Morgunblaðið - 06.05.1997, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ1997 29
MENNTUN
AÐSENDAR GREINAR
Morgunblaðið/Golli
VEL var mætt á áttunda fulltrúaráðsþing Kennarasambands
íslands sem fram fór um helgina og lýkur i dag.
Menntamálararáðherra á KÍ-þingi
Verkstjórn
skólameistara
verði skýr
Sjónarmið ráðuneytisins um breyting--
ar á starfstíma og fleira kynnt. Kenn-
araforystan býst við átökum.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur lagt fram fjögur áhersluatr-
iði í kjaraviðræðum við framhalds-
skólakennara, sem snúa að breyt-
ingum á starfstíma og verkefnum.
Meðal annars er rætt um sveigjan-
legri tíma við upphaf og lok skóla
og að viðverutími til ráðstöfunar
fyrir skóla verði samkvæmt
ákvörðun skólameistara eins.
Þannig að verkstjórnarhlutverk og
ábyrgð skólameistara séu skýr.
Frá þessu skýrði Björn Bjarna-
son menntamálaráðherra meðal
annars við setningu áttunda full-
trúaráðsþings Kennarsambands
íslands sl. laugardag. Hann kvað
það sitt mat að nú væri lag til að
huga að þessum þáttum með öðrum
hætti en áður, enda væru um fyrstu
samninga að ræða eftir að ný lög
voru samþykkt.
Skólabyrjun 20. ágúst?
Ráðherra tók fram, að ráðuneyt-
ið teldi æskilegt að kennslutími á
haust- og vörönn verði jafnlangur.
Heppilegt væri að gera breytingar
á ákvæði kjarasamninga, sem
bindur vinnutíma kennara á árleg-
um starfstíma skóla og opna þann-
ig fyrir sveigjanlegri starfstíma.
Gæti skólastarf t.d. hafist upp úr
20. ágúst og því lokið fyrr að vori.
Þá nefndi hann að innan skil-
greindrar vinnuskyldu teldi ráðu-
neytið æskilegt að gera ráð fyrir
nýjum verkefnum vegna nýrra
framhaldsskólalaga. Einnig að það
yrði á verksviði og ábyrgð ein-
stakra skóla að ákveða hvernig að
fyrirkomulagi kennslu, prófahalds,
námsmats og annarra starfa í þágu
skóla væri staðið, að svo miklu
leyti sem það væri ekki ákveðið
með lögum, reglugerðum o.fl. „í
þessu sambandi er bent á, að ekki
er gert ráð fyrir að yfirferð á náms-
efni aukist þrátt fyrir að kennslu-
dögum fjölgi frá því sem verið
hefur,“ sagði Björn Bjarnason.
Samræmd próf
í ræðu sinni vék ráðherra einnig
að samræmdum prófum. Hann
kvaðst gera sér grein fyrir að þau
væru viðkvæmari þáttur í skóla-
starfi en áður vegna nýrrar upplýs-
ingastefnu um niðurstöður. Hann
fullvissaði kennara um vilja sinn
til að búa þannig um hnúta að
nemendur, kennarar og foreldrar
gætu vel við prófin unað. Með því
væri hann ekki að tala um létt og
stutt próf heldur að fullrar sann-
girni væri gætt.
Hann vék einnig að Rannsókna-
stofnun uppeldis- og menntamála
(RUM), þar sem töluverðar breyt-
ingar eru í gangi. Núverandi for-
stöðumaður hefur fyrir nokkru
sagt starfi sínu lausu og verður
annar fljótlega ráðinn í hans stað.
Verið er að leggja síðustu hönd á
samning milli ráðuneytisins og
RUM, þar sem verkaskipting og
hlutverk er skilgreint með skýrari
hætti en áður. Einnig er unnið að
faglegri úttekt á stofnunni. Þá
kvaðst Björn telja nauðsynlegt að
endurskoða lög um RUM í ljósi
breytinga sem orðið hafa á stjórn-
sýslulögum.
Einnig ræddi ráðherra um lög-
verndun á starfsheiti og starfsrétt-
indum grunn- og framhaldsskóla-
kennara og skólastjóra. Nú væri
endurskoðun á þeim lögum lokið
og frumvarpið lægi fyrir á Al-
þingi. Kvaðst hann hafa orðið var
við að bæði kennarar og leiðbein-
endur litu á hið nýja frumvarp í
heild sem mikið og gott framfarar-
spor.
Eins og fyrr segir var setning
þingsins sl. laugardag og því lýkur
í dag, þriðjudag. Þegar Morgun-
blaðið ræddi við Eirík Jónsson, for-
mann KÍ, í gær var verið að ganga
frá lagabreytingum og framundan
voru umræður um stóra mála-
flokka, s.s. launa- og kjaramál,
skólamál og félagsmál, þ.e.
væntanlega sameiningu Kennara-
sambands íslands og Hins íslenska
kennarafélags.
Átök framundan?
Aðspurður um viðbrögð við
áhersluatriðum menntamálaráðu-
neytis í kjaraviðræðunum, sagði
Eiríkur að þetta væru allt punktar
sem brugðist hefði verið við við
samningaborðið. „Þetta er til um-
ræðu en er auðvitað bara hluti af
lausn heildarpakkans. Staðreyndin
er sú að menntamálaráðuneytið
hefur ætlað að fá kennsludaga og
breytingar sem verða í kjölfar
framhaldsskólalaganna fyrir ekki
neitt. Nú eru að opnast augu þeirra
fyrir því að það er ekki hægt,“
sagði hann.
Eiríkur sagði að miðað við stöð-
una í kjaramálum nú væri ekki
ólíklegt að til átaka kæmi í haust.
„Það er alfarið á ábyrgð ráðuneyt-
anna, vegna þess að starfsmenn
þar breyttu starfsskilyrðunum með
lögum. Þetta eru þvingandi aðgerð-
ir löggjafans, þannig að þeir kalla
þetta yfir sig.“
Góðan daginn, Ameríka -
Góða nótt, Island
MIKIÐ er nú gott að
heyra að íslenskir ráða-
menn skuli af og til
sýna framsýni og djörf-
ung, pínulítið hugrekki
og þor. Það er eins og
að tilkoma aldamóta
lyfti mönnum á hærri
stig og svo virðist sem
áræði síðustu aldamó-
takynslóðar hafi gengið
aftur til hæstráðenda í
okkar þjóðfélagi, nú
þegar fregnir berast af
15 milljóna króna fram-
lagi ríkisins til amerí-
skrar sjónvarpsstöðvar.
Við hjá Landssam-
bandi íslenskra akst-
ursfélaga erum stoltir af, og teljum
okkur eiga þátt í því, að augu okk-
ar manna hafa opnast fyrir áhrifa-
mætti sjónvarps. Á síðustu árum
hefur LIA barist með oddi og egg
fyrir því að koma ráðamönnum í
skilning um þetta og þegar fréttir
bárust um að ABC ætlaði að búa
til sjónvarpsþátt um ísland, að vísu
gegn smávægilegu gjaldi, urðu eng-
ir glaðari en við.
LÍA hefur á undanförnum árum
gengið á fund allra hæstráðenda á
Islandi; forseta, ráðherra, fjárlaga-
nefndar, alþingismanna og opin-
berra embættismanna, án teljandi
árangurs hvað okkar framleiðslu
varðar. Við báðum ijárlaganefnd
um styrk, að sömu upphæð og ABC
er nú að fá, til okkar framleiðslu,
en blessaðir þingmennirnir í þeirri
nefnd hafa víst svo mikið að gera
að þeir hafa ekki einu sinni svarað
beiðni okkar. Hins vegar er víst að
þrautseigja okkar við að kynna þá
miklu möguleika sem felast í sjón-
varpsþáttagerð, fyrir erlendan
markað, hefur skilað sér til kollega
okkar, þ.e.a.s. ABC. íslendingar eru
góðir, en útlendingar alltaf betri.
Til fróðleiks fyrir almenning fylg-
ir hér samanburður á því efni sem
LÍA framleiðir fyrir erlendan mark-
að og á einum þætti ABC sjónvarps-
stöðvarinnar um ísland. „Icelandic
Motorsport" þættirnir og fram-
leiðsla þeirra er hluti samnings við
Fox Sports International, fyrirtækis
í eigu News Corp., sem er aftur í
eigu Ruberts Murdochs, þess kunna
fjölmiðlagúrús.
Fjöldi þátta 97: ABC 1. Mótor-
sport 10.
Tímalengd þátta: ABC 2 tímar,
Mótorsport 1 timi hver.
Útsending samtals: ABC 2 tímar,
Mótorsport 10 tímar.
Fjöldi endursýninga: ABC 0,
Mótorsport 5 hver.
Útsendingar endursýninga: ABC
0, Mótorsport 50 tímar.
Fjöldi landa: ABC 1, Mótorsport
110.
Fjöldi heimsálfa: ABC 1, Mótor-
sport 6.
Fjöldi starfsmanna: ABC 200,
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
fæst á Kastrupflugvelli
og Rábhústorginu
-kjarni máisins!
Mótorsport 4.
Þjóðerni starfs-
manna: ABC USA,
Mótorsport ísland.
Áhorfendur, stærsti
hluti: ABC, konur,
börn. Mótorsport,
karlar, börn.
Áhorf 97 samtals:
ABC 23 miiljónir. Mót-
orsport 400 milljónir.
Mögulegt áhorf:
ABC 260 milljónir.
Mótorsport 1,5 millj-
arðar.
Mögulegt áhorf árs-
ins: ABC, 260 milljón-
ir. Mótorsport 15 millj-
arðar.
Efni þátta: ABC íslensk hámenn-
ing, hljómar spennandi ekki satt?
Mótorsport, íslensk torfæra, einstök
í heiminum.
Ritstjórn þátta: ABC, bandarísk.
Mótorsport, íslensk.
Efnistök þátta: ABC, bandarísk.
Mótorsport, íslensk.
Enginn er spámaður
í sínu föðurlandi. Ólaf-
ur Guðmundsson
gagnrýnir áhugaleysi
íslenskra ráðamanna
á íslenskum aksturs-
íþróttum.
Beinar gjaldeyristekjur: ABC, 0.
Mótorsport 20-100 milljónir.
Óbeinar gjaldeyristekjur: ABC, 1
milljarður. Mótorsport, a.m.k. það
sama.
Þáttategund: ABC, ein bein út-
sending. Mótorsport, framhalds-
þættir.
Fjöldi þátta 98 og 99: ABC, 0.
Mótorsport, 10 á ári.
Viðskiptatækifæri í kjölfar þátta:
ABC, ferðamenn. Mótorsport,
ferðamenn, íþróttaatvinnu-
mennska, leikfanga- og sjónvarps-
þáttaframleiðsla, myndbandafram-
leiðsla, umboðsmennska, tölvuleik-
ir, alþjóðlegt keppnis- og sýningar-
hald.
Framleiðendur: ABC sjónvarps-
stöðin. Landssamband íslenskra
akstursfélaga.
Þjóðfélagsstaða: ABC, eitt virt-
asta og stærsta fyrirtæki USA.
Mótorsport, águgamannasamtök á
íslandi.
Fjárhagsleg staða: ABC, mold-
ríkir. Mótorsport, blankir.
Fjárhagsstuðningur íslands:
ABC, 15 milljónir. Mótorsport, 0.
PS: Þetta með íjárhagsstuðning
er ekki alveg rétt. Til eru aðilar,
m.a.s. opinberir, sem hafa stutt
LÍA.
Það skal hér skýrt tekið fram
að ekki er á nokkurn hátt verið að
efast um dómgreind ráðamanna
okkar, þvert á móti. Það er deginum
ljósara að ameríski þátturinn er lík-
lega einhver ódýrasti kynningar-
möguleiki sem boðinn hefur verið
og áhrif hans verða vonandi í sam-
ræmi við væntingar. Segið svo að
það séu ekki peningar í alþjóðlegu
sjónvarpi. Norðurlöndin ætla að
greiða ABC hvorki meira né minna
en 80 milljónir fyrir þessa kynn-
ingu.
Fox Sport International hefur
spurst fyrir um möguleika LÍA á
beinum útsendingum frá íslensku
torfærunni, þriggja til fjögurra
klukkustunda löngum þáttum, því
eins og flestir vita er gjarnan svo
að almenningur vill horfa beint á
íþróttaviðburði. LÍA svaraði því
náttúrlega, eins rétt er, að engin
væri reynslan eða fjármunirnir fyr-
ir því, en sá möguleiki myndi von-
andi verða raunhæfur innan tíðar.
Nú þegar íslensk yfirvöld hafa gert
sér grein fyrir kynningarhæfni sjón-
varps er kannski styttra í það en
margan grunar.
Við hjá LÍA munum halda
ótrauðir áfram á okkar torfæru
braut, því líkt og Bókin segir, þá
skal það svo vera til að vel gangi.
Það er ekki það eina, því fyrir
skömmu barst LIA fyrirspurn frá
ísraelskum blaðamanni um hvort
það væri virkilega rétt að við gæt-
um keyrt á'vatni. Hann benti á að
samlandi hans hefði, fyrir um 2000
árum, gengið á vatni og öðlast
heimsfrægð fyrir og líkt færi með
okkur ef rétt reyndist. Það verður
hins vegar að hafa hugfast að eng-
inn er spámaður í sínu föðurlandi.
Að lokum eitt heilræði vegna
reynslu LÍA frá útsendingum sjón-
varpsefnis á erlendri grund frá Is-
landi. Þeir sem eru ábyrgir fyrir
þessu verða að vera viðbúnir þeim
áhrifum sem af þessu verða. Síma-
stormur eru líkleg fyrstu viðbrögð
og síðan óhemju fjöldi bréfa, faxa
og fyrirspurna. Er búið að gera
ráðstafanir til að mæta þessu og
vera með réttu svörin? Það reyndist
ekki vera þegar BBC sýndi þáttinn
Motorworld þar sem fjallað var um
íslensk ökutæki, svo sem torfæru-
bifreiðar og fjallatröllin okkar, fyrir
tveim árum. Sá þáttur var unninn
í samvinnu við LÍA og fékk metá-
horf á Bretlandseyjum. Bæði ferða-
málayfirvöld og sendiráð Islands
biðu eftir því að ónæðinu linnti.
Höfundur er forseti LIA.
Sumartími
hjá Lánasýslu
ríkisins
Skrifstofur Lánasýslu ríkisins verða opnar
frá kl. 08:00 til 16:00 á tímabilinu
frá 6. maí til 12. september.
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Framkvæmdasjóbur íslaiulv
Ríkisábyrgbasjóbur
Ólafur
Guðmundsson