Morgunblaðið - 30.07.1997, Page 16

Morgunblaðið - 30.07.1997, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Umboösaöilar um allt land Akranes: Versl. Perla • Borgarnes: Rafstofan Ólafsvlk: Litabúðin • Stykkishólmur: Heimahornið Patreksfjörður: Ástubúð • Isafjörður: Pjótur sf. Drangsnes: Kf. Steingrimsfj. • Hðlmavík: Kf. Steingrímsfj. Hvammstangi: Kf. V-Húnv. • Blönduðs: Kf. Húnvetninga Sauðárkrókur: Hegri • Siglufjörður: Apótek Siglufjarðar Ólafsfjörður: Versl. Valberg Akureyri: Versl. Vaggan, Sportver Húsavlk: Kf. Þingeyinga • Egilsstaðir: Kf. Héraðsbúa Neskaupsstaður: Lœkurinn • Eskifjörður: Esklkjör Höfn: Verslunln Lónið • Hvolsvöllur: Kf. Árnesinga Porlákshöfn: Rás hf. • Vestmannaeyjar: Tölvubær Garðun Raflagnavinnust. Sigurðar Ingvarssonar Keflavik: Bústoð • Grindavlk: Versl. Palóma Reykjavfk: Barnaheimur, Fatabúóin, Húsgagnahöllin, Marco, Versl. Hjólið (Eiðistorgi) ERLENT Reglum breytt um ræður Dana- drottningar DANSKA ríkisstjórnin samþykkti fyrr á þessu ári nýjar reglur um ræður er drottningin heldur. Felst í þeim að Danadrottning mun í framtíðinni ekki tjá sig um pólitísk málefni líðandi stundar. Samkomulag um þetta náðist milli fulltrúa danska forsætis- og utanríkisráðuneytisins en málið hafði komið til umræðu eftir að vandamál höfðu komið upp í tengslum við ræðu er drottning hélt er Lettlandsforseti kom í opin- bera heimsókn til Danmerkur. Danska forsætisráðuneytið fékk ræðuna til yfirlestrar og ákvað að stroka út kafla þar sem lýst er yfir stuðningi Dana við aðild Eyst- rasaltsríkjanna að Evrópusam- bandinu og NATO. Þótti þetta of viðkvæmt þar sem leiðtogar Bandaríkjanna og Rússlands hitt- ust á sama tíma i Helsinki. Ræðan hafði hins vegar þegar verið send út til fjölmiðla og kom því í ljós að hún hafði verið rit- skoðuð. Leiddi þetta til pólitískra deilna í Danmörku um það hversu víðtækar pólitískar yfirlýsingar drottning mætti vera með í ræðum sínum. Drottning tjái sig einungis um mál sem ekki eru í deiglunni i í i Niðurstaðan varð sú að settar hafa verið reglur um að drottning- in geti einungis tjáð sig um póli- tísk málefni, sem ekki eru í deigl- unni þá stundina. Var það gert til að koma í veg fyrir að drottning eigi á hættu að dragast inn í póli- tíska dægurmálaumræðu. Þá var jafnframt ákveðið að danska utan- ríkisráðuneytið sjái áfram um að samþykkja ræður þær er drottning flytur opinberlega. í I: i Skoðanakönnun í Noregi menn þinga áKúbu UM 10.000 manns hvaðanæva úr heiminum komu saman nálægt háskólanum í Havana í fyrradag þegar níu daga alþjóðleg hátíð vinstrisinnaðra ungmenna og námsmanna hófst í borginni. Fid- el Castro, leiðtogi Kúbu, setti hátiðina, sem var síðast haldin árið 1989 í Pyongyang, höfuð- borg Norður-Kóreu, fyrir hrun kommúnismans í Austur-Evrópu. Margir gestanna héldu á fánum og myndum af byltingarmannin- um „Che“ Guevara. Jagland nýtur mests stuðnings Osló. Reuter. THORBJ0RN Jagland, forsætis- ráðherra ríkisstjórnar Verka- mannaflokksins í Noregi, er vinsæl- astur stjórnmálamanna þar í landi en almennar þingkosningar verða í september. Kemur þetta fram í skoðanakönnun, sem birt var í gær. Samkvæmt könnuninni, sem unnin var fyrir Arbeiderbladet, vill 41% kjósenda helst sjá Jagland í forsætisráðherrastólnum en 22% telja Kjell Magne Bondevik, leiðtoga Kristilega þjóðarflokksins, hæf- astan í embættið. Johan J. Jakobs- en, leiðtogi Miðflokksins, fékk stuðning 9%. Aðrir voru óákveðnir. Arbeiderbladet sagði um þessa niðurstöðu, að staða Jaglands væri augljóslega mjög sterk en flokkur hans, Verkamannaflokkurinn, er langstærsti flokkurinn á þingi. í kosningunum 15. september mun baráttan aðallega standa á milli hans og þriggja miðflokka, Kristi- lega þjóðarflokksins, Miðflokksins og Venstre, sem stefna að því að mynda stjóm saman. Mjótt á mununum í kosningunum 1993 fékk Verka- mannaflokkurinn 36,9% atkvæða en skoðanakönnun í síðasta mánuði sýndi, að hann nyti aðeins stuðn- ings 30,6%. Þá fengu fýrrnefndir miðflokkar samtals 28,8%. Miðflokkamir vilja nota meira af olíuhagnaðinum til að efla skóla- kerfið og bæta samgöngur en Verkamannaflokkurinn vill hins vegar setja allan rekstrarafgang ríkisins á þessu ári, sem er áætlað- ur um 570 milljarðar ísl. kr., í sér- stakan sjóð, sem fjárfestir í erlend- um verðbréfum. Reuter Vinstri- Vill sættast við Díönu London. Reuter. SARAH Ferguson eða Fergie, hertogayiya af York, vill sættast við fyrrverandi svilkonu sína, Dí- önu prinsessu, en þær hafa varla talast við í átta mánuði eða síðan hertogaynjan gaf út ævisögu sína. „Ég ann henni af öllu mínu hjarta,“ sagði Fergie í Daily Tel- egraph í gær en í sjálfsævisögu sinni sagði hún, að hún hefði feng- ið vörtur á fæturna eftir að hafa gengið í skóm af Díönu. Því hefur prinsessan ekki gleymt og ekki heldur, að Fergie kvaðst dást að Karli prins, „þeim merkilega manni". Fergie segir, að í einangrun sinni í Buckingham-höll hafi hún átt fáa vini aðra en Díönu og sam- an hafi þær hlegið og grátið. Þótt margt hafi breyst síðan, muni hún ávallt verða velkomin. Kemur þetta fram í vikulegum dálki, sem Fergie skrifar í Daily Telegraph. Pot fari fyrir við- urkenndan dómstól Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Sfmi: 581 4670 Singapúr. Reuter. MADELEINE Albright, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að Pol Pot, fyrrum leiðtogi Rauðu khmeranna í Kambódíu, væri stríðsglæpamaður og hann ætti að leiða fyrir viðurkenndan dómstól. Myndbandsupptaka af réttar- höldum Rauðu khmeranna yfir Pol Pot á föstudag var sýnd á banda- rísku sjónvarpsstöðinni ABC á mánudagskvöld. Á myndinni sést hvar Pol Pot er dæmdur í lífstíðar- stofufangelsi fyrir „þjóðarmorð“ og er að því loknu leiddur á brott. Albright sagði í gær að hún hefði ekki séð myndbandsupptökuna, og ekki væri ljóst hvaða þýðingu at- burðurinn hefði. Hún sagði að Bandaríkjastjórn teldi mikilvægt að Pol Pot yrði leiddur fyrir dómstól sem væri gild- ur að alþjóðalögum, og embættis- Þekking Reynsla Þjónusta FÁLKINN menn leituðu nú leiða til að tryggja það. Bandaríkjastjóm hefur lýst yfir stuðningi við viðleitni Samtaka Suðaustur-Asíuríkja til að koma á sáttum í Kambódíu. Albright sagði í gær að megináhersla yrði lögð á að telja Hun Sen, forsætisráðherra landsins, á að halda fijálsar kosn- ingar í maí á næsta ári, eins og áformað væri. Pol Pot Albright Umdeild húskynding Stokkhólmi. Reuter. HVERNIG skyldi fólki líka að ylja sér við brennandi lík ástvina sinna? Illa segja flestir Svíar og margir eru æfír eftir að það spurðist út, að hitinn í tveimur líkbrennslustöðvum væri notaður til að kynda íbúðarhús. Upplýst hefur verið, að eldur- inn í líkbrennslustöð í Borás hafi verið notaður meðal annars til að hita upp heimili 50.000 manna síðasta hálfa árið en það var þó ekki fyrr en líkbrennslustöð í Helsingborg fór að dæmi hennar, að mótmælin byijuðu. „Þetta snýst um virðingu fyrir hinum látnu og ástvinum þeirra,“ sagði presturinn Lennart Nilsson í viðtali við dagblaðið Expressen í gær. „Fólk gæti til dæmis farið að velta því fyrir sér á köldum vetrardegi hvort það væri Astrid heitin frænka, sem yljaði því að þessu sinni.“ Talsmaður líkbrennslunnar í Helsingborg sagði, að þetta fyrirkomulag væri mjög um- hverfisvænt og yfirmaður orku- mála í Borás sagði málið allt orðum aukið enda kæmi mestur hitinn frá líkbrennsluofnunum sjálfum. 166vörurmeð [ evrópsku um- hverfismerki FRAMLEIÐENDUR 166 neyt- endavara hafa nú fengið leyfi framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins til að nota blómið, um- hverfismerki ESB, á vörur sínar. í fréttatilkynning- unni frá fram- kvæmdastjórninni segir að líklegá muni vörum með umhverfismerkinu enn íj'ölga á næstu mánuðum. Fyrirtæki geta sótt um umhverf- ismerkingu á vörur sínar til að sýna almenningi að þær uppfylli ströngustu kröfur um umhverfis- vernd. Jafnframt þjónar merkið þeim tilgangi að neytendur geti tekið upplýsta ákvörðun um kaup á vöru, að sögn framkvæmda- stjómarinnar. „Hin afar jákvæðu viðbrögð frá framleíðendum á undanförnum mánuðum sýna að lögmál fram- boðs og eftirspurnar á fijálsum markaði vinna nú með fyrirtækj- E V C I um, sem hafa sótt um umhverfis- merki Evrópusambandsins," segir í tijkynningunni. t í marz síðastliðnum fékk inn- | flytjandi í fyrsta sinn leyfi til að || nota umhverfísmerkið. Þar var um || að ræða hollenzka innflutningsfyr- irtækið Frenko Verkoopmij, sem flytur inn þvottavélar. Þá hefur sænska fyrirtækið Nordsjö fengið umhverfísmerkingu á fjórar gerðir innanhússmálningar. Merkið hefur einnig nýlega verið veitt fjórum fyrirtækjum, sem sjá franska póst- verzlunarfyrirtækinu Les 3 Suisses W fyrir rúmfötum, og franska fyrir- r tækinu Reckitt & Colman, sem 0 framleiðir nýtt umhverfisvænt p þvottaefni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.