Morgunblaðið - 06.06.1997, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fyrsta hjartaaðgerðin með brj óstholsspeglun á Landspítalanum tókst vel
Líður betur með
hveijum deginum
Á HJARTASKURÐDEILD Landspítal-
ans var nýlega gerð hjartaaðgerð með
brjósthojsspeglun, sú fyrsta sinnar teg-
undar á íslandi. Aðgerðin tekur styttri
tíina en hefðbundin hjartaskurðaðgerð,
hún er um 200 þúsund krónum ódýrari
og síðast en ekki síst er sjúklingurinn
mun fljótari að jafna sig. Yfirlæknir
hjartaskurðdeildarinnar kveðst þó ekki
eiga von á að biðlistar eftir hjartaað-
gerðum styttist með tilkomu hinnar
nýju aðgerðar, þar sem hún krefjist
saraa starfsliðs og hin hefðbundna.
í stað þess að skera frá hálsi niður
fyrir bringubeinið, kljúfa það eftir endi-
löngu, opna inn í gollurshúsið, stöðva
hjartað og setja það af stað aftur að
lokinni aðgerð er með hinni nýju aðferð
aðeins gert lítið gat á bijóstholið og
farið þar inn með lítið speglunartæki.
Þá er tekin lítil æð, sem liggur til hlið-
ar við bringubeinið upp að axlarslagæð,
í gegnum speglunartækið og saumuð
með aðstoð þess við kransæðina.
Fer líklega að vinna fljótlega
eftir endurhæfingu
„Þetta gekk mjög vel. Mér líður betur
með hverjum deginum og hef enn ekki
fengið neitt bakslag. Ég var kominn á
stjá sólarhring eftir aðgerðina, fór heim
af spítalanum eftir fimm daga og var
kominn i æfingar hjá sjúkraþjálfara á
Landspítalanum þrettán dögum eftir
aðgerðina. Nú er ég byijaður í æfíngum
á HL-stöðinni í Hátúni 14 og verð þar
út júní,“ segir Þorkell Elías Kristinsson,
63 ára gamall Reykvíkingur, sem gekkst
undir aðgerðina fyrir um fimm vikum
og gerir ráð fyrir að geta farið að vinna
hálfan daginn fljótlega eftir að endur-
hæfíngunni lýkur.
Þorkell kenndi sér meins í janúar á
síðasta ári. Hann hafði fundið verk
fyrir bijóstinu í nokkra daga en gerði
ráð fyrir að það væri vöðvabólga eða
jafnvel bijóstsviði og þar sem verkur-
inn minnkaði gerði hann lítið úr honum
og hugsaði með sér að hann hlyti að
jafna sig. Einn daginn var hann sem
oftar í stuttri gönguferð í hádeginu
ásamt samstarfsfólki sínu hjá málning-
arverksmiðjunni Hörpu, þar sem hann
vinnur við átöppun. „Eg ætlaði ekki
að komast til baka, þurfti að stoppa
þrisvar eða fjórum sinnum á leiðinni
og þó er þetta ekki nema tuttugu mín-
útna gangur,“ segir Þorkell. Hann
komst þó inn í verksmiðjuna og var
þá orðinn kófsveittur, skipti litum og
fann sáran verk fyrir bijóstinu. Hann
hringdi í heimilislækninn sinn, sem
sagði honum að koma strax. Þegar
læknirinn sá hvers kyns var, kallaði
hann umsvifalaust á neyðarbílinn sem
flutti Þorkel upp á hjartadeild Landsp-
ítalans. „Þar gáfu þeir mér blóðþynn-
ingarmeðul á sex tíma fresti í átta sól-
arhringa og létu þannig hjartað ganga.
Svo var ég settur í þolpróf og þa kom
í Ijós að eitthvað mikið var að. Ég fór
síðan í þræðingu í júní og þá fundu
þeir að það var stífla í kransæð vinstra
megin framan á hjartanu. I nóvember
fór ég í blástur en það tókst ekki að
losa stífluna, svo það var ákveðið að
ég færi í aðgerð,“ segir Þorkell.
Kostur hvað sjúklingurinn
er fljótur að ná sér
Fljótlega kom til tals að gera á hon-
um hina nýju aðgerð með bijósthols-
spegluninni og var hún framkvæmd 30.
apríl sl. með fyrrgreindum árangri.
Aðgerðina gerði Bjarni Torfason,
hjartaskurðlæknir og yfirlæknir skurð-
deildar Landspítalans. „Þessi aðgerð
byggir á reynslu hefðbundinna aðgerða
og þar af leiðandi vitum við að þetta
er mjög góð meðferð. Kosturinn við
hana er að sjúklingurinn er svo fþ'ótur
að ná sér. Hún er heldur ekki alveg
eins umfangsmikil og hefðbundin
hjartaaðgerð, þó að hún sé talsvert
stór. Sjúklingurinn verður ekki svo
mikið var við aðgerðina, því að með
þessu móti þarf ekki að valda svo mikl-
um áverka til þess að komast að hjart-
anu,“ segir Bjarni.
Hann segir aðgerðina það nýtil-
komna að enn sé ekki fyllilega þ'óst
hvaða sjúklingum hún muni helst gagn-
ast. „Þar sem mest er gert af þessu
nú þegar virðist þetta aðallega vera sá
hópur sjúklinga sem er með þrengsli á
ákveðinni kransæð framan á hjartanu
en þeir hafa hingað til einungis fengið
blásningu." Bjarni segir að eftir aðgerð
sem þessa þurfi sjúklingar yfirleitt
ekki að vera nema rétt innan við viku
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
ÞORKELL Elías Kristinsson á þrekhjólinu á HL-stöðinni, Endurhæfingarstöð
hjarta- og lungnasjúklinga, í Hátúni 14. Þar hjólar hann stanslaust í 20 mínút-
ur og blæs vart úr nös.
á spítala og séu að jafnaði vinnufærir
aftur eftir einn og hálfan mánuð en
eftir venjulega aðgerð taki það minnst
þijá mánuði.
Hefur ekki áhrif á biðlista
Aðspurður um hvort tilkoma þessar-
ar nýju aðgerðar eigi eftir að gera það
að verkum að biðlistar eftir hjartaað-
gerðum styttist, segist Grétar Ólafsson,
yfirlæknir hjartaskurðdeildar Landsp-
ítalans, ekki eiga von á því. Ástæðan
sé sú að aðgerðin krefjist sama starfsl-
iðs og hin hefðbundna, þar sem það
verði að vera til taks ef eitthvað fer
úrskeiðis og setja þarf sjúklinginn í
hjarta- og lungnavél. Sparnaðurinn
liggi fyrst og fremst í efniskostnaði.
I
t
i
Sóknarnefndarmenn í Garðaprestakalli
Vilja séra Bjarna
eða auglýsa á ný
Sóknamefndarmenn tveggja
sóknamefnda í Garðaprestakalli,
Garðasóknar og Bessastaðasóknar,
hafa skrifað hr. Ólafi Skúlasyni,
biskupi íslands, og Þorsteini Páls-
syni, dómsmálaráðherra, bréf þar
sem þess er óskað að kjörmanna-
kosning, þar sem séra Bjami Karls-
son hlaut flest atk.væði, verði látin
standa. Að öðrum kosti verði
prestakallið auglýst á ný.
Bréfíð var einnig borið undir
sóknarnefnd Kálfatjamarsóknar en
fékkst ekki samþykkt. Tveir sókn-
amefndarmenn Kálfatjamarsóknar
sendu ráðherra og biskupi hins veg-
ar sérstakt bréf til stuðnings sam-
eiginlegu bréfí hinna sóknanna.
Sesselja Sigurðardóttir, formað-
ur sóknamefndar Kálfatjarnar-
sóknar, segir að prestkosning í
Garðaprestakalli, sem fór fram 31.
maí síðastliðinn, hafi ekki verið
bindandi. „Það er í valdi ráðherra
og biskups hvað gert verður en það
er verið að kanna það í ráðuneytinu
hvort kjörmannakosningin geti
staðist lagalega,“ sagði Sesselja.
Of stór biti
Hans Markús Hafsteinsson,
guðfræðingur, og séra Orn Bárður
Jónsson sóttust eftir prestsemb-
ættinu og hlaut Hans Markús fleiri
atkvæði í kosningunni. Hefur bisk-
up íslands sagt að hann muni að
öllu óbreyttu mæla með Hans
Markúsi í embættið.
„Menn telja Hans Markús ekki
valda því að taka svona stórt emb-
ætti. Hann er nýútskrifaður úr
guðfræði og hefur margt til síns
ágætis en okkur finnst þetta vera
allt of stór biti fyrir óreyndan
mann að taka. Séra Bjarni Karls-
son var kosinn löglega í kjör-
mannakosningu en samkvæmt lög-
unum hafði fólk leyfi til þess að
biðja um almenna kosningu," sagði
Sesselja.
Erindi Bjarna Karlssonar til
dóms- og kirkjumálaráðherra, þar
sem hann ítrekar umsókn sína um
embættið, hefur enn ekki verið
svarað. Að sögn Hjalta Zóphóníus-
sonar, skrifstofustjóra í dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu, er óljóst
hvað verður úr. „Við bíðum eftir
bréfi frá biskupi,“ sagði hann.
„Hann á að veita umsögn og til-
kynna formlega um úrslit kosning-
ann. Ráðuneytið mun ekkert láta
frá sér fara fyrr.“
Magnús Gamalíelsson
hf. sameinast Þormóði
Ramma-Sæberg hf. *
ÚTGERÐARFYRIRTÆKIÐ Þor- áfram miklar vonir við góða af- r
móður rammi-Sæberg hf. tilkynnti komu þess í nánustu framtíð," seg- P
í gær að sameiningarviðræður
stæðu yfir við útgerðarfyrirtækið
Magnús Gamalíelsson hf. á Ólafs-
firði. Gert er ráð fyrir að gengið
verði frá sameiningunni á allra
næstu dögum.
Magnús Gamalíelsson hf. genr
út frystitogarann Sigurbjörgu ÓF
og 50 tonna bát, Snæbjörgu ÓF.
Fiskveiðiheimildir fyrirtækisins
eru um 2.600 þorskígildistonn.
Verði af sameiningunni verða því
heimildir fyrirtækisins tæplega
20.000 þorskígildistonn. Að sögn
Róberts Guðfinnssonar, stjórnar-
formanns Þormóðs ramma-
Sæbergs hf., er áætlað að velta
sameinaðs fyrirtækis verði tæpir
fjórir milljarðar króna.
„Við teljum að með sameining-
unni munum við styrkja enn frekar
atvinnulífið í þessum tveim byggð-
um á utanverðum Tröllaskaga. Það
er ljóst að fyrirtækið er fjárhags-
lega mjög sterkt og við bindum
ir Róbert.
Þormóður rammi-Sæberg hf.
gerir nú út níu togara, þar af tvo
frystitogara. Alls mun því samein-
að fyrirtæki gera út ellefu skip.
------♦ ♦ ♦----
Landsmót2000 ,
í Reykjavík í
STJÓRN Landssambands hesta-
manna hefur ákveðið samhljóða
að Landsmót hestamanna árið
2000 verði haldið í Reykjavík, á
félagssvæði Fáks í Víðidal.
Tvö félög höfðu sótt um að halda
landsmótið árið 2000; Fákur og
Rangárbakkar sf. á Hellu.
Einnig var ákveðið á stjórnar- L
fundinum að halda landsmót hesta- J
manna árið 2002 á Vindheimamel- P
um í Skagafirði en auk umsóknar p
þaðan hafði borist umsókn frá
Melgerðismelum í Eyjafirði. J_