Morgunblaðið - 06.05.1997, Síða 14

Morgunblaðið - 06.05.1997, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Hvítárskáli brenndur Grund - Hvítárskáli hefur lokið hlutverki sínu eftir 60 ára þjón- ustu við Borgfirðinga og vegfar- endur í Borgarfirði. Slökkvilið Borgarfjarðar fékk skálann til að æfa slökkvistarf og reykköfun en síðan var hann lát- inn brenna til grunna. Fjöldi slökkviliðsmanna úr Slökkviliði Borgarfjarðardala og Slökkviliði Borgarness voru mætt- ir á staðinn föstudagskvöldið 2. maí undir stjórn Bernharðs Jó- hannessonar slökkviliðsstjóra. Tvisvar var kveikt í og þegar eld- ur og reykur var orðinn mikill fóru reykkafarar inn og á skömm- um tíma var eldur slökktur og allt reykhreinsað. í þriðja sinn sem kveikt var í var eldurinn látinn um eyðinguna og brann skálinn til grunna á rúmri klukkustund. Starfsemi í Hvítárskála hófst árið 1936 þegar Theódóra Sveins- dóttir byggði þáverandi skála, en þetta er annar skálinn á Hvítár- völlum. Alls hafa sex aðilar stund- að rekstur söluskála á þessum stað, en bensín og olíuvöi-ur hafa ávallt verið á vegum OLÍS. Rekstraraðilar hafa verið þess- ir: Theodóra Sveinsdóttir, Þorgeir Pétursson, Hvítárskáli sf. en að þeim rekstri komu Davíð Ólafsson, Ásgeir Guðmundsson, Haraldur Jónsson, Jón Haraldsson og Stef- án Höskuldsson; Ólafur Davíðs- son, Steinunn Ingólfsdóttir, Stein- þór Grönfeld. Morgunblaoio/Anna lngoltsdottir NEMENDUR á ferðaþjónustubraut Menntaskólans á Egilsstöðum. Egilsstöðum - Menntaskólinn á Egilsstöðum býður upp á nýjan valkost fyrir þá sem vilja stunda nám í ferðaþjónustu á framhalds- skólastigi. Það er ferðaþjónustu- braut og tekur nám þar fjórar ann- ir eða tvö ár. Starfsnám hefst á annarri önn en þá eru teknir 25 tímar. Eftir að bóklegum áföngum lýkur vinna nemendur lokaverkefni fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu og ljúka síðan náminu með seinni hiuta Starfsnám í ferða- þjónustu starfsnámsins, þ.e. þeir vinna 155 tíma hjá fyrirtæki sem þeim er út- vegað starf hjá. Laun miðast við nemalaun í matreiðslu eða fram- reiðslu. Eftir nám í ferðaþjónustubraut eru opnar leiðir til frekara náms, stúdentsprófs og framhaldsnáms í ferðaþjónustu eða iðnnáms. Ferða- þjónustubraut ME hefur verið í samvinnu við aðra skóla í Finnlandi og Skotlandi sem bjóða uppá sam- bærilegt nám. Samvinnan felst m.a. í nemendaskiptum og munu þrír nemendur ljúka starfsnámi sínu erlendis nú í sumar. Morgunblaðið/Davíð Pétursson Fyrsta síldin til Raufarhafnar Raufarhöfn - Háberg GK 299 kom á mánudagsmorgun til Rauf- arhafnar með fyrstu síldina sem hér verður landað á þessari vertíð en farmurinn er um 650 tonn. Ekki var hægt að hefja löndun á honum strax vegna þess að hér var verið að skipa á land áburði úr írafossi. Viðleguplássið við hafnar- bryggjuna er það lítið að ekki er hægt að landa síld eða loðnu meðan verið er að afgreiða frakt- skip, þegar þau koma inn til hafn- arinnar til að sækja lýsi, loðnu- mjöl og síldarmjöl ásamt frosnum fiskafurðum og ýmsu fleiru. Þetta vandamál fer vaxandi vegna auk- innar frystingar loðnu til útflutn- ings en jafnhliða því hefur umferð vöruflutningaskipa aukist um höfnina á meðan loðnuvertíð stendur. Á áætlun um framkvæmdir hér við höfnina er fyrirhugað að lengja viðlegukantinn sem fyrir er um 40 metra á árinu 1999 fyrir rúmlega 41 milljón króna. Þessi tímasetning getur leitt af sér ýmsa árekstra og örðugleika hér í höfninni fram til ársins 2000 ef ekki verður brugðist við þess- um vanda og framkvæmdum flýtt. Hér er um mjög stórt mál fyrir verksmiðju SR Mjöls og byggðarlagið að ræða sem brýnt er að leita til allra leiða til lausn- ar á. Vatnasvæði Tungufijóts ofan Faxa leigt út Selfossi - Veiðifélagið Lækjarmenn hefur tekið á leigu til 10 ára vatna- svæði veiðifélagsins Faxa sem nær yfir Tungufljót ofan fossins Faxa og allar ár sem renna í fljótið. Nú á vormánuðum verður svæðið kann- að og kortlagðir nýir veiðistaðir og þeir staðir sem þegar eru þekktir. Lækjarmenn munu selja veiðileyfi á svæðið í sumar og mun dagurinn kosta 1.500 krónur á dag hver stöng. Veiðileyfin verða seld hjá Guðmundi Sigurðssyni í Suðurgarði á Selfossi. Lækjarmenn telja vatnasvæðið hafa mikla möguleika sem afþrey- ingarsvæði fyrir útivistarfólk sem kann að meta stangveiði. Þeir hyggjast kanna svæðið mjög vel og stefna síðan að því að hefja fiski- Morgunblaðið/Atli Vigfússon Hlutu verð- laun fyrir úr- valsmjólk VERÐLAUNAAFHENDING fyrir úrvalsmjólk á samlags- svæði Kaupfélags Þingeyinga fór fram á Hótel Húsavík fyrir nokkru og fengu að þessu sinni þrjátíu framleiðendur verðlaun. Veitt voru viðurkenningarskjöl fyrir úrvalsmjólk á sl. ári og áletraðir diskar og brúsar fyrir framleiðslu úrvalsmjólkur mörg ár í röð. Myndin var tekin við þetta tækifæri og sýnir verð- launahafana. Morgunblaðið/Sig. Jóns. LÆKJARMENN og stjórn veiðifélagsins Faxa við undirskrift samnings. rækt til þess að auka veiðina og þá um leið vonina hjá stangveiði- mönnum. Það er síðan liður í því að búa svæðið undir að selja útlend- ingum veiðileyfi inn á það. Þessi áætlun Lækjarmanna er liður í því að byggja enn frekar upp ferðaþjón- ustuþáttinn í uppsveitum Árnes- sýslu. FÓLKÁFLÖTTA & jm sýning í Kringlunni Verið velkomin á sýningu Rauða kross íslands um málefni fólks á jlótta á annarri hœð Kringlunnar dagana 3.-7. maí. L i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.