Morgunblaðið - 06.06.1997, Qupperneq 22
22 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
U
Skipst
á skotum
í Kóreu
NORÐUR- og suður-kóreskir
varðbátar skiptust á skotum
út af vesturströnd Kóreuskaga
í gær. Vamarmálaráðuneyti
sunnanmanna greindi frá því í
gær að bátur norðanmanna
hefði farið yfir landhelgislínu
ásamt níu fískibátum, og hefði
hleypt af skotum þegar sunn-
anmenn reyndu að stöðva þá.
Sunnanmenn hefðu svarað í
sömu mynt. Engan sakaði og
engar skemmdir urðu, og bátur
norðanmanna hvarf út úr land-
helginni eftir um það bil 40
mínútur.
Emmanuelli
dæmdur
DÓMSTÓLL í Frakklandi
dæmdi í gær Henri Emmanu-
elli, fyrrum leiðtoga Sósíalista-
flokksins, í eins og hálfs árs
skilorðsbundið fangelsi fyrir
misferli í fjálmálum flokksins.
Hann játaði að hafa staðið að
færslu fjármagns til flokksins
á síðari hluta níunda áratugar-
ins, en kvaðst ekki hafa hagn-
ast persónulega og ekki hafa
aðhafst neitt ólöglegt.
Gagnnjósnari
dæmdur
HAROLD Nicholson, starfs-
maður bandarísku leyniþjón-
ustunnar, CIA, var dæmdur í
23 ára og sjö mánaða fangelsi
í gær fyrir gagnnjósnir í þágu
Rússa. Nicholson er hæst setti
starfsmaður CIA sem dæmdur
hefur verið fyrir njósnir.
Banatilræði
í Albaníu
HANDSPRENGJU var varpað
að Sali Berisha, forseta Alban-
íu, á miðvikudag þegar forset-
inn var á framboðsfundi.
Sprengjan sprakk ekki, og
Berisha slapp með skrekkinn.
Albanska ríkissjónvarpið
greindi frá þessu.
Mútuhneyksli
í S-Kóreu
NÆST elsti sonur Kims Yo-
ung-sams, forseta Suður-
Kóreu, var í gær formlega
ákærður fyrir að hafa þegið
sem svarar rúmlega 250 millj-
ónum króna í mútur og vikið
sér undan því að greiða skatta.
Samkvæmt lögum í landinu
gæti sonurinn átt yfír höfði sér
lífstíðar fangelsi fyrir skatt-
svikin, en hámarksrefsing fyrir
mútuþægni er 5 ára fangelsi.
Fljúgandi
þvottabjörn
rotar mann
ÞVOTTABJÖRN stökk á
framrúðu pallbifreiðar á ferð
í Flórída í Bandaríkjunum fyrr
í vikunni, braut rúðuna og lenti
á bílstjóranum, sem rotaðist.
Sonur bílstjórans náði að
stöðva bifreiðina. Bílstjórinn
raknaði fljótlega úr rotinu og
sakaði ekki að öðru leyti en
því að skerast á brotum úr
rúðunni. Björninn hafði setið
á sorpbíl, en tekið undir sig
stökk og lent á framrúðu pall-
bifreiðarinnar, og lifði ekki af.
Reuter
Meyjarmynd sögð birtast í Mexíkó
ÞÚSUNDIR trúaðra Dykkjast
nú til Mexíkóborgar til að sjá
mynd af því sem þeir telja
myndbirtingu hinnar heilögu
meyjar frá Guadalupe. Myndin
birtist eftir að pollur, sem
myndaðist er vatnsleiðsla
sprakk á neðanjarðarlestar-
stöð, þornaði upp. Allt að 20
þúsund manns koma daglega til
að skoða myndina og skilja eft-
ir blóm, kerti og smápeninga.
Erkibiskupinn í Mexíkó segist
efast um að um kraftaverk sé
að ræða.
Irsku
stjórninni
spáð falli
Dyflinni. Reuter.
ÍRAR ganga í dag að kjörborðinu
og var samkvæmt skoðanakönnun-
um, sem birtar voru í gær, allt
útlit fyrir að stjórnarskipti yrðu á
írlandi. Samkvæmt blaðinu Irish
Independent var bandalag Fianna
Fail og róttækra demókrata 49%
og höfðu flokkarnir níu prósentu-
stiga forustu á stjórnarflokkana
þijá.
Binda vonir við
óákveðna
Stjórnarflokkarnir bundu vonir
við að lokka til sín fylgi þeirra
14% kjósenda, sem samkvæmt
skoðanakönnuninni hafa ekki gert
upp hug sinn. John Bruton forsæt-
isráðherra þótti á miðvikudags-
kvöld bera af í kappræðum við
Bertie Ahern, leiðtoga Fianna
Fail.
Á myndinni sést starfsmaður
frambjóðanda flokksins Fine Gael,
en að baki honum standa menn
með kosningaspjald með mynd af
Bruton, leiðtoga flokksins.
Fjölmiðlar velta fyrir sér kanslaraefni þýskra jafnaðarmanna
Schröder talinn
eiga vaxandi
möguleika
Þótt líklega verði ekki ákveðið fyrr en voríð
1998 hver verður kanslaraefni þýskra jafn-
aðarmanna eru fjölmiðlar þegar famir að
velta fyrir sér helstu kostum.
LAFONTAINE og Schröder eru líklegustu kanslaraefni
þýskra jafnaðarmanna.
GERHARD Schröder, forsætisráð-
herra Neðra-Saxlands í Þýskalandi,
er talinn eiga vaxandi möguleika á
að verða útnefndur kanslaraefni
Jafnaðarmannafiokksins (SPD) fyr-
ir þingkosningarnar á næsta ári.
Til þessa hefur leiðtogi flokksins,
Oskar Lafontaine, verið talinn til-
tölulega öruggur um útnefninguna.
Forysta SPD hefur lagt ríka
áherslu á að leika ekki af sér fyrir
kosningarnar og Lafontaine er
sagður ætla að koma í veg fyrir
að innbyrðis barátta einstakra for-
ystumanna skaði flokkinn. Því hef-
ur verið ákveðið að ákvörðun um
það, hver muni leiða flokkinn í
næstu kosningum, verði ekki tekin
fyrr en á næsta ári. Hefur flokksfor-
ystan, að sögn þýska tímaritsins
Der Spiegel, jafnframt beint því til
einstakra aðildarfélaga flokksins að
kynda ekki undir fjölmiðlaumræðu
um það, hver sé líklegasta kanslara-
efnið.
Til þessa hefur verið talið senni-
legast að Lafontaine muni leiða
jafnaðarmenn i næstu kosningum.
Samkvæmt skoðanakönnun, sem
Spiegel gerði meðal félaga í SPD
um allt Þýskaland nýtur Schröder
mun meiri stuðnings meðal hir.na
almennu flokksmanna. Alls sögðust
69% SPD-félaga telja að Schröder
væri vænlegasta kanslaraefnið en
einungis 27% nefndu Lafontaine.
Þá virðast flokksmenn vera á því
að skynsamlegt sé að taka ákvörð-
un fyrr um kanslaraefni flokksins
en forystan hefur ákveðið.
Að öllum líkindum verður það
hins vegar þröngur hópur innan
flokksforystunnar, sem tekur
ákvörðun um kanslaraefnið og seg-
ir tímaritið ekkert benda til þess á
þessu stigi að hinn almenni flokks-
félagi verði hafður með í ráðum.
Ólíkir stjórnmálamenn
Schröder og Lafontaine eru um
margt ólíkir stjómmálamenn.
Schröder er frá Neðra-Saxlandi, telst
hægra megin í flokknum, og hefur
náin tengsl við viðskiptalífíð og stór-
fyrirtæki. Hann leggur mikla áherslu
á að ef Þjóðverjar eigi að taka þátt
í hinum peningalega samruna megi
ekki slaka á skilyrðum Maastricht-
samkomulagsins. Schröder telur
nauðsynlegt að hugmyndafræðileg
endumýjun eigi sér stað innan SPD,
ekki ósvipað því og gerst hefur hjá
breska Verkamannaflokknum.
Lafontaine, sem er frá Saar-
landi, er hins vegar vinstra megin
í flokknum og leggur ríka áherslu
á umhverfís- og jafnréttismál. Hann
hefur ekki viljað gera hinn samevr-
ópska gjaldmiðil að kosningamáli.
Schröder á meira fylgi hjá al-
mennum félagsmönnum en starfs-
menn og fulltrúar flokksins eru lík-
legri til að styðja Lafontaine. Meiri-
hluti kvenna styður einnig Lafonta-
ine en Schröder hefur yfirburðafylgi
hjá flokksmönnum yngri en 30 ára.
Aföll Talebana í norðurhluta Afganistan benda til stefnubreytingar
Sagðir ganga að
kröfum stríðsherra
Islamabad. Reuters
TALEBAN-hreyfíngin í Afganist-
an hefur samþykkt skilyrði Abdul
Maliks, stríðsherra, fyrir friðarvið-
ræðum, samkvæmt upplýsingum frá
Pakistan.
Utanríkisráðherra Pakistans, sem
verið hefur milligöngumaður um
friðarumleitanir, segir Malik hafa
sett fram þijú grundvallarskilyrði
fyrir viðræðum. I fyrsta lagi að
Talebanar virði algera stjórn norð-
anmanna í norðurhéruðum landsins.
í öðru lagi að þeir hætti tilraunum
til að afvopna andstæðinga sína þar
og í þriðja lagi að þeir samþykki
að vinna með Malik að nýskipan í
trúmálum.
Wakil Ahmad, háttsettur emb-
ættismaður í stjórn Talebana, neit-
aði að staðfesta fréttirnar og hvatti
norðanmenn til að láta lausa fanga
sem þeir halda í borginni Mazar-i-
Sharif. Hann vildi þó ekki útiloka
að Talebanar gengju til samninga-
viðræðna.
Gangi Talebanar að skilmálum
stríðsherrans er um grundvallar-
stefnubreytingu að ræða, þar sem
þeir hafa hingað til verið ósveigjan-
legir í þeirri áætlun að beija niður
alla mótspymu og koma öllu landinu
undir ströng íslömsk lög.
Þrátt fyrir liðsöfnun í Kabúl og
Pakistan hefur Talebönum mistekist
að rétta hlut sinn í Norður-Afganist-
an.
Við borgina Pul-i-Khumri hafa
þeir farið halloka fyrir liði Abdul
Maliks auk þess sem Ahmad Shah
Massod heldur enn Salang-þjóðbraut-
inni sem tengir Kabúl við norðurhéruð
landsins. Liðsmenn Masoods segja að
hann haldi auk þess borginni Jabal-
os-Siraj og þorpinu Golbahar en á
miðvikudag sögðust Talebanar ráða
báðum þessum bæjum.
Mikið hefur verið um liðhlaup og
sviptingar í stríðinu í Norður-Afg-
anistan og virðist gengi Talebana
þar að mestu standa og falla með
stuðningi liðhlaupa.
Utanríkisráðherra Pakistan neit-
aði því að Talebanar fengju hernað-
araðstoð frá Pakistan en sagði einn-
ig að hann hefði sannanir fyrir því
að andstæðingar þeirra hefðu feng-
ið heilu flugvélafarmana af erlend-
um hergögnum.