Morgunblaðið - 06.05.1997, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
SIGURVEGARAR keppninnar, Kári Óskarsson, Þorvaldur Gautsson, Guðmann
Sveinsson, Sigurjón Ingólfsson, Davíð O. Sveinbjörnsson og Hákon Ö. Hannesson.
ÖRYGGISTAPPI í baðkar hreppti fyrstu verð-
laun í flokki uppfinninga. Höfundur er átta ára
gamall.
Sex verðlaun afhent
í nýsköpunarkeppni
VERÐLAUN voru afhent í nýsköp-
unarkeppni grunnskólanemenda síð-
astliðinn laugardag. Keppninni var
skipt í tvo flokka, uppfinningar ann-
ars vegar og formhönnun hins veg-
ar, og fengu þrír nemendur í hvorum
flokki um sig verðlaun.
Fyrstu verðlaun fyrir uppfinningu
hlaut Hákon Ö. Hannesson í Engja-
skóla og fyrstu verðlaun fyrir form-
hönnun hlaut Guðmann Sveinsson í
Foldaskóla. Önnur og þriðju verð-
laun fyrir uppfmningu hlutu Kári
Óskarsson í Grundaskóla og Davíð
Ö. Sveinbjörnsson í Grandaskóla og
í öðru og þriðja sæti fyrir formhönn-
un voru Sigurjón Ingólfsson, Egils-
staðaskóla, og Þorvaldur Gautsson,
Hamraskóla.
Aðstandendur segja markmiðið
með nýsköpunarkeppninni að vekja
athygli á hugviti nemenda og hvetja
til sköpunar. Keppninni er jafnframt
ætlað að hvetja nýsköpun í grunn-
skólunum.
Umsjón með keppninni er í hönd-
um Kennaraháskóla íslands og
íþrótta- og tómstundaráð heldur
sumarskóla í nýsköpun fyrir grunn-
skólanemendur og námskeið. Jafn-
framt er Foidaskóli móðurskóli fyrir
nýsköpun í Reykjavík. Móðurskólar
þróa nýsköpunarstarfið, miðla öðr-
um af reynslu sinni og nú eru yfir
20 skólar að þróa hjá sér nýsköpun
í starfi að sögn aðstandenda keppn-
innar.
Að keppninni standa Kennarahá-
skólinn, Samtök iðnaðarins, íþrótta-
og tómstundaráð, Félag íslenskra
smíðakennara, Tækniskóli íslands
og Félag íslenskra iðnhönnuða.
SÍMI fyrir lítil börn sem
ekki muna símanúmer. A
tökkunum eru myndir af
fólki sem hægt er að hringja
í með því að ýta.
Eiturlyf
fundust
í Eyjum
LÖGREGLAN í Vestmanna-
eyjum lagði hald á þijú
grömm af amfetamíni um
miðjan dag á sunnudag, eftir
að ábendingar höfðu borist
um að fíkniefni kynnu að
verða send til viðtakanda þar.
Lögreglumenn höfðu eftir-
lit með flugvellinum í kjölfarið
og þegar þangað kom maður
til að sækja pakka sem grun-
ur lék á að innihéldi fíkniefn-
in, var hann handtekinn.
Innihald kom á óvart
Hann var færður í fanga-
geymslur þar sem pakkinn
var opnaður og reyndist hann
innihalda um þijú grömm af
amfetamíni. Móttakandi efn-
isins kvaðst hafa átt von á
hassi og var því ögn hissa
yfir innihaldinu, en játaði þó
að vera eigandi þess í félagi
við annan, samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglu.
Meðeigandinn var hins veg-
ar við vinnu á sjó, og mun
því ekki sæta afskiptum lög-
reglu fyrr en hann kemur í
land. Málið telst upplýst.
Formaður Alþýðuflokks vill sameigin-
legt framboð jafnaðarmanna
Tíu baráttumál
og opið prófkjör
SIGHVATUR Björgvinsson, for-
maður Alþýðuflokksins, sagði í
ræðu á félagsfundi Jafnaðar-
mannafélags Eyjafjarðar sl.
sunnudag að jafnaðarmanna-
flokkarnir ættu að hefja undirbún-
ing að sameiginlegu framboði við
næstu alþingiskosningar. Því ætti
að koma í kring með almennu
prófkjöri, „þar sem þeir, sem vilja
styðja baráttu okkar, velja fólkið
á framboðslistana á jafnréttis-
grundvelli", eins og Sighvatur
komst að orði.
Sighvatur sagði gömul deilumál
ekki lengur standa í vegi fyrir
samstarfi jafnaðarmanna. Tiltók
hann tíu baráttumál sem hann
sagði að gætu orðið grundvöllur
sameiginlegs framboðs í næstu
alþingiskosningum, sem alþýðu-
flokksmenn, alþýðubandalags-
menn, þjóðvakafólk, stuðnings-
menn Kvennalista, ungt fólk í
Grósku, öfl í verkalýðshreyfing-
unni og aðrir jafnaðarmenn ættu
að geta sameinast um.
Kjörtímabilið 1999-2003 á að
verða kjörtímabil frelsisaðgerða,
sagði Sighvatur m.a. „Við viljum
fijálsa samkeppni með öflugu
neytendastarfi og neytendavernd,
gegn fákeppni, hringamyndunum
og markaðsyfirráðum fyrirtækja
og fyrirtækjasamsteypa,“ sagði
hann. Meðal annarra mála sem
Sighvatur rakti voru velferðar- og
öryggismál, þar sem m.a. barna-
bætur yrðu greiddar án tekjuteng-
ingar, tekjutenging grunnréttinda
aldraðra og öryrkja í almanna-
tryggingakerfinu yrði afnumin og
biðlistar styttir um a.m.k. helm-
ing.
Lýðræðisumbætur eiga einnig
að vera meðal tíu baráttumála
sameiginlegs framboðs jafnaðar-
manna, sem m.a. feli í sér að hið
opinbera dragi sig út úr atvinnu-
rekstri, sem betur er kominn í
höndum einstaklinga og fyrir-
tækja og ríkisfyrirtæki verði
einkavædd.
Veiðileyfagjald og
aukin Evrópusamvinna
Á næsta kjörtímabili á að.
tryggja þjóðinni sameiginleg yfir-
ráð og forræði yfir auðlindum
lands og sjávar, að mati Sighvats.
Leggja veiðileyfagjald á í sjáv-
arútvegi og sambærilegt gjald
fyrir virkjana- og námaréttindi í
alþjóðareigu. Náttúru- og um-
hverfisvernd verða meðal baráttu-
málanna og næsta kjörtímabil
verður tímabil efnahagslegrar
uppstokkunar og nýsköpunar, þar
sem m.a. á að örva erlenda fjár-
festingu og sækjast eftir sam-
starfi við erlenda aðila. Aukin
Evrópusamvinna á einnig að vera
meðal tíu baráttumála sameigin-
legs framboðs.
Leit enn árangnrslaus
FORMLEG leit hefur nú staðið yfir
að fertugum Akurnesingi, Ottó
Sveinssyni, frá því 2. maí, en ekk-
ert hefur til hans spurst síðan að-
faranótt mánudagsins 28. apríl.
Enn sem komið er hefur leitin eng-
an árangur borið.
Vitað er að Ottó fór til Reykjavík-
ur sunnudaginn 27. apríl og næstu
nótt sást til hans í miðbæ Reykja-
víkur. Lögreglumenn og björgunar-
sveitarmenn gengu fjörur í ná-
grenni Reykjavíkur um helgina, auk
annarrar eftirgrennslanar. í gær
var leitað með aðstoð leitarhunds í
miðborg Reykjavíkur.
Verðlaun afhent í
lj ósmyndasamkeppni
Morgunblaðið/Golli
VERÐLAUN og viðurkenningar
fyrir bestu myndir fréttaritara
Morgunblaðsins voru afhent við
sérstaka athöfn sem haldin var
í tengslum við aðalfund fréttarit-
aranna í Morgunblaðshúsinu síð-
astliðinn laugardag.
Okkar menn, félag fréttarit-
ara Morgunblaðsins, efndi til
samkeppni meðal félagsmanna
sinna á bestu myndum þeirra frá
árunum 1995 og 1996. Fjöldi
fréttaritara tók þátt í keppninni
og sendu inn yfír 700 ljósmyndir.
Dómnefnd veitti 26 myndum
verðlaun og viðurkenningar og
voru verðlaun afhent um helgina.
Myndirnar hafa verið hengdar
upp í anddyri Morgunblaðshúss-
ins og eru þar til sýnis á af-
greiðslutíma blaðsins til 22. þessa
mánaðar. Síðan er ætlunin að
setja sýninguna upp á nokkrum
stöðum á landsbyggðinni á veg-
um Morgunblaðsins og fréttarit-
aranna.
Halldór Sveinbjörnsson ljós-
myndari á Isafirði fékk aðalverð-
laun keppninnar fyrir myndina
Siyóflóð á Flateyri. Myndin sýnir
björgunarsveitarmenn leita við
erfiðar aðstæður að fólki í
rústum húsa sem urðu fyrir snjó-
flóðinu á Flateyri. Á myndinni
hér til hliðar tekur Björn Hall-
dórsson, sonur Halldórs Ijós-
■
myndara, við verðlaunum föður
síns úr hendi Haraldar Sveins-
sonar stjórnarformanns Árvak-
urs hf., útgáfufélags Morgun-
blaðsins.
AIls fengu tólf fréttaritarar
og ljósmyndarar verðlaun í ljós-
myndasamkeppninni. Á mynd-
inni hér að ofan sjástþeir saman-
komnir eftir athöfnina, f.v. Guð-
mundur Þór Guðjónsson á Ólafs-
firði, Egill Egilsson á Flateyri,
Svavar B. Magnússon á Ólafs-
firði, Sigurður Aðalsteinsson á
Vaðbrekku, Sigmundur Sigur-
geirsson sem tók við verðlaunum
frænda síns, Sigurðar Sigmunds-
sonar í Syðra-Langholti, Björn
Halldórsson sem tók við verð-
launum föður síns, Halldórs
Sveinbjörnssonar á ísafirði, Jón
Sigurðsson á Blönduósi, Pétur
Kristjánsson á Seyðisfirði, Sigur-
geir Jónasson í Vestmannaeyj-
um, Hólmfríður Haraldsdóttir í
Grímsey og Theodór Kr. Þórðar-
son í Borgarnesi. Auk þess tók
Erlendur Sigurþórsson við verð-
launum sonar síns, Jónasar Er-
lendssonar í Fagradal.