Morgunblaðið - 06.04.1997, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. APRÍL 1997 21
UNNIÐ er af kappi í 40 kúa fjósinu, sem Boilleau barón byggði fyrir síðustu aldamót, við að innrétta þar nútima stórverslun.
upp eftir um vorið. Keypti hann jörðina og
búið af Andijesi Fjeldsted fyrir 36 þúsund kr.
og tók þá þegar við búi og búslóð. Sigurður
sonur Andijesar varð ráðsmaður barónsins í
tvö ár. En vinnufólk það sem fyrir var fylgdi
búinu. Á sumrin var margt kaupafólk, um 30
manns í heimili. Lét hann verkafólkið alveg
afskiptalaust, og talaði aðeins við ráðsmann
sinn eða verkstjóra. Hann var ljúfmannlegur
í umgengni, en af verkafólki sínu krafðist
hann fullrar virðingar og heimtaði t.d. að
karlmenn tækju ofan þegar þeir sæju sig, við
hvaða verk sem þeir væru.
„Hús byggði hann handa sjálfum sér á
Hvítárvöllum og hafðist þar aðallega við þeg-
ar hann var heima, en það var sjaldan lengur
en hálfan mánuð í senn, því hann virtist eirð-
arlaus og vildi alltaf vera á ferðalagi. Á ve-
turna dvaldist hann langdvölum í Reykjavík,
en heimtaði að hann væri sóttur þangað
hvernig sem á stóð. Varð þá að flytja hann
á skipi upp á Akranes og hafa þar til hesta,
er hann gæti farið á heim að Hvítárvöllum.
Voru þessi ferðalög hans dýr og báru meiri
vott um að í honum byggi eirðarlaus sál,
heldur en fjáraflamaður og framsýnismaður.
Baróninn var hinn mesti sælkeri og hélt sig
vel í mat og drykk. Átti hann jafnan ærnar
birgðir af áfengi, sem hann pantaði frá út-
löndum. Kvaðst hann ekki geta borðað nema
því aðeins að hann hefði vín með mat.“
Fólk í Borgarfírði rak upp stór augu þegar
það sá bátinn Hvftá koma öslandi upp sam-
nefnda á og lagðist að bryggju á Hvítárvöll-
um. Tómas Guðmundsson segir að rekja megi
í vissum skilningi til barónsins eitt af höfuð-
snilliverkum íslenskra skáldmennta, kvæði
Einars Benediktssonar Hugareldur. Valgerður
kona Einars segir frá boði sem þau þáðu að
Hvítárvöllum. Var báturinn sendur eftir þeim
og dvöldu þau þar í viku í góðum fagnaði,
en upp úr þeirri för hafi kvæðabálkur Einars
orðið til. Hún segir: „Einar var einn þeirra fáu
manna, sem baróninn batt verulegan kunning-
skap við meðan hann átti heima hér á landi..."
Er ekki að efa að þessir sfórhuga hugsjóna-
og fjármálamenn hafi haft um margt að tala.
Skaut sig í járnbrautarvagni
Baróninn mun hafa verið félítill er hann
kom hingað. Hafði eytt aleigu sinni í lúxuslíf,
spilamennsku og síðast í einhveija konu vest-
anhafs, að sagt er. Þó átti dánarbú foreldra
hans einhver hlutabréf, sem bróðir hans í
Baltimore var smám saman að selja handa
honum. Leist bróðurnum af fyrri reynslu ekk-
ert á þessi nýju fjármálaumsvif hans á ís-
landi. I baróninum var mikill gróðahugur og
honum datt ýmislegt fleira nýstárlegt í hug
hér sem á mætti græða, m.a. stórt hrossabú,
laxveiði til leigu fyrir Englendinga og þá með
veiðihöll. Þegar hann sá að hveiju fór með
búskapinn komst Boilleau að þeirri niðurstöðu
að eina ráðið til að græða hér á íslandi væri
útgerð, ekki skútuútgerð eða smábátaútgerð,
heldur togaraútgerð, segir Árni Óla. Kom
honum þá til hugar að stofna félag með 16-20
enskum togurum og fá leyfi fyrir þá að veiða
í landhelgi frá Ingólfshöfða að Reykjanesi
gegn því að Faxaflói væri friðaður. Skrifaði
hann greinar um það og fékk Guðlaug Guð-
mundsson til að bera fram frumvarp á þingi
um þetta. Fannst honum þá sem allt væri
klappað og klárt og fór að búa sig til utanferð-
ar til að stofna félag í London til að hagnýta
sérleyfið. Hann dvaldist í London um hríð til
að útvega fjármagn í samvinnu við fjárafla-
menn þar, en mun lítið hafa orðið ágengt.
Þangað barst honum fréttin um að alþingi
hefði eftir langar umræður fellt með jöfnum
atkvæðum frumvarpið: 10:10.
Hingað barst svo fréttin um afdrif baróns-
ins. Milli jóla og nýárs lagði hann af stað frá
London og hafði á orði að hann ætlaði til
Parísar, Vínarborgar eða Ítalíu. En skammt
fyrir utan London skaut hann sig í járnbraut-
arvagninum. Var hann þá aðeins með eitt
penny á sér og stórskuldaði í gistihúsinu.
Þannig lauk ævi hins eina baróns, sem átt
hefur heima á íslandi.
Eignir hans hér voru seldar enda skuldaði
hann talsvert fé. Edinborg keypti fjósið, en
síðan eignaðist bærinn það. Það er fjósið sem
baróninn reisti og stórverslanimar voru nú
nær hundrað árum síðar að keppast um að
fá undir nútíma stórmarkað. Þar hefur versl-
unarkeðjan 10-11 að undanfórnu verið að
breyta fjósinu og búa það undir opnun nýrrar
verslunar innan skamms.
Eþvotlavél,800snúninga Réttverðkr.61.900stgr.
GE|ivottavél,1000snúninga Réttverökr. 69.900 stgr.
RAFTÆKJAV E R S LU N
HEKLA LAUGAVEGI 172 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 569 5775