Morgunblaðið - 30.07.1997, Page 13

Morgunblaðið - 30.07.1997, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ LAIMDIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 1997 13 Morgunblaðið/Guðlaugur GENGIÐ var upp á Stöð (Brimlárhöfða) og niður í Sandvík. MARGIR sóttu Grundfirðinga heim og fögnuðu með heimamönnum. 150 áradrag- lampi meðal muna í krambúð Grundarfirði - í ár eru liðin 100 ár frá því að verslunarstaður var löggiltur í Grafarnesi við Grundarfjörð af Kristjáni IX. Var af því tilefni kosið í afmæl- isnefnd sem hóf undirbúning fyrir afmælisár í janúar og áveðið var að hafa hápunkt hátíðarhaldanna helgina 25.-27. júlí. í afmælisnefndinni eru Jó- hanna Halldórsdóttir, Ingi Hans Jónsson og Guðlaug Sturlaugs- dóttir. Hátíðin hófst föstudagskvöld- ið 25. júlí með því að Kirkjukór Grundarfjarðar hélt tilkomum- ikla tónleika i samkomuhúsinu undir stjórn Friðriks Vignis Stefánssonar. Kórinn frumflutti textann Grundarfjörður eftir Jóhann Þór Ragnarsson við lag- ið Capri-sveinar. Einnig frum- flutti Ólöf Hildur Jónsdóttir ásamt Höskuldi Reyni Höskulds- syni Minningu eftir þá Friðrik Vigni Stefánsson cg Jóhann Þór Ragnarsson sem samdi textann. Fjölmenni var á tónleikunum og kómum vel fagnað að tónleikum loknum. Laugardaginn 26. júlí var dagskrá í samkomuhúsinu þar sem Ingi Hans Jónsson flutti ávarp. Þá rakti Gunnar Krist- jánsson sögu staðarins síðustu 100 árin. Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri útnefndi heiðurs- borgara Eyrarsveitar fyrir hönd hreppsnefndar, og var það Bær- ing Cecilsson sem um áratuga- skeið hefur unnið að því í tóm- stundum sínum að festa á filmu atburði líðandi stundar í Eyrar- sveit og er það ómetanlegur fróðleikur fyrir Grundfirðinga um forfeður sína og fyrri tíð. Söngatriði frá kvöldinu áður voru endurtekin og Lionsmenn fluttu nokkur lög. Krambúðin var opnuð í samkomuhúsinu með gömlum munum í eigu staðarbúa. Þar mátti t.d. sjá 150 ára gamlan draglampa. Vakti búðin mikla eftirtekt, en það voru Kiwanisfélagar sem stóðu að því að setja hana upp. Ymislegt fleira var um að vera, m.a. götuleikhús, kassa- bílaralli, ljósmyndasýning Philippe Ricart, útidansleikur fyrir yngri kynslóðina fyrir utan veitingahúsið Kristján IX, hljómsveitin Á móti sól lék fyr- ir dansi og einnig skemmti hún þeim eldri innandyra seinna um kvöldið og harmonikkudans- leikur var í samkomhúsinu. Á sunnudaginn kom frú Vig- dís Finnbogadóttir og gróður- setti trjáplöntur á því svæði sem hún gróðursetti í fyrir 10 árum og fékk nafnið Vigdísarlundur. Eftir hádegi var gengið með leiðsögn Vilhjálms Péturssonar upp á Stöð (Brimlárhöfða) og niður í Sandvík þar sem algjör baðstrandarstemmning myndaðist. Lionsmenn grilluðu pylsur ofan í gesti og síðan var kveiktur varðeldur og sungið. Mikið fjölmenni var við allar uppákomur og voru margir gestir á svæðinu burtfluttir, og aðrir sem áttu ættir sínar að rekja til Grundarfjarðar eða vinafólk. Það sem gerði gæfu- muninn með vel lukkaða afmæl- ishátíð var góða veðrið. Fjöl- skyldu- vænn veiðistaður Kirkjubæjarklaustri - Nýjalón, sem er rétt við Kirkjubæjarklaust- ur, er vinsæll veiðistaður fyrir fjöl- skyldufólk. Þar er auðvelt að fara um, fáar hættur, jafnvel fyrir yngstu fjölskyldumeðlimi og um- hverfið afar heillandi. Nýjalón er búið til af manna höndum og í það er sleppt reglulega bæði bleikju og urriða úr eldisstöð, sem er í nágrenninu. Flestir fiskanna eru um 2 pund en þó sumir allt upp í 6 pund. Þessi mynd var tekin á dögunum þegar verið var að sleppa í lónið. Morgunblaðið/Hanna Sterk, létt og lofta vel ... Regnfatalínan X-RAIN 100% vatns- og vindhelt Öndunarefni Stærðir: S-XXL - 3 litir Verð kfr-97995 1997 FRÁ aguJ»sport® HOLLANDI Opið laugardaga kl. 10-14 (1) PÚSTSENDUM UM ALLT LAND mm R e i d h j ú I a ve rs I u n i n ORNINN0* SKEIFUNN111, SÍMI588 9890 TRAVEL REGNSETT 100% vatns- og vim * Taska fylgir Verð kr._6,57(T Nú kr. 4.603 ANCIENT 100% vatns- og vindhelt Stærðir: S-XXL 2 litir * Taska fylgir Verð kr. Nú kr. 6.806 FESTIVAL BARNAREGNSETT Stærðir: 4-10 ára -4 litir * Taska fylgir Verð kr. 3.-922" Verð nú kr. 2.745 CELTIC REGNSETT 100% vatns- og vindhelt Stærðir: S-XL - 2 litir * Taska fylgir Verð krr4Æ33 Verð nú kr. 3.452 PLANET UNIVERSE 100% vatns- og vindhelt Stærðir: S-XXL - 2 litir * Taska fylgir Verð krr^gtf5 Verð nú kr. 5.596

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.