Morgunblaðið - 06.05.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.05.1997, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Forseti íslands um heimsókn sína í Suður-Þingeyjarsýslu Fróðleg heim- sókn og hlýjar móttökur HEIMSÓKN forseta íslands, herra Ólafs Ragnars Grímssonar, og eig- inkonu hans, Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur, til Suður-Þingeyj- arsýslu lauk við Goðafoss síðdegis á sunnudag. „Okkur hjónum fannst heimsóknin afar fróðleg, margt lærdómsríkt og hvarvetna frábærar móttökur og hlýjar og gestrisnin einstök," sagði forseti í samtali við Morgunblaðið í gær. „Tvennt ber einkum hæst,“ sagði forseti ennfremur. „Annars vegar að kynnast nýsköpun í skólum víða í sýslunni, bæði á Húsavík og í skólum í fámennari sveitahreppum. Þar er lögð áhersla á sjálfstæða list- sköpun og þroska nemenda ásamt hagnýtingu nýjustu tækni í upplýs- ingamiðlun. Þá má nefna frábæra kóra og tónlistarfólk, til dæmis í einum skólanum í fámennum hreppi þar sem yfir 20 nemendur voru að semja tónverk á eigin vegum. Hitt atriðið eru framtakssemi, hugmyndaauðgi og nýjungar sem einkenna atvinnulífið í héraðinu," sagði forseti ennfremur og átti þar við nýtt fyrirtæki á Húsavík sem flytur inn tijáboli frá Bandaríkjun- um og þurrkar til útflutnings, ann- að fyrirtæki í sýslunni sem þurrkar og vinnur loðnu, nýjungar í mat- vælaiðnaði, m.a. kjötvinnslu og ostaframleiðslu. Kerti og tólg í Bárðardal „Einnig var merkilegt að heim- sækja Bárðardalinn og kynnast því að á einum sveitabænum er farið að vinna kerti úr tólg og hamsatólg í svo miklum mæli að sækja verður hráefni allt til Austurlands þar sem það hrekkur ekki til sem í sýslunni fæst. Þetta eru bara nokkur dæmi sem sýna að í Suður-Þingeyjarsýslu fer fram fjölþætt nýsköpunarstarf. Þetta undirstrikar þá sýn að það er ekki bara hér á suðvesturhorninu eða i einhveijum formlegum stofn- unum eða stórfyrirtækjum sem slíkt nýsköpunarstarf fer fram heldur á sveitabæ, í sveitaskóla, sjávarút- vegsfyrirtæki í sveit, nýju iðnfyrir- tæki á Húsavík. Þar er verið að ryðja algjörlega nýjar brautir í ís- lensku atvinnulífí sem geta haft stórkostleg áhrif ef þær endurspegl- ast annars staðar. Allt þetta myndaði þá heildar- mynd að það er ekki aðeins byggt á fornri frægð í sýslunni heldur geijast þar hlutir sem geta orðið afdrifaríkir á komandi árum,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson að lokum. Á samkomu í íþróttahúsinu í Laugum síðdegis á laugardag af- henti forseti fimm ungmennum við- urkenningarskjölin Hvatningu for- seta íslands til ungra íslendinga. Þau eru: Jóhanna Gunnarsdóttir, 19 ára frá Húsavík, fyrir góðan árangur við undirbúning stúdents- prófs á tveimur brautum samtímis; Inga Gerður Pétursdóttir í Reykja- hlíð, 14 ára, en hún er fulltrúi hóps ungra stúlkna er æft hefur glímu með góðum árangri; Kristján Þór Magnússon, 18 ára frá Húsavík, en hann hefur verið mjög virkur í félagsmálum og leiklist ásamt því að sýna góðan námsárangur; Þórey Kristín Aðalsteinsdóttir Fellshlíð Reykdælahreppi, 15 ára, og er hún fulltrúi nemenda Litlulaugaskóla sem sýnt hafa einbeitni, atorku og hæfileika við að byggja upp góðan skólakór og Lára Sóley Jóhanns- dóttir, 15 ára frá Húsavík, sem Morgunblaðið/Baldvin Björnsson FORSETAHJÓNIN, sýslumaður og fulltrúar sveitarfélaga í Suður-Þingeyjarsýslu eru hér við Goða- foss er heimsókn forseta í sýsluna lauk síðdegis á sunnudag. Morgunblaðið/Ásdís FORSETI íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, ásamt fimm ungmennum sem hann heiðraði en þau eru frá vinstri: Jóhanna Gunnarsdóttir, Inga Gerða Pétursdóttir, Kristján Þór Magnús- son, Þórey Kristín Aðalsteinsdóttir og Lára Sóley Jóhannsdóttir. sýnt hefur færni og áhuga í tón- listarnámi. Á siðasta degi heimsóknarinnar fóru forsetahjónin að Vöglum og kynntu sér skógræktina þar, héldu síðan í Bárðardalinn, skoðuðu með- al annars Lundarbrekkukirkju og snæddu hádegisverð í boði Bárð- dælahrepps. Heimsóknin endaði við Goðafoss þar sem gestirnir litu meðal annars inn hjá handverks- konum milli heiða. Vín og tóbak hækkar ÁFENGIS- og tóbaksverslun ríkisins gaf í gær út nýja verð- skrá og samkvæmt henni hækkar áfengi að meðaltali um 0,54% miðað við sölu síðustu 12 mánaða og tóbak hækkar í heildsölu um 1,25% að meðal- tali miðað við selt magn frá apríl 1996 til mars 1997. Þá hófst í gær sala á bjór í dósum í stykkjatali hjá ÁTVR. Áð sögn Bjarna Þorsteins- sonar, forstöðumanns hjá ÁTVR, er hækkunin á verði áfengis og tóbaks vegna aðlög- unar að breyttu gengi. í verðskránni er tilgreint lág- marksverð á tóbaki í smásölu þar sem miðað er við 14% álagningu. Smásölum er óheimilt að selja tóbak undir þessu lágmarksverði, en hins vegar er þeim fijálst að selja á hærra verði. Ásókn í byggingarlóðir við Korpálfsstaði Borgarráð fjallar um umsóknir í dag BORGARRÁÐ fjallar væntanlega í dag um umsóknir um lóðir í Staða- hverfí við Korpúlfsstaði, en frá því byijað var að taka við umsóknum um lóðirnar síðastliðinn föstudag hefur verið sótt um rúmlega 30 af 53 einbýlishúsaióðum í hverfinu. Þá er um að ræða 20 raðhúsalóðir og 7 fjölbýlishúsalóðir og að sögn Ág- ústs Jónssonar, skrifstofustjóra borgarverkfræðings, hafa borist umsóknir um þær allar. Biðröð umsækjenda um lóðirnar byijaði að myndast fyrir utan skrif- stofu borgarverkfræðings snemma að morgni 1. maí, en að sögn Ág- ústs eru þess dæmi að fólk hafí áður beðið næturlangt til að koma lóð- aumsóknum sínum til skila. „Þetta er hins vegar mjög spenn- andi svæði, að ég tali nú ekki um fyrir golfara, því golfvöllurinn liggur allt i kringum hverfið, og svo höfðar þetta til útivistarfólks þar sem þetta er mjög skemmtilegt útivistarsvæði. Þar að auki er þetta í fyrsta sinn í nokkur ár sem gefst kostur á svona mörgum húsum á einni hæð,“ sagði Ágúst. LEIRVOGUR I I Einbýlishúsalóðir í I Raðhúsalóðir I I Fjölbýlishúsalóðir ! i Verslanir og stofnanir I I Golfvallarbrautir V Leirvogs-\ hólmi \ Staðahverfi í Reykjavík Síðustu handritin koma SÍÐASTA meginsending íslenskra handrita frá Danmörku er vænt- anleg hingað til lands með danska varðskipinu Vædderen í dag en skipið ber sama nafn og það varð- skip sem kom með Flateyjarbók og Konungsbók eddukvæða, síð- asta dag vetrar árið 1971. í sendingunni eru síðustu ís- lensku fornbréfin úr Árnasafni, nálægt 160 bréf, sem mörg hafa ekki verið prentuð. í sendingunni eru einnig 8 handrit, flest skinn- handrit. Það elsta þeirra er frá 14. öld og hefur m.a. að geyma Guðmundar sögu góða, annað er skrifað í Strandasýslu um 1500 og í því eru Bárðar saga, Víglund- ar saga og Grettis saga. Saga heilagrar Margrétar er í handriti frá fyrri hluta 15. aldar, sem maður hefur skrifað fyrir dóttur sína, en návist við Margrétar sögu þótti duga konum vel í barn- snauð. Formlega lýkur afhendingu handritanna með afhendingu tveggja handrita að morgni fimmtudagsins 19. júní við setn- ingu tveggja daga máljþings um handrit.sem stofnun Arna Magnú- sonar á íslandi stendur fyrir. Vegagerðin skoðar Suðurstrandarveg VEGAGERÐIN er að kanna hvert væri heppilegasta stæði fyrir veg milli Grindavíkur og Þorlákshafnar, svokallaðan Suðurstrandarveg. Jón Rögnvaldsson, aðstoðarvegamála- stjóri, segir málið komið skammt á veg- , . Jón Gunnar Stefánsson, bæjar- stjóri í Grindavík, sagði í Morgun- blaðinu á laugardag að í stað þess að tvöfalda Reykjanesbraut væri nær að leggja Suðurstrandarveg, því hann myndi létta mjög umferðar- þunga af Reykjanesbraut. „Þama liggur vegur, en mjög lé- legur,“ sagði Jón Rögnvaldsson. „Við höfum verið að kanna hugsan- lega vegagerð og meðal annars kynnt málið fulltrúum Náttúru- verndar. Hins vegar er ekki farið að huga að umhverfismati eða öðr- um þáttum. Þá hefur ekki verið veitt fé til verksins og það er enn ekki til áætlun um hvenær vegurinn yrði lagður. Nú er hins vegar unnið að gerð nýrrar vegaáætlunar og við munum gera þingmönnum grein fyr- ir stöðu mála. Það er þeirra að ákveða hvort tillaga verður gerð um Suðurstrandarveg."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.