Morgunblaðið - 06.05.1997, Side 18

Morgunblaðið - 06.05.1997, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997 NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ ____________________ÚRVERINU______________________ Vélstjórafélag íslands er ósátt við lög um Lífeyrissjóð sjómanna Ekki aðild að stjórn eftir úrsögn úr FFSÍ Vélstjórar eru ósáttir við að eiga ekki aðild að stjóm Lífeyrissjóðs sjómanna. Formaður stjóm- ar segir að ef félög gætu sagt sig úr hagsmuna- samtökum og krafíst eigin fulltrúa í stjóm sjóðsins yrði fljótt þröngt setinn bekkurinn. j,ALLT frá því að Vélstjórafélag Islands gekk úr Farmanna- og fiskimannasambandinu árið 1991 höfum við reynt að knýja fram breytingar á lögum og reglugerð um Lífeyrissjóð sjómanna, svo við fáum aðild að stjórn sjóðsins. Okk- ur hefur hins vegar ekkert orðið ágengt. Þó eru félagsmenn okkar, sem greiða í Lífeyrissjóð sjómanna, ámóta margir og félagsmenn FFSÍ,“ sagði Helgi Laxdal, for- maður Vélstjórafélags íslands, í samtali við Morgunblaðið. Guðmundur Hallvarðsson, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs sjó- manna, sagði að ef félög gætu sagt sig úr hagsmunasamtökum og gert kröfu um fulltrúa í stjóm lífeyrissjóða þá yrði fljótt þröngt setinn bekkurinn. „Þetta snýr ekki bara að Vélstjórafélaginu eða Landssambandi smábátaeigenda, sem einnig hefur gert kröfu um stjórnarmann í lífeyrissjóðnum. Hvað ef Sjómannafélag Reykjavík- ur segði sig úr Sjómannasamband- inu og Stýrimannafélagið úr Far- manna- og fiskimannasamband- inu? Ættu þessi félög þá að eiga rétt á fulltrúa í stjórn? Það sjá allir hvar slíkt getur endað.“ Vélstjórafélagið átti aðild að stjórn sjóðsins í gegnum FFSÍ á meðan vélstjórar voru enn innan vébanda sambandsins. í gildandi lögum um Lífeyrissjóð sjómanna segir, að nánari ákvæði um skipu- lag sjóðsins og starfsemi hans skuli setja í reglugerð sem stjórn sjóðs- ins semur og staðfest er af Alþýðu- sambandi Islands, Farmanna- og fiskimannasambandi íslands, Fé- lagi íslenskra botnvörpuskipaeig- enda, Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Sjómannasambandi íslands, Vinnuveitendasambandi Islands og fjármálaráðherra. „Við fórum fram á það þegar lögum um Lífeyrissjóð sjómanna var breytt árið 1994 að Vélstjórafélaginu yrði bætt inn í þessa upptalningu, þar sem við höfðum þá gengið úr FFSÍ,“ sagði Helgi Laxdal. „Við kröfðumst þess ekki að bætt yrði við manni í stjóm sjóðs- ins, heldur einungis að vélstjórar og FFSÍ skipuðu aðalmann og HUMARVERTÍÐ hefst 16. maí næstkomandi og að sögn Hrafnkels Eiríkssonar fiskifræðings má búast við svipaðri veiði og í fyrra en þá veiddust 1.635 tonn. Kvótinn á vert- íðinni verður sá sami og í fyrra, eða 1.500 tonn, en síðan geta menn flutt um 200 tonna kvóta aðallega frá því í hittifyrra þegar veiðin var ekki nema um 1.000 tonn. „Við erum að ganga frá okkar kafla í þessa stóru skýrslu sem kem- ur út í lok mánaðarins um tillögur fyrir næsta fískveiðiár og þar lýsum við hvernig veiðarnar gengu fyrir sig núna síðustu árin. Eg get lítið um þetta sagt nú nema að við gerum ráð fyrir því að við séum kannski varamann í stjórn í sameiningu. Þetta gekk ekki eftir, en þá fórum við fram á við efnahags- og við- skiptanefnd að hún legði til við fjármálaráðherra að reglugerð sjóðsins yrði breytt, en þar er kveð- ið á um hveijir skuli skipa stjórn, með þeim rökum að það gæti tæp- ast samrýmst almennum mann- réttindum að lögskylda hóp manna til aðildar að ákveðnum lífeyris- sjóði án þess að sama hópi væru tryggð áhrif á rekstur hans.“ Efnahags- og viðskiptanefnd gerði athugasemd við fjármála- ráðuneytið að í reglugerðardrögun- um væri ekkert tillit tekið til breyt- inga sem orðið hefðu á skipan stéttarfélaga. Ráðuneytið beindi þeim tilmælum til stjórnar lífeyris- sjóðsins að hún tæki tillit til ábend- inganna. Stjórnin sagði í svarbréfi til ráðuneytisins að hún teldi ekki rétt að svo komnu máli að gera þessar breytingar á reglugerðar- drögunum. Enn ritaði fjármálaráðuneytið bréf til stjórnar lífeyrissjóðsins og hafði þá staðfest reglugerðina, en beindi þeim tilmælum til stjórnar- innar og fulltrúa félaga sem eiga aðild að henni að teknar yrðu upp viðræður við forráðamenn Vél- stjórafélagsins um skipan stjómar sjóðsins með þeim hætti að tryggð væri eðlileg aðild stéttarfélaga þeirra sem greiddu í sjóðinn sam- kvæmt lögum um hann. Stjórnarmenn ekki fulltrúar samtakanna 'Fundahöld um breytingar í þessa veru voru haustið 1994. í framhaldi af því ítrekaði Vélstjóra- félagið tillögu sína um að vélstjór- ar og farmenn skipuðu sameigin- lega fulltrúa í stjóm, enda hefði ekkert annað gerst en að FFSÍ hefði skipst í tvo hópa. Stjórn sjóðsins óskaði umsagnar þeirra samtaka, sem tilnefna fulltrúa í stjóm. í maí 1995 lágu umsagnirnar fyrir. Farmanna- og fiskimanna- sambandið tók undir ósk Vélstjóra- félagsins um aðild, en hafnaði þeirri hugmynd að deila stjómar- sæti. Sjómannasambandið taldi að komast upp úr þeirri lægð sem verið hefur,“ sagði Hrafnkell. Þröstur Þorsteinsson, skipstjóri á Snætindi frá Þorlákshöfn, sagðist vera sæmilega bjartsýnn á vertíðina. Sjórinn væri tiltölulega hlýr og orð- inn mjög dökkur, sem væri ákjósan- legt til þess að humarveiðin yrði góð. „Þeir urðu talsvert varir suður úr Surtinum togbátarnir núna í stoppinu og eftir stoppið, og eins hafa þeir eitthvað orðið varir við humar austur í Breiðamerkurdýpi og Skeiðarárdýpi. Þar er hann meira í köntunum en það er eins og leðjan úr hlaupinu hafi farið út dýpið og kantarnir sloppið betur," sagði Þröstur. ekki ástæðu til breytinga á stjóm, VSÍ gerði ekki athugasemd við sameiginlegar tilnefningar til stjómar, en taldi ekki efni til að fjölga í stjórn sjóðsins og sagði stjórnarmenn ekki fulltrúa þeirra samtaka sem tilnefndu þá heldur þeirra sameiginlegu hagsmuna at- vinnurekenda og launamanna að sjóðurinn væri vel rekinn. LÍÚ kvaðst styðja sameiginlegt kjör Vélstjórafélagsins og FFSI á full- trúa ef um það næðist samkomu- lag, en ASÍ sagði ekki ástæðu til að breyta núverandi fyrirkomulagi. Stjórnaraðild eða annan sjóð „Eftir að við fengum þessi svör leituðum við til þingfiokkanna, enda var málið komið í heilan hring,“ segir Helgi Laxdal. „Engar breytingar hafa enn orðið, en við höfum leitað upplýsinga hjá Lífeyr- issjóðnum Hlíf um hvort félags- menn okkar á sjó megi greiða til sjóðsins. Vélstjórar sem vinna í landi greiða þegar til Hlífar. Við fengum þau svör, að til þess að það væri hægt yrði að breyta lögum um Lífeyrissjóð sjómanna. Þá kom fram, að miðað við núver- andi aldursdreifingu virkra félaga er vænlegri kostur að vera virkur félagi í Lífeyrissjóði sjómanna en Lífeyrissjóðnum Hlíf, ef vissa er fyrir því að hægt sé að vera félagi til ellilífeyrisaldurs. Vélstjórar fara oft ungir á sjó og greiða í Lífeyris- sjóð sjómanna, en flytjast gjarnan í störf í landi og greiða þá til Hlíf- ar. Það er mun hagkvæmara fyrir þessa menn að gerast strax félag- ar í Hlíf,“ sagði Helgi. Helgi sagði að vélstjórar hefðu enn ekki gefið upp vonina um að knýja fram breytingar. „í upphafi þessa árs beindum við enn þeim tilmælum til efnahags- og við- skiptanefndar að breyta lögum um Lífeyrissjóð sjómanna á þann veg, að okkur verði tryggð aðild að stjórn. Ef það væri ekki hægt þá að lögunum yrði breytt á þann veg að þeim félagsmönnum Vélstjór- afélagsins, sem ráðnir eru á íslensk skip, verði ekki gert skylt að greiða til sjóðsins. Nefndin vísaði þessu erindi okkar til Lífeyrissjóðs sjó- manna, sem hefur ekki svarað nefndinni um hvort stjórn sjóðsins vill frekar stuðla að því að við fáum stjómaraðild í samræmi við lýð- ræðisreglur eða að okkar menn fái að tryggja sinn rétt í Lífeyrissjóðn- um Hlíf,“ sagði Helgi Laxdal, for- maður Vélstjórafélags íslands. Hluti af stærri vanda Guðmundur Hallvarðsson sagði að honum þætti það ekki veigamik- il rök fyrir ósk vélstjóra um að fá að greiða í annan lífeyrissjóð, að formaður þeirra ætti ekki sæti í stjóm Lífeyrissjóðs sjómanna. „Ég er ekki fráhverfur því í sjálfu sér að Vélstjórafélagið eigi aðild að stjóminni. Smábátaeigendur hafa lagt fram sams konar beiðni, enda greiða þeir í sjóðinn, en hvomgt þessara mála er afgreitt enn, enda skiptar skoðanir um hvemig haga ætti skipan í stjóm og hvort fjölga þyrfti stjórnarmönnum. Hagsmuna vélstjóra og smá- bátaeigenda er auðvitað ekki síður gætt en annarra sjóðsfélaga, þótt formenn samtaka þeirra sitji ekki í stjórninni. Þessi vandi endur- speglar auðvitað annan stærri vanda, sem er sá að sjómenn hafa ekki borið gæfu til að sameinast í einum samtökum,“ sagði Guð- mundur Hallvarðsson, stjómar- formaður Lífeyrissjóðs sjómanna. Búist við svipaðum humarafla og í fyrra Morgunblaðið/Árni Sæberg ÖRN Þorvarðarson og Hjalti Þorvarðarson reka kaffi- húsið Puccini Ætla að opna kaffihús í Noregi EIGENDUR kaffihússins Kaffi Puccini hyggjast opna tvö Puccini kaffihús í Noregi innan tíðar. Kaffihúsið var opnað í október síðastliðnum við Vitastíg og fást þar um 32 kaffitegundir sem og te og kakó frá bandaríska fram- leiðandanum Barnie’s. Auk þess að vera kaffihús er Puccini sér- verslun með kaffi og te. „Forráða- menn bandaríska fyrirtækisins Barnie’s hafa farið fram á það við okkur að við opnum kaffíhús á Norðurlöndum og jafnvel víðar í Evrópu eins og til dæmis í Tékk- landi,“ segir Örn Þorvarðarson, einn af eigendum kaffihússins. „Um þessar mundir erum við að vinna í húsnæðismálum í Nor- egi og stofna þar hlutafélag um reksturinn. Fyrsta kaffihúsið verður innan skamms opnað í Fredriksstad og við stefnum síðan á að opna síðar á árinu annað í Osló.“ Örn segir að áætlað sé að kaffi- húsin verði með svipuðu sniði og Kaffi Puccini við Vitastíginn, litlar einingar þar sem kaffið skipar fyrsta sæti. Lesendur spyrja ^.^NDI hringdi og vildi fá upp- skrift að svokölluðu Ceasar-salati sem hann sagði að væri fjarska gott og vinsælt bæði í Banda- ríkjunum og Bretlandi. Svar: Ásgeir Helgi Erlingsson yfir- matreiðslumaður á veitingahúsinu Carpe diem brást vel við þeirri bón að gefa lesanda uppskrift að þessu salati. Hann sagði að fyrir nokkru hefði það verið á matseðli hússins og því væru hæg heimatök. Morgunblaðið/Golli ÁSGEIR Helgi Erlingsson matreiðslumeistari. Fyrir fjóra 1 haus Lettucesalat (kinakál, eikarlauf eða iceberglauf) 1,7 dl fransk salatsósa (sjá uppskrift) sítrónusafi 50 g rifinn parmesanostur 50 g ansjósur (má sleppa) 1 soðið eða hráttegg steikt hvitlauksrif steiktir brauðteningar, steiktir i olíu af hvitlauk Salatsósqn:__________________ __________ lútsk salt________ ’/<tsk heill mulinn svartur pipar í<tsk franskt sinnep %tsk sykur 4 msk hvítvínsedik 8 msk ólífuolia (má nota aðra olíu ef vill) Salatið er skolað og þerrað. Rifið í hæfilega stóra bita. Bland- ið saman salati, sósu, sítrónus- afa, steikta hvítlauknum, osti, ansjósum og egginu sem búið er að skera í bita ef það er soðið. Rétt áður en salatið er borið fram er brauðteningunum bætt saman við svo þeir séu stökkir. ■

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.