Morgunblaðið - 06.05.1997, Page 13

Morgunblaðið - 06.05.1997, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997 13 AKUREYRI Morgunblaðið/Kristján JAKOB Björnsson bæjarstjóri gekk til liðs við kiwanismenn í Kaldbak sem gáfu sjö ára börnum í bænum reiðhjólahjálma og öryggisveifur um helgina. Hér er hann að færa Evu Snæbjarnar- dóttur hjálminn sinn. Bömin fengu hjálma og veifur Meira atvinnu- leysi en í fyrra Tveir á slysadeild eftir umferðaróhapp Hemlarn- ir virkuðu ekki TVEIR voru fluttir á slysadeild Fjórðungssjúkrahússins á Ak- ureyri eftir umferðaróhapp á Höfðahlíð, skammt austan við gatnamót Háuhlíðar og Löngu- hlíðar. Bifreiðin fór út af veginum og hafnaði á ljósastraur. Öku- maður sagði lögreglu að hemlar bifreiðarinnar hefðu ekki virkað strax þegar á þeim þurfti að halda og því hafí bifreiðin farið út af veginum og lent á ljósa- staurnum. Að sögn ökumanns var vitað að hemlarnir væru búnir að vera lélegir en ekki komist í verk að láta lagfæra þá. Karlmennska og kynlíf „KARLMENNSKA og kynlíf" er heiti á erindi sem Arnar Sverrisson sálfræðingur flytur á fyrstu samræðustund með körlum sem Reynir-ráðgjafar- stofa efnir til í Deiglunni i kvöld, þriðjudagskvöldið 6. maí, kl. 21. Yfirskrif sam- ræðukvöldanna er Karlar um karla og verða þau haldin fjög- ur kvöld nú í maímánuði. í erindinu ljallar Arnar um karlmennsku og kynlíf á breið- um grundvelli, með sérstakri skírskotun til kynfæra karla sem táknmyndar. Að erindinu loknu er gert ráð fyrir al- mennri umræðu, en áætluð dagskrárlok eru um kl. 22.30. Þátttökugjald er 500 krónur. Stopp-leikhópurinn Skiptistöðin sýnd í grunn- skólunum STOPP-leikhópurinn er á leik- ferð á Akureyri með leikritið „Skiptistöðin“ eftir Valgeir Skagfjörð. Sýningar leikhóps- ins eru sérstaklega ætlaðar nemendum í 10. bekk í grunn- skólum bæjarins, auk þess sem haldnar eru tvær sýningar fyrir foreldra. Nemendur í 10. bekk í Gagn- fræðaskóla Akureyrar sáu sýn- inguna í gærdag og í gær- kvöldi var foreldrasýning í skól- anum. I dag verða tvær sýning- ar í Glerárskóla, fyrir nemend- ur Síðuskóla og GÍerárskóla og í kvöld kl. 20.30 verður for- eldrasýning í skólanum. Á foreldrasýningunum ætla hjúkrunarfræðinemar í Háskól- anum á Akureyri að kynna nið- urstöður í könnun sem þeir hafa gert á útbreiðslu fíkni- efnanotkunar í bænum. Stakfélagar samþykkja ATKVÆÐAGREIÐSLA um nýjan kjarasamning Starfs- mannafélags Akureyrarbæjar, STAK, við launanefnd sveitar- félaga fyrir hönd Akureyrar- bæjar fór fram í síðustu viku. Niðurstaðan var sú að samningurinn var samþykktur með 69% atkvæða, nei sögu 31% og ógildir seðlar voru engir. Alls greiddu 147 at- kvæði af 299 sem voru á kjör- skrá, sem er 49% kjörsókn. Samningurinn gildir frá 1. mars 1997 til 1. maí 2000. MARGT var um manninn í verslunarmiðstöðinni Sunnu- hlíð á laugardag, en í tengslum við Vordaga miðstöðvarinnar afhentu fulltrúar i Kiwanis- klúbbunum Kaldbaki börnum, sem fædd eru árið 1990, að gjöf reiðhjólahjálma og öryggisveif- ur á reiðhjól. Klúbbar á Norður- landi eystra hafa síðustu daga verið að afhenda börnum hjálma og veifur, en samtals er Reyk- skynjarinn bjargaði íbúunum REYKSKYNJARI vakti húsráð- anda í húsinu númer 23b við Hafn- arstræti, sem er steinhús á tveimur hæðum, á Akureyri um kl. 3 að- faranótt mánudags, en íbúðin var þá full af reyk og hafði vatnslögn úr plasti brunnið þannig að vatn flæddi um allt. Feðgar, ungur maður og rúmlega tveggja ára sonur hans, voru í húsinu. Þykkur reykur um allt hús Tilkynnt var um eldinn skömmu fyrir kl. 3 aðfaranótt mánudag og segir Tómas Búi Böðvarsson, slökkviliðsstjóri hjá Slökkviliði Akureyrar, að þegar að var komið hafi mikill og þykkur reykur verið um allt húsið, vatn flætt um gólf en eldur ekki verið mikill. Gekk vel að slökkva hann, síðan var um að ræða 550 gjafir og er heildarverðmæti þeirra um 1,6 milljónir króna. Það er orðinn árviss atburður að Kiwanis- klúbbar afhendibörnum á svæðinu hjálma og veifur að gjöf, en með því vilja Kiwanis- menn stuðla að því í samvinnu við fyrirtæki og stofnanir að börnin eigi góð og viðurkennd öryggistæki þegar þau taka fram hjólin að vorlagi. húsið reykræst og vatn sogað upp af gólfi. Töluverðar skemmdir urðu á húsinu. Tómas Búi sagði að enn einu sinni hefðu reykskynjarar sannað gildi sitt, sennilega í þessu tilviki MUN meira atvinnuleysi er nú á Akureyri en var á sama tíma á liðnu ári, en 437 manns eru á atvinnu- leysisskrá í bænum en þeir voru í lok apríl í fyrra 374. Nákvæmlega jafnmargir voru skráðir atvinnulausir um nýliðin mánaðamót og var um mánaðamót- in þar á undan, en nokkrar breyt- ingar hafa orðið á milli kynja, þann- ig hefur körlum á atvinnuleysisskrá heldur fækkað milli mánaðamóta. Þeir eru nú 183 en voru 191 í lok mars, konur á atvinnuleysisskrá eru GRÓSKA á Norðurlandi hvetur til þess að A-flokkarnir á Akureyri bjóði fram sameiginlega í næstu bæjarstjórnarkosningum. Stofn- fundur Grósku á Norðurlandi var haldinn 1. maí og sóttu hann um 100 manns. í ályktun fundarins kemur fram að núverandi ástand í stjórnmálum á íslandi sé ekki viðunandi, valda- skiptingin sé í hróplegu ósamræmi við vilja meirihluta þjóðarinnar og nauðsynlegt að félagshyggjufólk sameinist í breiðfylkingu gegn rang- læti og misrétti sem viðgengst í þjóð- félaginu. Tímabært sé að skapa nýja vakningu í íslenskum stjórnmálum, jafnaðar, réttlætis og farsældar. Núverandi skipulag vinstriaflanna sé dragbítur á baráttuna fyrir betra bjargað tveimur mannslífum og því væri aldrei um of brýnt fyrir fólki að hafa slík þarfaþing í híbýlum sínum. „í þessu tilviki hefði ekki miklu mátt muna að illa færi,“ sagði hann. 254 og hefur fjölgað lítillega milli mánaðamóta. Alls eru rúmlega 100 manns á atvinnuleysisskránni sem eru í ein- hveijum hlutastörfum og sam- kvæmt upplýsingum hjá atvinnu- deild Akureyrarbæjar er sú tala svipuð og verið hefur síðustu mán- uði. Ekki er mikið um laus störf, en nú um mánaðamót auglýsti at- vinnudeildin ijögur laus störf í bæn- um sem er langt í frá nóg að mati atvinnudeildar. þjóðfélagi, tímabært sé að sameigin- leg lífsskoðun félagshyggjufólks fái að ráða ferðinni án þess að ágrein- ingur um minni mál eyðileggi mögu- leika á að ná fram sameiginlegum markmiðum. „Við fögnum því að fyrsta skerfið skuli stigið með viðræðum A-flokk- anna á Akureyri sín á milli og hvetj- um þá til að sitja ekki við orðin tóm, heldur ganga enn lengra og bjóða fram sameiginlega í næstu bæjar- stjórnarkosningum," segir í ályktun Grósku á Norðurlandi. í stjórn félagsins sitja Ása Arn- fríður Kristjánsdóttir, Hafliði Helgason, Jón Hrói Finnsson, Óttar Erlingsson, Ragnar Sverrisson, Sig- rún Stefánsdóttir og Þór Steinars- son. Viðræður um sam- eiginlegt framboð Á FÉIAGSFUNDI í Jafnaðar- mannafélagi Eyjafjarðar, sem hald- inn var á sunnudag, var jákvætt tekið í erindi frá Alþýðubandalaginu á Akureyri um hugsanlegt samstarf flokkanna við bæjarstjórnarkosn- ingar á næsta ári. Alþýðubandalagið hefur óskað eftir viðræðum við Jafnaðarmanna- félag Eyjafjarðar um sameiginlegt framboð í næstu bæjarstjórnar- kosningum og sagði Gísli Bragi Hjartarson, bæjarfulltrúi Alþýðu- flokks í bæjarstjórn Akureyrar, að samþykkt hefði verið á fundinum að fara í viðræður við Alþýðubanda- lagsmenn. „Við erum tilbúin í við- ræður, en maður getur ekki gefið sér neina niðurstöðu fyrirfram, hvað út úr þessum viðræðum kem- ur,“ sagði hann. Ekki hefur verið ákveðið hvenær viðræður hefjast að sögn Gísla Braga, en hann liti svo á að Alþýðu- bandalagið ætti næsta leik. Töluverðar skemmdir á íbúðarhúsi í eldsvoða Morgunblaðið/Kristján Stofnfundur Grósku á Norðurlandi A-flokkarnir fram saman

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.