Morgunblaðið - 06.06.1997, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ
tlNGLAN
Norðurhús Kringlunnar
Borgar-
ieikhús
Suðurhús
Kringlunnar
KRINGLAN
6 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1997
Landbúnaðarráðherra hafnar tilboðum í Áburðarverksmiðjuna hf. í Gufunesi
LANDBÚNAÐARRAÐHERRA hef-
ur fallist á tillögu einkavæðing-
amefndar sem lagði til að ölium til-
boðum sem bárust í hlutabréf rík-
isins í Áburðarverksmiðjuna hf. yrði
hafnað. Það var mat nefndarinnar
að tilboðin væm töluvert undir
ásættanlegu verði. Gunnar Þór
Gíslason, framkvæmdastjóri Gufu-
ness ehf., sem átti hæsta tilboð í
verksmiðjuna, segir að tilboðin end-
urspegli markaðsvirði hennar og rík-
ið eigi núna bara tvo kosti, að reka
hana áfram með tapi eða leggja
hana niður.
„Þetta er tillaga sem kemur frá
einkavæðingarnefndinni, sem hefur
ásamt sínum ráðgjöfum sett fram
þær hugmyndir að verksmiðjan
kunni að vera virði um eins milljarðs
króna. Það kemur fram í útboðs-
gögnum. í verksmiðjunni liggja
umtalsverðar upphæðir í lausafjár-
munum, sem hægt er að gera sér
mikið verðmæti úr nú þegar, sem
gætu gengið til að greiða umtals-
verðan hluta af kaupverði. Það var
mat nefndarinnar, ráðgjafa hennar
og fulltrúa ráðuneytisins að þessi
verðtilboð væru bæði óásættanleg,"
sagði Guðmundur Bjarna- —-------------
son landbúnaðarráðherra. Verksmiðjan á
Málið endurmetið mikla lausa-
Tilboðin töluvert und-
ir viðunandi verði
Einkavæðingamefnd telur töluvert vanta upp á að þau tvö tilboð
sem bámst í Áburðarverksmiðjuna hf. hafi veríð ásættanleg. Þeim
hefur verið hafnað, en nefndin mun skoða málið áfram og gera
tillögur til ráðherra um næstu skref.
Guðmundur sagði að
mat einkavæðingarnefnd-
fjármuni
Hann sagði að það Iægi þess vegna
ekkert fyrir um hvað ríkið ætlaði
að gera við verksmiðjuna, reka hana
áfram eða leggja hana niður. Hags-
munir í þessu máli værií efnahags-
legir og atvinnusjónarmið þeirra sem
þarna störfuðu skiptu máli. Ríkið
gæti hins vegar ekki staðið í því að
reka þessa verksmiðju með stór-
felldu tapi.
-------- „Ef það er niðurstaðan
að verksmiðjan sé ekki
rekstrarhæf og það þurfi
að loka henni þá er a.m.k.
ljóst að ríkið fengi meira
út úr henni með því að
bænda í þessu máli. Það væri auðvit-
að mikilvægt fyrir bændur að fá
góðan áburð, en það væri ekki síður
mikilvægt að hann væri ódýr.
Tilboðin endurspegla
markaðsverð
ar og ráðgjafa hennar væri auðvitað
ekki óumdeilt. Verksmiðjan hafi ver-
ið boðin út á markaði á íslandi og
erlendis og tilboðin væru ekki hærri
en þetta. Það væri þess vegna nauð-
synlegt að endurmeta stöðuna.
Nefndin myndi skoða málið áfram
og gera tiilögur um næstu skref.
loka henni sjálft heldur en að selja
hana skv. þessum tilboðum. Þess
vegna viljum við endurmeta stöð-
una.“
Guðmundur sagði að misskilnings
hafí gætt í umræðu síðustu daga
þegar fullyrt væri að landbúnaðar-
ráðuneytið vildi líta til hagsmuna
Gunnar Þór Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Gufuness ehf., sagði
að einkavæðingarnefndin hafi efnt
til útboðs sem öllum hafi verið fijálst
að taka þátt í. „Það bárust bara tvö
tilboð og þau hljóta að endurspegla
markaðsverð verksmiðjunnar. Það
er fullreynt með að það er enginn
sem vill borga meira fyrir hana. Ef
að rökin fyrir því að hafna tilboðun-
um eru að þau séu of lág spyr mað-
ur af hveiju var ekki sett lágmarks-
verð á verksmiðjuna í útboðslýs-
ingu.“
Gunnar Þór sagði að Gufunes
ehf. og fleiri hefðu lagt mikla vinnu
í að reikna út hve mikils verksmiðj-
an er virði. Niðurstaða forsvars-
manna Gufuness hafi verið að bjóð-
ast til að kaupa hana á 725 milljón-
ir. „Eg tel að stjórnvöld skuldi okk-
ur skýringar á þessu. Þessi niður-
staða væri skiljanleg ef það hefðu
komið fram einhver gríntilboð. En
ef við lítum á þá aðila sem eru að
bjóða á móti okkur þá sjá menn að
hér er verið að gera alvörutiiboð.
Þetta eru veitustofnanir-----------------------
Reykjavíkurborgar, AtVÍnnusjÓn-
helstu endursöluaðilar armið eru
áburðar á Islandi sem
þekkja þennan markað 9
út og inn og þarna er
einn virtasti stofnanafjárfestir
niður eða halda áfram taprekstri.
Það hefur verið tap á þessari verk-
smiðju frá því hún var gerð að hluta-
félagi og það er ekkert sem bendir
til annars en að hún verði rekin
áfram með tapi miðað við óbreytt
rekstrarform. Ríkið er ekki fært um
að reka verksmiðjuna og þess vegna
tel ég sjálfsagt að leyfa öðrum að
spreyta sig,“ sagði Gunnar Þór.
Innlend verðmætasköpun
Þorgeir Hlöðversson, kaupfélags-
stjóri á Húsavík, er talsmaður hóps
kaupfélaga, Sláturfélags Suður-
lands, Bændasamtakanna, Vatns-
veitu Reykjavíkur, Hitaveitu Reykja-
víkur, Rafmagnsveitu Reykjavíkur
og Eignarhaldsfélags Alþýðubank-
ans, en tilboð þessara aðila hljóðaði
upp á 617 milljónir. Hann sagði að
skýrt hefði komið fram í útboðslýs-
ingu að seljandi hefði rétt til að
hafna öllum tilboðum og hann gerði
ekki athugasemd við þessa niður-
stöðu.
„Við höfum það skýra markmið
með þessu tilboði hér eftir sem hing-
að til að útvega bændum og fram-
leiðendum áburð á góðu verði. Það
-------- er áhugavert fyrir okkur
að sinna þessu hiutverki
samhliða því að skjóta
styrkari stoðum undir
verksmiðjuna. Það skiptir
einnig máli að þarna er
hlutabréfum á landinu. Þessir aðil-
ar, með alla þessa þekkingu og allt
þetta fjármagn, telja að verðmæti
verksmiðjunnar sé 617 milljónir.
Ég sé ekki hvað ríkið ætlar að
gera í framhaldinu. Þeir hafa tvo
möguleika: að leggja verksmiðjuna
um innlenda verðmætasköpun og því
mikilvæg atvinnusjónarmið í málinu.
Ég er mjög ánægður með að okkur
skyldi takast að stilla saman þennan
hóp til þess að freista þessa. Þarna
kann að vera vettvangur sem við
getum spunnið eitthvað áfram,“
sagði Þorgeir.
Fyrstu „Bítlatónleikarnir“
í Háskólabíói í kvöld
FYRSTA júní síðastliðinn voru
30 ár Iiðin frá því breska hljóm-
sveitin Bítlarnir sendi frá sér
plötuna Sgt. Peppers Loney
Hearts Club Band og af því til-
efni verða þrennir tónjeikar
Sinfóníuhljómsveitar Islands
og ýmissa rokktónlistarmanna
þar sem platan verður flutt.
Fyrstu tónleikarnir verða í
kvöld og hefjast kl. 20 en tvenn-
ir tónleikar verða á laugardag
og einir á sunnudag.
Sgt. Peppers Loney Hearts
Club Band vakti mikla athygli
þegar hún kom út og er af
mörgum poppfræðingum talin
hafa valdið straumhvörfum í
þróun tónlistarformsins.
Flutningurinn í Háskólabíói að
þessu sinni er á vegum Nætur
og dags, Listasmiðju Islands,
en eins og getið er eru flytj-
endur Sinfóníuhljómsveit Is-
lands og nokkrir þekktir tón-
listarmenn. Stefán Hjörleifs-
son og Björgvin Gislason leika
á gítar og Björgvin aðauki á
sítar þegar við á, Jón Olafsson
leikur á hljómborð, Róbert
Þórhallsson á bassa, Jóhann
Hjörleifsson á trommur og
Steingrímur Guðmundsson á
tablatrommur. Söngvarar á
tónleikunum verða Daníel Ág-
úst Haraldsson, Stefán Hilm-
arsson, Kristján „KK“ Krist-
jánsson, Ari Jónsson, Sigurjón
Brink, Björn Jörundur Frið-
björnsson, Eyjólfur Kristjáns-
son, Magnús Þór Jónsson, Jó-
hann Helgason og G. Rúnar
Júliusson. Tónlistarstjóri
verksins er Jón Olafsson en
Ólafur Gaukur Þórhallsson
útsetti verkið fyrir Sinfóníu-
hljómsveitina og stýrir hljóm-
sveitinni.
Eins og áður er getið verða
fyrstu tónleikarnir í Háskóla-
bíói í kvöld og hefjast kl. 20,
en tvennir tónleikar verða á
morgun, kl. 17 og 20, og loka-
tónleikar á sunnudag kl. 17.
FRÉTTIR
GERT er ráð fyrir 22 verslunareiningum í nýrri tengibyggingu sem reist verður milli norður og
suður Kringlu. Þá verður Kringlutorgið fært til og bílastæðunum breytt austan við
húsið og innkeyrslan færð nær Listabraut.
Sameining og aukin
samkeppni í Kringlu
EINAR Ingi Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri verkefnisstjómar
Kringlunnar, segir að aukin sam-
keppni, sameining norður- og suður-
Kringlu og eftirspurn eftir verslunar-
rými í Kringlunni hafi leitt til þess
að ákveðið var að byggja við Kringl-
una. í tillögunni er gert ráð fyrir
verulegum breytingum við Kringlut-
org, auknum bílastæðum á pöllum
og jarðvegsmön með tijám og gróðri.
Áætlaður kostnaður er 1,2 milljarðar.
Húsin sameinuð
„Það má segja að aukin sam-
keppni sé einn þeirra þátta, sem leiða
til þess að farið er út í þessa stækk-
un, en tilefnið er að búið er að sam-
eina húsin undir eina stjóm og und-
ir nafni Kringlunnar,“ sagði Einar.
„í öðru lagi hefur alltaf verið tals-
verð eftirspurn eftir húsnæði í
Kringlunni og hefur hún farið heldur
vaxandi undanfarin misseri. Kaup-
menn í Kringlunni hafa áhuga á að
stækka sínar einingar og koma inn
með nýjan rekstur. Við höfum einn-
ig orðið varir við áhuga erlendra
verslunarfyrirtækja á að koma inn
á markaðinn en það er of snemmt
að tíunda hveijir það eru.“
22 verslunareiningar
Tillagan að tengibyggingunni ger-
ir ráð fyrir 6.200 fermetra verslunar-
rými á tveimur hæðum milli norður
og suður Kringlu auk möguleika á
að nýta 2.200 fermetra kjallararými
eða samtals 8.400 fermetra. Gert
er ráð fyrir 22 nýjum verslunarein-
ingum og að ein þeirra verði tæpir
400 fermetrar á tveimur hæðum.
Skyndibitastaðir, sem nú eru í norð-
urhlutanum verða færðir yfir á aðra
hæð í tengibyggihgunni. Sagði Einar
að allt skipulag, lofthæð, gólfefni
og annar frágangur í nýju bygging-
unni miðaðist við norður álmuna eða
elsta hlutann.
Tillagan gerir jafnframt ráð fyrir
möguleika á tengingu við Borgar-
leikhúsið frá suður Kringlu og sagði
Einar að byggingarnar yrðu tengdar
með þak. Einnig væri möguleiki á
að innangengt yrði milli byggingann
sérstaklega ef byggt yrði við Bórgar-
leikhúsið en það væri til skoðunar.