Morgunblaðið - 30.07.1997, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LISTA97
SUMAR
AKUREYRI
Skapandi
skrif
BJÖRG Arnadóttir, blaðamaður og
kennari, er aðaileiðbeinandi á nám-
skeiðinu Skapandi skrif, sem efnt
verður til í Deiglunni á Akureyri
um verslunarmannahelgina. Björg
hefur hefur um árabil kennt fólki
að ná betri tökum á skrifum sínum.
Námskeiðið er tilvalið fyrir þá
sem skrifa fyrir skúffuna, eða þá
sem langar að skrifa en þora ekki
og líka þá sem bæði þora og geta
en vilja gjarnan bæta sig.
Námskeiðið stendur yfir um
verslunarmannahelgina, er tuttugu
tíma langt og hefst kl. 20. næst-
komandi föstudagskvöld, 1. ágúst.
Þórarinn Eldjárn heimsækir nám-
skeiðið og spjallar við þátttakendur
um listina að skrifa. Námskeiðs-
gjald er 4.000 krónur. Takmarkað-
ur fjöldi kemst að, en skráning
stendur yfir hjá Gilfélaginu í Deigl-
unni.
----» ------
Ferðir milli
tjaldstæða
STRÆTISVAGNAR Akureyrar
verða með sérstakt leiðakerfi í
gangi um næstu helgi, verslunar-
mannahelgina. Vagnar ganga milli
tjaldstæðanna í Kjarnaskógi, á
íþróttasvæði KA og Þórs og til mið-
bæjarins.
Vagn ekur á klukkustundarfresti
frá kl. 10 að morgni til kl. 5 að
morgni frá föstudegi til sunnudags.
Vagninn fer frá Ráðhústorgi tíu
mínútum fyrir heilan tíma og er í
Kjarnaskógi á heila tímanum,
fimmtán mínútum síðar er hann
aftur á Ráðhústorgi. A KA-svæðinu
verður vagninn 22 mínútur yfir
heilan tíma og 35 mínútur yfir á
íþróttasvæði Þórs.
Eftir kl. 22 verða ferðir á hálf-
tímafresti fram til kl. 5 að morgni.
Upplýsingum um ferðir vagnanna
verður komið upp í biðskýli við
Ráðhústorg.
----» ♦ ♦---
Siggi Illuga í
Selinu
TRÚBADORINN Siggi Illuga held-
ur uppi fjörinu í Selinu í Mývatns-
sveit um komandi helgi, en hann
leikur þar bæði á laugardags- og
sunnudagskvöld.
Einbýlishús
Þórshöfn
Einbýlishúsið á
Vesturgötu 11,
Þórshöfn, er til sölu.
Stærð um 110 fm.
Bílskúr 21 fm. Byggt árið
1955. Verð 3,5 millj.
Fasteigna- og skipasala
Norðurlands, Akureyri,
sími 461 1500.
AKUREYRI
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
ÁRNI Steinar Jóhannsson umhverfisstjóri og Kara Guðrún Melsteð í framkvæmdanefnd hátíðarinn-
ar Halló Akureyri afhentu Vigni Þormóðssyni, eiganda Kaffi Kversins, kúst og ruslapoka sem
væntanlega koma sér vel við hreinsun um verslunarmannahelgina.
Umhverfisátak í miðbæ Akureyrar
Kústum og ruslapok-
um dreift í fyrirtæki
UMHVERFISDEILD Akureyrar-
bæjar og framkvæmdanefnd um
flölskylduhátíðina Halló Akureyri
hafa hrint af stað hvatningarátaki
sem beint er að eigendum fyrir-
tækja, verslana og matsölustaða
í miðbæ Akureyrar, en það miðar
að því að halda miðbænum sem
snyrtilegustum um verslunar-
mannahelgina og um ókomna tíð.
Árni Steinar Jóhannsson um-
hverfisstjóri sagði að eigendum
þeirra verslana, fyrirtækja og
matsölustaða sem taka þátt í
Halló Akureyri yrði á næstu dög-
um afhentur heilmikill kústur og
rúlla með ruslapokum. „Með þessu
framtaki vonum við að hugarfars-
breyting fylgi í kjölfarið, að fólk
hreinsi ekki aðeins til innandyra
heldur líka sitt nánasta umhverfi.
Með samstilltu átaki getum við
lyft grettistaki og við stefnum að
því að ástand mála í miðbænum
komist í betra horf,“ sagði Arni
Steinar.
Alls verður um 30 strákústum
dreift á miðbæjarsvæðinu, en það
er Olís sem gefur þá og jafnmörg-
um rúllum af ruslapokum sem
Akoplast gefur. Einnig verður
þessum nauðsynjahlutum dreift á
tjaldstæði í bænum. Og að sjálf-
sögðu verður fólk hvatt til að nota
þessa hluti óspart.
Gallerí
Allra-
Handa
hættir
GALLERÍ AllraHanda í Gróf-
argili hættir starfsemi í lok
vikunnar, föstudaginn 31. júlí
næstkomandi.
Þórey Eyþórsdóttir hefur
rekið galleríið í rúman ára-
tug, fyrst í Brekkugötu 5 og
svo í mjólkursamlagshúsinu í
Grófargili síðustu ár og hefur
hún á þeim tíma annast sölu
listmuna fyrir fjölda lista-
manna. Þá sagðist Þórey
einnig hafa notið ánægju-
legra samskipta við mikinn
fjölda listunnenda og við-
skiptavina sem lagt hafa leið
sína í Gallerí AllraHanda til
að kynna sér verk listamanna
eða festa kaup á listmunum.
Flyst af landi brott
Þórey segist hafa haft
mikla ánægju af þeim mann-
legu samskiptum sem starf-
inu fylgja. Nú hafi hún hins
vegar ákveðið að breyta til
og mun flytjast til útlanda í
haust. Hún mun því hætta
að annast miðlun listar og
sölu listmuna hér á landi og
lætur af störfum í Gallerí
Allra Handa næstkomandi
föstudag, 31 .júlín.
Vildi Þórey á þessum tíma-
mótum þakka þeim Ijölmörgu
sem hún hefur átt samskipti
við, listafólki, áhugafólki um
myndlist og listmuni og við-
skiptavinum sínum ánægju-
leg samskipti á liðnum árum.
Morgunblaðið/Guðmundur Þór
Neyðarskýli
Björgunarsveitin Tindur í Ólafs-
firði setti upp nýtt slysavarna-
skýli í Hvanndölum á mánudag,
og kemur það í stað eldra skýlis
sem sett var þarna fyrir 50 árum.
Skýlið var flutt með Chinnook-
þyrlu bandariska hersin sem er
hér á landi í tilefni af heræfing-
unni Samverði 97. Björgunar-
sveitarmenn hafa að undanförnu
unnið að smíði neyðarskýlisins.
í Hvanndali
Þyrlan sinnti fleiri verkefn-
um I Eyjafirði, flutti m.a. leifar
af brú sem félagsmenn í Ferð-
afélagi Akureyrar höfðu smíð-
að og sett yfir Glerá skammt
frá Lamba, einum skála félag-
ins. Brúin eyðilagðist vegna
snjóþynglsa og var búið að taka
brotin saman í búnt sem þyrlan
flutti á öskuhauga ofan Akur-
eyrar.
Morgunblaðið/Benjamín
Riðið til messu að Grund
Eyjafjarðarsveit. Morgunblaðið.
HESTAMANNAFÉLAGIÐ Funi
í Eyjafirði gengst árlega fyrir
svokallaðri messureið, en þá
taka hestamenn úr félaginu sig
saman og ríða til messu. Sex
kirkjur eru á félagssvæðinu, í
Kaupangi, Munkaþverá, Möðru-
völlum, Hólum, Saurbæ og á
Grund, en þar var rnessað að
þessu sinni. Sóknarpresturinn
séra Hannes Örn Blandon préd-
ikaði. Hestamenn sungu sjálfir
sálmana við undirleik Þórdísar
Karlsdóttur.
Að lokinni kaffidrykkju
stilltu hestamenn sér upp við
Grundarkirkju áður en haldið
var heim á leið.
Húsdýrag’arður
í Blómavali
BLÓMAVAL mun gera Akureyring-
um og gestum þeirra glaðan dag
um komandi verslunarmannahelgi.
Settur verður upp húsdýragarður
við blómaskálann þar sem börn á
öllum aldri geta litið fiest þau hús-
dýr sem til eru í sveitum landsins.
Fréttaljósmyndasýningin „Mað-
urinn í náttúrunni", farandsýning
Okkar manna, félags fréttaritara
Morgunblaðsins, verður í Blómavali
um helgina.
Djassleikararnir Stefán Ingólfs-
son, kontrabassa, og Ómar Einars-
son, gítar, munu halda uppi ljúfn
stemmningu í Café Turninum á
kvöldin. Þar getur fjölskyldan notið
veitinga í notalegu umhverfi gróð-
urs og útsýnis yfir Pollinn og Vaðla-
heiðina. Ymis tilboð verða í gangi
fyrir utan hefðbundinn matseðil
hússins.
Café Turninn í Blómavali er op-
inn frá kl. 10 til 23.30.
H
l
ú
c
c
í
i
I
í
A
A
í
<
<
(
I
i
<
i
i
i
l
1