Morgunblaðið - 30.07.1997, Side 50

Morgunblaðið - 30.07.1997, Side 50
50 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ LAUC.AVEGI 94 TOFVIIVIV LEE JOIuES WILJ. SIVllTH . ' MENN í SVÖRTU. ' f ^ ♦ 0J Evltji‘"' . '/ WTii; ★ ★ 3/v a.s'. iíie x \ MEIM IIM BLflCK í* | . jj M 1 rFTTI TOPPMYNDIN LALHEIMINUM í DAG!! Sýnd í sal - A kl. 5, 7, 9 og 11. b.í íslensk heimasíða: WWW.xnet.is/stjornubio Fótboltagoðið Ryan Giggs FÓTBOLTAKAPPINN Ryan Giggs hefur verið atvinnumaður með Manchester United síðan hann var 16 ára gamall. Frægðarsól þessa 23 ára gamla íþróttamanns hefur skinið skært síðustu ár og því oft erfitt fyrir hann að vera á ferð í heimalandi sínu og þá sérstaklega í Manchester. Til að fá frí frá aðdáendum segist Giggs helst fara til Flórída í Bandaríkjunum og þar hitti tímaritið OK hann í sumarfríi með nokkr- um æskuvinum sínum. Að þeirra sögn hefur kappinn ekkert breyst þrátt fyrir alla frægðina og peningana en hann er verðlagður á að minnsta kosti 350 milljónir króna um þessar mundir. Heima í Englandi segist Giggs helst fara á hverfiskrána þar sem allir þekki hann og láti afskiptalausan eða í heimahús til vina þegar hann vilji fá félagsskap. Ekki er þó alltaf hægt að forðast ágenga aðdáendur og það hefur Giggs margsinnis fengið að reyna. „Ég get ekki farið eins oft í miðbæ Manchester og ég vildi. Ég er mikill fatasjúklingur og vildi að ég gæti farið oftar að versia.“ „Verstu aðstæðurnar eru þegar ég er úti að borða með kærustunni. Þá vil ég bara fá að vera í friði en alit í einu truflar einhver og öll athyglin beinist að manni,“ segir hinn vin- sæli Giggs. Hann hefur reyndar ávallt valið sér áberandi og þekktar kærustur eins og sjón- varpsskutiuna Dani Behr og leikkonuna Davi- niu Murphy sem draga ekki síður að sér at- hygli en hann sjálfur. Síðastu tvo mánuði hefur hann sést með systur vinar síns, hinni 21 árs gömlu Emmu Gardener, og í síðasta mánuði fóru þau í frí til Bandaríkjanna. Til að vernda einkalíf sitt hefur Giggs keypt glæsihýsi nálægt Adlington í Lanchashire sem kostaði tæpar 60 milljónir króna. Bílar kapp- ans eru ekki af verri endanum en þar á með- al er Aston Martin bíll að hætti James Bond og BMW blæjubíll. Afi fótboltakappans, sem er fyrrum lög- reglumaður, er á launum hjá honum við að sjá um aðdáendabréfin en Giggs fær um 3.000 bréf í hverri viku. Reyndar fjórfaldast bréfin á Valentínusardegi, sem er tileinkaður elsk- endum. Hann segist þó ekki bara fá bréf því ungar stúlkur senda goðinu nærfötin sín og ógrynni af bangsum og nokkur bónorð fylgja jafnvel með. Giggs hefur, þrátt fyrir ungan aldur, unnið fleiri verðiaunagripi og titla en aðrar stór- stjörnur í fótboltanum eins og Stanley Matt- hews, George Best og Gary Lineker. „Ég er ótrúlega stoltur af árangrinum og einstaklega heppinn. Heppinn að hafa verið uppgötvaður og þjálfaður upp á réttan hátt, heppinn að eiga bestu mömmu i heimi og heppinn að vera fæddur með hraðskreiða fætur og góðan vinstri fót,“ segir Ryan Giggs að lokum. % i ■ x : I >-’/ íff > f; r RYAN Giggs er ekki einungis helja fótboltaunnenda heldur er hann goð í augum ungra stúlkna, sem bíða fyrir utan æfingasvæðið eftir kappanum. Agætis popp TONLIST Gcisladiskur REGGAE ON ICE Geislaplata hljómsveitarinnar Reggae on Ice. Hana skipa: Matti, Stefán, Hannes, Ingi og Viktor (Fóð- urnöfn ekki gefin upp). Upptöku- menn: Addi 800, Jakob Tryggvason, Gunnar Möller. Upptökustjórn: Reggae on Ice. Sveitin sjálf gefur út. 1.999 kr. 46 mín. síHí ®e e'-e ® t 9 99 99999999*99 9999999999v 999999999*9 »•••••••••• !•••••••••• !•••••••••« »•••••♦•••• # * • * • ♦;• #-♦ •#!':' , »••••••••••:' ••••••••••« »«••••••••• H. 99999999999 »•••••••«•• 9999999999i Vöggusæng Ungbarnasæng Ungbarnakoddi Barnasæng 2.2GÖ,- kr 2.900,-kr 90G,-kr 4/lOSy-Kr Barnasæng (tvöföld) 4J7Gö,-kr Barnakoddi (svæfill) !.25ö,- kr Barnakoddi (svæfill) J .95Ö,- kr Fullorðinssæng _6t90ö,- Itr Fulloróinskoddi _3,.löö^Tcr .760,- kr 2.320,- kr 720,- kr 3.360,- kr 3.760,- kr 1.000,- kr 1.560, - kr 5.520,- kr 2.560, - kr REGGÍ er tónlistarstefna sem ekki hefur átt upp á pallborðið hjá tónlistarmönnum hér á landi; að minnsta kosti hafa þeir fáir helgað sig flutningi slíkrar tónlistar. Því er hægt að fagna því að hljómsveit- in Reggae on Ice hefur tekið stefn- una upp á sína arma, þótt því fari fjarri að hljómlist hennar sé hrein- ræktað reggí. Geislaplatan R kom undirrituðum töluvert á óvart, enda hafði fyrsta skífa hljómsveitarinnar ekki gefið tilefni til mikilla væntinga. Margt er ágætlega gert á plötunni og til að mynda er flutningur mjög góð- ur, hvort sem litið er til hljóðfæra- leiks eða söngs. Matthías er lag- viss, með sterka rödd og almennt má segja að söngurinn á plötunni sé honum til sóma. Hljóðfæraleikur er hnökralítill; ekkert út á hann að setja. Hljómurinn er hins vegar flatur og er það vafalaust hljóðblöndun að kenna, en sinn þátt í þeirri flatn- eskju á líka hljómborðshljómurinn. Hljómborðið er gervilegt og mér hefði fundist viturlegra að nota al- vöru píanó eða gamaldags orgel í a.m.k. sumum lögum. Lögin eru mörg hver ágætar smíðar. Flestir kannast við lagið Ég vil, sem er fyrsta lag plötunnar og hefur hljómað mikið í útvarpi að undanförnu. Það er ágætt til síns brúks; grípandi, en frasinn „eins og sveskja í framan“ er afar fráhrindandi. Onnur lög eru í svip- uðum gæðaflokki; ekki meistara- verk, en vel þolanleg popplög, mörg hver ágæt. Textar eru misjafnir eins og gengur, enda ýmsir höfundar. Orða- röð er á stundum annarleg: „Fólkið fer framhjá á mig bendir/sama er mér þó horfi á/því komið er sumar“ Þetta er hálf tilgerðarlegt, enda talar ekki nokkur maður svona. Geislaplatan R er ágæt, meira að segja mjög góð á íslenskan mælikvarða. Eins og fyrr segir er ekki um neitt meistaraverk að ræða, en með sömu framförum verður Reggae on Ice orðin ein besta hljómsveit landsins um aldamótin. Ivar Páll Jónsson afnæmi&jjrófað Gœðavara 'í í'u li ktMÍÍbi íhröM Umboðsaðilar um allt land r, y Þekking Reynsla Þjónusta FÁLKINN Suöurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Sími; 5814670 Gjdíavara - mafar oq kaffistell. Heim Allir verðflokkar. ^ m.a. ( VERSLUNIN I.augttvegi 52, s. 562 4244. Heimsfræqir hönnuðir m.a. Gianni Versace.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.