Morgunblaðið - 06.05.1997, Qupperneq 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Gullfundur
aldarínnar
svik og preítir?
Calgary, Toronto, Manila. Reuter.
KANADÍSKA gullleitarfyrirtækið
Bre-X Minerals, sem um skeið var
talið að hefði fundið mikla gullæð
í Busang í Indónesíu, tilkynnti á
sunnudag að fyrirtæki, sem ráðið
var til að kanna málið, hefði komist
að þeirri niðurstöðu að fölsuð sýni
hefðu legið hinum meinta gullfundi
til grundvallar.
„Við deilum áfalli þessu og undrun
með hlutafláreigendum okkar og öðr-
um yfír því að nú virðist að gullið,
sem við töldum að við hefðum fund-
ið í Busang, sé ekki til staðar," sagði
í yfírlýsingu frá David Walsh, for-
manni og framkvæmdastjóra Bre-X
á sunnudag. Walsh vildi sjálfur ekk-
ert segja við blaðamenn eða hlut-
hafa.
Skýrsluna gerði fyrirtækið Strat-
hcona og í henni sagði að ekki hefði
fundist nógu mikið gull í suðaustur-
hluta Busang-eignarinnar til að
hagkvæmt væri að vinna það og
ólíklegt væri að það fyndist.
Átt við sýni
Bre-X fékk Strathcona til að gera
könnun á svæðinu í mars eftir að
efasemdir vöknuðu um stærð gul-
læðanna í Busang. Bre-X hafði hald-
ið því fram að þær væru 71 milljón
únsa af gulli og þetta væri mesti
gullfundur aldarannar.
I niðurstöðum Strathcona sagði
hins vegar að merki hefðu fundist
um að átt hefði verið við sýnin, sem
tekin voru í Busang, sem er í frum-
skógum Bomeó. „Svo mikið hafði
verið átt við borkjamasýnin og þær
falsanir, sem fyrir þær sakir hafa
átt sér stað á verðmætamati í Bus-
ang, em slíkar og taka yfir það lang-
an tíma að eftir því sem við best
vitum em ekki til nein fordæmi í
sögu námuiðnaðar nokkurs staðar
í heiminum," sagði í skýrslunni.
Frá verðbréfamarkaðnum í Tor-
onto barst yfírlýsing um að hætt
yrði að versla með hlutabréf í Bre-X
vegna hinnar neikvæðu skýrslu.
Dularfullt dauðsfall
John Ing, sérfræðingur í gullvið-
skiptum hjá Maiseon Placements í
Toronto, sagði að þessar niðurstöður
mörkuðu endalok Bre-X. Fyrirtækið
hefði ekkert í höndunum og ætti
málsóknir í vændum. Hlutabréfaeig-
endur hafa að undanfömu skipst á
orðrómi og sögusögnum á alnetinu
undanfama mánuði og óvissan hef-
ur aukist jafnt og þétt.
Walsh notaði sína síðustu 10 þús-
Reuter
STAÐURINN í Busang í regnskógum Borneó þar sem um skeið var talið að fundist hefðu miklar
gullæðar, en nú er haldið að hafi það lítið gull að geyma að ekki sé þess virði að vinna það.
und kanadísku dollara (um hálfa
milljón króna) til að reyna að fínna
gull í Busang, sem fannst 1993.
Hlutabréf í fyrirtæki hans urðu
mjög eftirsótt þegar fréttir bámst
um að í Busang gæti verið mikið
gull að fínna. Efasemdir um gullið
í Busang vöknuðu hins vegar þegar
Michael de Guzman, helsti jarðfræð-
ingur Bre-X, féll út úr þyrlu í Indó-
nesíu á leið til fundar með starfs-
mönnum Freeport-McMoRan Cop-
per & Gold, bandarísks samstarfsað-
ilja Bre-X.
Því var haldið fram að de Guzman
hefði framið sjálfsmorð, en fjölskylda
hans hafnar þeirri skýringu og segir
að hann mundi aldrei hafa tekið þátt
í fölsunum eða blekkingum.
Selt í skelfingu
Viku síðar kom út skýrsla frá
Freeport-McMoRan um að fyrstu
sýni frá Busang hefðu leitt í ljós
að þar væri lítið gull að fínna. í
kjölfarið fóm eigendur hlutabréfa í
Bre-X að selja þau í skelfingu.
Markaðsvirði þess hafði verið þrjár
milljónir kanadískra dollara, en þær
urðu að engu þegar hlutabréfin í
Bre-X hröpuðu úr 15 í 2,5 dollara.
Einnig hafa viðskipti Walsh vakið
athygli. Hann, kona hans og nokkr-
ir starfsmenn fyrirtækisins seldu
hlutabréf á síðasta ári fyrir andvirði
77 milljóna dollara þegar gengi
þeirra var allt að 28,40 dollarar.
Skömmu áður höfðu indónesísk
stjórnvöld svipt fyrirtækið bráða-
byrgðaleyfi, en stjóm Bre-X greindi
ekki frá því fyrr en eftir hlutabréfa-
söluna.
Sprengjuárásir í
Rússlandi
Radujev
lýsir
ábyrgð á
tilræðum
Moskvu. Reuter.
YFIRVÖLD í Tsjetsjníu gáfu í gær
út handtökuskipun á skæmliðaleið-
togann Salman Radujev eftir að
hann lýsti yfír ábyrgð á tveimur
sprengjutilræðum í suðurhluta
Rússlands í síðasta mánuði, að því
er segir í frétt Itar-Tass fréttastof-
unnar. Sagði aðstoðarmaður Aslans
Maskhadovs, forseta Tsjetsjníu, að
Radujevs væri nú leitað og að yfír-
völd hygðust koma í veg fyrir
hermdarverk á borð við sprenging-
amar, sem græfu undan traustinu
á stjóm landsins.
Að sögn talsmannsins, telja
stjómvöld hins vegar ekki að
Radujev hafí sjálfur staðið að baki
sprengjutilræðunum, sem urðu í
bæjunum Armavir og Pjatigorsk,
en fjórir létu lífíð í þeim. „Allt sem
Radujev segir er ávöxtur ímyndun-
arafls hans,“ sagði talsmaðurinn,
Ruslan Kutajev. Em tsjetjsensk
stjómvöld sannfærð um að rúss-
neskar sérsveitir hafí staðið fyrir
sprengingunum til að vekja ótta við
Tsjetsjena og sverta orðspor lands-
ins.
Radujev, sem tók um 200 manns
í gíslingu í rússneskri borg fyrir
hálfu öðm ári, er andstæðingur
stjórnar Tsjetsjníu og hefur hvað
eftir annað hótað árásum á Rússa,
vegna þess að rússnesk stjómvöld
neita að viðurkenna sjálfstæði
Tsjetsjníu.
í samtali við rússnesku sjón-
varpsstöðina NTV á sunnudag
kvaðst Radujev hafa fyrirskipað
sprengjutilræðin og að þau mörk-
uðu þáttaskil í stríði Rússa og
Tsjetsjena.
Einvígið á milli Dimmblár og Kasparovs
Reuter
KASPAROV lenti fljótlega í vandræðum gegn Dimmblá í skák-
inni á sunnudag og það leyndi sér ekki á svipbrigðum hans.
Tefldi „eins og
maður“ og sigraði
heimsmeistarann
New York. Reuter.
OFURTÖLVAN Dimmblá tefldi nú
„eins og maður“ og bar sigurorð
af Garrí Kasparov, heimsmeistar-
anum í skák, í annarri skákinni í
sex skáka einvígi þeirra. Hafa þau
nú hvort sinn vinninginn en þriðja
skákin verður tefld í dag.
Skákin á sunnudag tók þijár
stundir og 42 mínútur og sigraði
Dimmblá eftir 45 leiki. Er þetta í
annað, sem heimsmeistarinn lýtur
í Iægra haldi fyrir tölvunni, en hún
sigraði hann í fyrstu skákinni i
fyrra einvíginu í febrúar fyrir ári.
„Þetta var raunveruleg skák,
ekki tölvuskák," sagði Joel Benj-
amin, „þjálfari“ Dimmblár. „Bestu
skákmenn hefðu verið fullsæmdir
af þessari frammistöðu."
Benjamin og aðrir sérfræðingar
sögðu, að Dimmblá hefði komið
afar vel út úr byijuninni en hingað
til hafa flóknar stöður verið sterk-
asta hlið bestu tölvanna. Þá hafa
þær notið reikningsgetunnar en nú
sýndi Dimmblá, að hún hefur góð-
am stöðuskilning. Stórmeistarinn
Lubo Kavalek sagði, að Dimmblá
hefði teflt „frábærlega vel“ og
haldið Kasparov í járngreipum all-
an tímann.
Kasparov, sem vann fyrstu
skákina á Iaugardag fremur auð-
veldlega, var hinn rólegasti þegar
hann reis upp frá skákinni en
mætti ekki á blaðamannafund að
henni lokinni. Meðan á skákinni
stóð tók hann oft um höfuð sér
og átti greinilega í mestu vand-
ræðum því að Dimmblá lokaði öll-
um leiðum fyrir svörtu mennina
hans.
Rannsóknarverkefni
Einvígið er að hluta skák og að
hluta rannsóknarverkefni en verið
er að vinna að smíði tölvu, sem
ræður við mikinn fjölda flókinna
útreikninga á sama tíma. Verður
hún notuð við veðurspár, flugum-
ferðarstjórn, sameindarannsóknir
og fleira.
■ Sjá skákskýringu/55
Ár liðið frá stjórnarmyndun á Spáni
„Stefnum áfram
inn að miðju“
Malaga. Morgunblaðið.
JOSE Maria Aznar, leiðtogi Þjóðar-
flokksins (PP) á Spáni og forsætis-
ráðherra landsins, segir að flokkur
hans muni áfram stefna inn að miðju
spænskra stjórnmála. Aznar lét þessi
orð falla um helgina en þá var ár
liðið frá því að hann tók við emb-
ætti forsætisráðherra minnihluta-
stjómar hægri manna.
Aznar sagði að ár það sem liðið
væri frá stjórnarmyndun Þjóðar-
flokksins hefði markað þáttaskil í
spænskum stjórnmálum. Þjóðar-
flokkurinn hefði heitið því í kosn-
ingabaráttunni í fyrra að vinna að
„endurnýjun" lýðræðisins á Spáni.
Þetta hefði tekist og nú einkenndi
starfsorka og „vinnusemi" fram-
göngu spænskra stjómmála í stað
þeirra hneykslismála sem svo mjög
hefðu sett mark sitt á stjórn Sósíal-
istaflokksins (PSOE) í forsætisráð-
herratíð Felipe Gonzalez.
í sporum Tonys Blairs
Þjóðarflokkur Aznars er sögulega
tengdur alræðisstjóm Franciscos
Francoss og stofnandi hans, Manuel
Fraga, sem nú er forseti héraðs-
stjórnar Galicíu, var ráðherra í stjórn
einræðisherrans. Flokkurinn er einn-
ig sögulega tengdur hefðarsinnum
og hægri öflum innan katólsku kirkj-
unnar. Frá því að Aznar tók við leið-
togaembættinu hefur hann notað
hvert tækifæri til að staðsetja flokk-
inn sem miðjuafl í spænskum stjórn-
málum. Þetta virðist honum hafa
tekist, flokkurinn er nú aðeins einu
prósentustigi á eftir Sósíalista-
flokknum í skoðanakönnunum.
Hann hefur því rofíð pólitíska ein-
angrun flokksins ekki ósvipað því
sem Tony Blair, hinum nýja forsæt-
isráðherra Bretlands, hefur tekist
sem leiðtoga Verkamannaflokksins.
Aznar boðaði að Þjóðarflokkurinn
myndi áfram stefna inn að miðju
spænskra stjórnmála. „Við munum
halda áfram á leið okkar inn að
miðjunni, sem var eitt helsta mark-
mið okkar sem við settum okkur er
við komumst til valda," sagði forsæt-
isráðherrann.
Bjart er yfir ...
Aznar vék að því að bjart væri
yfír spænsku efnahagslífi um þessar
mundir og boðaði að áram yrði hald-
ið í því skyni að tryggja Spánverjum
rétt til að vera í hópi stofnríkja Efna-
hags- og myntbandalags Evrópu
(EMU). Hann vék einnig að nýgerð-
um samningi verklýðsfélaga og at-
vinnurekenda um breytingar á
vinnulöggjöfinni og sagði hann
„sögulegan gjörning án fordæma" í
sögu Spánar. Samningurinn kveður
á um að innleiddir verði starfssamn-
ingar til óákveðins tíma en atvinnu-
rekendur munu eiga auðveldara en
áður með að segja upp starfsfólki.
Góðæri en fyrir hverja?
Ef marka má skoðanakannanir
telja Spánveijar almennt að stjórn
Aznars sé heldur óspennandi fyrir-
brigði en jafnframt að vinnusemi og
hófstilling einkenni hana. Áköfustu
andstæðingar stjórnarinnar eru
þessu ósammála og talsmenn Sósía-
listaflokksins væna Aznar og undirs-
áta hans reglulega um ólýðræðislega
stjórnarhætti.
Spænska dagblaðið E1 Pais, sem
jafnan er hallt undir Sósíalistaflokk-
inn, segir í forystugrein á sunnudag
að Aznar og menn hans hafi verið
heppnir. Enginn hafí fyrirfram getað
gert ráð fyrir því að efnahagsástand-
ið batnaði svo mjög á aðeins einu
ári. Þar ráði ytri aðstæður mestu.
Blaðið setur fram það kunnuglega
sjónarmið að góðæri ríki á Spáni en
almenningur fái ekki notið þess. Þá
segir blaðið það einkenna mjög
framgöngu ríkisstjórnarinnar að allir
þeir sem lýsi sig andvíga tilteknum
ákvörðunum hennar séu flokkaðir
sem „óvinir".