Morgunblaðið - 06.05.1997, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 06.05.1997, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ1997 55 ______FRETTIR__ Dimmblá jafnaði metin SKAK N e w Yo r k SEX SKÁKA EINVÍGI GARRÍS KASPAROVS OG STÓRTÖLVUNNAR DIMMBLÁRRAR Teflt í New York dagana 3.-11. maí. Þriðja einvígisskákin verður tefld í dag og hefst kl. 19 að íslenskum tima. ÓHÆTT er að segja að einvígi Garrís Kasparovs og stórtölvunnar Dimmblárrar hafi verið yndisauki fyrir skákáhugamenn og fjölmiðla. Þeim tveimur skákum sem lokið er má helst líkja við dag og nótt því Garrí Kasparov vann auðveldan sigur í fyrstu einvígisskákinni á laugardaginn en á sunnudag jafn- aði tölvan metin með snyrtilegum og stílhreinum sigri. Það eru því spennandi skákir framundan. Heimsmeistarinn þarf að glíma við andlegt skipbrot eftir ósigurinn í annarri skákinni og mun í þriðju einvígisskákinni vafalaust beita sömu vopnum og gáfust svo vel í fyrstu einvígisskákinni. Dimmblá lærir ekki af mistökum sínum í orðsins merkingu en vafalaust verður búið að bæta við grunn hennar upplýsingum þannig að sömu mistökin verði ekki gerð að nýju. Einvígið er sex skákir og sá keppandi sigrar sem fyrr hlýtur þijá og hálfan vinning. Fyrir einvígið í New York var mikið um það rætt að meginá- hersla við undirbúning hefði verið Iögð á bættan skilning á stöðuein- kennum, samspili taflmanna og fieira sem flokkað er almennt und- ir almennan skákskilning. Fyrsta einvígisskákin bar ekki merki þess að þróunin væri í rétta átt. Ka- sparov kom greinilega vel undirbú- inn til leiks og lagði ríka áherslu á að forðast þekktar byrjanastöður og flóknar stöður. Hann hóf taflið með Reti byrjun og tefldi afar ró- lega og yfirvegað. Dimmblá tefldi hins vegar að því er virtist án heild- stæðrar áætlunar, á tíðum viðvan- ingslega og hreinlega illa. Tölvan tefldi hvasst í rólegri stöðu og veikti stöðu sína í stað þess að bíða átekta. Kasparov tefldi af miklu öryggi, hann tefldi rólega en þegar tækifæri gafst fórnaði hann skiptamun og veitti náðar- höggið skömmu eftir timamörkin við fertugasta leik. í annarri einvígisskákinni varð- ist Kasparov spænskum leik og byijunin var hefðbundin. Hvítur hafði frumkvæðið á báðum vængj- um en svartur trausta stöðu og leitaði uppskipta. Kasparov hefur ekki mikla reynslu af stöðubarátt- unni sem upp kom og í stað þess að staðan lokaðist og baráttan yrði þung sem Dimmblá réð illa við, opnaðist taflið og taflmennska hvíts var afar rökrétt og góð. Lengi vel álitu skákskýrendur raunar að Kasparov ætti góða jafnteflis- möguleika einkum vegna mislitra biskupa en staðan var margslungn- ari en virtist í fyrstu og hægt og sígandi þrengdi að stöðu hans. Eftir tímamörkin við fertugasta leik kom óvæntur hróksleikur hjá hvítum og Kasparov sá sitt óvænna og gafst upp þegar við blasti gleði- snauð og gjörtöpuð staða. Dimmblárri hefur því að nýju tekist að vinna sigur á Garrí Ka- sparov og sigrinum var vel fagnað á mótsstað í New York. Augljós- lega mistókst hernaðaráætlun heimsmeistarans og nú bíður hans vandi að ákvarða hvernig haldið skuli á málum í framhaldinu. Það er mikið sem lagt er undir, verð- launaféð er rúmar 80 milljónir og ennþá meiru skiptir líklega spurn- ing sem flestir velta fýrir sér hvort tölvur séu á leiðinni að verða betri en sjálfur heimsmeistarinn í skák. A þessari stundu er of fljótt að draga ályktanir um líkleg úrslit. Næsta skák er mjög mikilvæg og verður mjög fróðlegt að fylgjast með þriðju einvígisskákinni sem verður tefld í kvöld og hefst kl. 19 að íslenskum tíma. 1. einvígisskákin Hvítur: Garrí Kasparov. Svartur: Dimmblá Reti byijun 1. Rf3 - d5 2. g3 - Bg4 3. b3 - Rd7 4. Bb2 - e6 5. Bg2 - Rgf6 6. 0-0 - c6 7. d3 - Bd6 8. Rbd2 - 0-0 9. h3 - Bh5 10. e3 - h6?! 11. Del - Da5? 12. a3 - Bc7?! Byijunartaflmennskan hjá Kasp- arov sýnir að hann stefnir á sömu mið og í síðasta einvígi. Hann kýs rólega stöðubaráttu án þess að flækja taflið óþarflega. Af byijun- artaflmennskunni að dæma hafa endurbæturnar á tölvunni ekki skilað nægum árangri. Hún hefur teflt ráðleysislega og síðasta leik hefði fáum sterkum skákmönnum komið til hugar að tefla því biskupinn stóð ágætlega á d6, studdi við e5 reitinn og virtist engin hætta búin. Útreikningar tölvunnar hafa hins vegar sýnt dulda ógnun við óvaldaðan biskupinn. 13. Rh4 - g5 14. Rhf3 - e5 15. e4 - Hfe8 16. Rh2 - Db6 17. Dcl - a5 18. Hel - Bd6 19. Rdfl - dxe4 20. dxe4 - Bc5 21. Re3 - Had8 22. Rhfl - g4. Taflmennskan hjá tölvunni hefur ekki verið sannfærandi, hún hefur teflt af miklum krafti en skilið eftir veikleika sem ekki verða lagfærðir, f5 reiturinn er þannig kjörinn stökkpallur fyrir hvítu riddarana. Dimmblá teflir af sama kraftinum áfram og raunar á tíðum mjög skemmtilega en Kasparov er vandanum vaxinn. 23. hxg4 - Rxg4 24. f3 - Rxe3 25. Rxe3 - Be7 26. Khl - Bg5 27. Re2 - a4 28. b4 - f5 29. exf5 - e4 30. f4! - Bxe2 Kasparov fórnaði skiptamuninum eftir skamma umhugsun. Eftir 30. - Bxf4 31. gxf4 - Bxe2 var hann tilbúinn með 32. Dgl! - Kh7 33. Hel - Bh5 34. Dh2 - Bf7 35. Rg4! h5 36. Dh4! með óveijandi hótunum. Nú fær hann tvö samstæð frípeð og hefur öruggan sigur. 31. fxg5 - Re5 32. g6 - Bf3 33. Bc3 - Db5 34. Dfl - Dxfl 35. Hxfl - h5 36. Kgl - Kf8 37. Bh3 - b5 38. Kf2 - Kg7 39. g4 - Kh6 40. Hgl - hxg4 41. Bxg4 - Bxg4 42. Rxg4 - Rxg4 43. Hxg4 - Hd5 44. f6 - Hdl 45. g7! Svartur gafst upp. „Staðan er strax orðin önnur en í Fíladelfíu fyrir ári,“ var það fyrsta sem Kasparov sagði eftir skákina með bros á vör. Sælan varði hins vegar ekki fram yfir aðra skákina á sunnudaginn. Dxc6 46. dxc6 er hótun hvíts að leika 47. Ha7+ - Kf8 48. Hd7 - Be7 49. c7 Hc8 50. Bb7 og svarti hrókurinn fellur. 2. einvígisskákin Hvítur: Dimmblá. Svartur: Garrí Kasparov. Spánskur leikur 1. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. Bb5 - a6 4. Ba4 - Rf6 5. 0-0 - Be7 6. Hel - b5 7. Bb3 - d6 8. c3 - 0-0 9. h3 - h6 10. d4 - He8 11. Rbd2 - Bf8 12. Rfl - Bd7 13. Rg3 - Ra5 14. Bc2 - c5 15. b3 - Rc6 16. d5 - Re7 17. Be3 - Rg6 18. Dd2 - Rh7 19. a4 - Rh4 20. Rxh4 - Dxh4. Skákin fylgir hefð- bundnum slóðum. Byijunarvalið hjá Kasparov kom raunar á óvart, hann kýs að leika kóngspeðinu fram í fyrsta leik en venjulega beitir hann sikileyjarvörn og gerði það raunar í síðasta einvígi gegn Dimmblárri. 21. De2 - Dd8 22. b4 - Dc7 23. Hecl - c4 24. Ha3 - Rec8 25. Hcal - Dd8 26. f4 Nf6 27. fxe5 dxe5. Hvítur hefur ótvírætt frumkvæðið. Hann hefur meira rými á borðinu, undirbýr sókn eftir a-línunni og hefur mögu- leika á peðaframrás á kóngsvæng. Taflmennska tölvunnar er athygl- isverð, flestir hefðu kosið að bíða með uppskiptin á e5 en tölvan er lítið um óþarfa bið gefin. 28. Dfl - Re8 29. Df2 - Rd6 30. Bb6 - De8 31. H3a2 - Be7 32. Bc5 - Bf8 33. Rf5! - Bxf5 34. exf5 - f6. Hvíta staðan er auðvitað rýmri og þrátt fyrir veikleika í peðastöð- unni á kóngsvæng virðist svarta staðan traust. Dimmblá notaði 13 mínútur fyrir næsta leik og fann mjög sterkt framhald þar sem mi- slitir biskupar tryggja yfirburði hvíts. 35. Bxd6! - Bxd6 36. axb5 - axb5 37. Be4 - Hxa2 38. Dxa2 - Dd7 39. Da7 - Hc7 40 Db6 - Hb7 41. Ha8+ - Kf7 42. Da6 - Dc7 43. Dc6 - Db6+ 44. Kfl - Hb8 45. Ha6! FYRIR GARÐA OG SUMARHÚS i ^^^YGirSingarefni • Þakefni • Grasfræ \ Áburður • Garðáhöld u ^ V/ð leggjum rœkt við ykkar hag MR búðin • Laugavegi 164 Símar: 551 1125 • 552 4355 • Fax: 581 4450 MARBERT kynnir nýjan útsölustað, Hygeu í Kringlunni <>► Glæsileg tilboð t.d. svarta hliðartaskan að gjöf þegar keypt er fyrir kr. 3.100, eða O-*- snyrtibudda m/einverju spennandi í frá MARBERT með öllum 50 ml. kremum. 1 H Y G E A jnyrtivöruvcrjlun k r i n g I u n n i ■ ............——1■—— AÐALFUNDUR VSÍ1997 Aðalfundur vinnuveitendasambands islands verður haldinn þriðjudaginn 6. maí nk. á Hótel sögu, súlnasal. Dagskrá: Kl. 12.00 Setning aðalfundar. Kl. 12.10 Ræða formanns VSÍ, Ólafs B. Ólafssonar. Kl. 12.30 Hádegisverður aðalfundarfulltrúa og gesta. Kl. 13.10 Ræða forsætisráðherra, Davíðs Oddssonar. Kl. 13.30 Sjónarmið í samkeppnismálum. Stefna Evrópusambandsins í samkeppnismálum. John Steele, fyrrv. framkvstj. samgöngudeildar framkvæmdastjórnar ESB. Á sama stefna í samkeppnismálum við um litla markaði og stóra? Georg Ólafsson forstjóri Samkeppnisstofnunar, Árni Vilhjálmssonar hrl. Kl. 14.45 Aðalfundarstörf skv. 30. gr. laga VSÍ. Kl. 15.15 Fundarslit. LITIR A STOFUNA 800S Fjölmörg fyrir- TÆKI OG VERSLANIR bjóða þér að hringja ókeypis og panta eða spyrjast fyrir um vörur og þjónustu. Nýttu þér þá þjónustu sem býðst í gegnum 8oo númerin. póstur OG sími hf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.