Morgunblaðið - 06.05.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.05.1997, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐiÐ FRÉTTIR Liðlega 100 milljóna króna skuldir hvíla á eignum Fáfnis á Þingeyri Lánardrottnar íhuga að leysa til sín eignirnar Morgunblaðið/Þorkell VERIÐ var að vinna við sögun á fisksteikum og pökkun þeirra í neytendaumbúðir í frystihúsi Fáfnis á Þingeyri í gær. HELSTU lánardrottnar Fáfnis hf. á Þingeyri og Byggðastofnun eru að kanna möguleika á að leysa til sín helstu eignir félagsins. Hug- myndin er að reyna að selja þær sem fyrst en að öðrum kosti að leigja þær til að koma starfsemi aftur af stað. Fáfnir hefur verið helsti vinnu- veitandinn á Þingeyri, var stofnað- ur upp úr frystihúsi Kaupfélags Dýrfirðinga fyrir nokkrum árum. Félagið hefur átt í rekstrarerfið- leikum og lítil starfsemi verið þar síðustu misserin. Því hefur fjöldi fólks verið án vinnu. Á síðasta ári var til umræðu að Fáfnir samein- aðist öðrum sjávarútvegsfyrirtækj- um á svæðinu, fyrirtækjum sem síðar sameinuðust undir merkjum Básafells, og var Byggðastofnun þess hvetjandi. Af því varð ekki. Guðmundur Malmquist, forstjóri Byggðastofnunar, segir að vandi Þingeyringa hafi síðan verið til sérstakrar athugunar hjá stofnun- inni og aðrar leiðir ræddar. Ýmsir vi\ja kaupa eða leigja Að frumkvæði Byggðastofnunar hafa stærstu lánardrottnar Fáfnis, Landsbanki íslands og Fiskveiða- sjóður, tekið þátt í athugun á því að leysa til sín helstu eignir Fáfn- is. Er þar um að ræða frystihús félagsins, fiskimjölsverksmiðju, vélar í frystihúsi og fleira. Tilgang- urinn er að halda þessum eignum saman og reyna að selja þær aftur sem fyrst. Guðmundur Malmquist segir að ýmsir hafi sýnt áhuga á að kaupa eignimar eða leigja en ekki hafi fundist gmndvöllur til að fá kaupendur til að greiða þær liðlega 100 milljónir sem hvíla á eignunum. Landsbankinn og Fiskveiðasjóð- ur eiga hvor um sig hátt í 50 millj- ónir kr. inni hjá Fáfni og Byggða- stofnun liðlega 10 milljónir kr. Þó lánin séu með veðum í umræddum eignum er ekki talið að eignirnar standi undir þeim. Guðmundur vildi ekkert um þetta segja, það yrði að koma í ljós þegar eignirnar fengju raunverulegt markaðsverð. Líst ekki á rekstrarfélag Fiskveiðasjóður hefur tekið þátt í viðræðum lánardrottna Fáfnis. „Ég veit ekki hvaða leið er vænleg- ust, þetta er ekki auðleyst mál,“ segir Már Elísson, forstjóri Fisk- veiðasjóðs. „Það skýrist vonandi í vikunni hvort hægt verður að finna viðunandi flöt.“ Ekki líst Má á stofnun rekstr- arfélags, telur það neyðarbrauð. Hann segir að Fiskveiðasjóður hafi fyrsta veðrétt fyrir meginhluta krafna sinna og sé því í annarri stöðu en aðrir kröfuhafar, auk þess sem sjóðurinn hafi ekki sömu heimildir og bankarnir til að taka þátt í stofnun og rekstri rekstrarfé- laga. Rætt á fundi stjórnar Byggðastofnunar Málefni Þingeyrar verða til um- fjöllunar á fundi stjórnar Byggða- stofnunar í dag. „Þetta yrði áfangi á leið en íjárhagsvandinn er ekki leystur,“ segir Guðmundur Malmquist þegar hann er spurður um framtíð Fáfnis hf. og aðaleig- anda þess, Kaupfélags Dýrfirð- inga. Ung stúlka lést í Bláa lóninu STÚLKA á 18. ári lést í Bláa lóninu snemma á sunnudagsmorgun af slysförum. Stúlkan hafði komið um klukkan fimm um nóttina á svæðið ásamt þremur ungmennum öðrum og ætluðu þau að synda í lóninu. Svo virðist sem stúlkan hafi orðið viðskila við félaga sína, en svalt var í veðri og mikil gufa yfir lóninu sam- kvæmt upplýsingum frá lögreglu. Voru ungmennin í mjög heitu vatni. Eftir nokkra stund hófu hin leit að henni en hún bar engan árangur. Þá var lögreglan í Grindavík kölluð til og fannst stúlkan um hádegi á sunnudag, látin. Talið er fullvíst að um slys hafi verið að ræða. Nokkur dæmi eru um dauðsföll í Bláa lóninu á seinustu árum, að sögn Johns Hill rannsóknarlögreglu- manns í Keflavík. „Þetta er hræði- legt slys og því miður virðist vera að ungmenni hafi stundað það að baða sig í Bláa lóninu að næturlagi. Girðing umhverfis svæðið hefur leg- ið niðri að hluta alllengi, þannig að auðvelt hefur verið að komast inn á svæðið, kannski of auðvelt þótt fólk láti slíkar hindranir sjaldnast stöðva sig. Engin næturvarsla er við svæð- ið svo mér sé kunnugt um, sem ég myndi telja eðlilegt, bæði vegna þessara nætursundferða og verð- mæta á svæðinu,“ segir John. Stúlkan sem lést hét Jóna Sjöfn Ægisdóttir, til heimilis að Hraun- kambi 4 í Hafnarfirði. Hún hefði orðið átján ára í júlí. Niðurstöður könnunar á afstöðu til lífeyrismála 80% vilja valfrelsi um lífeyrissjóð Forsætisráðherra um hvalveiðar Markaður verður að vera fyrir hendi TÆPLEGA 26% svarenda sem af- stöðu tóku í nýrri skoðanakönnun ÍM Gallup eru fylgjandi skylduaðild að ákveðnum lífeyrissjóðum en meirihlutinn eða um 62% er henni andvígur. Samkvæmt könnuninni Ný verk- smiðja Delta fyrir 800 milljónir LYFJAFYRIRTÆKIÐ Delta hf. hefur hafið byggingu nýrrar 5.000 fermetra verksmiðju á lóð sinni í Hafnarfirði. Áætlaður kostnaður við þessa fjárfestingu er 800 millj- ónir króna, að því er fram kemur í grein í nýjasta hefti Lyfjatíðinda. Gert er ráð fyrir að nýja verk- smiðjuhúsið verði tekið í notkun eftir ár. Afkastagetan í núverandi verksmiðju Delta er 200 til 250 milljónir taflna á ári, en með til- komu nýja hússins eykst hún í 1.200 til 1.300 milljónir taflna. vilja rúmlega 80% fá að velja í hvaða lífeyrissjóð iðgjöld þeirra eru greidd, en tæplega 20% telja það ekki skipta máli. í könnuninni sem gerð var fyrir Verslunarráð íslands dagana 25. apríl til 2. maí, var lögð eftirfar- andi spurning fyrir þátttakendur: „Ertu fylgjandi eða andvíg(ur) skylduaðild að ákveðnum lífeyris- sjóðum eins og nú er, þar sem fólk verður að vera í ákveðnum lífeyris- sjóði? (T.d. verða verslunarmenn að vera í lífeyrissjóði verslunar- manna.)“ Niðurstöðurnar urðu þær að 37,8% sögðust vera því mjög andvígir og 24,3% fremur andvígir. 11,2% sögðust vera mjög fylgjandi skylduaðild og 14,6% fremur fylgj- andi. 12,1% kváðust vera hlutlaus- ir. Töluverð breyting hefur orðið á afstöðu til þessara mála frá sam- bærilegri könnun í júní 1994 en þá voru tæplega 21% fylgjandi skyldu- aðild en 73,7% andvígir. Karlar fremur fylgjandi skylduaðild en konur Fram kom í könnuninni að karlar eru fremur fylgjandi skylduaðild en konur og þeir tekjulægri fremur en hinir tekjuhærri. Þá er elsti hópur- inn í meira mæli fylgjandi skylduað- ild en fólk á aldrinum 25 til 54 ára. í könnuninni var einnig spurt: „ Vilt þú fá að velja í hvaða lífeyris- sjóð iðgjöld þín eru greidd eða fmnst þér það ekki skipta máli?“ Niður- stöður urðu þær að 80,3% sögðu að þeir vildu fá að velja í hvaða líf- eyrissjóð iðgjöldin eru greidd en 19,7% töldu það ekki skipta máli. 5,7% tóku ekki afstöðu. Þegar spurt var um sama atriði í könnun fyrir ári vildu fleiri en nú ráða því í hvaða lífeyrissjóð þeir greiddu, eða 87%. 13% töldu það ekki skipta máli. Stuðning við valfrelsi einkum að finna í aldurshópi 25-44 ára Við greiningu á svörum þátttak- enda með tilliti til aldurs, búsetu og tekna kom í ljós að höfuðborg- arbúar og hinir tekjuhærri vilja í meira mæli fá að velja í hvaða líf- eyrissjóð iðgjöld þeirra eru greidd en aðrir hópar. Einnig kom í ljós mun meiri áhugi á að fá að ráða því í hvaða sjóð iðgjöld eru greidd með- al fólks á aldrinum 25-44 ára en fólks á öðrum aldri. Heildarfjöldi í úrtakinu var 1.168, 819 svöruðu í könnuninni eða 72,5%. DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að álit þingnefndar sem fjallað hefur um möguleika á hvalveiðum verði afgreitt úr ríkisstjórn á morg- un, en ekki verði tekin ákvörðun þá um hvort gengið verði í Alþjóðahval- veiðiráðið. Hann segir að hvalveiðar verði ekki leyfðar á ný fyrr en ljóst sé að markaður sé fyrir afurðirnar, en Japanir hafi tekið skýrt fram að þeir geti ekki keypt hvalaafurðir af Islendingum nema þeir gangi í Al- þjóðahvalveiðiráðið. Þetta kom fram í svari ráðherra við fyrirspurn Guð- mundar Áma Stefánssonar, þing- flokki jafnaðarmanna, á Alþingi. Guðmundur Árni sagðist ósáttur við að markaðsmöguleikar einir TVEIMUR Þjóðveijum, sem lögðu upp í göngu á Vatnajökli á sunnu- dagsmorgun, var bjargað ofan af jöklinum í gær. Þeir sendu út neyðar- kall eftir hádegi í gær. Þeir höfðu áður óskað eftir að vera sóttir, en mjög hvasst var á þessum slóðum og skafrenningur. Starfsmenn Jöklaferða á Höfn voru komnir áleið- is til mannanna þegar neyðarkallið barst og fundu þá fljótlega. Þeir fluttu mennina til Hafnar í Horna- firði heila á húfi. Mennirnir eru báðir vanir fjalla- væru látnir ráða því hvort hvalveiðar yrðu hafnar að nýju. Hann sagði meginatriðið hvar mörkin væru sett varðandi nýtingu á sjávarauðlindum. Hjörleifur Guttormsson gagn- rýndi sjávarútvegsráðherra fyrir meðferð hans á hvalveiðimálum og sagði að mátt hefði hefja takmarkað- ar hvalveiðar fyrir nokkrum árum til að leggja áherslu á kröfur íslands. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra sagði að vegna erfiðra deilna og samninga sem íslendingar hefðu staðið í vegna ýmissa fiski- stofna hefði ákvörðun um hvalveiðar verið frestað. ■ Áfram óvissa/37 ferðum. Samkvæmt upplýsingum frá Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík barst tilkynning frá Þjóðveijunum í gærmorgun um að þeir ætluðu að breyta áætlun sinni. Skömmu síðar óskuðu þeir eftir að vera sóttir, en eftir hádegi barst neyðarkallið. Fár- viðri var þá á jöklinum og höfðu mennimir m.a. misst tjald sitt. Mennirnir voru með staðsetning- artæki frá Flugbjörgunarsveitinni, en í gegnum það er hægt að senda ákveðin merki um breytingu á áætl- un, óskir um aðstoð eða neyðarkall. Bjargað af Vatnajökli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.