Morgunblaðið - 05.09.1997, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1997
LAIVIDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristján
BALDUR Ingimarsson stendur við vegkantinn ofan við garð sinn, þar sem sendibíllinn liggur á hvolfi.
Ferðafélag Svarfdæla bjargar
menningarverðmætum
Yörðuhleðsla
á Reykjaheiði
FERÐAFÉLAG Svarfdæla gengst
fyrir vinnuferð yfir Reykjaheiði milli
Olafsfjarðar og Dalvíkur á morgun,
laugardaginn 6. september. Lagt
verður af stað frá Skeljungsstöðinni
á Dalvík kl. 10 áleiðis til Olafsfjarð-
ar.
Ætlunin er að ganga milli byggða
frá Reykjum í Ólafsfirði upp í heið-
ardal yfir í Böggvisstaðadal ofan
Dalvíkur og endurhlaða í leiðinni
vörður á þessari gömlu þjóðbraut
og póstleið. Er þetta liður í þeirri
viðleitni félagsins að vekja athygli
almenings á gönguleiðum upp úr
Svarfaðardal og þeim sögulegu minj-
um sem þar er að finna. Vörðurnar
eru misilla farnar.
Ólafsfirðingar hafa nú þegar hlað-
ið allar vörður Ólafsfjarðarmegin en
Svarfdælir hófust handa í fyrra fyr-
ir sitt leyti og eru um það bil hálfnað-
ir með verkið.
Reykjaheiði er töluvert vinsæl
gönguleið bæði á sumrum og vetrum
og einnig er hún ágætlega reiðfær.
Ferðafélagsmenn telja sig því eiga
vísan liðsstyrk bæði hjá hestamönn-
um, björgunarsveitarmönnum og
skíðafélagsmönnum þar ytra auk
annarra áhugamanna um útivist og
gönguferðir.
Á hvolfi
ofan
í garði
BALDUR Ingimarsson, íbúi að
Bjarmastíg 10 á Akureyri horfir hér
á sendibíl á hvolfi í garði sínum í
vikunni. Þetta er þriðji bíllinn sem
hafnar í garði Baldurs en sendibíllinn
rann niður töluverðan halla, hafnaði
á stórri ösp í garðinum og valt á
toppinn. Ökumaðurinn meiddist lítil-
lega en bíllinn er mikið skemmdur.
Baldur hefur leitað eftir því við
bæjaryfírvöld að eitthvað verði gert
til að koma í veg fyrir að slíkt end-
urtaki sig en segist hafa talað fyrir
daufum eyrum. í Morgunblaðinu í
gær sagði Guðmundur Guðlaugsson
yfírverkfræðingur Akureyrarbæjar
að ekki stæði til að setja upp öfluga
girðingu eða vegrið við garð Baldurs.
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
HJÚKRUNAR- og dvalarheimilið Fellsendi.
Opið hús á hjúkr-
unar og dvalarheim-
ilinu Fellsenda
Búðardal - Nýlega var opið hús á
hjúkrunar- og dvalarheimilinu að
Fellsenda í Miðdölum í tilefni 30
ára starfsafmælis stofnunarinnar.
Á annað hundrað gestir komu og
þáðu veislukaffi ásamt því að
skoða heimilið og fræðast um
starfsemi þess.
Gaf eigur sínar til byggingar
Það var Finnur Ólafsson frá
Fellsenda, stórkaupmaður í
Reykjavík, sem gaf eigur sínar til
þess að byggt yrði dvalarheimili
fyrir aldraða Dalamenn að Fells-
enda. Heimilið var opnað 1967 en
snemma kom í ljós að staðsetning
þess var ekki hentug fyrir aldraða,
með tilliti til læknis- og félagsþjón-
ustu. Því voru það ekki margir
Dalamenn sem nýttu sér heimilið.
Þá var tekið upp samstarf við
Kleppspítala og árið 1977 komu
fyrstu vistmenn þaðan að Fells-
enda. Stofnunin hefur síðan verið
rekin sem hjúkrunar- og dvalar-
heimili fyrir sjúklinga að sunnan.
Alls er pláss fyrir 17 vistmenn
og á heimilinu eru 10 stöðugildi.
Forstöðumaður er Kristín Guð-
mundsdóttir sem tók við starfinu
af móður sinni árið 1988.
■ ■ ■ * B ■
IIIIIIKtitiiiiiiiin,
.“"illlltlllliiluuitt
®»wr1,1 ‘ *“* “
--------
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
NORRÖNA í höfninni á Seyðisfirði.
Norröna lýkur
sumaráætlun
Sumarskóli Norrænu eldfjallastöðvarinnar í Mývatnssveit
Rannsóknir á úthafs-
hryg’gjum við plötuskil
í VIKUNNI lauk í Mývatnssveit viku
námskeiði á vegum sumarskóla Nor-
rænu eldfjallastöðvarinnar. Síðustu
daga hafa vísindamenn frá íslandi,
Ameríku og Norðurlöndunum, alls
um 60 manns, verið að rannsaka
úthafshryggi, á stöðum þar sem eru
svokölluð plötuskil.
í hópnum eru m.a. erlendir vís-
indamenn sem hafa verið að rann-
saka úthafshryggi neðansjávar og
notað til þess kafbáta. Freysteinn
Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur hjá
Norrænu eldfjallastöðinni og einn
af skipuleggjendum námskeiðsins,
segir að ísland sé eins og rannsókn-
arstofa, þar sem þetta sé eina svæð-
ið í heiminum þar sem stór hluti
úthafshryggja er ofansjávar.
Þeir læra af okkur
og við af þeim
„Við höfum verið að skoða jarð-
fræðina hér og einnig verið með
erindi og umræður. Um er að ræða
kynningar á þeim rannsóknurn sem
gerðar hafa verið á jarðfræði íslands
og eins á þeim rannsóknum sem
gerðar hafa verið á hafsbotninum.
Þannig að við erum að læra af er-
lendu vísindamönnunum og þeir af
okkur.“
Freysteinn segir að hópurinn hafi
farið um Kröflusvæðið, Öskjusvæðið
og um Tjörnesið. Hann segir að vís-
indamennirnir sem hingað til hafa
stundað neðansjávaijarðfræðina
hafi ekki alveg áttað sig á hvað er
búið að rannsaka mikið hér á landi.
Skiljum okkar
eldstöðvakerfi betur
„Við skiljum okkar eldstöðvakerfi
mun betur en menn skilja nokkurt
svæði á hafsbotni. Menn horfa mjög
til Kröfluelda til dæmis um hvað
gæti gerst á þessum úthafshryggj-
um á hafsbotni. Eins eru þessir
amerísku vísindamenn mjög hrifnir
af þeim rannsóknum sem verið er
að vinna að hér núna og þeirri vökt-
un sem við höfum á landinu okkar,
t.d. með jarðskjálftamælum og land-
mælingum. Þeir eiga örugglega eftir
að hagnýta sér þær aðferðir sem við
notum hér á landi til að rannsaka
hafsbotninn.“
Úthafshryggir liggja að meðatali
á Um 2,5 km dýpi undir yfírborði
sjávar og segir Freysteinn því mjög
erfítt að rannsaka þá. Reynslan sem
menn hafa aflað hér hjálpi því til
við tæknilega hlið á vöktun á úthafs-
hryggjum neðansjávar.
íslendingarnir í hópnum eru 10
og koma frá Norrænu eldfjallastöð-
inni, Veðurstofu íslands, Orkustofn-
un og Raunvísindastofnun Háskóla
íslands.
Seyðisfirði - Evrópufeijan Norröna
hefur nú lokið íslandsferðum sínum
þetta sumarið. Hún kvaddi að venju
með þremur löngum blístrum úr
skipsflautunni, en vel mátti merkja
að þriðja pípið varaði mun lengra en
í öðrum ferðum sumarsins.
Fjórtán ferðir til
og frá íslandi
Að sögn Jóhanns Jónssonar hjá
Austfar hf. hefur afgreiðsla Norröna
gengið vel í sumar. Eins og áður
hefur verið sagt frá var ný aðstaða
Morgunblaðið/Egill Egilsson
fyrir farþegamóttöku og tollaaf-
greiðslu við höfnina á Seyðisfirði
tekin í notkun fyrr í sumar og hefur l
hún reynst í alla staði vel. Nú er j
verið að ganga frá og fegra svæðið
framan við húsið. I þessari síðustu
ferð sumarsins flutti Norröna 370
ferðamenn á 62 farartækjum til
landsins og 610 farþegar á 240 far-
artækjum fóru af landi brott. Feijan
fór 14 ferðir til og frá íslandi og
voru ríflega 14.000 farþegar með í
för. Norröna kemur aftur til íslands
28. maí á næsta ári.
________________________1
Sveiflan
æfð á
Flateyri
Flateyri - Þeir félagar, Brad
Egan og Anthony Wales, frá j
Suður-Afríku, ákváðu að taka
deginum með ró og taka fram
kylfurnar og hressa uppá golf-
kunnáttuna.
Fyrir óvana var ekki annað
hægt að sjá en að þeir bæru sig
fagmannlega þar sem þeir mund-
uðu kylfurnar. Brad og Anthony
eru báðir búsettir hér á Flateyri |
ásamt fjölskyldum sínum. Þó að |
golfvöllurinn væri ekki sam-
kvæmt óskastaðli létu þeir hann I
duga til æfinga að sinni.
Greiða atkvæði um
land undir stóriðju
IBÚAR Arnameshrepps í Eyjafirði
ganga að kjörborði á morgun laug-
ardag og greiða atkvæði um hvort
gera eigi ráð fyrir lóð undir stóriðju
á svæðinu við Dysnes á aðalskipu-
lagi hreppsins 1997-2017.
Kosið verður í Freyjulundi og
hefst kjörfundur kl. 12.00. Kosn-
ingarétt eiga íbúar hreppsins sem
náð hafa 18 ára aldri og eru 145
manns á kjörskrá.
Jóhannes Hermannsson oddviti
segir hljóðið í sveitungum sínum
nokkuð misjafnt og gæti kosningin
orðið tvísýn. Hann sagðist sjálfur
verða persónulega fyrir vonbrigð-
um yrði það fellt að gera ráð fyrir
stóriðjulóð í hreppnum.
„Maður verður bara að vera von-
góður og við hlítum þeim úrskurði
sem íbúarnir kveða upp.“