Morgunblaðið - 06.05.1997, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Hörmulegt slys þegar flóttafólk var flutt úr flóttamannabúðum í Zaire
TWA-slysið
91 hútúiferstí
troðningi í lest
Kisangani. Reuter.
FLÓTTAMANNAHJÁLP Samein-
uðu þjóðanna skýrði frá því í gær
að 91 rúandískur hútúi hefði beðið
bana í troðningi í lest, sem flutti
þúsundir flóttamanna úr búðum í
frumskógi í norðausturhiuta Zaire
á sunnudag. Stofnunin hvatti til
þess að lestaflutningunum yrði
hætt.
Paul Stromberg, talsmaður Flótta-
mannahjáiparinnar, sagði að þrír
hútúar væru í lífshættu og 75 á
sjúkrahúsi eftir slysið. Verið var að
flytja hútúana til borgarinnar Kis-
angani frá flóttamannabúðum í
Biaro, sem eru um 40 km frá borg-
inni.
Þegar lestin kom til Kisangani og
hliðar vagnanna voru teknar niður
til að hleypa farþegunum út ultu
tugir líka út úr lestunum. „Ég tel
að þetta sé einn hörmulegasti at-
burður sem ég hef nokkurn tíma
orðið vitni að í öll þau ár sem ég
hef starfað fyrir hjálparstofnunina,“
sagði Kilian Kleinschmidt, sem
stjórnar starfsemi Flóttamanna-
hjálparinnar í Kisangani.
„Við höfum beðið uppreisnar-
mennina um að hætta lestaflutning-
unum þegar í stað meðan við metum
ástandið,“ sagði Stromberg. Upp-
reisnarmennirnir hafa skipulagt
flutningana þótt Flóttamannahjálp-
in beri ábyrgð á þeim og Stromberg
sagði ljóst að stofnunin þyrfti að
taka við skipulagningunni.
Embættismenn Flóttamanna-
hjálparinnar sögðu að uppreisnar-
mennirnir hefðu tilkynnt með
þriggja stunda fyrirvara að lestin
færi til Kisangani með 2.800 flótta-
menn. Þegar lestin kom til borgar-
innar var ljóst að hundruð manna
til viðbótar voru í lestinni.
Tugir manna deyja
dag hvern í búðunum
Flóttamenn höfðu verið fluttir með
lestum til Kisangani í fimm daga og
starfsmenn Flóttamannahjálparinnar
kvartað yfir því að uppreisnarmenn-
irnir flyttu alltof marga í einu. Tugir
manna deyja í flóttamannabúðunum
á degi hverjum af völdum hungurs,
sjúkdóma og sára eftir árásir Zaire-
búa á búðirnar.
Flóttamennirnir voru á meðal
rúmrar milljónar hútúa sem flúðu
frá Rúanda árið 1994 vegna ótta
við hefndarárásir eftir fjöldamorð
hútúa á tútsum í landinu. Eftir að
uppreisnarmennirnir í Zaire, sem
eru flestir tútsar, hófu sókn sína í
austurhlutanum í október flúði
flóttafólkið lengra í vestur og um
80.000 flóttamenn gengu um 500
km leið í flóttamannabúðirnar ná-
lægt Kisangani. Þeir vildu þá snúa
aftur til heimalandsins en uppreisn-
armennirnir töfðu flutningana á
þeirri forsendu að kólera gæti bor-
ist til þorpa í grenndinni. Allir
flóttamennirnir flúðu í frumskóg við
búðirnar í apríl og þegar þeir sneru
aftur sökuðu þeir þorpsbúa og upp-
reisnarmennina um grimmilegar
árásir á búðirnar í tvo daga.
Reuter
FLÓTTAMAÐUR liggur örendur við veginn til Biaro-flótta-
mannabúðanna, sem eru um 40 km frá borginni Kisangani.
Verið er að flytja flóttafólk úr búðunum til borgarinnar en
tæplega 100 manns létust í troðningi í lest á leiðinni þangað.
Lungna- og brjóstakrabbamein verður æ fleirum að aldurtila
WHO spáir tvöfalt
fleiri tilfellum á
næstu 25 árum
Genf. Reuter.
WHO, Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunin, spáir því að krabba-
meinstilfelli í heiminum verði orðin
tvöfalt fleiri eftir aldarfjórðung.
Telur stofnunin að mesta aukning-
in verði í lungna- og bijósta-
krabbameini hjá konum, auk þess
sem sjúkdómar sem tengjast blóð-
rásinni; hjartasjúkdómar og heila-
blóðfall, verði algengari. Er þá
fyrst og fremst því um að kenna
að æ fleiri íbúar þróunarlanda til-
einka sér óholla lífshætti, svo sem
reykingar og kyrrsetu.
„Auknar lífslíkur og gjörbreyttir
lífshættir munu leiða til alheims-
faraldurs krabbameins og annarra
sjúkdóma á næstu tveimur áratug-
um,“ segir í skýrslu WHO, sem
byggð er á gögnum frá 191 aðilar-
landi á síðasta ári.
í skýrslunni segir að koma hefði
mátt í veg fyrir ótímabæran dauða
og fötlun milljóna manna með
forvörnum. Hvetur stofnunin til
herferðar fyrir bættum lífsháttum
og auknu eftirliti, svo að sjúkdóm-
ar á borð við krabbamein uppgöt-
vist í tíma og lækning sé möguleg.
í skýrslunni er að þessu sinni
lögð áhersla á aðra sjúkdóma en
smitsjúkdóma; auk krabbameins
og blóðrásarsjúkdóma er fjallað
um hrörnunarsjúkdóma, sjúk-
dóma í öndunarfærum, sykursýki
og gigt. Alls deyja um 24 milljón-
ir manna úr þessum sjúkdómum
á ári hverju, sem er um helming-
ur allra dauðsfalla, en smitsjúk-
dómar koma næstir, verða 17,3
milljónum að aldurtila á hvetju
ári.
Kransæðasjúkdómar eru efstir
á blaði, en 7,2 milljónir manna
deyja úr þeim á hveiju ári og er
dánartíðnin hæst í Mið- og Aust-
ur-Evrópu. Um 6,3 milljónir deyja
úr krabbameini og 4,6 milljónir
úr heilablóðfalli og skyldum sjúk-
dómum. Algengast er krabbamein
í lungum, maga, bijóstum, ristli,
munni, lifur, hálsi og vélinda.
„Mest hefur aukningin orðið á
íungna- og btjóstakrabbameini. . .
Eftir því sem reykingar aukast í
mörgum þróunarlöndum, er full-
víst að iungnakrabbameinsfarald-
urinn færist í aukana. Lungna-
krabbamein er ekki aðeins algeng-
asta krabbameinið, það veldur
dauða einnar milljónar manna á
ári og 1,3 milljónir nýrra tilfella
koma upp. Það er einnig hægt að
koma í veg fyrir það,“ segir í
skýrslu WHO. Reykingar eru or-
sök 85% lungnakrabbameinstil-
fella og sjöunda hvers krabba-
meinstilfellis í heiminum.
Spáir stofnunin að lungna-
krabbamein aukist um 33% hjá
konum og krabbamein í blöðru-
hálskirtli aukist um 30% hjá körl-
um í löndum Evrópusambandsins
fram til ársins 2005.
FBI telur
vélarbil-
un líklega
Washington. Reuter.
LOUIS Freeh, yfirmaður bandarísku
alríkislögreglunnar, FBI, sagði á
sunnudag að vélarbilun hefði líklega
valdið sprengingunni í Boeing 747-
þotu flugfélagsins TWA, sem fórst
nálægt New York í júlí í fyrra.
„Ég tel að vísbendingarnar sem
við höfum fundið til þessa... leiði
til þeirrar niðurstöðu að vélarbilun
hafi valdið slysinu,“ sagði Freeh í
þættinum Meet the Press hjá NBC-
sjónvarpinu. Hann lagði þó áherslu á
að hvorki FBI né Öryggisnefnd sam-
göngumála (NTSB) hefðu komist að
lokaniðurstöðu um orsök sprenging-
arinnar, sem kostaði 230 manns lífið.
Freeh sagði að líkurnar á því að
um hermdarverk hefði verið að ræða
hefðu minnkað.
Boeing á öndverðum meiði
Talsmaður Boeing-fyrirtækisins
neitaði því að líkurnar á vélarbilun
hefðu aukist. „Við höfum litið á alla
möguleikana frá upphafi og allar
kenningarnar þijár - um sprengju,
flugskeyti eða vélarbilun - eru enn
mögulegar. Engin þeirra er líklegri
en önnur. Ummæli Freeh eru ekki
opinber yfirlýsing ... ekkert hefur
breyst."
Freeh kvaðst vonast til þess að
rannsókninni lyki eftir íjóra mánuði.
------».--------
S- og N-Kórea
Deilt um mat-
vælaaðstoð
Peking, Washington. Reuter.
VIÐRÆÐUR fulltrúa norður- og
suður-kóreska Rauða krossins, um
hvernig koma megi sársoltnu fólki
í Norðu-Kóreu til hjálpar, fóru út
um þúfur í gær. Viðræðunum verður
haldið áfram að nokkrum dögum
liðnum og munu þær fara fram í
síma í bænum Panmujon sem er á
landamærum ríkjanna.
Viðræður Rauða kross-félaganna
hófust á laugardag en lauk í gær,
þar sem ekki tókst að ná samkomu-
íagi um hversu mikið af korni Suður-
Kóreumenn ættu að senda og hvem-
ig ætti að flytja það og afhenda. Að
sögn suður-kóreska Rauða krossins
strandar á því að þeir vilja fá að
senda kornið beint, án milligöngu
Alþjóðasambands Rauða krossfélaga
en það fallast Norður-Kóreumenn
ekki á, og krefjast nákvæmra upplýs-
inga um hversu mikið korn á að
senda.
Lipponen í Brassel
Leiðtogafundur
í Noordwijk
Haag. Reuter.
Þjóðvarð-
liði myrtur
Malaga. Morgunblaðið.
SPÆNSKUR lögreglumaður var
skotinn til bana á veitingastað í bæ
nærri Bilbao á Norður-Spáni á laug-
ardag. Enginn vafí þykir leika á
því að þar hafi ETA, hryðjuverk-
samtök þjóðernissinnaðra Baska,
verið að verki og er þetta níunda
fómarlamb samtakanna á þessu
ári.
Lögreglumaðurinn, hinn 43 ára
gamli Jose Maria Garcia Fem-
andez, sat að snæðingi ásamt eigin-
konu sinni á veitingastað í bænum
Vizcaya er ungur maður skaut hann
til bana aftan frá. Morðinginn
hleypti einungis af einu skoti og
fylgdist, að sögn vitna, með því er
Garcia Fernandez féll í gólfíð. Unga
mannsins er nú leitað og tveggja
vitorðsmanna hans.
PAAVO Lipponen, forsætisráð-
herra Finnlands, er tíður gestur
í Brussel, þar sem hann ræðir
gjaman Evrópumál við forystu-
menn í framkvæmdastjórn Evr-
ópusambandsins. Lipponen kom
í gær í eins dags heimsókn til
framkvæmdastjórnarinnar og
ræddi þar um Efnahags- og
myntbandalag Evrópu (EMU) við
Yves-Thibault Silguy, sem fer
með peningamái í framkvæmda-
stjórninni. Finnar stefna ein-
dregið á aðild að EMU.
HANS van Mierlo, utanríkisráð-
herra Hollands, sem nú er í for-
sæti ráðherraráðs Evrópusam-
bandsins, hefur
tilkynnt að
aukaleiðtoga-
fundur sam-
bandsins verði
haldinn í hol-
lenzka bænum
Noordwijk hinn
23. þessa mán-
aðar. Tilgangurinn er að leysa sem
flest deilumál á ríkjaráðstefnu ESB
fyrir leiðtogafundinn í Amsterdam
í júní, en þá á ráðstefnunni að
ljúka.
Van Mierlo sagði að á aukafund-
inum gæfíst leiðtogum annarra
ríkja ESB færi á að spyija Tony
Blair, nýjan forsætisráðherra Bret-
lands, út í stefnu hans í Evrópu-
málunum. Flest-
ir búast við að
stjórn Blairs
verði jákvæðari í
garð samruna-
þróunarinnar en
fráfarandi stjórn
íhaldsflokksins.
Utanríkisráð-
herrann greindi frá því að undir-
búningsfundur utanríkisráðherra
ESB yrði haldinn 20. maí. Gert er
ráð fyrir að það verði fyrsti ráð-
herrafundurinn sem Robin Cook,
nýr utanríkisráðherra Bretlands,
sækir.
EVRÓPA^