Morgunblaðið - 05.09.1997, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1997 29
AÐSENDAR GREINAR
Að leysa vanda fárra „út-
valdra“ á kostnað fjöldans
ÝMSIR áhrifaaðilar
leggja áherslu á há
þjónustugjöld í heil-
brigðisþjónustu og að
leyfð verði kaup á biðli-
staplássum. Með háum
þjónustugjöldum má
draga verulega úr að-
sókn til lækna og verði
kaup á biðlistaplássum
leyfð er sjúklingum
skipt í verðuga og
óverðuga. Hér er um
mál að ræða sem hafa
grundvallarþýðingu
fyrir aðgengi fólks að
heilbrigðisþjónustunni,
m.a. vegna þess að
margir þeirra er eiga
við veruleg veikindi að stríða lifa
við kröpp kjör.
Há þjónustugjöld:
Þjónustugjöld dagsins eru of há
fyrir a.m.k. Vi hluta lægst launuðu
barnafjölskyldurnar í landinu eins
og komið hefur fram (Ólafur Ólafs-
son, ræða á BSRB-þingi 1997).
Þessi hópur frestaði eða hætti við
að leita til læknis á sl. ári. Svipuð
vandamál eru algeng
í löndum þar sem
einkatryggingar ráða
ríkjum í heilbrigðis-
þjónustu en hafa nú
risið á hinum Norður-
löndunum eftir harðar
sparnaðaraðgerðir síð-
ustu ára (Norrænt
landlæknamót, ágúst
1997). Þversögnin er
að há þjónustugjöld
koma helst niður á
þeim er hafa lélegustu
heilsuna eða mestu
umönnunarþörfina og
þarfnast því mest
læknishjálpar.
Rannsóknir á áhrif-
um hárra þjónustugjalda hafa ekki
áður verið gerðar á Norðurlöndum
vegna þess að eftir samþykkt laga
um Almannatryggingar fyrir 50
árum skapaðist jafnræði í aðgengi
fólks en síðan hefur ekki borið á
kvörtunum sjúklinga vegna þessa.
Rannsóknir á aðsókn fólks til
lækna eftir stéttum á íslandi á
tímabilinu 1967-1990 hafa ekki
gefið tilefni til athugasemda (Ólaf-
ur Ólafsson, Hjartavernd 1996).
Landlæknisembættinu, sem ber
samkvæmt lögum að fylgjast með
gæðum læknisþjónustunnar, mun
halda áfram framangreindum
rannsóknum og skýra frá niður-
stöðum þegar þær berast. Ef við
getum ekki sómasamlega séð þeim
fyrir læknisþjónustu er þarfnast
hennar fullnægjum við ekki laga-
skilyrðum laga nr. 97/1990 um
heilbrigðisþjónustu.
Kaup á biðlistaplássum:
Ef ákvæði um kaup á biðlista-
plássum ná fram að ganga hverfur
hefðbundið jafnræði fólks á íslandi
um aðgengi að heilbrigðisþjón-
ustunni. Slík ákvæði stangast á við:
1. Siðalögmál lækna (Code et-
hicus), en okkur ber eingöngu að
láta læknisfræðileg sjónarmið ráða
um meðferð sjúklinga en ekki fjár-
hag þeirra.
2. Ákvæði um „réttindi sjúkl-
inga“ sem Alþingi lagfesti fyrir
nokkrum mánuðum. Því hefur verið
haldið fram að við þær aðstæður
sem eru í biðlistamálum eigi þeir
sjúklingar sem góð efni hafa að
Þjónustugjöld dagsins
eru of há fyrir a.m.k.
fjórðung hinna lægst
launuðu. Olafur Olafs-
son telur, í fyrri grein
sinni, að verði kaup á
biðlistaplássum leyfð sé
sjúklingum skipt í verð-
uga og óverðuga.
geta leitað annað og um leið greiða
fyrir því að hinir efnaminni geti
notið heilbrigðisþjónustu án hárra
þjónustugjalda. Því miður hefur
þetta ekki gengið eftir í raun. Þeir
efnuðu leita til einkatrygginga því
fáir geta greitt fyrir dýrar aðgerðir
úr eigin vasa. Dæmi um kostnað:
Bijósklosaðgerð kostar 'h milljón
og liðaskipti 700.000-1 milljón ís-
lenskra króna. í Skandinavíu kostar
Ólafur
Ólafsson
trygging hjá Skandia 90.000 ísl.kr.
á ári, 150.000 eftir 65 ára aldur,
en enginn lítur við þér eftir sjö-
tugtl! Þeir sem minni efni hafa geta
ekki leitað til einkatrygginga. Við
sitjum því uppi með tvö kerfí. Kerfi
einkatrygginga, sem veitir tiltölu-
lega fáum útvöldum góða faglega
þjónustu og opinbert kerfí, sem
berst í bökkum við rýrnandi gæði
og þjónar almenningi. Þeir síðar-
nefndu hafa þó ekki síður tekið
þátt í hálfrar aldar uppbyggingu á
heilbrigðisþjónustunni og í heild lík-
lega lagt meira til en þeir fyrr-
nefndu. Þeir betur settu í þjóðfélag-
inu hafa lítinn áhuga á að viðhalda
opinberu kerfí, sem er skiljanlegt.
Þeir kjósa ekki að greiða tvisvar
fyrir heilbrigðisþjónustu. Lýðkjörnir
fulltrúar mega sín lítils í þessum
leik, enda ráða þeir ekki yfir fjár-
magninu. Einstaklingshyggjan og
eigingirni hinna fáu útvöldu hafa
tekið völdin. Samheldnin og um-
hyggjan fyrir lítilmagnanum hverf-
ur. Þjónusta við almenning versnar.
Þetta er ekki hugarfóstur undir-
ritaðs heldur lýsing á heilbrigðis-
þjónustu í Suður-Evrópu, í Banda-
ríkjunum og í þriðja heiminum. Ég
efast stórlega um að meiri hluti
þjóðarinnar kjósi að leysa vanda
tiltölulegra fárra útvaldra á kostnað
almennings og stuðla þannig að
heilsufarslegum ójöfnuði eins og er
í framangreindum löndum.
Höfundur er landlæknir.
Að skýla sér á bak við fagra
rós til að hylja eigið illgresi
AÐ UNDAN-
FÖRNU hafa Morg-
unblaðinu borist
greinar þar sem lýst
er yfir hatrammri
andstöðu við veiði-
gjald. Slíkur er eld-
móðurinn á stundum
að kalla hefur þurft
til upphafsmann hag-
fræðirannsókna,
Adam Smith, afbaka
vísindi hans og gera
hann að forhertum
ríkisforsjársinna. Til
að skilja betur hvers
vegna sumir eru á
móti auðlindagjaldi
getur verið ágætt að
skipta andstæðingum þess í þijá
hópa, þessir hópar lýsa hvers vegna
veiðigjaldsandstaða ríkir. í fyrsta
lagi eru þeir sem ekki vita betur og
í fávisku sinni tala gegn veiði-
gjaldi. Þetta fólk ber að uppfræða,
en ef það neitar að hlusta verður
það að fá að vera áfram í sínu fá-
viskuhorni. Svo er það hópur manna
sem tala í nafni frjálshyggju gegn
veiðigjaldi til að hylma yfir sósíal-
ískar hugsjónir sínar. Þeir tala fyr-
ir ríkisforsjá í atvinnulífínu sem
felst í því að ríkið, í krafti valdboðs-
réttar, gefi fiskinn í sjónum. Þessu
fólki verður að benda á að koma
úr felum, það þurfi ekkert að
skammast sín fyrir hugsjónir sínar,
þó svo að þær séu mjög óhagkvæm-
ar. í þriðja hópnum eru þeir sem
tilheyra sérhagsmunagæslunni og
eru á móti veiðigjaldi til að vernda
eigin hag. Þá þarf að skamma fýr-
ir að taka sérhag sinn fram yfír
samhag þjóðarinnar.
Andstæðingar veiðigjalds hafa
átt erfitt með að skilja að gengi
gjaldmiðils geti verið of hátt skráð
langtímum saman. Þeir líta svo á
að hátt skráð gengi leiði alltaf til
viðskiptahalla og því hljóti gengið
ávallt að aðlaga sig réttum geng-
isstuðli. Þetta er að hluta_ til rétt
en það kemur fleira til. Ástæðan
fyrir viðskiptahalla er að arðsemi í
þjónustu- og verslunargreinum og
sumum iðngreinum er meiri enn í
útflutningsgreinum og leiðir það til
viðskiptahalla, þ.e.a.s við fiytjum
meira verðmæti inn en út, síðan
lækkar gengið til að rétta hallann
af. Þetta leiðir til
sveiflna sem er mjög erf-
itt að starfa eftir til
lengri tíma litið. En það
er annað sem kemur til
og ekki síður alvarlegt.
Það er að sjávarútvegur-
inn þolir mun hærri
gengisskráningu vegna
ókeypis hráefnis úr sjó.
Aðrar iðngreinar þurfa
því bæði að eiga við of
hátt skráð gengi og þær
sveiflur sem skapast út
af því að fiskurinn í sjón-
um er takmörkuð auð-
lind en aðrar iðngreinar,
verslun og þjónusta ekki.
Þeir erfíðleikar sem
skapast í hagkerfum vegna auð-
lindaiðnaðar hafa stundum verið
nefndir „Hollenska veikin“. Hol-
lenska veikin lýsir sér í því að sam-
keppnisgreinar fara halloka fyrir
þeim greinum sem varðar eru fyrir
erlendri samkeppni. Ástæðan fyrir
þessu er að gengið hækkar og
þensla skapast í þjóðfélaginu. Iðn-
greinar verða því ekki samkeppnis-
færar við aðrar greinar sem varðar
eru fyrir erlendri samkeppni. Iðnað-
urinn verður ekki samkeppnisfær
um launagreiðslur og sú fjárfesting,
tækni og þekking sem lögð hefur
verið í iðnaðinn skilar ekki nægileg-
um arði. Andstæðingar auðlinda-
gjalds hafa bent á að iðnfyrirtæki
géti lækkað laun starfsmanna sinna
og að gengishækkunin eigi að vega
upp á móti launalækkununum.
Þessu fylgja þrír ókostir: í fyrsta
lagi leiðir gengishækkunin ekki til
verðlækkunar á öllum hlutum. I
öðru lagi má gera ráð fyrir að laun
myndu hækka samfara gengis-
hækkuninni og þannig yrði komið
í veg fyrir verðlækkun á vörum. í
þriðja lagi er ekki sanngjarnt gagn-
vart því fólki sem starfar í iðnaði
að það fái ekki sömu kjarabætur
og aðrir í þjóðfélaginu vegna geng-
ishækkunar. Sú leið að lækka laun
starfsmanna iðnfyrirtækja myndi
einnig leiða til þess að iðngreinar
yrðu ekki samkeppnisfærar um
kaupgjald á markaðnum og myndu
því missa hæfasta fólkið, þar sem
því byðust betri laun annars stað-
ar. Með þessu tapast dýrmætt fólk,
bæði faglært og ófaglært, og sam-
keppnisgreinarnar yrðu því ekki
eins vel í stakk búnar til að halda
uppi hágæðaframleiðslu. Einnig
mundi sú fjárfesting sem bundin er
í iðngreinunum ekki skila jafnmikl-
um arði og áður og því hlyti iðnaðar-
framleiðsla að dvína.
Adam Smith og Karl Marx. Því
hefur verið haldið fram að Karl
Marx hefði verið veiðigjaldssinni og
Adam Smith andstæðingur þess.
Karl Marx var stuðningsmaður rík-
isrekstrar og vildi að ríkið sjálft sæi
um auðlindavinnslu, framleiðslu,
verslun og þjónustu og miðstjórnar-
valdið myndi ákvarða eftir geðþótta
hvernig á málum yrði haldið. Því
er ekki hægt að draga Karl Marx
inn í þessa umræðu; hann hefði
Þar sem auðlindahrá-
efni er gjöf náttúrunnar,
segir Jón Ragnarsson,
er nauðsynlegt að ríkið
selji aðgang að þessum
auðlindum og nýti fjár-
magnið til að kosta
samneyslu þjóðarinnar.
hvorki verið hlynntur né andvígur
veiðigjaldi. Adam Smith var hins
vegar siðfræðiprófessor sem lagði
áherslu á efnahagslegt framtak og
vildi að jafnvægi ríkti í hagkerfínu.
Þar sem auðlindahráefni er gjöf
náttúrunnar en verður ekki til með
efnahagslegu framtaki er nauðsyn-
legt að ríkið selji aðgang að þessum
auðlindum og nýti fjármagnið til
að kosta samneyslu þjóðarinnar í
stað þess að skattleggja efnahags-
legt framtak einstaklinga. Adam
Smith hefði því talist til veiðigjalds-
sinna. Veiðigjaldsandstæðingar
hafa bent á það að fiskurinn hverfi
ekki ofan í þá sem fiskveiðar
stunda. Vandinn er hins vegar sá
að fiskurinn dreifist svo ójafnt yfir
hagkerfið og það eru samkeppnis-
greinarnar sem súpa seyðið af því.
Höfundur er nemi í
stjárnmálafrædi.
Jón
Ragnarsson
Kennarar, þetta
er okkar verk
SÚ SORGLEGA
staða, sem enn einu
sinni er komin upp, er
hreint út sagt fáránleg.
Er metnaðarleysi yfir-
valda algjört?
Að maður skuli vera
að byija fimmta vetur-
inn í kennslu eftir nám
og í þriðja skiptið er
verið að tala um að
fara í verkfall. Fyrsta
veturinn 1993-94 var
kosið um hvort fara
ætti í verkfall, en þá
sögðu kennarar nei,
„það er ekki leiðin til
að bæta kjörin". Hvað
gerist? Ekkert. Við
kennum heilan vetur með lausa
samninga. Það er ekki fyrr en farið
er í verkfall vorið ’95 sem einhver
hreyfíng kemst á málin. Ekkert
hafðist upp úr því nema launatap,
fleiri vinnudagar og örlítil hækkun
á launum. Staða kennara í verk-
falli er veik, þar sem enginn tapar
beinum peningum þegar við förum
í verkfall. Sorgleg staðreynd en
staðreynd samt. Því verða kennara-
verkföll alltaf löng og ströng. Af
fenginni reynslu þá þarf að koma
í lög eða inn í samninga okkar að
ef ekki er búið að ganga frá samn-
ingum þegar samningar verða laus-
ir, þá þýðir það sjálfkrafa vinnu-
stöðvun frá fyrsta degi. Við eigum
ekki að láta bjóða okkur að aldrei
skuli vera búið að ganga frá nýjum
samningi þegar gildandi samningar
renna út. En eitthvað verður að
breytast og í raun þarf stökkbreyt-
ingu til. En hvað er til ráða? Eru
til aðrar leiðir en að fara í verkfall
sem gera ekki minni usla? Þetta
verðum við að skoða og gera síðan
ekkert nema að vel athuguðu máli.
Hins vegar þegar út í átökin er
komið þá er einungis eitt atriði sem
allir eru sammála um að sé á hreinu
og það er að ekkert fæst nema með
því að vera gijóthörð
og standa saman. Ég
skora á kennara að
láta nú ekki bjóða sér
aukna kennsluskyldu
og byijunarlaun lægri
en hundrað og fimmtíu
þúsund á mánuði. Ann-
að er bara grín í þessu
„hræbillega“ landi sem
við búum í. Ef mein-
ingin er að fólk geti
lifað af þeim launum
og engu öðru þá dugir
þessi uppþæð ekki einu
sinni til. í dag eru laun
fólks reiknuð út frá
tveimur fyrirvinnum
sem er vitleysa og
rangur hugsunarháttur sem þarf
að leiðrétta. Ef báðir foreldrar vinna
úti ætti fólk að vera á góðum laun-
Stöndum saman og ver-
um gijóthörð, segir
Guðbrandur Stefáns-
son, aðeins þannig
náum við árangri.
um, fjögur til fimmhundruð þúsund
á mánuði.
Kennarar, þetta er okkar verk
og engra annarra og ef okkar samn-
inganefnd hefur einhvern tímann
þurft á stuðningi að halda þá er
það núna. Við sem erum úti í skól-
unum bölvandi og ragnandi yfir
laununum, látum nú í okkur heyra.
Ef verkfall verður raunin þá er það
bara harkan sex sem gildir. Álls
ekki gefast upp. Heldur förum við
í önnur störf, því við erum topp-
starfsmenn og hálf-klikkaðir hug-
sjónamenn í vinnu.
Höfundur er íþróttakennari.
Guðbrandur
Stefánsson
sœtir sofar-
• Smiðjuvegi 9 • Sími 564 1475 »