Morgunblaðið - 06.05.1997, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 06.05.1997, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ1997 33 AÐSEMPAR GREINAR Betra ef satt væri SVAR við grein Páls Péturssonar félags- málaráðherra um táknmálstúlkun frá 29. apríl. Þriðjudaginn 29. apríl skrifaði Páll Pét- ursson félagsmálaráð- herra grein í Morgun- blaðið um táknmáls- túlkun. Á greininni mátti skilja að 25 millj- ónir á ári færu til tákn- málstúlkunar. Þar sem þetta er ekki rétt vil ég að eftirfarandi komi fram: Á sl. ári var sam- tals eytt í túlkun fyrir heyrnarlausa, heyrnar- skertaog daufblinda 11.761 þúsund krónum. Þessi upphæð skiptist á eftirfarandi hátt: Vegna túlkunar í skólum greiddi menntamálaráðuneytið 6.739 þús. af sérkennslukvóta. í almenna túlkun var eytt 5.022 þús. þar af voru: 1.780 þús. innheimtir reikningar frá ýmsum aðilum 2.100 þús. framlag úr fram- kvæmdasjóði fatlaðra 1.142 þús. tekið af rekstrarfé SHH. Þau 2.100 þús. sem félagsmála- ráðuneytið veitti í fyrra úr fram- kvæmdasjóði til almennrar túlkunar fóru í túlkun vegna: Viðskipta við opinberar stofnanir, s.s. heilsu- gæslustöðvar, kirkju, vinnumiðlan- ir, dagvistarstofnanir, skóla o.s.frv.; viðskipta við sjálfstætt starfandi sérfræðinga, lækna, lögfræðinga, sálfræðinga og annarra tilvika sem varða hagsmuni hins heyrnarlausa verulega, s.s. starfsmannafundi, fundi í húsfélögum, umferðar- fræðslu, námskeið og til upplýs- ingamiðlunar og kynningar á opin- berri þjónustu. Svo virðist sem félagsmálaráð- herra álíti að allt fé Samskiptamið- stöðvarinnar renni til túlkaþjón- ustu. Það er ef til vill ekki óeðlileg- ur misskilningur þar sem túlkaþjón- ustan er sennilega mest áberandi af þeim verkefnum sem þar er unn- ið að. Önnur verkefni eru hins veg- ar nauðsynleg forsenda þess að hægt sé að veita heyrnarlausum, heyrnarskertum og daufblindum þjónustu. Þau eru rannsóknir á táknmáli, orðabókargerð, menntun táknmáls- kennara, menntun táknmálstúlka, kennsla táknmáls, þýðingar á tákn- mál, framleiðsla efnis á táknmáli, gerð námsefnis, kennsla og upp- bygging á málumhverfi í kringum þau börn sem fæðast heyrnarlaus, táknmálskennsla fyrir fólk sem missir heyrn eða daufblinda. Þessi verkefni eru nauðsynlegur grunnur sem verður alltaf að vera til staðar til þess að hægt sé að mennta fólk til þjónustustarfa við heyrnarlausa eða til þess að styðja þjónustustofn- anir til þess að standa við skyldur sínar gagnvart heyrnarlausum, heyrnarskertum og daufblindum. Eitt af forgangsverkefnum í starfi Samskiptamiðstöðvarinnar hefur verið að standa að menntun túlka í samvinnu við Háskóla ís- lands. Nú í sumar ljúka fyrstu túlkarnir námi frá Háskóla íslands eftir að hafa lokið 100 eininga námi, þar af 60 einingum í tákn- málsfræði og 40 ein- ingum í túlkun. Það er markmið laga um málefni fatlaðra að tryggja fötluðum jafn- rétti og sambærileg lífskjör við aðra þjóðfé- lagsþegna og skapa þeim skilyrði til þess að lifa eðlilegu lífi. í annarri grein laga um málefni fatlaðra kemur fram að heyrnarskertir eigi rétt á þjónustu samkvæmt þeim lögum. Eins og áður sagði er í dag eytt 11.761 þús. kr. í táknmálstúlk- un en ekki 25 milljónum eins og félagsmálaráðherra lét í veðri vaka í grein sinni. Á hinn bóginn má gera ráð fyrir því að 25 milljónir sé einmitt sú tala sem nauðsynlegt er að eyða í túlkun til þess að þeyrn- arlausir og heyrnarskertir íslend- ingar geti lifað eðlilegu lífi. í dag er langt frá því að þeir geti það, til þess vantar þá þjónustu sem eðlilegt væri að veita á grundvelli laga um málefni fatlaðra. Takmarkaður skilningur á þörfum heyrnarlausra er líklega ástæðan fyrir því, segir Valgerður Stefáns- dóttir, að þjónusta við þá hefur dregist langt aftur úr þjónustu við aðra fatlaða. Vegna þess að heyrnarlausir eru heyrnarlausir og tala táknmál hafa þeir ekki sömu möguleika á að vekja athygli á stöðu sinni, tjá sig og fylgjast með í íslensku samfélagi. Því er líka takmarkaður skilningur á þörfum þeirra og er það sennilega ástæðan fyrir því að þjónusta við þá hefur dregist langt aftur úr þjón- ustu við aðra fatlaða. Það er fagn- aðarefni að núverandi félagsmála- ráðherra sýni kjörum heyrnarlausra áhuga. Höfundur er forstöðumaður Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra. FLÍSASKERAR OG FLÍSASAGIR fc: 5u i (V íH‘ É: Stórhöfða 17, við Gullinbrú, síini 567 4844 Valgerður Stefánsdóttir sumarsms Rcykjavik: Austurstræti 12 • S. 569 1010 • Símbrét 552 7796 og 569 1095 • Innanlandsferðir S. 569 1070 Hótel Sögu við Hagatorg • S. 562 2277 • Simbréf 562 2460 Hafnarfjörður: Bæjarhrauni 14 • S 565 1155 •Símbréf 565 5355 Keflavik: Hafnargötu 35 • S. 421 3400 • Simbröf 421 3490 Akranes: Breiðargötu 1 »S 431 3386 • Simbréf 431 1195 Akureyri: Ráðhústorgi 1 • S. 462 7200 • Simbréf 461 1035 Vestmannaeyjar: Vestmannabraut 38 • S. 481 1271 • Símbréf 481 2792 ísafjörður: Hafnarstræti 7 • S.456 5390 • Simbréf 456 3592 Einnig umboðsmenn um land allt Heimasiða: www.samvfnn.is. Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér utanlandsferð á sérstöku afsláttarverði. * Miðamir gilda frá einni viku upp í einn mánuð. ® Fargjöldin gilda fyrir félagsmenn og fjölskyldur þeirra (þ.e. þá sem halda heimili saman). * Sala farseðla fer eingöngu fram á söluskrifstofum og hjá umboðsmönnum Samvinnuferða - Landsýnar um land allt. Dragið ekki að kaupa miða! Verð á mann með, íslenskum og erlendum flugvallarskatti: Fullorönir 8. mars - 9. maí Kaupmannahöfn 27.180 Börn 2-11 ára 8. mars - 9. maí 18.310 | Osló 27.930 18.960 Stokkhólmur 29.950 19.880 London 27.800 18.630 Glasgow 22.800 15.230 Luxemborg 28.100 18.730 Amsterdam 29.970 20.200 París 28.730 19.160 Hamborg 29.710 19.940 Baltimore 44.500 30.030 Boston 40.700 27.430 Halifax 40.900 27.630 Innifalið: Flugvallarskattur á íslandi og erlendis auk sendingakostnaðar. Börn yngri en 2 ára borga 10% af fullorðinsverði, auk þess reiknast flugvallarskattur á ungbörn í Bandaríkjunum og Kanada. Allar nánari upplýsingar er að fá í síma 569 1010 rJS-elst IGLANDO éitartékag slens MkrtrcBðinga „ö W BSBB I KM j Bandalag háskólamanna Félagar í eftirtöldum félögum njóta þessara einstöku kjara: Alþýðusamband íslands, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Bandalag háskólamanna, Samband íslenskra bankamanna, Landssamband aldraðra, Farmanna- og fiskimannasamband Islands, Kennarasamband íslands, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Blaðamannafélag íslands, Vélstjórafélag íslands, Stéttarfélag verkfræðinga, Stéttarfélap tæknifræðinga, Félag bókagerðarmanna, Prestafélag Islands, Verkstjórasamband Islands, Félag (sl. lyfjafræðinga, Félag íslenskra stjórnunarstarfsmanna Keflavíkurflugvelli og Félag aðstoðarfólks tannlækna. FLUGLEIDIR SamviiMiifBrðir-Liiiiilsýii OATLAS-B
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.