Morgunblaðið - 30.07.1997, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ1997 21
LISTIR
Leikhúsvíma
í London
Það eru ekki margir íslendingar sem hafa
menntað sig í sýningarstjóm, það mætti
líklega telja þá á fíngrum sér. Sólveig Elín
Þórhallsdóttir er að ljúka tveggja ára
námi í þeim virta skóla Central School of
Speach and Drama og hlakkar mikið til
að hefjast handa í leikhúsunum. Sóiin
skein í heiði þegar Dagur Gunnarsson
hitti Sólveigu í Camden Town og þau
röbbuðu saman yfír kaffíbolla.
Morgunblaðið/Dagur Gunnarsson
SÓLVEIG Elín Þórhallsdóttir.
AÐ gerðist bara eins og svo
margt annað, eitt leiðir af
öðru og allt í einu er maður
orðinn sýningarstjóri," segir Sól-
veig Elín Þórhallsdóttir þegar hún
er spurð hvers vegna hún hóf nám
í sýningarstjóm. „Ég hafði mikinn
áhuga á að vinna í leikhúsi og eina
menntunin sem maður getur orðið
sér út um á því sviði á íslandi er
að verða leikari, en það er ekki
fyrir alla og hreint ekki auðvelt,
hafi maður áhuga á einhveiju öðru
sem tengist leikhúsi þá er ekki um
annað að ræða en að taka sér tak
og fara utan í nám.
Ég komst 5 kynni við Kristínu
Hauksdóttur sýningarstjóra í Þjóð-
leikhúsinu og fór þá að hugsa um
þetta nám, mér leist svo ansi vel
á þetta; að taka ábyrgð á leiksýn-
ingum og fá að vasast í þessu öllu.
Ég sótti um Central, fór i viðtal,
talaði voða mikið og komst inn,
það var eins gott því ég sótti ekki
um neina aðra skóla, sem var nátt-
úrulega full glæfralegt.“
- Ertu mjög stjórnsöm?
„Já, já, örugglega, ég veit að
systir mín myndi alveg taka undir
það en sýningarstjórn gengur
meira út á að passa að ekkert
gleymist, passa aðra, hafa yfirsýn,
minna á og muna eftir smáatriðum
mitt í allri ringulreiðinni fyrir frum-
sýningu o.s.frv."
- Hvaða eiginleika telur þú að
sýningarstjóri verði að hafa?
„Það skaðar náttúrulega ekki
að vera nákvæmur og samvisku-
samur en fyrst og fremst verður
maður að hafa áhuga á að vinna
í leikhúsi. Það er eitthvað undur-
samlegt sem gerist á frumsýningu
eftir margra vikna æfíngar, stress
og hlaup, þegar allt smellur sam-
an. Leikaramir eru komnir í bún-
ingana, ljósin og sviðsmyndin em
komin upp, þá stækkar allt og
maður skilur til hvers var erfiðað.
Þetta er eiginlega hálfgerð „leik-
húsvíma“ sem ég er að reyna að
lýsa.“
Hvert var lokaverkefnið þitt?
„Við settum upp Þrúgur
reiðinnar eftir John
Steinbeck, stór og mikil sýning, það
gekk ótrúlega vel að setja hana
upp. Það var mjög skemmtileg
reynsla að fá að kljást við svo viða-
mikla sýningu sem var jafnframt
lokaverkefnið hjá öllum deildum
skólans, þannig að.allir lögðust á
eitt að gera þetta að glæsilegri
sýningu."
- Hvers vegna London?
„Hér er svo löng hefð fyrir góðri
leiklist og vönduðum vinnubrögð-
um í faginu og skólarnir em mjög
góðir þótt skólagjöldin séu náttúm-
lega eftir því svimandi há.“
- Kanntu vel við þig í London?
„Já, já, ég hef búið héma í tvö
ár, en ég hef kannski ekki séð eins
mikið af borginni og ætla mætti,
því ég hef eytt nánast öllum stund-
um í skólanum og baksviðs á leik-
sýningum, innan skólans og utan.
London er frábær, það er svo mik-
ið um að vera hér og þá sérstak-
lega í leiklistinni en núna er ég
farin að sakna þess að geta ekki
andað að mér tæm lofti og dmkk-
ið bragðgott vatn eins og heima.“
- Hvert stefnirðu núna?
„Það er allt opið, það eru nokkur
smáverkefni í boði hér í Bretlandi
en ekkert svona til lengri tíma lit-
ið. Ég er í stöðugu reiptogi við
sjálfa mig, annars vegar langar
mig heim að reyna að fá vinnu sem
er nær fjölskyldu og vinum, hins
vegar langar mig líka að reyna
fyrir mér hér í hinni stóm London.
Ég veit ekki hvernig þetta fer.
Áður en ég geri upp hug minn fer
ég sem sýningarstjóri og ljósamað-
ur með The Icelandic Take Away
Theatre norður til Skotlands á
Edinborgarhátíðina með frumsam-
ið verk sem heitir Sítrónusystur."
Ég þakkaði Sólveigu fyrir spjall-
ið og óskaði henni góðs gengis í
framtíðinni hvort sem það yrði á
íslandi, Bretlandi, Mars eða ein-
hvers staðar annars staðar.
Alþjóðleg
tónsmíðakeppni
*
Islendingur
verðlaunaður
GEIR Rafnsson slagverksleikari
hlaut nýverið verðlaun í alþjóð-
legri tónsmíðakeppni, sem efnt
var til á vegum Percussive Arts
Society, en það
eru samtök
slagverksleik-
ara í Bandaríkj-
unum. Verð-
launaverk
Geirs nefnist
Hekla, einleiks-
verk fyrir mar
imbu, og lenti i
öðru sæti í
flokki einleiks-
verka, en fimmtíu verk hvað-
anæva úr heiminum voru sam-
þykkt til þátttöku í þeim hluta
keppninnar.
„Þessi verðlaun hafa mesta
þýðingu fyrir mig vegna kynn-
ingarinnar. Samtök slagverks-
leikara kynna verðlaunaverkin
mjög vel og í Bandaríkjunum er
mjög stór markaður og þá aukast
einnig möguleikarnir á útgáfu
verksins," sagði Geir í samtali við
Morgunblaðið.
Einleiksverkið Hekla verður
flutt á alþjóðlegri ráðstefnu slag-
verksleikara sem haldin verður á
vegum Percussive Arts Society
síðar á þessu ári. „Svo stefni ég
að því að spila þetta sjálfur, en
ég flutti verkið á lokaprófinu frá
skólanum í vor.“ Geir segir um
Heklu að lítið sé um eldgos í verk-
inu. „Þetta er miklu fremur lýs-
ing á þessu fallega fjalli og byij-
aði upphaflega sem tækniæfing
og svo var verkið farið að hljóma
svo íslenskt og skemmtilega að
ég réð ekkert við það.“
Geir Rafnsson er Akureyring-
ur og hóf nám sitt hjá Roari
Kvam árið 1984 í Tónlistarskóla
Akureyrar. Að loknu stúdents-
prófi frá MA hélt hann til náms
í Reykjavík á klassískri braut við
Tónlistarskóla FIH. Hann útskrif-
aðist árið 1994 og hélt þá til fram-
haldsnáms við Royal Northern
College of Music í Englandi. Það-
an lauk hann Postgraduate
Diploma í slagverksleik í vor.
Geir Rafnsson
Bjóðum nú GSM síma á veröi sem ekki hefur þekkst
hingað til... §m ^
pynO^ 1
250 9M
2 1
66 K\st;
Ao \
5 K'st-
03 k'St;
tolötí^'
\c\St;
»itU"»
, k'St;
ðtlrn'
1*10 k'SV;
toiðtíua*
erum
á íslandr
Stærsta heimilis-og Mittækjaverslunarkeöia IEvrópu
- ANNO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
VERIÐ VELKOMIN IVERSLUN OKKAR
“
l|il:
Iasc m
wBTs' ■ wm
•3
[8™? 1
|0_J