Morgunblaðið - 06.05.1997, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ
I DAG
BRIDS
Umsjón Guðmundur l’áll
Arnarson
ÍSLENSK sveit fór með sig-
ur af hólmi í Bikarkeppni
Norðurlandanna (Rottne-
ros-Cup), sem fram fór í
Svíþjóð í lok apríl. Keppnin
hefur verið haldin annað
hvert ár frá 1985 og eru
þátttakendur ríkjandi bik-
armeistarar hverrar þjóðar.
I sveit íslands spiluðu liðs-
menn Landsbréfa, eins og
sveitin var skipuð sl. haust;
þeir Sigurður Sverrisson,
Sverrir Armannsson, Sævar
Þorbjörnsson og Þorlákur
Jónsson. Spiluð var ein
umferð og hlaut íslenska
sveitin samtals 101 stig,
eða 20,2 að meðaltali úr
leik. Danir urðu i öðru sæti,
10 stigum neðar. Hér er
spil frá fyrsta leik, sem var
gegn Svíum:
Suður gefur; AV í
hættu.
Norður ♦ DG853 ¥ G ♦ D5 ♦ KD1065
Vestur Austur
♦ - ♦ 10762
* ÁK1086 IIIIH V D97542
♦ ÁKG4 llllll * 6
* G742 ♦ Á3
Suður ♦ ÁK94 ¥ 3 ♦ 1098732 ♦ 98
Þar sem Svíanir voru í
AV varð niðurstaðan sex
hjörtu, unnin með yfirslag:
1460. NS eiga góða fórn,
því þeir gefa aðeins flóra
slagi í spaðasamningi (500
í sex spöðum og 800 í sjö
spöðum). Sverrir og Þorlák-
ur voru því ekkert allt of
sælir með spilið, en þeir
voru í NS. En á hinu borð-
inu gerðist þetta:
Vestur Norður Austur Suður
~ - Pass
1 lauf 1 spaði Dobl 3 spaðar
4 hjörtu 4 spaðar 4 grönd 5 spaðar
Pass Pass 7 hjörtu Pass
Pass
Pass
Sævar opnaði á sterku
laufi og dobl Siguður á inná-
komunni sýndi 5-8 punkta.
Þegar Sævar gat sagt flögur
hjörtu yfir þremur spöðum,
tók Sigurður völdin í sínar
hendur. Hann spurði um lyk-
ilspil með flórum gröndum.
Suður tók af Sævari eðlilegt
svar, en þeir félagar höfðu
rætt þessa stöðu, svo pass
Sævars var annað þrep og
sýndi þar með eitt lykilspil
eða fjögur. Sævar ákvað að
líta á eyðuna í spaða sem
ás og náði þannig að telja
upp í fjögur. Og meira þurfti
Sigurður ekki til að skjóta á
sjö. Engin fóm og 2210 í
AV, sem þýddi 13 impa til
Islands.
Leikurinn vannst 24-6.
Hlutavelta
ÞESSAR duglegu sex ára stelpur héldu hlutaveltu
nýlega til styrktar Barnaspítala Hringsins og varð
ágóðinn 2.255 krónur. Þær heita Tinna Björg Úlf-
arsdóttir og Rósa Björk Guðnadóttir.
ÞESSAR duglegu stelpur héldu hlutaveltu nýlega
til styrktar Rauða krossi íslands og varð ágóðinn
1.810 krónur. Þær heita Bylgja Björk Haraldsdótt-
ir og Eva Laxmi Davíðsdóttir.
HÖGNIIIREKKVÍSI
MORGUNBLAÐIÐ birt-
ir tilkynningar um af-
uiæli, brúðkaup, ættar-
mót o.fl. lesendum sínum
að kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að ber-
ast með tveggja daga fyr-
irvara virka daga og
þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja af-
niælistilkynningum og
eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Úólk getur hringt í síma
569-1100, sent í bréfsíma
569-1329. Einnig er hægt
að skrifa:
Dagbók
Morgunblaðsins,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
COSPER
EN SORGLEGT. Nú verður aldrei framar kvartað við
mig undan hári í súpunni.
ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ1997 61
STJÖBNUSPA
cltir Franccs Drakc
NAUT
Afmælisbarn dagsins: Þú
ert skapandi hugsuður
sem vinnur að breyting-
um, mannkyni í hag.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert vel meðvitaður um
aðstæður þínar, en þér mun
bjóðast eitthvað nýtt. Einnig
veistu að allt á sinn tíma.
Það á nú við í nánum sam-
skiptum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þó þú hafir ekki ástæðu til
að tortryggja menn og mál-
efni, er ekki þar með sagt
að þú eigir að trúa öllu því
sem þér er sagt.
Tvíburar
(21.maí-20.júní)
Þú ættir ekki að eiga í við-
skiptum við ættingja eða vini
núna. Nú ættirðu að leggja
rækt við andlegt líf þitt og
skoða hlutina.
Krabbi
(21. júnf — 22. júlí)
Ef þú hyggur á ferðalag
þarftu að aðgæta aila kostn-
aðarliði. Ef svör eru ekki á
reiðum höndum, skaltu sýna
þolinmæði.
Ljón
(23. júlí — 22. ágúst)
Nú reynir á í samskiptum
við fólk, og einhver nákom-
inn reynir á þolrifm í þér.
Þú þarft að vita hveijum þú
getur treyst.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Nú er tíminn til að fara á
námskeið og bæta þekking-
una. Vinnan gengur vel og
þú þarft að skipuleggja eitt-
hvað vegna barns.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú finnur fyrir samkeppni
varðandi áætlun sem þú ert
að vinna að. Ekki eru allar
þær upplýsingar sem þú hef-
ur fengið, jafn áreiðanlegar.
Sporödreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Viðskiptavit þitt hjálpar þér
að taka mikilvægar ákvarð-
anir til að tryggja fjárhag-
inn. Láttu ekki aðra slá þig
út af laginu.
Bogmadur
(22. nóv. - 21. desember) m
Fjárhagsáhyggjur geta vald-
ið smádeilum milii vina. Nú
ættirðu að bregða út af venj-
unni og gera eitthvað nýtt
og spennandi í sumarfríinu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) m
Þetta er hinn fullkomni dag-
ur til að vinna að fasteigna-
málum og þú stendur með
pálmann í höndunum. Njóttu
þess með fjölskyldunni.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh.
Veittu börnunum sem ná-
lægt þér eru, eftirtekt, það
mun skila sér í hamingju og
gleði. Lyftu þér upp í kvöld.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Fólk ber virðingu fyrir því
sem þú segir og eitthvað
skemmtilega óvænt gerist
hjá þér eða féiaga þínum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl Spár a f þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
í
NYKOMIÐ
Sundbolir bikini og
sundbolir fyrir
verðandi mæður.
1
lullbiá
I Nóatiíni 17, sími 562 4217.
Samhjálp kvema
Til stuðnings konum
sem greinast með brjóstakrabbamein
Samhjálp kvenna hefur ,,opið hús“ í Skógarhlíð 8, húsi
Krabbameinsfélagsins, í dag, þriðjudaginn 6. maí, kl. 20.30.
Gestur kvöldsins: Anna Gunnarsdóttir - Anna og útlitið -flytur
erindi um heildarútiit og snyrtingu meðan á meoferð stendur.
Vinsamlega hafið með ykkur penna, blað og slæðu.
Hjálpartækjasýning: Gervibrjóst, brjóstahöld,
sundboffr og hárkollur.
Kaffiveitingar. Allir velkomnir.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Ljósaskór
Tegund: Nool9
Litir: Rauðir oe svartir ’ ^ 'J A
Stærðir: 21-38 Vetð: 3.4V5,
Mikið úrval afstrigaskóm á alla krakka
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
STEINAR WAAGE . -Cv STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN ^ SÍMI 551 8519 ^ SKÓVERSLUN ^
SÍMI 568 9212
Stökktu til
Benidorm
21. maí í 14 daga
frá kr. 29.932
Síðustu
satiu
Heimsferðir bjóða nú einstakt tilboð
þann 21. maí til Benidorm. Þú tryggir
þér sæti í sólina og 5 dögum fyrir
brottför hringjum við í þig og látum þig vita
á hvaða hóteli þú gistir. Á Benidorm er yndislegt veður
í maí og þú nýtur rómaðrar þjónustu fararstjóra Heimsferða
allan tímann.
Verð kr. 29.932
M.v. hjón m. 2 börn, í íbúð,
21. maí, 14 nætur, flug og gisting,
ferðir til og frá flugvelli, skattar.
Verð kr. 39.960
M.v. 2 í íbúð, 14 nætur, 21. maí.
Vikulegtjlug
í allt sumar.
á' .m
v HEI IMSFERE )jr:
1!
Austurstræti 17,2. hæð • Simi 562 4600