Morgunblaðið - 30.07.1997, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 30.07.1997, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 1997 17 ERLENT Sögulegt samkomulag Bandaríkjaforseta og þingsins um hallalaus fjárlög ekki síðar en 2002 Lítílla áhrifa vænst á efnahagslífið Fj ármálasérfræðingar eru lítt upprífnir yfír fjárlagasamkomulagi Clintons ogþingheims og telja áhrif þess ekki verða mikil til skamms tíma litið. BANDARÍKJASTJÓRN hefur náð samkomulagi við meirihluta repú- blíkana á bandaríska þinginu um skattalækkanir og að fjárlög skuli verða hallalaus ekki síðar en árið 2002. „Við höfum komist að bráða- birgðasamkomulagi við stjórnina um hallalaus fjárlög... og skattalækkan- ir,“ sagði Trent Lott, leiðtogi repú- blíkana I öldungadeildinni á frétta- mannafundi sem haldinn var á mánudagskvöld. Bill Clinton, Banda- ríkjaforseti, sem staddur var í Las Vegas, var sagður ánægður með samkomulagið. Talsmaður forsetans, Joe Lock- hart, sagði að starfsmannastjóri Hvíta hússins hefði hringt í aðstoð- armann forsetans skömmu fyrir mið- nætti á mánudag að íslenskum tíma. Clinton fullvissaði sig um að þrennt hefði verið tryggt í samkomulaginu: Aukin útgjöld til menntamála; skatt- afrádráttur vegna bamaframfærslu; og viðbætur við sjúkratryggingar fyrir fátæk böm, að því er Lockhart sagði. Ekki hallalaus síðan 1969 Samkomulagið um hallalaus fjár- lög árið 2002 er sögulegt, en fjárlög Bandaríkjanna hafa ekki verið halla- laus síðan 1969, en þau nema alls einni og hálfri tril- ljón (milljón millj- ónir) döllara. Það hefur tekið forset- ann og þingið mörg ár að komast að samkomulagi um jafnvægi í ríkisbúskapnum, lækkun skatta og forgangsröð útgjaldaliða. Leiðtogar repúblíkana og embættismenn ríkis- stjórnarinnar eyddu mánudeginum innandyra á skrifstofu Lotts og komu bráðabirgðasamkomulaginu í höfn. Samkvæmt því verða skattar lækkaðir um samtals 85 milljarða dollara á næstu fimm árum, en fréttaskýrendur telja líklegt að talan eigi eftir að hækka í 90 milljarða þegar allt er reiknað. Báðar deildir þingsins munu greiða atkvæði um tillögurnar áður en þingmenn fara í mánaðar frí á föstudag. Þegar samkomulagið verð- ur að lögum munu skattar lækka í fyrsta skipti í 16 ár. Meðal annars fæst 500 dollara framfærslufrá- dráttur vegna hvers barns skatt- greiðanda; aukin lífeyrisréttindi; nið- urgreiðsla á langskólanámi og lækk- un fjármagnstekjuskatts. Batinn þegar orðinn Efnahagslífið í Bandaríkjunum mun að líkindum ekki verða fyrir miklum áhrifum á næstunni af sam- komulagi forsetans og þingsins, að mati fréttaskýrenda. „Það verður ekki stórfelldur bati,“ hefur frétta- stofa Reuters eftir fjármálaráðgjafa í Washington. „Hann er þegar orð- inn.“ Fréttaskýrendur benda á, að þetta samkomulag hafi náðst eftir að efna- hagslífið hafi þegar tekið fjörkipp. Atvinnuleysi hafí ekki verið minna um áratuga skeið; verðbólga ekki verið lægri í ellefu ár og efnahags- bati verði nú sjöunda árið í röð. Þróttmikið efnahagslíf hafi fært rík- isstjórninni mikinn búhnykk, því hagnaður fyrirtækja hafi snaraukist og verðbréfamarkaðir rokið upp úr öllu valdi. Þar með hafa opinber gjöld fjárfesta jafnframt hækkað. „Það er efnahagslífið sem hefur rétt af fjárlagahallann," er haft eft- ir hagfræðingi í Boston. „Jafnvel þótt ekki hefði náðst samkomulag eru allar líkur á að jafnvægi hefði náðst í ríkisbúskapnum á næsta ári.“ Lítil áhrif á hluta- bréfamarkaði Hallinn fyrstu níu mánuði þessa fjárlagaárs, sem lýkur 30. september var einungis 10,9 milljarðar dollara. Á þessu ári öllu verður munur á útgjöldum og tekjum ríkissjóðs að líkindum innan við 50 milljarðar. Bill Clinton AÆTLAÐAR SKATTALÆKKANIR Bandaríkjastjórn og þingmeirihluti repúblíkana hafa komist að samkomulagi um skattalækkanir, alit að 90 milljörðum dollara á næstu fimm árum. .... , L Verði samkomulagið að logum yrðu þetta tyrstu meiri háttar skattalækkanir í Bandaríkjunum i 16 ár. Útgjaldaaukning Menntamál ★ Útgjöld til menntamála aukin um 40 milljarða Tekjuaukning Heilsugæsla ★ Útgjöld til sjúkratrygginga minnkuð um 115 miiljarða Fjölskyldufríðindi ★ Framfærslufrádráttur vegna bama, 16 ára og yngri, alls um 85 milljarðar, tekjumörk hækkuð í 18 þús. Heilsugæsla * Sjúkratryggingar fyrir 10 milljónir ótryggðra bama, alls 24 milljarðar * Eldri borgarar geta stofnað skattlausa sjúkraspamaðarreikninga í stað opinberra sjúkratrygginga Fasteignaskattur ★ Lágmark fjármagnstekjuskatts hækkað (hálfa milljón * Eignaskattsfríðindi aukin stig af stigi að einnar milljónar hámarki Hlutfall fjármagnstekjuskatts * Hátekjur: í 20% úr 28%, næsta lækkun í 18% árið 2001 á langtímabindingu * Meðaltekjur: í 10% úr 15%, næsta lækkun (8% árið 2001 á langtimabindingu Sígarettuskattur ★ Hækkar úr 24 sentum á pakka í 39 sent * Borttfarar- og komugjöld hækkuð úr sex dollurum í tólf. Tekjur af hækkun- inni eiga að nema ails 50 milljörðum REUTERS Flugvallaskattur Fjármálasérfræðingar á mörkuðum við Wall Street segja að fjárfestar hafí þegar verið famir að reikna með samkomulaginu og því muni tilkynningin um að það hafi endan- lega náðst í höfn, ekki hafa varanleg áhrif á verð hluta- og skuldabréfa. Svo þversagnarkennt sem það kann að hljóma, þá má reikna með að samkomulagið komi í veg fyrir að fjárlög næsta árs verði hallalaus. Fréttaskýrendur segja að ástæða þessa sé sú, að gert sé ráð fyrir að minnka skatta hraðar en dregið verður úr opinberum útgjöldum. Flestir fjármálasérfræðingar eru þó þeirrar skoðunar að samkomulag- ið hafi verið nauðsynlegt, vegna þess að með því er ráðist í það stór- fellda verkefni að veita öldruðum opinbera þjónustu. „Það er okkur bráðnauðsynlegt,“ segir fjármála- ráðgjafí í St. Louis. „Þetta er inn- borgun á framtíðina." Möanuð mdltíð innan 10 mínútna! i n /n nT7/)vn 1 m H sn I i r* röf f ...já einhvern indœlis rétt, TRYGGING FYRIR FYRSTA FLOKKS NÁTTÚRUAFURÐ STATTU EKKI YFIR POTTUNUM LEN6UR EN ÞÚ ÞARFT!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.