Morgunblaðið - 06.06.1997, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREINAR
FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ1997 35
Opið bréf til
foreldra grunn-
skólabarna
í Reykjavík
KÆRU foreldrar!
Ég ætla að fara í nokkrum orðum
yfir þetta fyrsta skólaár eftir að
Reykjavíkurborg tók alfarið við öll-
um rekstri grunnskólanna.
Enginn málaflokkur hefur gengið
í gegnum aðra eins
uppstokkun og brejd;-
ingar og fræðslumálin.
Tii skólanna í Reykja-
vík fara um 40% allra
skatttekna borgarinn-
ar, þ.e.a.s. tæp 40% af
útsvari og fasteigna-
gjöldum ykkar fer í
skólastarf barnanna.
Stefnufast, skipu-
lega og samtaka hefur
fræðsluráð og
Fræðslumiðstöð tekið á
málunum frá 1. ágúst.
Lögð var fram vel
uhnin og metnaðarfull
starfsáætlun við gerð
ijárhagsáætlunar fyrir
árið 1997.
Borgarstjórn sam-
þykkti við gerð fjárhagsáætlunar
viðbótarfjármagn til að styrkja upp-
haf skólagöngu barna með:
1. að veita skólum viðbótarstundir
fyrir nemendur 1.-3. bekkjar.
Bekkjarkjarninn er í raun 16 nem-
endur, en síðan fær skólinn eina
viðbótarstund á hvern nemanda
Gífurlega mörgu hefur
verið ýtt úr vör á þessu
fyrsta ári, segir Sigrún
Magnúsdóttir, eftir að
borgin tók alfarið við
rekstri grunnskóla
borgarinnar.
umfram 16 upp í 24 nemendur og
þá er bekkjum skipt. Þetta gefur
skóla svigrúm til að skipuleggja
starfið út frá þörfum nemendahóps-
ins, aðstæðum og forsendum á
hverjum stað. Þetta er nýjung í
skólastarfi og vekur mikla eftirtekt
þar sem hún er kynnt meðal kenn-
ara og sveitarstjórnarmanna.
Þá er búið að skipuleggja nám-
skeið fyrir kennara í 1. og 2. bekk
til að prófa markvisst íjölbreytt
vinnubrögð og mismunandi skipu-
lagningu bekkjarkennslu.
2. að ijölga stuðningsfulltrúum og
stuðla að því að yngstu nemendurn-
ir aðlagist skólastarfi sem best.
Haustið 1995 komu 32 stöðugildi
stuðningsfulltrúa inn í skólana og
haustið 1997 erum við að bæta við
um 15 stöðugildum.
Þá verður haldið námskeið fyrir
stuðningsfulltrúa í yngstu bekkjun-
um.
3. að gera upphaf skólagöngu 6
ára barna markvissara með því
m.a. að efla samstarf við leikskóla-
stigið og stuðla að því að verðandi
1. bekkingar fari í
heimsóknir í grunn-
skólann sinn á vorin.
Aðstoða skóla og for-
eldrafélög við að und-
irbúa nánjskeið fyrir
foreldra 6 ára barna
að hausti og gefa út
kynningarhefti handa
þeim.
Borgarstjórn sam-
þykkti að fjöldi viku-
legra kennslustunda í
grunnskólum borgar-
innar skuli vera 319 á
alla árganga nk. skóla-
ár, en það er fimm
stundum meira en
grunnskólalög gera
ráð fyrir.
Frá næsta hausti
verða ráðnir námsráðgjafar í 50%
starf við alla skóla borgarinnar með
unglingastig. Við yfirfærsluna voru
aðeins rúm fimm stöðugildi náms-
ráðgjafa í Reykjavík. Verkefni þeira
felast í leiðsögn um náms- og starf-
sval. Þá veita þeir persónulega ráð-
gjöf vegna aðstæðna sem hindra
nemendur í námi og vinna fyrir-
byggjandi starf.
Þá er búið að skipuleggja nám-
skeið fyrir umsjónarmenn með
vímuvörnum í skólum (kennara og
námsráðgjafa). Þetta námskeið er
unnið í samvinnu við vímuvarnar-
nefnd Reykjavíkurborgar.
Þá var samþykkt að ráða umsjón-
armenn í 25% starf í hveijum skóla
til að sjá um tölvustofur og staðar-
net í grunnskólum borgarinnar. Sl.
tvö ár hafa borgaryfirvöld varið
tugum milljóna til þess að net-
tengja alla grunnskóla Reykjavíkur
í þeim tilgangi að kynna nemendum
tölvusamskipti og notkun Internets-
ins til upplýsingaöflunar. Jafnframt
hafa bókasöfn og skólastjórar að-
gang að SKÝRR um víðnet skól-
anna.
Það er búið að skipuleggja nám-
skeið fyrir umsjónarmennina.
Við stefnum að því að áætlanir
um vímuvarnir verði fastur liður í
skólanámskrám skólanna. Þetta er
liður í áætlunum vímuvarnarnefnd-
ar Reykjavíkur.
Þrír skólar fengu úthlutun úr
þróunarsjóði grunnskóla til að þróa
lífsleikni og vímuvarnir.
Einnig er stefnt að því að jafn-
réttisáætlun verði ætlaður sess í
skólanámskrám í samræmi við jafn-
réttisáætlun borgarinnar.
Nýlega var ráðinn hjá Fræðslu-
miðstöð kennsluráðgjafi í listum og
menningu.
■-----------■
SLIM-LINE
dömubuxur
frá gardeur*
Qhmtv
tískuverslun
_ V/Nesveg, Seltj., s. 561 1680 _
PARTAR
BÍLAPARTASALA
KAPLAHRAUNI 11 220 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI 565 3323 • FAX 565 3423
EIGUM FYRIRLIGGJANDI
NÝJA OG NOTAÐA
VARAHLUTI í FLESTAR
GERÐIR BÍLA
HÚDD - BRETTI - STUÐARA
HURÐIR - LJÓS - GRILL
AFTURHLERA - RÚÐUR
Borgarstjórn samþykkti í desem-
ber sl. að vinna markvisst að efl-
ingu náttúruvísinda- og tækni-
kennslu í grunnskólum borgarinnar
með áherslu á þróunarstarf í 2-3
skólum og öflugri endurmenntun
kennara sem vilja sérhæfa sig á
þessum sviðum.
Fimm skólar fengu úthlutað úr
þróunarsjóði grunnskóla til að þróa
kennsluhætti og námsgögn til að
efla náttúruvísinda- og tækni-
kennslu.
Nýlega var ráðinn kennsluráð-
gjafi að Fræðslumiðstöð til að vinna
að frekari brautargengi verkefnis-
ins. Þá vann Fræðslumiðstöð í sam-
vinnu við Kennaraháskólann og
Háskóla íslands að 15 eininga námi
til að efla þekkingu kennara í eðlis-
og efnafræðigreinum.
Starfshópur undir stjórn fræðslu-
stjóra hefur unnið í allan vetur að
hugmyndabanka um 6-7 stunda
vinnudag nemenda og tengingu við
tómstundastörf.
Þrír skólar fengu úthlutað úr þró-
unarsjóði grunnskóla Reykjavíkur til
að þróa ákveðna þætti vegna ein-
setningar og lengingar skóladags.
Fræðsluráð og borgarráð hafa
samþykkt samhljóða fimm ára áætl-
un um einsetningu allra grunnskóla
borgarinnar. í tvö ár hefur verið
unnið markvisst að undirbúningi
þessarar metnaðarfullu áætlunar.
Fyrst voru fengnir ráðgjafar sem
unnu í samvinnu við byggingadeild
borgarverkfræðings að úttekt á öll-
um skólunum, þeir voru allir metnir
út frá forsögninni um Engjaskóla.
Þessi úttekt var kynnt í öllum
hverfum borgarinnar sl. vor. Síðan
hefur verið unnið að gerð fimm ára
áætlunarinnar og hún kynnt á und-
irbúningsstigi á fjölmörgum fundum
með skólastjórnendum og foreldrum.
Eins og sést á þessari löngu upp-
talningu hefur gífurlega mörgu ver-
ið ýtt úi' vör á þessu fyrsta ári eft-
ir að borgin tók alfarið við rekstri
grunnskóla borgarinnar.
Hins vegar skynjum við sem að
skólamálum störfum nánast hungur
og óþolinmæði eftir enn frekari
úrbótum og fjármagni.
Við erum samt stolt af markviss-
um vinnubrögðum bæði hvað varðar
innra starf skólanna sem og ytri
rammann.
Aldrei fyrr hafa verið lagðar fram
slíkar langtímaáætlanir í skólamál-
um borgarinnar.
Ég er sannfærð um að við fögn-
um nýrri öld vel undirbúin og nán-
ast megi segja að bylting hafi átt
sér stað í fræðslumálum á ótrúlega
stuttum tíma.
Höfundur er formaður
fræðsluráðs.
Tímaskekkja
á Vestfjörðum?
Björn Hlynur Þór
Garðarsson Magnússon
STUNDUM er
sagt, þegar tímar
mikilla, sárra og óhjá-
kvæmilegra breyt-
inga ganga yfir, að
ástandið versni fýrst,
áður en það fer að
batna. Ekki er laust
við, að slíkar hu-
grenningar hafi eitt-
hvað leitað á Vest-
firðinga á erfiðlei-
katímum síðustu ára.
Fyrirtæki, fólk og
byggðarlög á Vest-
fjörðum hafa verið
tíðir gestir (en ekki
alltaf sjálfviljugir) í
fréttum og fjölmiðl-
um og oftar en ekki með neikvæð-
um hætti. Erfiðleikar í rekstri fyrir-
tækja, glataðar fiskveiðiheimildir,
Atvinnuvegasýning
Vestfjarða verður hald-
in um helgina. Björn
Garðarsson og Hlynur
Þór Magnússonsegja
að sextíu vestfírsk fyrir-
tæki muni kynna þar
starfsemi sína.
langvinnt atvinnuleysi í heilu pláss-
unum, hörmungar og stórfelldir
mannskaðar af völdum náttúru-
hamfara, heilu byggðahverfin
óbyggileg og verðlaus vegna snjó-
flóðahættu, hrakleg útkoma á sam-
ræmdum prófum, fólksflótti, von-
leysi. Og nú síðast verkfailið hér
vestra, sem staðið hefur vel á ann-
an mánuð og allir landsmenn
þekkja.
En samt eru þeir til, sem reyna
að sjá björtu hliðarnar á tilverunni.
Og þær hliðar eru líka til hér vestra,
þótt e.t.v. sé minna gert úr þeim í
fjölmiðlum. Þeir menn og þau fyrir-
tæki eru til hér, sem hyggja gott
til framtíðarinnar á Vestfjörðum,
þrátt fyrir allt, og stefna ekki á
brottflutning í sæluna eða hvað það
nú er fyrir sunnan. Nokkur vitnis-
burður þess birtist á Atvinnuvega-
sýningu Vestfjarða, sem haldin
verður í fyrsta sinn í íþróttahúsinu
á Torfnesi á ísafirði nú um helgina.
Einhveijir kunna að segja, að það
sé tímaskekkja að halda slíka sýn-
ingu á þessum tíma, í skugga alls
þess sem áðan var talið upp, hvað
þá rétt á meðan hinar harðvítugu,
sérvestfirsku og landsfrægu vinnu-
deilur standa yfir. Er þetta yfirleitt
nokkur glóra?
Jú, þeir eru til sem trúa því að
erfiðleikarnir gangi yfir, Vestfirð-
ingum takist að laga sig að breytt-
um aðstæðum, jafnvægi skapist og
ástandið fari að batna á ný. I þeirri
trú var sl. vetur stofnað Atvinnu-
þróunarfélag Vestfjarða hf., en að
því standa fyrirtæki, einstaklingar,
félög, stofnanir og sveitarfélög á
Vestfjörðum. Hjá félaginu starfar
sérmenntað fólk, sem veitir þjón-
ustu fólki og fyrirtækjum um allan
fjórðunginn. Þótt félagið sé enn
aðeins liðlega hálfs árs gamalt, er
mörgu búið að koma í verk og
margt í deiglunni. Þau störf hafa
reyndar ekki öll farið mjög hátt eða
verið sérlega áberandi.
Atvinnuvegasýning Vestíjarða,
sem haldin verður á ísafirði um
helgina að forgöngu félagsins, er
þar nokkur undantekning. Þar
verða saman komin um sextíu vest-
firsk fyrirtæki og kynna vörur sínar
og þjónustu og framtíðarvonir.
Sýningin er haldin í þeirri trú og
reyndar vissu þeirra sem að hcnni
standa, að hún sé ekki tíma-
skekkja, heldur þvert á móti ákaf-
lega tímabær.
Björn Garðarsson er
verkcfnisstjóri
Atvinnuvegasýningar Vestfjarða
1997 og Hlynur Þór Magnússon
hefur tekið þátt í undirbúningi
sýningarinnar.
Practical 3ja dyra Hatcback. Verð kr. 1.249.ooo
Kynntu þér einnig hinar 3 gerðirnar ítarlegar upplýsingar um
í MAZDA 323 fjölskyldunni!
Umboðsmenn: Akranes: Bflás sf. • ísafjörður: Bflatangi ehf. • Akureyri: BSA hf.
Egilsstaðir: Bílasalan Fell • Selfoss: Betri bílasalan • Vestmannaeyjar: Bifreiðaverkstæði Muggs