Morgunblaðið - 06.05.1997, Blaðsíða 1
112 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
100. TBL. 85. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Ríkisstjórn Blairs kynnir stefnubreytingu í ESB-málum
Boða nýja byrjun í
Evrópusamstarfinu
Búist við leiðtogakjöri í Ihaldsflokknum fyrir júnflok
Reuter
ALAIN Juppe, forsætisráðherra Frakklands, gaf eiginhandaráritanir
á báða bóga þegar hann var í Nancy í gær. Sfðustu skoðanakannan-
ir benda til, að vinstri- og hægriflokkarnir njóti jafn mikils fylgis.
Hnífjöfn kosninga-
barátta í Frakklandi
París. Reuter.
SKOÐANAKÖNNUN, sem birt var
í Frakklandi í gær, bendir til þess að
stuðningurinn við frönsku vinstri-
flokkana hafi aukist og þeir séu nú
með jafnmikið fylgi og bandalag
hægriflokkanna.
38% ætla að kjósa mið- og hægri-
flokkana, sem eru við völd í Frakk-
landi, og fylgi sósíalista og kommún-
ista er jafnmikið, ef marka má könn-
un LCÍ-sjónvarpsins. Þetta er þriðja
könnunin á tveimur dögum sem
bendir til þess að vinstriflokkarnir
séu í sókn. „Ég hef alltaf talið að
kosningarnar yrðu tvísýnar,“ sagði
Alain Juppe forsætisráðherra og
bætti við að hann teldi eðlilegt að
Jacques Chirac forseti lýsti yfir
stuðningi við stjórnarflokkana.
Embættismenn á skrifstofu for-
setans sögðu hann vera að íhuga
hvort hann ætti að lýsa yfir stuðn-
ingi við flokkana í fyrsta sinn frá því
hann boðaði til kosninganna. Dag-
blaðið Le Monde sagði að forsetinn
hefði þegar ákveðið að gera það í
grein sem yrði birt í svæðisbundn-
um dagblöðum á morgun.
London. Reuter.
DOUG Hender-
son, Evrópu-
málaráðherra í
nýrri stjórn
Verkamanna-
flokksins í Bret-
landi, sagði á
fundi í Brussel í
gær, að hér eftir
yrði unnið með
öðrum Evrópu-
sambandsríkjum
en ekki gegn þeim. Breska stjórnin
hefur einnig ákveðið að undirrita fé-
lagsmálakafla Maastricht-samn-
ingsins en stjórn Ihaldsflokksins
var honum andvíg. Búist er við, að
íhaldsmenn kjósi sér nýjan leiðtoga
í júlí.
„Við ætlum að vinna með ykkur
eins og félagar en koma ekki fram
við ykkur eins og andstæðingar,"
sagði Henderson á fundinum í
Brussel. „Hin nýja stjórn í Bret-
landi lítur á Evrópu sem tækifæri,
ekki sem ógnun.“
Á þessum fyrsta ESB-fundi
bresks ráðherra eftir stjórnarskipt-
in í Bretlandi sagði Henderson, að
Bretar vildu gera Evrópusamband-
ið lýðræðislegra og auka skilning al-
mennings á mikilvægi þess og til-
gangi. Gaf hann einnig í skyn, að
breska stjórnin yrði sveigjanlegri
en fyrri stjórn í utanríkis-, dóms- og
innanríkismálum.
Andvígir sameiningu
WEU og ESB
Henderson lagði hins vegar
áherslu á, að Bretar myndu áfram
annast landamæraeftirlit og væru
andvígir því, að varnarbandalag
Evrópuríkjanna, WEU, Vestur-
Evrópubandalagið, yrði sameinað
ESB.
Fulltrúar annarra ESB-ríkja
fögnuðu í gær yfirlýsingum Hend-
ersons og þeirri ákvörðun bresku
stjómarinnar að undirrita félags-
málakaflann. í honum er kveðið á
um ýmis réttindi launþega, til dæm-
is lágmarkslaun, en stjórn íhalds-
flokksins hélt því fram, að hann
myndi draga úr sveigjanleika á
breskum vinnumarkaði og auka
verulega á atvinnuleysið. Um það
eru þó skiptar skoðanir.
Brian Mawhinney, formaður
breska Ihaldsflokksins, kvaðst í
gær búast við, að nýr leiðtogi
flokksins yrði kjörinn síðast í júní.
Lét hann jafnframt í Ijós von um,
að leiðtogakjörið yrði ekki til að
auka á sundrunguna innan flokks-
ins um Evrópumálin.
Óljós staða
Kenneth Clarke, fyrrverandi
fjármálaráðherra, varð fyrstur til
að gefa kost á sér í leiðtogakjörinu
en hann er jafnframt oddviti Evr-
ópusinnanna í íhaldsflokknum.
Rúmur helmingur 165 þingmanna
flokksins er hins vegar ýmist tal-
inn til Evrópuandstæðinga eða
þeirra, sem hafa miklar efasemdir
um Evrópusamstarfið. Evrópuand-
stæðingarnir Peter Lilley, fyrrver-
andi ráðherra, og John Redwood
hafa einnig gefið kost á sér og
aðrir líklegir frambjóðendur eru
þeir Stephen Dorell og William
Hague.
Michael Heseltine, fyrrverandi
aðstoðarforsætisráðherra, ætlar
ekki að taka þátt í slagnum en hann
er nú á sjúkrahúsi vegna verkja fyr-
ir brjósti. Fékk hann vægt hjarta-
áfall 1993 en læknar segja líðan
hans góða og verður hann útskrif-
aður næstu daga.
Henderson
Yersta veður á
flóðasvæðunum
í Kanada
Viðbún-
aður í
Winnipeg
Winnipeg. Reuter.
MIKILL viðbúnaður var við
flóðgarðana í Rauðárdal í
Manitoba í gær en þá var þar
versta veður og verulegur öldu-
gangur. Var óttast, að garðarn-
ir brystu en þeir hafa staðist
álagið hingað til og komið í veg
fynr tjón í Winnipegborg.
Ölduhæð á „Rauðahafinu"
eins og flóðið eða nýja stöðu-
vatnið í Suður-Manitoba í
Kanada og Norður-Dakóta í
Bandaríkjunum er kallað var
um 70 sm og voru björgunar-
sveitir við öllu búnar.
Stjómvöld í báðum ríkjunum
ætla að skipa sameiginlega
nefnd til að fjalla um þessi mál
og hvernig koma megi í veg fyr-
ir önnur flóð þessum lík. Á þess-
um slóðum var gífurlegt fann-
fergi í vetur og í vorleysingun-
um varð vatnsmagnið í Rauðá
22 sinnum meira en venjulega.
Talið er, að það hafi náð há-
marki en muni þó ekki sjatna að
ráði næstu daga.
Sterkir norðanvindar blása
nú í Rauðárdal og búist er við,
að áttin haldist út vikuna. Þá er
hugsanlegt, að vindurinn snúist
í suður og reyni þá enn meir á
flóðgarðana en nú.
Nýr og al-
gildur blóð-
flokkur
Albany. Reuter.
VÍSINDAMENN skýrðu frá því í
gær, að þeim hefði tekist að breyta
yfirborði rauðra blóðkorna þannig,
að unnt yrði að búa til einn blóð-
flokk, sem gengi hjá öllum án til-
lits til blóðflokkagi-einingar.
Þessi uppgötvun var kynnt á
þingi bandarískra barnalækna en
þar var meðal annars fjallað um
blóðsjúkdóma í börnum.
Sögðu vísindamennirnir, að að-
ferðin við að breyta rauðu blóð-
kornunum væri einföld og ætti eft-
ir að koma að miklu gagni, til
dæmis við líffæraflutninga og ekki
síst í þriðja heiminum þar sem
blóðbankar eru engir.
Helfarar minnst
ÍSRAELAR minntust í gær
þeirra sem létu lífíð í helför-
inni af völdum nasista í
heimsstyrjöldinni síðari, sem
kostaði sex milljónir gyðinga
Iífíð. Lögðu landsmenn niður
vinnu í tvær mínútur og
minntust fórnarlambanna í
þögn, sem rofín var af sírenu-
væli er annars varar fólk við
yfírvofandi loftárás. Fánar
voru í hálfa stöng, umferð
stöðvaðist og bflstjórar stigu
út úr farartækjum smurn þeg-
ar sírenuvælið heyrðist, og
andlegir og veraldlegir leið-
togar landsins lásu upp nöfn
látinna ættingja sem létu lífíð
í helförinni. A meðal þeirra
var Benjamin Netanyahu for-
sætisráðherra, sem minntist
látinna ættingja Söru, eigin-
konu sinnar, en fleiri en 100
manns úr fjölskyhlu hennar
Iétu lífíð í útrýmingarbúðum
nasista.
Á myndinni er kveikt á
sjötta kyndlinum við minning-
arathöfn í fyrrakvöld, en hver
kyndill táknar eina milljón
manna sem létu lífið í helför-
inni.
Valdataka skæru-
liða yfirvofandi
Lubumbashi. Rcutcr.
BILL Richardson, sendimaður
Bandaríkjastjórnar i Zaire, sagð-
ist í gær vera að vinna að því, að
ekki kæmi til blóðsúthellinga
þegar uppreisnarmenn næðu
Kinshasa, höfuðborg landsins, á
sitt vald. Enginn árangur var af
viðræðum Mobutu Sese Sekos,
forseta landsins, og Laurent Ka-
bila, leiðtoga uppreisnarmanna.
Richardson kvaðst vera kom-
inn til að tryggja, að yfirvofandi
valdataka uppreisnarmanna færi
eins friðsamlega fram og unnt
væri. Flutti hann jafnframt Ka-
bila sérstök skilaboð frá Bill
Clinton, forseta Bandaríkjanna.
Kabila sagði á blaðamanna-
fundi í gær, að legði Mobutu nið-
ur völd áður en skæruliðar tækju
Kinshasa yrði öryggi hans tryggt
en að öðrum kosti yrði hann rek-
inn burt eins og rakki.
■ Tróðust undir/20