Morgunblaðið - 30.07.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.07.1997, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 170. TBL. 85. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Rússland Fjármála- menn „í stríði“ við stjórnina Moskvu. Reuter. RÚSSNESKA stjómin var í gær sögð standa frammi fyrir „algjöru stríði“ við öfluga fjármálamenn, sem studdu Borís Jeltsín forseta í kosningabaráttunni á liðnu ári. Fjölmiðlar undir stjórn fjármála- mannanna gerðu harða hríð að nokkrum valdamiklum ráðherrum vegna deilna um sölu ríkiseigna og sökuðu þá um spillingu. Fjölmiðlarnir beindu einkum spjótum sínum að Borís Nemtsov, aðstoðarforsætisráðherra og líklegu forsetaefni í næstu kosningum, vegna sölu á fjórðungs hlut í fjar- skiptafyrirtækinu Svjazinvest á föstudag. Nokkur fyrirtæki, undir forystu Vladímírs Potaníns, fvrr- verandi ráðherra og bankastjóra Uneximbank, þriðja stærsta banka landsins, hrepptu hlutabréfm ásamt bandaríska fjármálamanninum George Soros. „Ræningjakapítalismi" Nemtsov brást harkalega við gagnrýninni og sakaði fjármála- mennina um „ræningjakapítalisma" og „kúgun með hjálp fjölmiðla". Viðskiptablaðið Kommersant lýsti erjunum sem „algjöru stríði" og heimildarmenn í Kreml sögðu að það væri nú forgangsverkefni stjómarinnar að leiða þær til lykta. Deilan hefur gert að engu þá litlu samstöðu sem hefur verið meðal hóps fjármálamanna, sem fylktu sér um Jeltsín í kosningabaráttunni. Hermt er að í staðinn hafí þeir feng- ið eignir ríkisins, einkum olíufyrir- tæki, á hagstæðu verði. Samskipti fjármálamannanna hafa hins vegar farið síversnandi að undanfórnu og nokkur ágreiningsmál vegna sölu ríkiseigna bíða nú dóms. Heimildarmaður í Kreml sagði það mikið áhyggjuefni hversu margir bankar og fjölmiðlar væru að snúast gegn stjórninni vegna togstreitu fjármálamannanna og Potaníns. Ástandið í Norður-Kóreu sagt minna á hungursneyð í Afríkuríkjum „Lýsandi dæmi um einingu Þjóðverja“ Hohenwutzen, Búkarest, Varsjá. Reuter. HELMUT Kohl Þýzkalandskanzl- ari heimsótti í gær byggðarlög við austurlandamæri Þýzkalands sem ógnað er af flóðahættu og sagði við það tækifæri að hið mikla átak sem hermenn, sjálfboðaliðar og íbúar svæðisins hefðu lagt á sig til að við- halda flóðvamargörðum væri lýsandi dæmi um einingu þjóðarinn- ar eftir sameiningu Þýzkalands. Unnið var áfram að því hörðum höndum í gær að styrkja vatnsósa vamargarða á báðum bökkum Oder-fljóts, sem markar landamæri Þýzkalands og Póllands, þar sem enn var búizt við nýrri flóðbylgju í ánni um nóttina. „Hér verðum við að sýna í verki að Þýzkaland er eitt,“ sagði Kohl þegar hann stóð á varnargarði við þorpið Hohenwutzen, sem 700 her- menn og sjálfboðaliðar vom að styrkja. Hundruð manna flýja flóð í Úkraínu og Rúmeniu Mikil úrkoma vestast í Úkraínu og Rúmeníu hefur á síðustu sólar- hringum valdið flóðum þar. Átta hundrað manns þurftu að flýja heimili sín í nágrenni Lviv (Lem- berg), skammt frá landamærum Úkraínu við Pólland, og fleiri en 1.000 vora fluttir brott úr húsum sínum í Rúmeniu, nálægt ósum Dónár, þar sem flætt hefur yfir meira en 1.000 hektara ræktar- lands. Pólska ríkisstjómin kunngerði í gær fleiri atriði í áætlun sinni um hvemig byggðarlögum á flóðasvæð- unum verði komið til hjálpar. Sam- kvæmt áætluninni stendur til að lag- færa 150 skóla innan mánaðar, þeg- ar sumarleyfum skólabama lýkur. Aleksandra Jakubowska, tals- maður stjórnarinnar, sagði að aðal- áherzla yrði lögð á að koma opin- berum byggingum í stand, svo sem skólum, sjúkrahúsum, dómhúsum, skrifstofum héraðsstjóma og bóka- söfnum. ■ íshafsloft/18 Milljónir manna svelta Seoul. Reuter. AÐ MINNSTA kosti fímm milljónir manna í Norður-Kóreu svelta heilu hungi-i og ástandið í landinu er að verða svipað og var í Sómalíu og Eþíópíu á sín- um tíma. Kom þetta fram hjá formanni hjálparstofnunar í Seoul í S-Kóreu í gær. Ted Yamamori, formaður alþjóðlegra hjálparsamtaka, sem kallast „Matur fyr- ir hungraða", sagði að lokinni ferð um Norður-Kóreu, að vannæring væri út- breidd um landið allt og biði dauðinn margra ef erlend ríki kæmu ekki til hjálpar. Sagði hann, að starfsmenn hjálparstofnana væru sammála um, að verst væri ástandið hjá fimm milljónum manna eða tæplega fjórðungi þjóðarinn- ar. Vannærð börn „Allt að helmingur þeirra bama, sem ég sá á leikskólum, bar merki alvarlegr- ar vannæringar. Þau vora skinhoruð, hárið með brúnni slikju, doðaleg og aug- un starandi," sagði Yamamori og hafði eftir norður-kóreskum embættismönn- um, að þurrkamir í landinu í sumar hefðu haft alvarlegar afleiðingar fyrir um fímmtung ræktarlandsins. „Ástandið í Norður-Kóreu virðist svipað og þegar hungursneyðin var mest í Eþíópíu og Sómalíu en fólkið þjá- ist eitt þar sem kastljós fjölmiðlanna nær ekki til þess,“ sagði Yamamori. Síðustu tvö sumur eyðilögðu mikil flóð verulegan hluta uppskerunnar en að þessu sinni er það langvarandi þurrkur og mikill hiti, sem vandræðunum valda. Norður-kóreskir embættismenn telja, að landsmenn þurfí að fá um 800.000 tonn af korni til að brúa bilið fram að uppskerunni í október. Suður-kóreskir embættismenn telja, að ástandið í Norður-Kóreu sé ekki al- veg jafn slæmt og af er látið. Segja þeir, að vissulega svelti fólk á sumum svæð- um en það megi fyrst og fremst rekja til ófullkomins samgöngukerfis. Reuter VANNÆRT barn á leikskóla í Kang- won-héraði. Reuter Garðarnir styrktir ÞÝSKIR hermenn hlaða varn- argarð úr sandpokum sem ætl- að er að veija þorp í austur- hluta Þýskalands ef aðalflóð- garðarnir við Oder-fljót bresta. Á minni myndinni ræðir Helmut Kohl, kanslari Þýska- lands, við embættismann, sem stjórnar björgunarstarfinu, og bendir á kort af flóðasvæðinu. Þýzkalandskanzlari kynnir sér björgunarstarfíð við Oder Hörð valda- barátta í Kína Peking. Reuter. HÁTTSETTUR embættismað- ur í Kína hefur skýrt frá því að arftakar Dengs Xiaopings eigi nú í harðri valdabaráttu við andstæðinga umbótastefnu hans fyrir flokksþing kín- verskra kommúnista sem verð- ur haldið seint í september eða í bytjun október. Þetta er í fyrsta sinn sem skýrt er frá því opinberlega eftir andlát Dengs í febrúar að hörð andstaða sé við mark- aðsumbætumar sem hann hóf árið 1978. Tekist á við „vinstrimenn“ Xing Bensi, helsti ráðgjafi Jiangs Zemins forseta og leið- toga kínverska kommúnista- flokksins, sagði í viðtali, sem birt var á forsíðu dagblaðs í Peking, að forystu flokksins stafaði mikil hætta af andstæð- ingum efnahagsumbótanna, sem telja þær ganga í berhögg við marxismann. „Þetta er ekki vandamál sem snýst um lítinn hóp manna, heldur setur það okkur í mikinn vanda ... Það hefur ekki náðst samstaða inn- an og utan flokksins." Forystumenn kommúnista- flokksins hafa hingað til gætt þess að ræða ekki slíkar deilur opinberlega til að láta líta út fyrir að algjör eining sé innan flokksins þrátt fyrir miklar erj- ur á bak við tjöldin. Flokksfor- ystan er nú á árlegum fundi og ljóst þykir að deilurnar þar séu enn harðari en venjulega þar sem verið er að undirbúa flokksþingið, sem er haldið á fímm ára fresti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.