Morgunblaðið - 06.05.1997, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 06.05.1997, Blaðsíða 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens ÉS FÉtcK HU6/VIVND. flF H\/£KJO œf&oeidtl iMEG&JN OGSVIAIDL- Tommi og Jenni Smáfólk Nýtt leiktímabil! Ég stend hér eins Ekkert get- Hæ, stjóri! ... ísjaki! Hérna á ég heima! og skipstjóri á ur sökkt Ég er tilbúin! Þetta er mitt líf! skipi sínu! þessu skipi nema ... BREF HL BLAÐSINS Kringlan I 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Til eigin neyslu Frá Krístni Snæland: ÍSLAND fikniefnalaust innan fárra ára eða svona árið 2002. Þetta fer vel á prenti en gæti hæglega farið úrskeiðis, ekki síst ef ekki tekst að breyta þeim hugsunarhætti sem virðist ríkjandi. Nýlega kvartaði ung stúlka, dæmd í afar alvarlegu fíkniefna- máli, á þá leið, ég fæ þyngri dóm en morðingjar. Stúlkan virðist ekki gera sér grein fyrir því að fíkniefni leiða til morða, sjálfsvíga og svo ömurlegs lífs að dauði væri kær- komin lausn. Morð getur verið skyndigerð, óyfirveguð og óundir- búin, reyndar jafnvel óhappaverk, heitir þá víst manndráp. Fíkniefna- flutningur er hinsvegar fram- kvæmdur eftir talsverða umhugsun og yfirvegun, eins og kom fram hjá stúlkunni. Ekki er fráleitt að fyrir slíkt sé kveðinn upp þyngri dómur en fyrir morð. Önnur hlið á fíkniefnamálum er sú sem gjarnan kemur fram í frétt- um og dómum. Efnið var ætlað til eigin neyslu er sagt og þá er eins og ekki sé þörf refsingar. Þetta seg- ir fíkniefnasölum aðeins, ef þú versl- ar með fíkniefni vertu þá ekki með, eða nærri þér, stærri skammt en svo, að þú getir staðhæft að hann sé til eigin neyslu. Ef harkalega væri tekið á öllum sem nást með „neysluskammt" eða það magn sem lögleg yfirvöld telja hæfílegt til eig- in neyslu uggir mig að sölumönnum dauðans reyndist erfíðara að selja. Nú síðast varð þetta brenglaða hugarfar, sem ég er að fjalla um, til þess að ræðismaður Islands í Glasgow kom brotamanni undan réttmætum dómi. Reyndar var í því dæmi ekki um fíkniefni að ræða en þó bannvöru sem afskræmir útlit og getu, veldur ofsa og kann að valda dauða. Trúnaðarmenn íslands eiga ekki að mínu áliti, að vinna að því að íslenskir brotamenn sleppi við rétt- mætar refsingar svo sem ræðis- maður íslands í Glasgow gerði í þessu tilfelli. Einnig þyrfti að breyta hugarfarinu í þá veru að leggja að jöfnu eign fíkniefna, hvort sem þau teljast ætluð til eig- in neyslu eða til sölu. Það brenglaða hugarfar, sem ég fjalla hér um, kemur vissulega fram á annan hátt, t.d. þann að vínveit- ingar, drykkja og svall þykir ekki tiltökumál og er stíft stundað í íþróttahúsum eða félagsheimilum íþróttafélaga. Guð láti gott á vita að íþróttafélögin hafa skipað nefnd til þess að vinna gegn fíkniefnum. Skynsamlegt væri fyrir þá nefnd að byija í eigin húsum og gera áfengi útlægt þar. Skólastjórnir framhaldsskóla gætu svo tekið þátt í þessu átaki gegn fíkniefnum með því að banna algerlega ölvuðum ungmennum inn- göngu á skammtanir skólanna. Vissulea er hætt við að fámennt yrði á þeim skemmtunum í fyrstu en skrefíð gegn vímuefnum væri þá stigið í fullri alvöru á helstu víg- stöðvum ungmenna í Iandinu. Til þess að gera þetta þarf hug- arfarsbreytingu. Hún ein er hin nauðsynlega undirstaða þess að í rétta átt þokist fyrir árið 2002. KRISTINN SNÆLAND, Engjaseli 65,109 Rvík. Olöf Rún Skúladóttir fyrrverandi sjón- varpsþulur Frá Jens í Kaldalóni: ÞAÐ var eins og eitt stórkostleg- asta skýfall hefði komið úr heiðskír- um himni þegar það allt í einu frétt- ist að þú yrðir ekki lengur í fréttun- um á sjónvarpsskjánum. Þar með væri þetta elskulega andlit, blíði, hreini og himinljómandi svipur þinn, látlaus og einlægur horfinn. Maður vissi alltof lítið um alla tilveru þína fyrr en maður sá myndir af börnum þínum og eiginmanni, maður jafn- vel trúði því tæpast að nokkrum manni hefði getað áskotnast svona einlæg og elskuleg kona, en það var nú ekki aldeilis heldur í kot vísað þegar maður svo sá þennan stór- kostlega glæsilega pilt þinn í skrúða lífsins, og svo barnahópinn ykkar, þennan mjög svo fríða söfnuð, blasa við í myndum Dagblaðsins og víð- ar, en ekki síður tók svo steininn úr þegar öll hestakonuhamingjan bjarmaði huga þinn og tilveru alla. Það er, get ég sagt þér. mátturinn og dýrðin í allra lífi, að geta bæði í raunum sínum og gleði notið þeirr- ar einstöku hamingju að umgangast hesta og njóta þess yndis sem þeir gefa manni. Er ekki nóg með það, en aðdáunarverðast í öllu þínu elskulega útliti hefur svo alltaf ver- ið að þú sjaldan eða aldrei hefir hengt neina skrautkoppa neðan í eyrnasneplana, heldur haft þá í þeim guðlega friði sem fagurlegast- ir blika í sinni réttu og fegurstu sköpun. Það þarf enginn að segja mér annað en að það séu fleiri en ég sem sakna þín úr sjónvarpinu, þó ekki hafi allir einurð til að láta það uppi. En ég ætla að taka mér það bessa- leyfi að senda þér frá öllum sjónvarp- snotendum hugheilar kveðjur, góðar óskir og margfaldar þakkir fyrir all- ar ánægjustundirnar og yndis þess sem við notið höfum við að sjá þig í sjónvarpinu, og þótt margar séu þar góðar og elskulegar, hefur þú svo skarað þar framúr í einstaklega unaðslegu útliti og yndisþokka. Að endingu þessa vísu: Fylgi þér í friðarskjól, fegurst blóm í haga. Þig svo vermi vinasól, vegs um góða daga. Lifðu heil í guðs friði. JENS Í KALDALÓNI. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.