Morgunblaðið - 06.06.1997, Side 42
-*42 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
BRIPS
llmsjón Arnór G.
Ragnarsson
Heimstvímenningurinn um
helgina
Alheirnstvímenningurinn, sem
kenndur er við Alcatel, fer fram
nú um helgina. Þetta mót fer fram
víðs vegar um heiminn á sama tíma
og er búist við að um 130 þúsund
pör taki þátt
Spilað verður á þremur stöðum
hér á landi í kvöld, föstudagskvöld,
í Reykjavík að Þönglabakka 1, á
Akureyri og Egilsstöðum og hefst
spilamennska kl. 19. Þá verður
einnig spilað á Iaugardaginn í
Reykjavík og hefst spilamennska
^ kl. 12.
Spilaður verður tvímenningur
með Michellfyrirkomulagi og fer
skráning fram á staðnum. Allir
keppendur fá bækling með spilun-
um, fyrirgjöfinni og athugasemdum
um spilin frá heimsþekktum spilur-
um. Keppnisgjald verður 1.500
krónur á par.
★
• Tölvutengt tímaskráningar- og
aðgangskerfi.
• Þægilegt og einfalt í meðförum
• Fjárfesting sem borgar sig
j. nsTvniDssoN hf.
Skipholti 33,103 Reykjavík. sími 533 3535
Heimur
Guðríðar
vestur um
land
FYRRI hluta júnímánaðar verður
farið með leikritið Heimur Guðríðar
- síðasta heimsókn Guðríðar Sím-
onardóttur í kirkju Hallgríms eftir
Steinunni Jóhannesdóttur vestur
um land um Stykkishólm til Bíldu-
dals og Dýrafjarðar.
Fyrsta sýningin verður í Stykkis-
hólmskirkju mánudaginn 9. júní.
Sýnt verður í Bíldudalskirkju þriðju-
daginn 10. júní og í Mýrakirkju í
Dýrafirði miðvikkudaginn 11. júní
en Mýrakirkja á hundrað ára af-
mæli í sumar. Sýningar hefjast kl.
21 alla dagana.
Leikritið Heimur Guðríðar var
frumsýnd á Kirkjulistahátíð í
Reykjavík í júní 1995 og hefur því
verið sýnt í tvö ár í fjölmörgum
kirkjum víða um land og í páskavik-
unni í kirkju íslenska safnaðarins í
London.
Með helstu hlutverk fara Margrét
Guðmunsdóttir og Helga Elínborg
Jónsdóttir sem báðar leika Guðriði
á ólíkum æviskeiðum og Þröstur
Leó Gunnarsson sem er í hlutverki
Hallgríms. Tónlist er eftir Hörð
Askelsson en búninga gerði Elín
Edda Árnadóttir. Höfundur leikrit-
isins, Steinunn Jóhannesdóttir, er
einnig leikstjóri sýningarinnar.
Stuðningnr
við ASV
STJÓRN Bandalags háskólamanna
lýsir yfir stuðningi við baráttu
verkalýðsfélaga á Vestfjörðum fyrir
bættum kjörum félagsmanna sinna.
Stjórn bandalagsins skorar á at-
vinnrekendur að draga verkfallið
ekki lengur og semja strax við
verkafólk á Vestfjörðum.
Sýningum lýkur
í Nýlistasafninu
SÝNINGUM Birgis Snæbjörns
Birgissonar og Sigtryggs Bjarna
Baldvinssonar í Nýlistasafninu við
Vatnsstíg 3b í Reykjavík lýkur
sunnudaginn 8. júní. Sýningu Haf-
steins Austmapns í setustofunni,
Jóns Gunnars Árnasonar og Péturs
Arnars Friðrikssonar í Bjarta og
Svarta sal lýkur ennfremur sama
dag.
Birgir og Sigtryggur sýna Tvær
víddir. Á sýningunni eru málverk
og teikningar unnar á sl. tveimur
árum, þar á meðal verk sem lista-
mennirnir hafa unnið saman. í
Bjarta sal er til sýnis verkið Blómið
eftir Jón Gunnar Árnason og í
Svarta sal sýnir Pétur Öm Friðriks-
sonar leikritið Tempest eða Ofviðrið
eftir William Shakespeare. Flytj-
endur eru hópur úreltra tölva. Haf-
steinn Austmann, gestur safnsins,
sýnir vatnslitamyndir í setustofu.
Sýningarnar eru opnar alla daga
nema mánudaga kl. 14-18. Þeim
lýkur sunnudaginn 8. júní.
Mikið vantar á
að allir spenni
bílbeltin
BIFREIÐATRYGGINGAFÉLÖGIN
og Umferðarráð leggja um þessar
mundir ríka áherslu á að hvetja
ökumenn og farþega bifreiða til að
nota bílbelti. Það er gert í sam-
starfi við ýmsa aðila, s.s. lögreglu,
Slysavamafélag íslands og Bind-
indisfélag ökumanna, samkvæmt
fréttatilkynningu frá tryggingafé-
lögum og Umferðarráði.
„í könnun sem gerð var á bíl-
beltanotkun sl. föstudag á átta
stöðum á landinu kom í ljós að
aðeins rúmlega 53% bílstjóra nota
bílbelti. Best var ástandið í Mos-
fellsbæ en þar voru 75,4% öku-
manna með beltin spennt en lakast
í Bolungarvík 32%. í Reykjavík
voru 60% ökumanna með beltin
spennt. Notkunin meðal farþega í
framsæti var einnig mest í Mos-
fellsbæ og sömuleiðis minnst í
Bolungarvík. Á báðum stöðum not-
uðu fleiri farþegar en ökumenn
beltin," segir þar.
Almenningur „keppir“
í Smáþjóðaleikunum
Kynslóðahlaup
1-2-3
Á LOKADEGI Smáþjóðaleikanna,
laugardaginn 7. júní, gefst almenn-
ingi kostur á að taka þátt í Smá-
þjóðaleikunum. Skipulagt hefur
verið almenningshlaup um Laug-
ardalinn þar sem boðið verður upp
á stuttar hlaupaleiðir; 1 km, 3 km
og 5 km.
„Allir þátttakendur fá drykk, bol
og sérhannaðan verðlaunapening
með merki Ólympíuleikanna,
ólympíuhringjunum," segir í frétta-
tilkynningu.
Áð hlaupi loknu verður þátttak-
endum sérstaklega boðið að vera
viðstaddir lokaathöfn leikanna.
Skráning verður undir stúku Laug-
ardalsvallar frá kl. 16 á hlaupadag.
Upphitun hefst kl. 18 og hlaupið
sjálft kl. 18.15.
Sérstök verðlaun verða fyrir þá
fjölskyldu sem á sem flesta ættliði
meðal þátttakenda í Kynslóða-
hlaupinu," segir ennfremur.
Sýningar í g-all-
erí Sýnirými
ÞORBJÖRG Þorvaldsdóttir opnar á
morgun, laugardag, sýningu í gall-
erí Sýniboxi við Vatnsstíg.
í gallerí Barmi sýnir Puerto Ric-
aninn Marxz Rosado verkið „the
Memorial Cookbook" sem er eins-
konar festa fyrir slæm atvik svo
þau geti orðið að ríkum hugmynda-
brunni. Berendur Barms eru lista-
maðurinn sjálfur, ítalinn Angela,
japaninn Takami og tælendingur-
inn Plois. í símsvaragalleríinu
Hlust (s. 551 4348) kynnir Oliver
Kochta „City Simulation Reykjavík
2300“ eða niðurstöður tölvuunnins
borgar-hermis sem byggður er á
nýútgefnu aðalskipulagi borgar-
skipulags.
I gallerí 20 fm sýnir nú Tumi
Magnússon. Næsta helgi er síðasta
sýninarhelgi og lýkur sýningu hans
á sunnuddag. Gallerði 20 fm er
opið frá kl. 15-18 miðvikudaga til
sunnudaga.
Síðasta sýning-
arhelgi í Gerð-
arsafni
SÝNINGU á verkum norsku lista-
konunnar Önnu-Evu Bergman, sem
lést árið 1987, lýkur í Listasafni
Kópavogs nú um helgina.
Þótt Anna-Eva starfaði mest-an
hluta ævi sinnar í Frakklandi eru
verk hennar sprottin úr norskri
náttúru sem listakonan stílfærir til
hins ýtrasta uns eftir standa grunn-
formin ein, haf, firðir, bátar, fjöll,
steinar og dulmagnað ljós norðurs-
ins.
Sýning þessi er hingað komin að
frumkvæði Stofnunar Hartung-
Bergman í Antibes í Suður-Frakk-
landi og Norska sendiráðsins.
Sumarferð
Hafnarfjarðar-
kirkju
SUMARFERÐ Hafnarfjarðarkirkju
til Þingvalla verður farin sunnudag-
inn 8. júní. Lagt verður af stað með
rútu kl. 11 frá Hafnarfjarðarkirkju.
„Gengið verður niður á Þingvöll
frá Leynistíg. Sr. Heimir Steinsson
leiðir gesti um Þingvöll og til guðs-
þjónustu í Þingvallakirkju kl. 14.
Áætluð heimkoma er kl. 16. Leið-
sögumaður ferðarinnar er sr. Þór-
hallur Heimisson. Allir eru vel-
komnir og ferðin er í boði safnaðar-
ins. Ferðalangar eru beðnir að taka
með sér nesti því áð verður í grænni
lautu fyrir guðsþjónustu, segir í
fréttatilkynningu.
Dansleikur á
Ingólfstorgi
BOÐIÐ upp í dans er yfirskrift
dansleikjar sem Samtök áhugafólks
um almenna dansþátttöku, Komið
og dansið, standa fyrir á Ingólfs-
torgi sunnudaginn 8. júní kl. 14-16.
„Tilgangurinn er að glæða mið-
borgarlífið tónlist og dansi stutta
stund og eru Reykvikingar hvattir
til að leggja leið sína í bæinn og
horfa, hlusta og taka þátt í dansin-
um,“ segir í fréttatilkynningu.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Aðalstræti 1, Þingeyri, þingl. eig. Fáfnir ehf., gerðarbeiðendur Lífeyr-
issjóður Vestfirðinga og Vátryggingaféiag (slands hf., föstudaginn
13. júní 1997 kl. 14.00.
Aðalstraeti 13, 0201, ísafirði, þingl. eig. Hálfdán Daði Hinriksson, gerð-
arbeiðendur db. Björgúlfs Rúnars Ólafssonar, Samvinnulífeyrissjóður-
inn, Stilling ehf. og þb. Skipasmíðastöðvar Marsellíusar efh., föstudag-
inn 13. júní 1997 kl. 10.00.
Aðalstræti 32, 0201, ísafirði, þingl. eig. Gíslina Kristin Gisladóttir og
Rögnvaldur Ólafsson, gerðarbeiðandi (safjarðarbær, föstudaginn
13. júní 1997 kl. 10.30.
Brekkugata 26, Þingeyri, þingl. eig. Kaupfélag Dýrfirðinga, gerðarbeið-
andi Vátryggingafélag íslands hf., föstudaginn 13. júní 1997 kl. 14.30.
Hafnarstræti 7, Þingeyri, þingl. eig. Kaupfélag Dýrfirðinga, gerðarbeið-
* endur Lífeyrissjóður Vestfirðinga og Vátryggingafélag íslands hf.,
föstudaginn 13. júní 1997 kl. 15.00.
Vallargata 14, Þingeyri, þingl. eig. Leiguibúðanefnd Þingeyrarhrepps,
gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður Vestfirðinga, föstudaginn 13. júní 1997
kl. 15.30.
Sýslumaðurinn á fsafirði,
5. júní 1997.
KENNSLA
Frá Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti
■nnritun lýkur í dag
Sérstök athygli er vakin á:
Heimilisrekstrarbraut, rafiðnabraut, sjúkraliða-
braut, tréiðnabraut og viðskiptanámi.
Skólameistari.
■■■■■■■■■
Fræðslumiðstöð
Reykjarákur
Innritun
í Grunnskóla Reykjavíkur
Foreldrar barna, sem flytjast milli skóla í
Reykjavík á næsta skólaári, eru minntir á að
tilkynna það til þess skóla sem barnið flyst í
fyrir 13. júní nk. Þetta á við um þá nemendur,
sem þurfa að skipta um skóla vegna breytinga
á búsetu innan borgarinnar, en einnig þá, sem
flytjast til Reykjavíkur úr öðrum sveitarfélögum
eða koma úr einkaskólum. Þá nemendahópa,
sem flytjast í heild milli skóla að loknum
7. bekk, þarf ekki að innrita.
Foreldrar 6 ára þarna, sem enn eru óskráð, eru
minntir á að hafa samband við viðkomandi
skóla fyrir 13. júní nk.
• Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Simi: (+354) 535 5000
• Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is
Tónlistarkennarar athugið
Samnorrænt námskeið fyrir kennara í jazz- og
rokktónlist verður haldið í Svalöv í Svíþjóð
dagana 4. til 8. ágúst nk.
Áhugasamir hafi samband við Tónlistarskóla
FÍH í síma 588 8255 eða Stefán S. Stefánsson
í talhólf 881 3868.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Dagsferðir
Ferdafálags íslands
1) Kl. 9.00: Á söguslóðir
Njálu. Leiðsögumaður: Ragn-
heiður Erla Bjarnadóttir. Atburðii
í Njálu rifjaðir upp um leið oc
komið verður við á helstu sögu-
stööum. Fróðleg ferð á vit fortíð-
ar. Verð kr. 2.500.
2) Kl. 20.00: Kvöldganga á
Esju (Kerhólakambur 856 m).
Fararstjóri: Sigrún Huld Þor-
grímsdóttir.
Sunnudagur 8. júní:
1) Kl. 10.30: Botnadalur —
Nesjahraun — Grámelur.
2. áfangi í 70 km göngu. Verð kr.
1.200. Fararstjóri Björn Finnsson.
2) Kl. 13.00: Hengilssvæðið,
eyðibýli og sel (Gamla sel við
Selhól og Nýjasel við Sel-
tungur). Verð kr. 1.200. Farar-
stjóri: Sigurður Hannesson á
Villingavatni.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin og Mörkinni 6.
KENNSLA
Haldið verður nuddnámskeið
helgina 13.-15. júní nk.
Kenndur verður grunnur í nudd-
tækni bæði til heimanota og til
frekara náms. Upplýsingar hjá
Guðrúnu í síma 588 3881.
Ilitt blað
firir alla!
- kjarni málsins!