Morgunblaðið - 30.07.1997, Page 18

Morgunblaðið - 30.07.1997, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 1997 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Óttigríp- ur um sig í Kabúl Daily Telegrraph. ÓTTI hefur gripið um sig í Kabúl, höfuðborg Afganistan, vegna um- sáturs stjórnarandstæðinga um borgina. Hersveitir stríðsherrans Ahmeds Masood eru nú um 18 kíló- metra frá Kabúl. Stjórnarherinn hefur lotið í lægra haldi í bardögum síðustu daga og uppreisnarmenn hafa hafið eld- flaugaárásir á höfuðborgina. Nokk- uð hefur verið um liðhlaup úr her Talebana, sem hafa sent eftirlits- flokka til að varna liðhlaupum veg- inn til Pakistan, þaðan sem mörg hundruð hermenn hafa verið sendir til að „berjast fyrir vegi Allah“. Hermenn Talebana hafa undan- farna daga fangelsað um 1000 afg- anska borgara af ættbálkum Tadsj- ika og Hazara, en leiðtogar þeirra hafa leitt baráttuna gegn stjórninni í Kabúl. Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa for- dæmt handtökurnar. „Við teljum að menn af ættbálkum Tadsjika og Hazara hafi verið handteknir til að hindra fjölskyldumeðlimi þeirra í því að ganga til liðs við uppreisnar- menn. Við álítum þá samviskufanga og krefjumst þess að þeir verði strax látnir lausir og án skilyrða", segir í yfirlýsingu samtakanna. ----»44----- Skotvopn- umeytt NOKKRAR tylftir ólöglegra skot- vopna sjást hér hífðar upp af brotajámshaug í Sydney með risa- stórum rafsegli. Byssurnar, sem yfirvöld í Ástralíu hafa safnað saman, voru settar í málmtætara og eyðilagðar þannig. Alls hefur herferð ástralskra stjórnvalda fyrir því að ólöglegum byssum verði skilað inn gegn greiðslu leitt til þess að samtals 470.000 vopn hafa safnazt saman i landinu, og hafa eigendur þeirra fengið greitt sem nemur tæplega þrettán millj- örðum króna fyrir þau. Efnt var til herferðarinnar í kjölfar hertrar löggjafar um skotvopn, sem sett var eftir að óður maður skaut 35 manns til bana í Port Arthur á Tasmaníu í apríl 1996. Óveðrið í Mið-Evrópu, sem leiddi til flóðanna, má rekja til hæðar yfir Bretlandseyjum. Hún dældi köldu lofti norðan úr íshafi inn yfir Frakkland og Þýzkaland, alla leið suður að Miðjarðarhafi. ; / ' Við þennan árekstur loftmass-: anna kældist heita og raka ! f1'- Úrkomu- loftið skyndilega með þeim svœbi afleiðingum að milli 6. og 10. \ \ júlí steyptist rakinn niður í r - V mestu rigningu sem orðið -V i hefur á þessum slóðum á liiéitt oa '■f* öldinni- Tíu dögum síðar fylgdi rakt íoh lægðin ZoeH í kjölfar Xolska" v>- | og bætti enn við úrkomuna. Lágþtýiti svœbi Yfir Italíu rakst þetta kalda loft á heitt Miðjarð- arhafsloft. Lægðin „Xolska“ fæddist. Lægðin færðist hratt austast í Alpana og sogaði þar til sín óvenju heitt og rakt loft frá Grikklandi. Veðurfarslegar orsakir flóðanna í Mið-Evrópu íshafsloft rakst á Miðjarðarhafsloft FLÓÐ undanfarinna vikna í Tékk- landi, Póllandi og Þýzkalandi eiga sér veðurfarslegar ástæður. Veðurfræðingar þýzku veðurstof- unnar í Offenbach vissu þegar hinn 2. júlí - þremur dögum áður en stórrigningarnar yfir Mið-Evrópu hófust - að skýfallið yrði gífurlegt. Sökudólgurinn er veðurfræðing- um vel kunnur; þeir kalla veðurlag- ið, sem orsakaði þessar náttúru- hamfarir, á fagmáli „5b“. Þar er um að ræða lægðabraut, sem veld- ur úrkomu yfir Ölpunum og getur leitt óveður alia leið norður eftir álfunni til Svíþjóðar. „Veðurlag 5b“ verður til þannig, að kalt loft norðan úr íshafi berst suður yfir álfuna ef hæð er yfir Bretlandseyjum. Kalda loftið rekst á heitt Miðjarðarhafsloft og úr verður djúp lægð með kuldaskilum, sem steypir úr sér rakanum sem þéttist úr loftinu, svipað og gerist þegar raki þéttist á gleraugum, sem gengið er með úr kulda inn í upphitað hús. Veðuröfgar En í þetta sinn var um „veðurlag 5b“ að ræða eins og það verst getur orðið. „Loftmassarnir sem í hlut áttu náðu algerum öfgum,“ segir þýzki veðurfræðingurinn Karl-Heinz Nottrodt. „Kalda loftið var óvenju kalt og heita loftið var allt of heitt,“ segir hann og bætir við: „Ólýsanleg óheppni.“ 4. júlí myndaðist yfír Norður- Ítalíu lægðin „Xolska“ sem færðist hratt austast í Alpana. Frá 5. júlí að telja átti sér stað það sjónar- spil, sem skömmu seinna átti eftir að koma öllu á flot í Karpatafjöll- um. Þegar „Xólska“ var yfir botni Adríahafs sogaði hún til sín heitt og rakt loft frá Grikklandi. Þar hafði loft sem upprunnið var í Afríku og Miðausturlöndum náð yfir 40 gráðu hita. Hitinn hafði valdið þar miklum skógareldum, og heitt loftið safnaði í sig miklum raka úr hafinu. Um leið og loftmassarnir ólíku rákust saman yfir Ölpunum byrj- aði að rigna sem hellt væri úr fötu, með tilheyrandi þrumum og eldingum. En langmesta úrkoman skall yfir Karpatafjöllin á landa- mærum Tékklands, Slóvakíu og Póllands. Á einni veðurstöð í norð- vesturhluta fjallgarðsins mældist 580 millimetra úrkoma á ijórum og hálfum sólarhring, en það sam- svarar 580 lítrum á fermetra. Meðalársúrkoma í Reykjavík eru um 800 mm. En þetta var aðeins byijunin; í kjölfar „Xolska“ fylgdi „Zoe“, önn- ur lægð af veðurlagsflokknum 5b. Níutíu lítrar rigningarvatns bætt- ust við á hvern fermetra á vatna- svæði Oder-fijóts, og mestu flóðum í manna minnum á svæðinu varð ekki lengur afstýrt. Reuter íhaldsflokkurinn í Bretlandi Hafnar ekki þingi í Skotlandi og Wales London. Reuter, The Daily Telegraph. WILLIAM Hague, leiðtogi Ihalds- flokksins í Bretlandi, hefur breytt afstöðu flokksins til stofnunar svæð- isþinga í Skotlandi og Waies og sagt að íhaldsmenn muni ekki leggjast gegn slíkri stjórnarskrárbreytingu ef Skotar og Wales-búar samþykkja hana í þjóðaratkvæðagreiðsiu. Margir þingmenn Ihaldsflokksins höfðu brugðist hart við tillögum stjórnar Verkamannaflokksins um stofnun svæðisþinganna og varað við því að þau gætu orðið til þess að breska konungdæmið leystist upp. Hague sagði hins vegar um helgina að Ihaldsflokkurinn myndi ekki hunsa vilja þjóðarinnar með því að leggja þingin niður ef hann færi með sigur af hólmi í næstu þingkosningum. Hague sagði að flokkurinn myndi „virða“ niðurstöðu þjóðaratkvseða- greiðslunnar, sem ráðgerð er í sept- ember. Hann kvað flokkinn þó enn þeirrar skoðunar að óráðlegt væri að stofna „þing sem gætu leyst upp breska konungdæmið". íhaldsmenn hefðu hins vegar gert sér grein fyrir mikilvægi þess að hlusta á almenning. íhaldsflokkurinn lagðist gegn til- lögunum um svæðisþingin í þing- kosningunum 1. maí og tapaði þá öllum þingsætum sínum í Skotlandi og Wales. Flestir telja að mikill meirihluti skoskra kjósenda samþykki stofn- un þings með aðsetur í Edinborg árið 2000. Hins vegar er talið að þjóðaratkvæðagreiðslan um þing í Wales, með aðsetur í Cardiff, verði tvísýn. England haft útundan? Þeir sem styðja tillöguna um þjóð- þing í Skotlandi og Wales segja að reynslan af slíkri heimastjórn hafi reynst góð í mörgum Evrópuríkjum en andstæðingar svæðisþinganna segja hins vegar að það hljóti að kalla á átök fái Skotar og Wales- búar rétt til að fara með stjórn eigin mála meðan Englandi verði áfram stjórnað á breska þinginu. Breska stjórnin segist vera reiðu- búin að að íhuga svæðisþing fyrir England ef sýnt verði fram á að vilji sé til þess meðal íbúanna. Dæmdur fyrir að smita DÓMSTÓLL á Kýpur fann í gær þarlendan sjómann, Pavlos Georgiou, sekann um að hafa með gáleysis- legu háttar- lagi smitað unnustu sína af alnæmis- veirunni. I úrskurði dómstólssins segir að ákærði hafi haft kynferð- islegt samband við konuna í tvö ár án þess að segja henni nokk- urntíma frá því að hann væri smitaður og að fyrrum eigin- kona hans hefði látist úr al- næmi. Sjómaðurinn á yfir höfði sér tveggja ára fangelsi eða tæplega 200 þúsund króna sekt, eða hvoru tveggja. Neyðar- ástand á Hvar Georgiou MIKLIR skógareldar geysa nú á krótísku baðstrandaeynni Hvar í Adríahafi og lýst hefur verið yfír neyðarástandi á eynni, sem er vinsæll ferða- mannastaður. Eldarnir brutust út um miðjan dag á mánudag og hefur hvassviðri aukið þá mjög. Slökkvilið um 500 manna reynir hvað af tekur að halda í horfinu. Hermenn hafa verið kallaðir til aðstoðar, og flugvél- ar og þyrlur verða einnig notað- ar til slökkvistarfs. Yísindaspeki- kirkjan fagnar MEÐLIMIR Vísindaspekikirkj- unnar í Frakklandi fögnuðu í gær eftir að þarlendur dómstóll viðurkenndi kirkjuna sem trúfé- lag. Gagnrýnendur segja Vís- indaspekikirkjuna vera hættu- legan sértrúarhóp og sögðu dómara hafa farið út fyrir vald- svið sitt. Áfrýjunardómstóll í borginni Lyon sýknaði níu manns og mildaði dóma yfír sex öðrum á mánudag, og úrskurð- aði þá ennfremur um trúfélags- stöðuna. Leiðtogi kirkjunnar í Los Angeles, Heber Jentzsch, sagði úrskurðinn vera draumi líkastan. Viðræðum frestað FORSETI Tsjetsjníu hefur fre- stað viðræðum ráðherra sinna við ráðamenn í Moskvu, og segist vona að það verði til þess að flýta greiðslum frá Rússlandi, að því er fréttastof- an Interfax greindi frá í gær. Tengslum milli hæst settu emb- ættismanna verður þó haldið. Talsmaður forsetans tjáði Re- uters að viðræður yrðu ekki teknar upp að nýju fyrr en búið væri að samþykkja áætlun um uppbyggingu í Tsjetsjníu. Múslimar mótmæla LÖGREGLUMENN notuðu kylfur, hunda og vatnsbyssur til þess að bijóta á bak aftur mótmælagöngu mörg þúsund múslima um götur Ankara, höfuðborgar Tyrklands í gær. Voru múslimarnir að mótmæla tilraunum forsætisráðherra landsins, Mezuts Yilmaz, til að hefta menntun á trúarfor- sendum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.