís og Jón- as þekkjast vel og hafa gert töluvert að því að leika saman fjórhent á píanó, fyrst á námsárum Helgu í Tónlistar- skólanum, en Helga var nem- andi Jónasar í níu ár og síðan þá alltaf annað slagið í gegn- um árin. Oft hefur staðið til að búa til efnisskrá og gefa fólki kost á að hlýða á sam- leik þeirra en af því hefur ekki orðið fyrr en nú. Auk samleiks þeirra mun Helga Bryndís Magnúsdóttir leika verk eftir Frans Liszt á tónleikunum. Samkvæmt venju á tónleik- um „Við slaghörpuna" verða stuttar kynningar látnar fljóta með milli þess sem dans- arnir duna. Morgunblaðið/Þorkell ELLY Ameling við upphaf fyrsta námskeiðsins á föstudag. Ameling kennir ís- lenskum songvurum Morgunblaðið/Kr. Ben. FRÁ myndlistarsýningunni í Menningarmiðstöðinni í Grindavik. Snorri Snorrason, myndlistarmaður frá Selfossi, við tréskurðar- mynd sína sem hann nefnir Fantasía um Thule og sækir myndefn- ið í söguna um fund Thule árið 323 fyrir Krist. Málverk og tré- skurður í Grindavík Grindavík. Morgunblaðið. SÝNING á málverkum og tréskurð- armyndum Snorra Snorrasonar, myndlistarmanns frá Selfossi, í Menningarmiðstöðinni í Grindavík lýkur um helgina. Snorri byrjaði að mála og skera út í rekavið 1993 og má segja að honum sé listin í blóð borin, því eftir að hafa stundað margvísleg störf í gegn- um árin bæði hér heima og í Banda- ríkjunum lá leiðin í myndlistina án þess að hann hefði lært til þess sér- staklega. Fyrir nokkrum árum eða um það leyti sem hann var að byija fór hann á námskeið í tréskurði. Kennarinn sá að hann hafði ekki þolinmæði til að læra undirstöðuatrið- in, svo hann hvatti Snorra til að halda áfram út frá eigin hjarta. Snorri hélt sína fyrstu sýningu í Eden í Hveragerði 1993 og hefur hann síðan haldið nokkrar einkasýn- ingar og tekið þátt í samsýningum á Suðurlandi og víðar. SÖNGNÁMSKEIÐ (master- class) hollensku sópransöng- konunnar, Elly Ameling, hófst á föstudag í Gerðubergi og lýk- ur i dag, sunnudag. Námskeiðið er haldið fyrir unga söngvara en síðan Ameling hætti að syngja opinberlega í febrúar á síðasta ári hefur hún ferðast víða um heim og haldið slík námskeið. Hingað kom hún frá Bandaríkjunum þar sem hún hefur verið við námskeiðahald í sjö vikur. Ameling hefur verið talin ein fremsta ljóðasöngkona á þess- ari öld og hefur verið rómuð fyrir raddfegurð og einstakan skilning og túlkun á frönskum og þýskum sönglögum. Námskeiðið í Gerðubergi er haldið á vegum Schuberthá- tíðarinnar sem staðið hefur undanfarnar vikur í Garðabæ undir sljórn hollenska hljóm- sveitarstjórans og píanóleikar- ans, Gerrit Schuil. Námskeiðið er opið áheyrend- um en í dag, sunnudag, stendur þaðfrákl. 10.00 til 12.30. FUNDUR SJÓÐFÉLAGA Fimmtudaginn 10. apríl 1997, kl. 17:15 í tónleikasal FÍH viö Rauðagerði 27, Reykjavík 1. Tónlist, kaffi og meðlæti. 2. Fundarsetning. 3. Skýrsla stjórnar og ársreikningur fyrir árið 1996. 4. Kosningar. 5. Önnur mál. 6. Tónlist. Tríó Þóris Baldurssonar leikur nokkur lög. Sjódfélagar eru hvattir til að mcetal VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. • Aðili að Verðbréfaþingiíslands • Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími 560-8900. Myndsendir 560-8910. GoldStar GT-9500 Þráðlaus sími fyrir heimili og fyrirtæki, með innbyggt símtæki í móðurstöð og innanhússtalkerfi milli allt að þriqqia þráðlausra síma og móðurstöðvar. Grunnpakki: Aðalsími með einum þráðlausum síma og öllum fylgihlutum s.s. síma- og rafmagnssnúrum, hleðslutæki, rafhlöðu og leiðbeininaum á íslensku. Verð kr. 24.490,- stgr. Auka þráðlaus sími: Þráðlaus sími með hleðslutæki, rafhlöðu og leiðbeiningum á íslensku. Verð kr. 11.900,- stgr. S ístel S I öumú la 37 ■ 1 0 8 Revkjavlk Slmi 588 - 2800 - Fax. 566-7447 Endursöluaðilar: Eyjaradíó - Vestmannaeyjum, Hátlðni - Höfn, Snerpa - ísafirði, Metró - Akureyri, Verslunin Heqri - Sauðárkróki

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.