Morgunblaðið - 06.05.1997, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997 57
FRÉTTIR
STARFSMENN og eigendur Bíljöfurs talið frá vinstri: Elvar
Þór Hjaltason, Guðmundur Bjarnason, Hlöðver Baldursson,
Halldór Bjarnason, Hreinn Eyjólfsson, Guðni Sigurjónsson, Ei-
ríkur Bjarnason, Markús Úlfsson og Baldur Arnar Hlöðversson.
Bíljöfur í nýtt og
rúmbetra húsnæði
BÍLJÖFUR ehf. hefur flutt bílaverk-
stæði sitt frá Nýbýlavegi 2 í nýtt
húsnæði að Smiðjuvegi 70 (hús Sóln-
ingar hf.), Kópavogi, þar sem við-
skiptavinum verður boðið upp á víð-
tæka viðgerðaþjónustu. A sama stað
er til húsa SHELL-smurstöð sem
starfrækt er í samvinnu við Skeljung
hf.
Bíljöfur ehf. er fimm ára gamalt
fyrirtæki sem frá stofnun hefur ann-
ast viðgerðir og viðhald á Chrysler,
Dodge, Plymouth, Jeep, Skoda og
Peugeot bifreiðum. Bíljöfur mun
áfram þjónusta þessar bifreiðir sem
Námskeið
um kirkjuna
og lífsskrefin
Á VEGUM safnaðaruppbyggingar-
nefndar Biskupsstofu verður haldið
mánudaginn 12. maí málþing um
fræðslu kirkjunnar og hvernig hún
tengist æviferli einstaklinganna.
Málþingið verður í Laxdalshúsi,
Hafnarstræti 11, Akureyri og hefst
kl. 17 og lýkur um kl. 23. Málþing-
ið er opið öllum. Það er m.a. ætlað
og aðrar tegundir bifreiða. Allir
starfsmenn hafa haldgóða menntun
og áralanga reynslu í viðgerðum af
öllu tagi.
Markús Úlfsson og Baldur Arnar
Hlöðversson stofnuðu Bíljöfur ehf.
1. apríl 1992 og keyptu um leið öll
tæki og tól verkstæðis Jöfurs hf. sem
samtímis fól þeim að annast við-
gerðaþjónustu fyrir bílaumboðið. Með
flutningunum verður Bfljöfur óháður
Jöfri hf. um varahlutainnkaup. 1
framtíðinni kaupir Bíljöfur ehf. vara-
hluti þar sem verð og gæði fara best
saman, segir í fréttatilkynningu.
prestum, starfsmönnum safnaða,
fulltrúum sóknarnefnda, kennur-
um, fræðsluaðilum og áhugafólki
um kristindómsfræðslu.
Fyrirlesarar verða Guðni Þór
Ólafsson, Guðmundur Guðmunds-
son, Anna Elísa Hreiðarsdóttir,
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, Svav-
ar Alfreð Jónsson, Stína Gísladótt-
ir, Pétur Þórarinsson, Dalla Þórðar-
dóttir, Hannes Örn Blandon og
Valgerður Valgarðsdóttir.
Þátttökugjald er ekkert og skrán-
ing fer fram hjá Fræðsludeild kirkj-
unnar á Akureyri.
Undirbúningur
sveitarstjórna-
kosninga hefjist
nú þegar
KVENNALISTINN hélt árlegt vor-
þing að Heimum á Hvalíjarðarströnd
3.-4. maí sl. Þar voru ræddar nýjar
hugmyndir og nálgun í kvennabar-
áttu og leiðir til að koma þeim á
framfæri og í framkvæmd. Mikill
vilji kom fram til að halda áfram
að bjóða fram til Alþingis og sveita-
stjórna eftir þeim leiðum sem
tryggja best framgang kvennabar-
áttu og kvenfrelsissjónarmiða. í lok
fundarins var samþykkt eftirfarandi
ályktun:
„Vorþing Kvennalistans, haldið
að Heimum á Hvalfjarðarströnd
3.-4. maí 1997, skorar á kvenna-
listakonur að hefja nú þegar undir-
búning að næstu sveitarsjtórnakosn-
ingum og vinna markvisst að aukn-
um áhrifum og völdun kvenna í
sveitarstjórnum um allt land.
Með auknum verkefnum og víð-
tækara hlutverki eru sveitarstjórnir
að verða æ mikilvægari og áhuga-
verðari vettvangur fyrir konur. Þær
þurf að sækja fram og taka málin
í sínar hendur með kvenfrelsi og
bætta stöðu kvenna að markmiði.
Jöfn þátttaka kvenna og karla við
stjórnun samfélagsins er eina leiðin
til að tryggja jafnrétti og lýðræði
sem stendur undir nafni. Sjónarmið
kvenna verða að fá aukið vægi í ís-
lensku samfélagi og að því hefur
Kvennalistinn ávallt unnið. Mikill
árangur hefur náðst en betur má
ef duga skal. Því heitir Kvennalistinn
á konur að bretta upp ermar og
ætla sér stóran hlut í næstu sveitar-
stjórnakosningum."
Rannsókna-
stofnun í hjúkr-
unarfræði
formlega opnuð
RANNSÓKNASTOFNUN í hjúkr-
unarfræði verður formlega opnuð
miðvikudaginn 7. maí kl. 17 með
athöfn í húsnæði námsbrautarinnar
í Eirbergi, Eiríksgötu 34.
Megintilgangur með stofnun
Rannsóknastofnunar í hjúkrunar-
fræði er að efla rannsóknir kennara
I
I
I
l
Ur dagbók lögreglunnar
Líkamsmeiðingar og innbrot
UM HELGINA var tilkynnt um 7
líkamsmeiðingar, 10 innbrot, 10
þjófnaði og 19 eignarspjöll. Til-
kynnt var um stuld á 5 ökutækjum
og í tveimur málum komu fíkni-
efni við sögu. í tveimur bílþjófnað-
anna voru bifreiðar fengnar að
láni eftirlitslaust á bílasölum.
Afskipti þurfti að hafa af 50
manns vegna ósæmilegrar ölvun-
arháttsemi á almannafæri. Þijátíu
og fímm manns reyndist nauðsyn-
legt að vista í fangageymslunum.
Þá þurftu lögreglumenn 18 sinn-
um að fara á vettvang vegna
kvartana yfir hávaða og ónæði í
fjöleignarhúsum.
Sviptir á staðnum
Tólf ökumenn, sem stöðvaðir
voru, eru grunaðir um ölvuna-
rakstur. Jafn margir ökumenn
voru kærðir fyrir að aka yfir leyfi-
legum hámarkshraðamörkum.
Tveir þeirra voru sviptir ökurétt-
indum „á staðnum".
Harður árekstur varð með
tveimur bifreiðum á Miklubraut
við Snorrabraut á föstudagskvöld.
Bifreiðarnar voru báðar fluttar
af vettvangi með kranabifreið.
Ökumennirnir ætluðu sjálfir að
leita aðstoðar á slysadeild teldu
þeir þess þörf. Tilkynnt var um
2. til 5. maí.
22 önnur umferðaróhöpp til lög-
reglunnar í Reykjavík um helgina.
Á laugardag var tilkynnt að
barn hefði drukkið hreinsilög.
Sjúkraliðsmenn og læknir, sem
komu á vettvang, töldu ekki
ástæðu til aðgerða.
Á laugardag féll 17 ára gamall
piltur af reiðhjóli á Seltjarnarnesi
og rotaðist. Hann var fluttur á
slysadeild með sjúkrabifreið.
Um morguninn voru tveir menn
fluttir á slysadeild eftir slagsmál
í Lækjargötu. Annar reyndist nef-
brotinn og hinn sennilega kinn-
beinsbrotinn. Vitað er hveijir áttu
þarna hlut að máli.
Á sunnudag var bifreið ekið á
ljósastaur við Lækjargötu. Öku-
maðurinn meiddist í andliti og
fékk innvortis áverka. Hann var
fluttur á slysadeild.
14 tilkynningar um sinuelda
Um helgina var 14 sinnum til-
kynnt um sinubruna í umdæmi
lögreglunnar í Reykjavík. Að
marggefnu tilefni er fólki bent á
að í lögum um sinubrennur og
meðferð elds á víðavangi segir að
bannað sé að kveikja í sinu og
brenna sinu innan kaupstaða eða
kauptúna eða í þéttbýli er jafna
má til kauptúna. Brot á lögunum
varða sektum. Nauðsynlegt er að
foreldrar og forráðamenn reyni
að sjá til þess að börn þeirra hafi
ekki eldfæri undir höndum.
Þeir brýni og fyrir þeim þær
afleiðingar er kunna að verða ef
eldur er kveiktur og eðlilegt má
telja að þeir fylgist sérstaklega
með börnum sínum í nálægð við
þau svæði sem bjóða upp á sinu-
brennur. Hætta er á að lítil börn
geti lokast inni á milli mikilla sinu-
elda. Lögreglan mun á næstunni
reyna að fylgjast með sinusvæð-
um, s.s. í Fossvogi og í Elliðaár-
dal, og eru foreldrar og forráða-
menn barna jafnframt hvattir til
þess að leggja henni lið til þess
að stemma stigu við þeim ósið sem
sinubrennur eru.
Fulltrúar lögreglunnar á Suð-
vesturlandi ákváðu á fundi sínum
í síðustu viku að beina þeim til-
mælum til verktaka að þeir hugi
í sumar sérstaklega að merking-
um vegna verklegra framkvæmda
og reynt verði að hvetja ökumenn
til að virða þær merkingar sem
settar verða upp. Þá var og ákveð-
ið að gangast fyrir sameiginlegu
verkefni í lok maí.
námsbrautarinnar og þar með að
renna styrkari stoðum undir fræði-
mennsku í hjúkrun á íslandi. Stofn-
unin mun einnig gegna mikilvægu
hlutverki í rannsóknatengdu fram-
haldsnámi í framtíðinni en það nám
mun hefjast við námsbraut í hjúkr-
unarfræði haustið 1998. Einnig mun
Rannsóknastofnunin þjóna heilbrigð-
isstofnunum landsins við að skipu-
leggja og framkvæma rannsóknir á
hinum ýmsu sviðum hjúkrunar.
í tengslum við opnun Rannsókna-
stofnunarinnar verða haldnir vinnu-
fundir með þekktum fræðimanni í
hjúkrun, dr. Ivo Abraham, prófessor
við University of Virginia í Bandaríkj-
unum og kaþólska háskólann í Leu-
ven í Belgíu. Á vinnufundunum verð-
ur m.a. fjallað um alþjóðlegt rann-
sóknasamstarf, meðferðarrannsóknir
og umsjónarhjúkrun. Er það von
námsbrautarinnar að þátttaka í fjöl-
þjóðlegum rannsóknum í náinni fram-
tíð verði lyftistöng fyrir fræði-
mennsku í hjúkrun á Islandi samhliða
því að hjúkrunarþjónusta í landinu
eflist.
f É mS
TRÍÓIÐ Vestanhafs
■ KAFFI Puccini er ekki ein-
göngu kaffihús heldur einnig sér-
verslun með kaffi. Fyrir nokkrum
vikum setti Barnie’s fyrirtækið á
markað enn eina kaffitegundina,
Cool Café Blues, sem kynnt verður
á blúskvöldi þriðjudagskvöldið 6.
maí. Það er tríóið Vestanhafs, skip-
að þeim Björgvini Gíslasyni, Jóni
Ingólfssyni og Jóni Björgvins-
syni, sem leikur fyrir gesti. Kaffi
Puccini hefur jafnframt boðið upp
á jazzveislu með tríói Björns Thor-
oddsen og nú hefur verið afráðið
að jazzkvöld verður alltaf síðasta
fimmtudagskvöld í mánuði og blús-
kvöld fyrsta þriðjudagskvöld í
hverjum mánuði.
Fundur
félagsmála-
ráðherra um
jafnréttismál
NÚGILDANDI þingsályktun um
framkvæmdaáætlun til fjögurra ára
um aðgerðir til að ná fram jafnrétti
kynjanna var samþykkt á Alþingi
7. maí 1993 og gildir hún til ársloka
1997. Unnið er að gerð nýrrar fram-
kvæmdaáætlunar til fjögurra ára
sem taka mun gildi um næstu ára-
mót.
Félagsmálaráðherra efnir til sam-
ráðsfunda víða um land með fulltrú-
um sveitarstjórna og félagasamtaka
sem og öðrum sem áhuga hafa á
verkefninu. Markmið fundanna er
að ræða áherslur í jafnréttismálum
og safna hugmyndum og ábending-
um varðandi gerð framkvæmdaáætl-
unarinnar.
Næsti fundur verður á Hótel
Varmahlíð þriðjudaginn 6. maí kl.
20.30. Ávörp flytja Páll Pétursson,
félagsmálaráðherra og Elín R. Lín-
dal, formaður Jafnréttisráðs, Elsa
S. Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri
Jafnréttisráðs ræðir form og gerð
framkvæmdaáætlana, Herdís Sæ-
mundsdóttir, kennari, flytur innlegg
heimamanns og loks verða almennar
umræður.
Anægðir með
framkvæmd
varnarsamnings
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra átti fund með William Coh-
en, varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, og starfsliði hans í Washing-
ton sl. miðvikudag.
„Á fundinum lýstu báðir aðilar
ánægju sinni með framkvæmd varn-
arsamnings þjóðanna frá 1951 og
voru sammála um mikilvægi íslands
sem hlekks í þeirri keðju sem tengir
Bandaríkin og Kanada við Evrópu.
Rætt var um fyrirhugaða stækkun
Atlantshafsbandalagsins í kjölfar
leiðtogafundarins í Madríd í sumar.
Utanríkisráðherra lagði áherslu á
að þess yrði sérstaklega gætt að þær
þjóðir sem ekki verður boðin aðild
að bandalaginu í fyrstu umferð fái
ótvíræða staðfestingu á því að
bandalagið verði áfram opið nýjum
aðildarríkjum. Utanríkisráðherra
lagði einnig áherslu á að skilyrði
fyrir aðild að Atlantshafsbandalag-
inu yrðu að vera hin sömu fyrir öll
umsóknarríki og að ekki mætti að-
skilja öryggi Eystrasaltsþjóðanna
frá öryggismálum Evrópu almennt.
Af hálfu Bandaríkjamanna kom
fram sérstök ánægja með framlag
íslands við enduruppbyggingu Bosn-
íu og þátttöku íslenskra lækna,
hjúkrunarfólks og lögreglumanna
við hjálparstörf þar. Almennt var
rætt um friðarsamtarf Atlantshafs-
bandalagsins (PfP) og frekari þróun
þess í framtíðinni. Varðandi al-
mannavarnaæfínguna Samvörð 97,
sem haldin verður á íslandi í júlí
nk., var það skoðun beggja að æfing-
in væri vissulega táknræn fyrir þær
breytingar sem orðnar eru í öryggis-
málum Evrópu. Æfingin væri m.a.
markverð fyrir það að vera sú fyrsta
innan friðarsamstarfs NATO sem
snýst um viðbrögð við náttúruham-
förum. Áréttuðu Bandaríkjamenn
það sérstaklega að þeir teldu æfing-
una mikilvægt framlag til friðar og
öryggis í Evrópu,“ segir í fréttatil-
kynningu frá utanríkisráðuneytinu.
Rætt um bresku
kosningarnar
FÉLAG stjórnmálafræðinga boðar
til opins hádegisverðarfundar í dag,
þriðjudag 6. maí, kl. 12.00 á efri
hæð Lækjarbrekku. Karl Blöndal,
stjórnmálafræðingur og starfandi
fréttastjóri erlendra frétta á Morg-
unblaðinu, mun ræða um úrslit
bresku kosninganna 1. maí.
Karl fór sérstaklega til Lundúna
til að fylgjast með síðustu dögum
kosningabaráttunnar og eru fáir ís-
lendingar eins vel upplýstir um efn-
ið, segir í fréttatilkynningu.
LEIÐRÉTT
Sýning Hallsteins í
Asmundarsafni
RÖNG mynd birtist með myndlist-
ardómi um sýningu Hallsteins Sig-
urðssonar í blaðinu síðastliðinn
sunnudag. Myndin var frá sýningu
í Ásmundarsal en átti vitaskuld að
vera frá sýningu Hallsteins í Ás-
mundarsafni. Beðist er velvirðingar
á mistökunum og rétt mynd birt.
Skautbúningur, ekki peysuföt
í VIKULOKUNUM síðasta laugar-
dag var missagt að ein fyrirsætan
hefði klæðst peysufötum. Um skaut-
búning var að ræða og er hér með
beðist velvirðingar á mistökunum.
FOLK Á FLOTTA-
ráðstefna í Norriena húsinu
Ráðstefna um málefiii
fólks á flótta verður
haldin í Norrœna
húsinu fimmtudaginn
8. maí kl. 14.00.
Allir velkomnir!
RAUÐI KROSS ÍSLANÞS
I
|