Morgunblaðið - 06.05.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.05.1997, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Köfun niður að flaki skelfiskbátsins Æsu hefst á morgun að óbreyttu Verkið talið taka fimm daga Báturínn liggur á um 70 m dýpi ildir sem jafngildir u.þ.b. hœbinni á Hallgrímskirkju- turninum (76m) 70m- 60 — 50 — 40 — 30 — 20— 10 — iil /jft Morgunblaðið/RAX KAFARAR athuga útbúnaÖ sinn, áöur en haldið var frá Reykjavík. Sex breskir kafarar til landsins VARÐSKIPIÐ Óðinn hélt úr höfn síðdegis í gær áleiðis til Arnar- fjarðar þar sem kafa á niður að skelfiskbátnum Æsu sem sökk þar síðastliðið sumar með tvo menn innanborðs. Sex breskir kafarar komu hing- að til lands í fyrradag ásamt mikl- um búnaði og munu þeir kafa að flakinu, reyna að bjarga líkamsleif- um skipverjanna af Æsu og gera athuganir fyrir Rannsóknanefnd sjóslysa. Kafað níu sinnum Mikael R. Ólafsson yfírmaður köfunar hjá Landhelgisgæslunni segir að búast megi við að köfun hefjist á morgun og verði engar óvæntar tafir á verkinu vegna veð- urs eða annarra ástæðna, sé reikn- að með að það taki fímm daga. Á þeim tíma er áætlað að kafa níu sinnum niður að Æsu. Flakið ligg- ur á ríflega 70 metra dýpi utarlega í Amarfírði. „Þetta er í raun einfalt verkefni út frá forsendum köfunar, en um- talsverður kostnaður er vegna leigu tækja og launa kafara sem framkvæma slíkt verk og sá kostn- aður hefur staðið í mönnum," seg- ir Mikael. „Aðeins þrír íslendingar hafa lært djúpköfun með blönduð- um lofttegundum og ég er sá eini sem er búsettur hérlendis. Hinir unnu í Norðursjónum meðan gull- aldartíð olíuvinnslu stóð þar hæst og gerðu það gott, þannig að þeir þurfa litlar áhyggjur að hafa af fjármálunum. Þess vegna þurfum við að leita til útlendinga til að framkvæma verkefni sem þetta.“ Kafaðí heitavatnsgöllum Bresku kafaramir munu annast köfunina og fer hún fram með aðfluttu lofti og er hlífðarbúnaður kafaranna svo kallaðir heitavatns- gallar. Hituðum sjó er dælt niður til þeirra til að halda uppi eðlilegum líkamshita. „Við köfun með þessum loftteg- undum missa kafarar mikinn hita með önduninni og án heitavatns- gallanna myndu þeir einfaldlega krókna. Sjávarhitinn er ekki vandamálið, heldur það að mólek- úlastærðin á lofttegundunum sem kafaramir anda að sér er mjög lít- il. Hvert mólekúl tekur með sér ákveðna hitaeiningu og eftir því sem þær eru fleiri því kaldara verð- ur kafaranum," segir Mikael. Tækjabúnaður kafaranna er mikill að umfangi, að hans sögn, og eru tvö til þrjú eintök af hverju tæki, skyldi eitthvert þeirra bila. Meðal annars hafa þeir meðferðis neðansjávarmyndavél og annað það sem þeir nota við rannsóknina á flakinu. „Mörg þessara tækja eru ekki til hérlendis og auk þess var talið eðlilegt að fyrirtækið sem útvegar þessa menn legði einnig til allan búnað,“ segir Mikael. Auk skips og áhafnar leggur Landhelgis- gæslan til afþrýstiklefa sem notað- ur er við köfunina og er Mikael neyðarliði fyrir klefann, gangi eitt- hvað úrskeiðis. IVflög reyndir kafarar „Við komum ekkert nálægt köf- uninni sem slíkri, en um Ieið og hún hefst heyri ég undir breska köfunarformanninn og verð til taks ef eitthvað kemur upp á. Að öðru leyti sjá þeir alfarið um það starf sem óskað er eftir, enda hafa þess- ir menn umtalsverðan starfsaldur og reynslu," segir hann. Auk athugunar á skipinu neðan- sjávar á að reyna að sækja plóg Æsu til að rannsaka hann frekar. Kerskáli Norðuráls Samið við Istak NORÐURÁL hf. hefur ákveðið að ganga til samninga við ístak um fyrstu steypuframkvæmdir við fyrirhugað álver á Grund- artanga. Fyrirtækið hefur tek- ið þessa ákvörðun í framhaldi af lokuðu útboði í síðasta mán- uði. Um er að ræða 17.000 rúm- metra af steinsteypu í kerskála og nemur áætlaður kostnaður við verkið um 600 milljónum. Gert er ráð fyrir að vinna við verkið hefjist upp úr miðjum maí að því tilskildu að þá liggi fyrir samþykki Alþingis um ál- ver Norðuráls hf. á Grundar- tanga. Áætluð verklok sam- kvæmt útboðsgögnum eru um miðjan desember á þessu ári. 320 sækja um 400 milljóna styrki STJÓRN Byggðastofnunar fjallar á fundi sínum í dag um umsóknir um styrki vegna þró- unar atvinnulífs á landsbyggð- inni. Stofnunin fékk umsóknir um styrki að fjárhæð alls um 400 milljónir kr. frá 320 aðilum en hefur um 50 milljónir til ráðstöfunar í þessu skyni. f auglýsingu var tekið fram að styrkir yrðu einungis veittir til verkefna á svæðum sem skilgreind hafa verið sem starfssvæði Byggðastofnunar. Svæði sem sérstaklega eru háð sauðíjárrækt og þar sem byggð er í hættu áttu að njóta forgangs. Jafnframt var sagt að ekki yrði greitt fyrir nema hluta af kostnaði, hlutur opin- berra aðila mætti ekki vera hærri en 45% þar sem um fjár- festingar væri að ræða en 50% í verkefnum sem hefðu ai- mennara gildi. Löndun úr togaranum Orra ekki stöðvuð LANDAÐ var úr frystitogaranum Orra frá ísafirði í Hafnarfírði í gær þrátt fyrir ósk Alþýðusambands Vestfjarða að verkamannafélög gripu ekki inn í verk sem væru unnin vestra meðan verkfall félaga innan ASV stendur á Vestfjörðum. Verkamannasamband íslands hefur komið þessum tilmælum á framfæri við aðildarfélög sín. Björn Grétar Sveinsson formaður VMSÍ segir að sambandið geti aðeins sent tilmæli til félaga, sem taki sjálf ákvörðun um viðbrögð við þeim. Þórarinn Þórarinsson fram- kvæmdastjóri VSÍ sagðist undrast þessa ósk. Yrðu tafir eða truflanir á löndun vestfírskra veiðiskipa hér syðra myndi VSÍ kalla VMSÍ til fjárhagslegrar ábyrgðar. Sagði hann félög geta efnt til samúðarað- gerða en þær yrði að boða með sama hætti og sama fyrirvara og verkfall. Arnar Kristinsson framkvæmda- stjóri Básafells sem gerir út Orra sagði að togarinn hefði verið látinn koma inn til Hafnarfjarðar þar sem umbúðir vantaði um borð. Hann hefði verið með um 140 tonn af físki og gæti aflað upp í um 300 tonn og því hefði togaranum verið stefnt á veiðar á ný hefði löndun ekki verið leyfð. Löndun var langt komin í gærkvöld og er ráðgert að senda skipið á veiðar í kvöld. Giæsilegt úrval af sumarjökkum frá SKILA, ETAGE OG TOKKA TRIBE ÚTILÍF CLÆSIBÆ ÁLFHEIMUM 74 ■ S/M/ 5B1 2922 Ferðaáætlun íslensku Everestfaranna liggur fyrir Stefna að því að vera á toppnum á sunnudag ÍSLENSKU Everestfararnir stefna að því að leggja af stað í lokaáfangann á fimmtudag og er markmið þeirra að standa á toppi Everest nk. sunnudag. Hallgrímur Magnússon segir að þessi ferðaáætlun kunni að rask- ast. Veðrið við topp fjallsins sé slæmt og ekki verði hægt að fara þangað upp nema að það lagist. Hallgrímur kom frá Dingboc- he upp í grunnbúðir á sunnudag og hitti þar félaga sína, Einar K. Stefánsson og Björn Ólafsson. Þá voru liðnir 16 dagar síðan félagarnir hittust allir þrír sam- an, en veikindi ollu því að þeir gátu ekki verið upp í fjallinu á sama tíma. Hallgrímur sagði hins vegar að núna væri heilsa þeirra allra góð og þeir væru tilbúnir til að takast á við tindinn sameig- inlega eins og upphaflega var ráðgert. Leiðangrinum sem Islending- arnir eru í hefur verið skipt í tvennt. Fjórir vestrænir fjall- göngumenn lögðu af stað í dag undir forystu Johns Tinkers leið- angursstjóra. Með í för eru þrír Sherpar. Bjöm, Einar og Hall- grímur leggja síðan af stað á fimmtudag ásamt þremur Sherp- um. Markmið þeirra er að vera á toppnum á sunnudag. Slæmt veðurútlit Hallgrímur sagði að veðurút- litið væri ekki gott þessa stund- ina. Það væri mjög hvasst upp við toppinn, líklega nálægt 10 vindstigum. Veðurspáin frá því í gær gæfi ekki tilefni til bjart- sýni. Það væri hins vegar erfitt að spá með öryggi fyrir um veð- ur á þessum slóðum. Það tæki menn fjóra daga að komast á toppinn frá því að lagt væri af stað úr grunnbúðum og ýmislegt gæti gerst í veðurfari á þeim tíma eins og íslendingar þekktu manna best. Menn myndu því fara af stað og sjá til hvort að- stæður væru til að fara á toppinn í þessari viku. Um helgina var nokkurs konar hátíð hjá íslendingunum því að þá kom þyrla upp í grunnbúðir með pakka frá Islandi. í pökkun- um var rafmagnsbúnaður sem leiðangursmenn þurftu á að halda, en einnig lesefni, m.a. Morgunblaðið. I pökkunum voru einnig hálstöflur, sælgæti, kaffi og reyktur lax, sem félagarnir voru afar ánægðir með að fá. Sjá Everestsíðu Morgunblaðsins: http:// www.mbl.is/everest/ L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.