Morgunblaðið - 05.09.1997, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1997
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Afkoma Olís fyrstu sex mánuði ársins svipuð og á sama tíma í fyrra
Attatíu og fjögurra
millj. kr. hagnaður
HAGNAÐUR af rekstri Olís hf.
nam 84 milljónum króna eftir skatta
á fyrstu sex mánuðum þessa árs.
Er þetta svipuð afkoma og varð hjá
félaginu á sama tíma á síðasta ári
er hagnaður fyrri árshelmings nam
82 milljónum króna. Velta félagsins
jókst hins vegar um 18% á milli
tímabila og nam hún tæpum 3,8
milljörðum króna á fyrstu sex mán-
uðum ársins.
Einar Benediktsson, forstjóri 01-
ís, segist vera þokkalega ánægður
með þessa afkomu miðað við þá
miklu samkeppni sem sé á þessum
markaði. Markaðshlutdeild félags-
ins hafi aukist úr 27,6% á fyrri
árshelmingi síðasta árs í 30,2% nú
og skýri það stærstan hluta veltu-
aukningarinnar.
„Okkur hefur tekist að auka
framlegð fyrir skatta og fjámagns-
liði í takt við veltu. Hins vegar er
svipuð afkoma nú þrátt fyrir veltu-
aukningu vegna hærri skatt-
greiðslna," segir Einar.
Hann segir að rekstraráætlanir
félagsins geri ráð fyrir svipaðri af-
komu á árinu í heild eins og á síð-
asta ári, en þá varð 141 milljónar
krónu hagnaður af rekstri félagsins.
Hlutafjáreign Olís nam 615 millj-
ónum króna í lok júní á bókfærðu
verði. Þar af var eignarhlutur fé-
lagsins í fyrirtækjum skráðum á
hlutabréfamarkaði bókfærður á 427
milljónir króna. Markaðsvirði þess-
ara bréfa var hins vegar rösklega
1.240 milljónir í lok tímabilsins og
hafði aukist um 257 milljónir á ár-
inu.
Ágæt reynsla af rekstri
ÓB-stöðvanna
Að sögn Einars hefur mikil upp-
bygging átt sér stað hjá Olís á þessu
ári sem og á síðastliðnu ári. Stækk-
un efnahagsreiknings félagsins
megi einkum rekja til aukinna
fastafjármuna og einnig hækkunar
veltufjármuna vegna aukinna
rekstrartekna.
„Við höfum á árinu unnið að
veigamiklum endurbótum á þjón-
ustustöðvum félagsins á Reykjavík-
ursvæðinu. Auk endurbóta á dælum
og húsnæði hefur stöðvunum einnig
verið breytt í hraðverslanir. Þá hef-
ur að sama skapi verið unnið að
uppbyggingu sjálfvirkra,
ómannaðra bensínstöðva undir heit-
inu ÓB - ódýrt bensín. Félagið
hefur þegar opnað fjórar slíkar
stöðvar og til stendur að opna tvær
til viðbótar á næstu vikum,“ segir
Einar.
Hann segir rekstur ÓB-stöðv-
anna hafa gengið ágætlega þó
vissulega megi segja að félagið sé
að nokkru leyti í samkeppni við
sjálft sig með starfrækslu þeirra.
„I ljósi þess að við erum minnsta
bensínfélagið á markaðnum tekur
ÓB meira frá öðrum en Olís. Þetta
var því rökrétt að okkar mati, því
þrátt fyrir að þetta sé að hluta til
í samkeppni við sjálfa okkur þá
erum við að mæta ákveðinni þörf,
auk þess sem staðsetning stöðv-
anna er með þeim hætti að þær
ættu frekar að ná viðskiptum frá
keppinautum okkar en okkur sjálf-
um.“
Einar segir ekkert vandamál
fylgja því fyrir félagið að keppa á
svo mismunandi grundvelli, þ.e.
annars vegar á grundvelli þjónustu
og hins vegar á grundvelli lægra
verðs, heldur sé aðeins um að ræða
aukna fjölbreytni á þjónustu félags-
ins við viðskiptavini. Einar segir
ÓB vera mjög ódýrt í rekstri þar
sem stöðvarnar þýði betri nýtingu
á upplýsingakerfi Olís og aðeins
einn starfsmaður anni öllu eftirliti
með þessum sex stöðvum.
Svipuð afkoma hjá Skinnaiðnaði hf. á Akureyri á fyrri árshelmingi
Hagnaðurínn nam
34,6 milljónum króna
[< SKINNAIÐNAÐUR HF Úrmilliuppgjöri 1997
Jan.-júní Jan.-júní
Rekstrarreikningur þús. króna 1997 1 1996 Breyting
Rekstrartekjur 475,9 445,3 ! +6,9%
Rekstrargjöld 390,3 358,2 +9,0%
Hagnaður fyrir afskriftir 85,6 87,1 | -1,7%
Hgnaður fyrir fjármagnsgjöld 72,3 75,7 j -4,5%
Hagn. af reglulegri starfsemi 56,4 61,8 ; -8,7%
Reiknaðir skattar 21,8 23,1 -5,6%
Hagnaður (tap) tímabilsins 34,6 38,6 -10,4%
Efnahagsreikningur þús. króna 30/6 '97 30/6 '96 Breyting
I Eignir: \
Veltufjármunir 573,2 531,9 +7,8%
Fastaf jármunir 206,4 187,1 ; +10,3%
Eignir samtals 779,6 719,0 +8,4%
I Skuldir og eioið fé: I
Skammtímaskuldir 291,5 292,3 -0,3%
Langtímaskuldir 121,4 130,3 -6,8%
Hlutafé . 70.7. 70,7 0,0%
Annað eigið fé 295,9 225,6 + CO —L o"-
Skuldir og eigið fé samtals 779,6 719,0 +8,4%
Kennitölur i 1997 1996
Eiginfjárhlutfall ] 47,03% 41,22%
Veltufjárhlutfall 1,97 1,82
Veltufé frá rekstri þús. króna I 53,9 53,3 +1,1%
SKINNAIÐNAÐUR hf. skilaði
34,6 milljóna króna hagnaði á fyrri
árshelmingi, eða sem nemur 7,3%
af veltu, samanborið við 38,6 millj-
óna króna hagnað á sama tíma í
fyrra. Rekstrartekjur námu tæp-
um 476 milljónum króna og jukust
um tæp 7% á milli ára en rekstrar-
gjöld námu rúmum 390 milljónum
og jukust um 9%.
Fyrirtækið skilar svipaðri af-
komu á milli ára en lítið eitt minni
hagnað má skýra með því að af-
skriftir eru hlutfallslega hærri nú
en í fyrra og reiknaðar tekjur
vegna áhrifa verðbreytinga voru
heldur lægri þá.
í lok júní voru eignir Skinnaiðn-
aðar bókfærðar á um 780 milljón-
ir króna en skuldir námu um 413
milljónum. Fyrirtækið styrkti eig-
infjárstöðu sína á tímabilinu og
jókst það um rúmar 70 milljónir
króna miðað við sama tímabil í
fyrra eða í 366,7 milljónir.
Bjarni Jónasson, framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins, segist vera
þokkalega sáttur við niðurstöðuna
enda sé hún í samræmi við áætlan-
ir félagsins. „Tekjuaukningin staf-
ar af því að hærra verð fékkst
fyrir framleiðsluna en á móti kem-
ur að hráefnisverð hækkaði einnig.
Hins vegar styrktist eiginfjárstað-
an á tímabilinu og þrátt fyrir að
hagnaðurinn minnki lítillega er
veltufé frá rekstri ívið meira nú
en á sama tímabili í fyrra.“
Um 98-99% af framleiðslu
Skinnaiðnaðar fara til útflutnings
og eru helstu markaðir í Evrópu,
Bandaríkjunum og Asíu. Bjarni
segir að mikil áhersla sé lögð á
vöru- og vinnsluþróun innan fyrir-
tækisins til að fylgjast með tísku-
sveiflum og tryggja hagkvæmni.
„Tekjur félagsins fyrstu átta mán-
uðina eru heldur meiri en á sama
tíma í fyrra. Það er samkvæmt
þeim áætlunum sem gerðar voru
í ársbyrjun og má gera ráð fyrir
að hagnaðurinn verði um 60-65
milljónir króna á árinu.“
Reikningsárinu breytt
Á aðalfundi Skinnaiðnaðar í
mars sl. var samþykkt að breyta
reikningsári félagsins þannig að
hér eftir stendur það frá 1. sept-
ember til 31. ágúst. Yfirstandandi
reikningsári lauk því 31. ágúst sl.
og verður næsti aðalfundur því
væntanlega haldinn síðar á árinu
að sögn Bjarna. „Með því að
breyta reikningsárinu fæst mun
raunhæfari mynd af rekstri fyrir-
tækisins. Við kaupum á haustin
nær allt það hráefni sem þarf til
framleiðslunnar næstu tólf mán-
uði. Með breyttu uppgjörstímabili
er því mun betra fyrir hluthafa
að átta sig á rekstri og stöðu fé-
lagsins ár hvert,“ segir Bjarni.
OLIUVERZLUN
ÍSLANDS hf.
Úr milliuppgjöri 1997
Rekstrarreikningur Miiijónir króna
Jan.-júní
1997
Jan.-júní
1996
Breyting
Rekstrartekjur
3.777
3.619
3.191
3.056
+18%
+18%
Rekstrarhagn. f. fjármagnsliði og skatta 153 135 +17%
Fjármagnsgjöld (38) (35) +9%
Hagnaður fyrir skatta 120 100 +20%
Hagnaður án afkomu dótturfélaga 80 71 +13%
Hagnaður tímabilsins
84
82
+2%
Efnahagsreikningur Miiijónir króna
30/6'97 30/6'96
-V
Breyting
Eignir: \
Veltufjármunir
Fastafjármunir
Eignir samtals
Skuldir og eigið fé:\
Skammtímaskuldir
Langtímaskuldir
Eigið fé
Skuldir og eigið fé samtals
2.899
2.901
2.709
2.455
+7%
+18%
5.800
2.272
1.339
2.189
5.800
5.164
1.940
1.135
2.089
5.164
+12%
+17%
+18%
+5%
+12%
Kennitölur
Jan.-júní:
1997
1996
Eiginfjárhiutiall 38% 40%
Veltufjárhlutfall 1,28 1,40
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 159 163
Arðsemi eigin fjár 8,0% 8,0%
-2,5%
Tæknival með 8 milljóna hagnað
á fyrri árshelmingi
Helmingi minni
hagnaður en
áætlað var
TÆKNIVAL hf. skilaði um 8 millj-
óna króna hagnaði fyrstu sex mán-
uði ársins sem er um helmingi
minna en áætlanir gerðar í upp-
hafi árs gerðu ráð fyrir. Þá er
þetta verulega lakari afkoma en á
sama tíma í fyrra þegar hagnaður-
inn nam um 31 milljón. Hins vegar
jókst velta félagsins um 27% á
tímabilinu frá því í fyrra og nam
tæplega 1,2 milljörðum.
Meginskýringin á minni hagnaði
er sú að markmið um sölu náðust
ekki að fullu þrátt fyrir áðurnefnda
söluaukningu, að því er segir í frétt
frá félaginu. Þá kemur fram að
uppbygging fyrirtækisins og fjár-
festing í þekkingu hafi verið meiri
en áætlað hafi verið. Mikill árang-
ur hafi náðst við þróun lausna í
sjávarútvegi, þar sem fram hafi
-pp* nival I if.
./fá-
Úr milliuppgjöri 30.júni 1997 - '^HHHHHHHHHHHH^
Rekstrarreikningur MHijónír króna 1997 1996 Breyting
Rekstrartekjur 1.192,4 941,3 26,7%
Rekstrargjöld 1.174.3 892.5 31.6%
Rekstrarhagnaður Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) Hagnaður fyrir skatta 18,1 (8,4) 9.7 48,7 (9,4) 39.3 -62,8% -10,6% -75.3%
Hlutdeild í hagnaði hlutdeildarfélaga 0,0 0,06
Hagnaður ársins 7,9 30.9 ■74,4%
Efnahagsreikningur 30. júní: 1997 1996 Breyting
L Eignir: i
Veltufjármunir 591,8 704,2 -16,0%
Fastafjármunir 203,3 173,9 16,9%
jEignir samtals 795,1 878,1 -9,5%
i Skuldir oa eiaið té: I
Skammtímaskuldir 324,6 401,6 -19,2%
Langtímaskuldir 205,4 209,9 -2,1%
Eigið fé 265,1 266,6 -0,6%
Þar a< hlutafé 132,5 120,0 10,4%
Skuldir og eigið fé samtals ' 795,1 878,1 -9,5%
Sjóöstreymi
Handbært fé frá rekstri 45,9 30.7 49,5%
farið víðtæk rannsóknar- og.þróun-
arvinna með þróunarstyrkjum frá
Evrópusambandinu.
Starfsmönnum hefur ijölgað í
samræmi við þetta úr 147 í 204
frá miðju ári 1996 til miðs árs
1997.
Endurskoðuð rekstraráætlun
fyrir yfirstandandi ár gerir ráð
fyrir bættri afkomu á síðari hluta
ársins, en að heildarniðurstaðan
verði þó ekki jafngóð og áætlanir
gerðu ráð fyrir. I endurskoðaðri
áætlun er gert ráð fyrir að hagnað-
ur ársins fyrir skatta nemi 46 millj-
ónum.
Eigið fé félagsins nam í lok júní
265 milljónum, en nánari upplýs-
ingar um afkomu félagsins og
stöðu er að finna á meðfylgjandi
yfirliti.