Morgunblaðið - 05.09.1997, Page 6

Morgunblaðið - 05.09.1997, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Kaupféli ' Úr milliuF ig Eyfii ipgjöri 1 Jan.-iúní rðinga 997 Jan.-júní Rekstrarreikningur þús. króna 1997 1996 Breyting Rekstrartekjur Rekstrargjöld Hagnaður f. afgskriftir og vexti 4.702 4.364 338 4.539 4.198 341 +3,6% +4,0% -0.9% Afskriftir Hagnaður fyrir fjármagnsliði 247 91 210 131 +17,6% -30,5% Fjármagnsiiðir Haqnaður af reglulegri starfs. -202 -111 -116 16 +74,1% Aðrer tekjur og gjöld Skattar Hlutur minnihl. í (haqnaði) oq tapi dótturf 4 -14 8 18 -12 13 -77,8% +16,7% -38.5% Hagnaður (tap) tfmabilsins -112 35 - Efnahaasreikninaur þús. króna 30/6 ‘97 30/6 ‘96 [ Eianir oa skuldir: | Heildareignir 9.410 9.485 -0,8% Heildarskuldir 6.903 6.776 +1,9% Hlutdeild minnihluta 219 230 -4,8% Eigið fé 2.288 2.479 -7,7% Kennitölur Veltufé frá rekstri þús. króna 131 183 -28,4 Nettóskuldir 3.554 3.386 5,0 Veltufjárhlutfall 1,09 1,09 KEA og ddtturfélög fyrri hluta árs 111 milljóna tap af reglu- legri starfsemi KAUPFELAG Eyfírðinga var rekið með 111 milljóna króna tapi af reglu- legri starfsemi þess á fyrri hluta þessa árs. Er þetta mun lakari af- koma en á sama tímabili í fyrra er 16 milljóna króna hagnaður varð af reglulegri starfsemi félagsins. Hagn- aður fyrir fjármagnsliði nam hins vegar 91 milljón króna en fjár- magnsliðir félagsins voru neikvæðir um 202 milljónir. Að teknu tilliti til afkomu dótturfélaga og skatta nam heildartap félagsins 112 milljónum króna. Þetta er um helmingi meira tap en gert var ráð fyrir í rekstrará- ætlun. Að sögn Magnúsar Gauta Gauta- sonar, kaupfélagsstjóra, eru það margir samverkandi þættir sem valda tapi KEA nú. „Þessi niður- staða veldur mér auðvitað vonbrigð- um. Hún kallar á endurskoðun og hugsanlega endurskipulagningu á ýmsum þáttum í rekstri félagsins og að því er nú unnið. Jafnframt er unn- ið að gerð nýrrar áætlunar um af- komu félagsins í heild á yfirstand- andi ári og ég geri ráð fyrir því að hún verði birt fyrir lok þessa mánað- ar,“ segir Magnús Gauti. Magnús segir að mikið gengistap af lánum íyrirtækisins í japönskum jenum sé stór hluti skýringar á lak- ari afkomu nú. 86 milljóna króna hærri fjármagnskostnaður nú stafi aðallega af þessu gengistapi. Þá komi einnig til auknar afskriftir en þær hafi aukist um 38 milljónir á milli ára. Að sögn Magnúsar varð nokkuð betri afkoma í iðnaðar-, þjónustu- og fiskvinnsludeildum KEA á fyrri árs- helmingi. Afkoma verslunarreksturs hafi verið svipuð en afkoma slátur- húss og mjólkursamlags verri. Af- koma mjólkursamlagsins hafi raunar versnað til muna þar sem innlagt magn mjólkur hafi dregist saman auk þess sem kostnaður hafi hækkað án þess að hægt væri að velta þeim hækkunum út í verðlagið. Þá hafi afkoma dótturfélaga einnig versnað á milli ára. Sér í lagi hafi afkoma Útgerðarfélags Dalvík- inga versnað og valdi því margir samverkandi þættir svo sem lægra afurðaverð og tíðar bilanir á skipum félagsins. Þá komi hér einnig til mik- ið gengistap en ÚD hafi verið með mikið af lánum í japönskum jenum. Þroskaþjálfar undirbúa verkfall Vilj’a ná 110 þús. kr. byrj- unarlaunum FÉLAGSFUNDUR Þroskaþjálfafé- lags Islands samþykkti á miðviku- dagskvöld að leita mætti eftir verk- fallsheimild til félagsmanna beri yf- irstandandi samningalota ekki við- unandi árangur. Kristrún Sigurjóns- dóttir, formaður samninganefndar, segir byrjunai'laun þroskaþjálfa í dag 74.770 krónur og hafi þeim verið boðnar 80 þúsund krónur. í Þroskaþjálfafélaginu eru um 220 manns, þar af 50-60 í störfum víða á landsbyggðinni og eru um 10% fé- lagsmanna karlar. „Við höfum átt í samningaviðræðum síðan í desem- ber. í júlí slitnaði upp úr og þá var deilunni vísað til sáttasemjara þar sem við höfum átt nokkra fundi,“ sagði Kristrún. Næsti fundur verður fóstudaginn 12. september. Gerir Kristrún ráð fyrir að eftir þann fund verði ljóst hvert stefni í deilunni. „Það var augljóst á félagsfundin- um að menn eru ekki hressir með það sem okkur hefur verið boðið. Krafa okkar er að byrjunarlaun nái 110 þúsund krónum á samningstím- anum, til ársins 2000, en við höfum reyndar efasemdir um svo langan samningstíma, því gera má ráð fyrir því að þroskaþjálfar skipti um vinnu- veitanda í ársbyrjun 1999 þegar málaflokkur þeirra flyst frá ríki til sveitarfélaga.“ Laun þroskaþjálfa eftir 18 ára starf eru um 88 þúsund og forstöðu- menn á sambýlum eru með kringum 100 þúsund að sögn Kristrúnar. FRÉTTIR Umhverf- islistin í Hólmanum NORSKI umhverfislistamaðurinn Alfred Vaagsvold vann í gær, ásamt aðstoðarfólki, að uppsetn- ingu á verki sínu í Hólmanum í Reykjavíkurtjörn. Verkið er sam- sett úr rauðum viðarstöngum sem listamaðurinn notar til að draga það sem hann kýs að kalla skissu í náttúruna. Alfred er hingað kominn í tengslum við norræna farandsýn- ingu á umhverilslist eftir börn. Sýningin verður opnuð í menn- ingarmiðstöðinni Gerðubergi á morgun og þá verður börnum boðið að vinna listaverk í um- hverfi Gerðubergs undir leiðsögn listamannsins. fbúar Hólmans tóku vel á móti gesti sínum í gær og listamaður- inn gæti, að eigin sögn, ekki hugsað sér betri sýningarstað. Morgunblaðið/RAX Aðstoðarutanríkisrádherra Bandaríkjanna á ráð- herrafundi Norðurlanda og Eystrasaltsrikja Sýnir áhuga Banda- ríkjanna á málum Ey str asalt sr íkj a UTANRÍ KISRÁÐHE RRAR Norðurlanda og Eystrasaltsríkj- anna áttu í gærmorgun fund með Marc Grossman, aðstoðarutam-íkis- ráðherra Bandaríkjanna, sem fer með málefni Evrópu og Kanada. Halldór Ásgrímsson utanríldsráð- herra segir að vera Grossmans á fundinum sé til merkis um þann áhuga, sem bandarísk stjómvöld sýni uppbyggingarstarfi í Eystra- saltsríkjunum og öryggismálum þeirra. Utanríkisráðherrafundur Norð- urlanda og Eystrasaltsríkjanna var haldinn í tengslum við reglu- bundinn utanríkisráðherrafund Norðurlanda í Ósló í gær og fyrra- dag. Þetta er í fimmta sinn sem utanríkisráðherrar ríkjanna átta koma saman. I lokayfírlýsingu fundar norrænu ráðherranna seg- ir að fundirnir með Eistlandi, Lettlandi og Litháen séu staðfest- ing á „stuðningi Norðurlanda við uppbyggingu öryggis Eystrasalts- ríkjanna og þátttöku þeirra í sam- starfi Evrópu- og Atlantshafs- ríkja.“ „Það sem var merldlegt við þennan fund var sú staðreynd að Bandaríkin höfðu þar sína fulltrúa. Með því er staðfestur áhugi Banda- ríkjamanna á uppbyggingunni í Eystrasaltsríkjunum og öryggis- málum þeiira,“ segir Halldór. Hann segir að norrænu aðildar- ríkin í NATO og Bandaríkin hafi átt góða samvinnu um að tryggja að dyrum NATO yrði haldið opn- um fyrir Eystrasaltsríkjunum og hafi ríkin lýst yfir vilja sínum til að vinna að aðild þeirra í framtíðinni. „Við voram að bera saman bækur okkar um hvemig það yrði bezt gert. Fram kom mikill áhugi Bandaríkjamanna á að taka þátt í þessu með okkur,“ segir Halldór. Ríkin hefji öll viðræður í einu Undanfarið hafa komið fram skiptar skoðanir milli norrænu ESB-ríkjanna hvað varðar stækk- un sambandsins og stöðu Eystra- saltsríkjanna í því sambandi. Sví- þjóð og Danmörk hafa krafizt þess að hafnar verði aðildarviðræður við þau öll en ekki aðeins Eistland, eins og framkvæmdastjórn ESB hefur lagt tíl. Finnar hafa ekki vilj- að taka undir þessa kröfu. í yfirlýsingu norrænu ráðherr- anna er hins vegar íjallað um stækkun Evrópusambandsins og segir þar: „Ráðherrarnir leggja í þessu sambandi áherzlu á þýðingu þess að öll löndin, sem sótt hafa um aðild, taki fullan þátt, á jafnréttis- grandvelli og frá upphafi, í því stækkunarferli Evrópusambands- ins sem leiðtogaráð ESB tekur ákvörðun um í desember 1997. Tímasetning inngöngu hvers og eins ríkis er háð getu landsins til að uppfylla kröfur og skyldur aðild- ar.“ Halldór segir finnsk stjómvöld hafa fallizt á þetta orðalag. Til þessa hafi það verið á Finnum að heyra að þeir telji nálgun fram- kvæmdastjórnarinnar skynsam- lega. „Svo er hins vegar alls ekki af hálfu Dana og Svía. Það er eftir að ræða tillögu framkvæmdastjómai’- innar í ráðherraráðinu og ekki er komin niðurstaða í það. Sumir telja erfiðleikum háð að ræða við svo mörg ríki í einu, en utanríkisráð- herra Danmerkur tók skýrt fram að það væri leysanlegt," segir Hall- dór. „I þessu sambandi er talað um að enginn viti hver staðan í þessum ríkjum verði að fimm áram liðnum. Þess vegna sé erfitt að miða bara við stöðuna í dag. Það er Ijóst að tillaga framkvæmdastjórnarinnar hefur neikvæð áhrif í sumum lönd- um og jákvæð í öðrum. Sem dæmi má nefna erlenda fjárfestingu. Það er líklegt að Eistland njóti góðs af því að hefja viðræður, en menn munu verða meira hikandi varð- andi fjárfestingar í Lettlandi og Litháen og það væri bagalegt íyrir efnahagsuppbyggingu í löndun- um.“ Bjartsýnir á Schengen-lausn Ráðherrarnir ræddu um innlim- un Schengen-vegabréfasamstarfs- ins í Evrópusambandið og segir Halldór þá bjartsýna á að hægt verði með samningum að leysa þau vandamál, sem fylgi þátttöku ís- lands og Noregs í samstarfínu. „Samningaviðræður geta væntan- lega ekki hafizt fyrr en í október og þar mun reyna á nokkur atriði. Það er afar mikilvægt að það tak- ist, því að Svíar og Finnar hafa nú gengizt undir bindandi samkomu- lag um þessi mál og takist samn- ingar ekki leysist norræna vega- bréfasambandið upp.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.