Morgunblaðið - 05.09.1997, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1997 23
Styrktar-
tónleik-
ar í Borg-
arnesi
LISTIR
Fimm sýn-
ingar í Ný-
listasafni
VERK eftir Önnu Hallin.
TÓNLISTARSKÓLI Borgarfjarðar
stendur fyrir styrktartónleikum í
Borgarneskirkju næstkomandi
sunnudag, 7. september, kl. 20.30,
vegna húsnæðis sem skólinn hefur
fengið til afnota.
Skólinn hefur fengið inni í gömlu
kaupfélagshúsunum við Skúlagötu
17 í Borgarnesi, Sjávarborg. Skól-
inn fær húsnæðið á 30 ára afmæl-
isárinu, en 7. september er einmitt
stofndagur tónlistarskólans.
Til að byija með leigir skólinn
húsnæðið, en í fyrstu er um að
ræða einn kennslusal og skrifstofu-
herbergi. Standa vonir til að í
framtíðinni geti skólinn fengið
fleiri herbergi í húsinu til kennslu.
Tónlistarkennslan fer enn að
mestu leyti fram í grunnskólanum
í héraðinu. Með tilkomu nýs hús-
næðis rýmkast um starfsemina en
nemendur tónlistarskólans er um
200.
Húsið þarfnast lagfæringar til
þess að hægt verði að hefja starf-
semi þar strax í haust. Einnig vant-
ar skólann ýmis kennslugögn og
tæki. Allur ágóði af tónleikunum
mun renna í húsnæðissjóð.
Á tónleikunum koma m.a. fram
kennarar skólans og söngnemend-
ur sem munu flytja fjölbreytta
dagskrá. Einnig er áformað að
vera með fleiri uppákomur í vetur
til að safna í húsnæðissjóð.
FIMM sýningar verða opnaðar í
Nýlistasafninu við Vatnsstíg 3B í
Reykjavík, laugardaginn 6. sept-
ember kl. 16. I neðri sölum sýna
Olga Bergmann og Anna Hallin
frá Svíþjóð. Hafdís Helgadóttir
sýnir í Bjarta og Svarta sal og í
Súmsal sýna Nikolaj Pavlov og
Yuri Spiridonov frá Jakútíu. Arnar
Herbertsson er gestur safnsins í
Setustofunni.
Olga Bergmann sýnir tví- og
þrívíð verk í Forsal safnsins undir
heitinu „Borðstofusafarí“.
Verkin eru öll unnin á þessu
ári. Þau eru unnin í ólíka miðla.
Hljóðverk, skúiptúr, ljósmynd,
kvikmynd og klippimyndir eru
henni efniviður í frásögn. Olga
útskrifaðist úr Myndlista- og
handíðaskóla íslands 1991 og
stundaði framhaldsnám í Banda-
ríkjunum. Hún býr nú og starfar
í Svíþjóð.
Anna Hallin sýnir ljósmyndir
og rýmisverk í Gryfjunni. Sýning-
una kallar hún „The Emotional
Library“. í verkum sínum varpar
Úr „Borðstofusafarí“ Olgu
Bergmann.
hún ljósi á rými tilfinninganna.
Anna er menntuð frá Konstindust-
riskolan í Gautaborg og Myndlista-
og handíðaskóla Islands. Fram-
haldsnám sótti hún til Bandaríkj-
anna. Sl. hálft ár hefur hún verið
á starfslaunum frá sænska ríkinu.
Hafdís Helgadóttir sýnir í Bjarta
og Svarta sal og eru verkin unnin
á undanförnum tveim árum. Á
sýningunni eru málverk og mynd-
bönd, þar sem viðfangsefni eru
miðill og skynjun.
Hafdís brautskráðist frá mál-
aradeild Myndlista- og handíða-
skóla íslands 1992 og lauk 1996
mastersgráðu við Listakademíuna
í Helsinki, fjöltæknideild eða deild
„tíma og rúms“ (Time/Space de-
partment) eins og hún er nefnd.
Á efstu hæðinni eða í Súmsaln-
um sýna tveir listamenn frá Síber-
íu. Það eru þeir Nikolaj Pavlov
og Yuri Spiridonov frá Sakha-
Jakútíu. Þeir eru hingað komnir
á vegum ísjaka, sem er menning-
ar- og vináttufélag íslendinga og
Jakúta.
Gestur safnsins í Setustofu úr
röðum Félags íslenskra myndlist-
armanna að þessu sinni er Arnar
Herbertsson. Arnar hefur verið
virkur myndlistarmaður og sýnt
með hléum allt frá 1965. I setu-
stofunni sýnir hann olíumálverk
máluð á tréborð.
Sýningarnar eru opnar daglega
frá kl. 14.00-18.00 nema mánu-
daga. Þeim lýkur 21. september
og er aðgangur ókeypis.
Miðborgin
optökl. 10-17
Langur laugardagur
Frítt í stöðumœla
eftir kl. 14
IVERPOOL
^ Laugavegi 25
^ Sími 5511135
UVERPOOL
auðvelteraðbæta
raka í tutti fmtti
leirinn og hann
molnar ekki
sr
tejkföngin (g
leir og leikfong
opið 10.00-17.00 á
Laugauegi
KOOKfll
peysur-jakkar - buxur
kjólar - bolir
.sjí. Síðar Dúnúlpur
koma
' um miðjan sept.
ódýrara en í London!!
Laugauegi,
sími 511 1717.
Kringlunni,
sími 568 9017
r~---------n
BIODROGA
Jurtasnyrtivörur
Bankastræti 3, sími 551 3635.
V
J
Laugavegi 4, sími 551 4473.