Morgunblaðið - 05.09.1997, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1997 43
PÁLL EINAR
SIGURÐSSON
+ Páll Einar Sig-
urðsson fæddist
í Reykjavík 19. des-
ember 1925. Hann
lést á heimili sínu i
Reykjavík 13. ágúst
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Dómkirkjunni 22.
ágúst.
Hingað til Boston
barst okkur hjónunum
sú sorgarfrétt að góð-
vinur okkar og sam-
starfsmaður, Páll Sig-
urðsson, meinatæknir
og bókavörður, væri látinn. Því
miður gátum við ekki fylgt honum
til grafar nema í huganum.
Páli kynntist ég fyrst fyrir tæp-
um 50 árum og mig minnir að
þessi einstaki maður hafi fyrst
birst mér á balli í gamla Sjálfstæð-
ishúsinu við Austurvöll. Hann skar
sig alla tíð úr fjöldanum bæði að
útliti og í fasi. Hávaxinn og líkam-
lega vel byggður var hann sem
ungur maður og hélt því allt til
daudadags. Smekkvísi í klæða-
burði var eitt af aðalsmerkjum
hans alla tíð. Aldurinn fór vel með
hann og í raun varð hann myndar-
legri með hveiju ári enda nýttu
auglýsendur í sjónvarpi útlit hans
og glæsileika þegar mikið lá við.
Páll fór ekki troðnar slóðir á lífs-
ferli sínum og hélt sínu striki og
skoðunum í gegnum þykkt og
þunnt. Hann sagði ætíð hug sinn
og kom því fólki stundum ónota-
lega á óvart með hreinskilni sinni.
En þeir sem þekktu hann vel og
skildu svo ekki sé talað um þá sem
höfðu sömu skoðanir mátu orð
hans mikils enda stóðu þau sem
stafur á bók.
Páll vandaði val á vinum jafnt
sem á dauðum hlutum. Að vera
vinur hans og félagi var ekki allra
og að hafa verið í þeim hópi met
i ég mikils. Gagnkvæm virðing og
vinátta einkenndu þessa tæpa
hálfa öld sem við áttum leið saman.
Páll hóf starf á Rannsóknastofu
Háskólans við Barónsstíg sem
sendisveinn 14 ára að aldri. Þá réð
þar ríkjum Níels Dungal prófessor
og frásögn Páls af upphafi ráðn-
ingar sinnar og síðan af samskipt-
um sínum við Dungal einkenndist
j af virðingu Páls fyrir yfirmanni
sínum en jafnframt af því að Páll
; lét ekki sinn hlut frekar fyrir pró-
fessornum en öðrum. Allt lék í
höndum Páls og áttaði Dungal sig
á því og kom honum í læri til ljós-
myndara, að mig minnir til Vigfús-
ar Sigurgeirssonar. Greind Páls og
glöggt auga bættust við hæfni
handa hans og bestu myndir frá
fyrri tíð Rannsóknastofunnar bera
allar merki Páls.
Þegar starfsemi
hófst á Keldum árið
1948 fluttist Páll
þangað með Birni
heitnum Sigurðssyni
sem þá bar höfuð og
herðar yfir flesta ef
ekki alla íslenska
lækna sem fengust við
annað en hreinar
lækningar. Hjá Birni
hófst annar kafli í lífi
Páls og nýttist þar
hæfni hans og reynsla
við rannsóknir og ljós-
myndun enda vandaði
Bjöm til alls sem hann
kom að. Samt sleppti Páll ekki
hendinni af Rannsóknastofu Há-
skólans og vinum sínum þar og
var þar tiður gestur.
Páll var bókamaður af lífi og
sál. Sem ungur maður starfaði
hann að hluta við sölu gamalla
bóka. Sjálfur eignaðist hann fág-
ætt bókasafn og voru það sérstök
forréttindi í gamla daga að vera
boðinn heim til hans í „bibliotekið"
á Baldursgötunni eða „tekkið“ eins
og það var nefnt í vinahópnum.
Áhugi Páls og virðing fýrir bókum
komu sér vel í starfí hans á Keldum
þar sem hann stóð með Bimi að
því á koma upp einu besta lækna-
bókasafni landsins. Páll sleppti
heldur ekki hendi af bókasafni
Rannsóknastofu Háskólans þótt
hann hyrfi úr starfi þaðan og árið
1965 unnum við tveir að því að
grisja það safn sem þá var hið
stærsta og besta sinnar tegundar
í landinu. Frá þeim tíma bast Páll
okkur betur þar sem hann gerðist
bókavörður okkar í hlutastarfi
ásamt vinnu sinni á Keldum. Bóka-
varðarstarfinu hélt hann til dauda-
dags og síðasti vinnudagur hans
hjá okkur var líka hans síðasti líf-
dagur.
Eg tel það til sérstakra forrétt-
inda og hafa orðið mér til gæfu
og gengis að hafa átt Pál að vini
og samstarfsmanni. Síðustu þrjá
áratugina höfum við hist allt að
því daglega. Oft fór aðeins á milli
okkar vinakveðja en á milli sátum
við saman og skiptumst á skoðun-
um, ýmist í kaffistofunni í hádeg-
inu eða í skrifstofu minni. Aldrei
bar neitt á milli og yfirleitt vorum
við sammála, hvort sem rætt var
um bókasafnið, stjórnmál eða fólk-
ið í landinu. Við áttum alla tíð svo
ótrúlega margt sameiginlegt enda
báðir sprottnir úr svipuðum jarð-
vegi, þótt annar væri úr borg og
hinn úr sveit.
Páll var gæfumaður í einkalífi
og valdist honum eiginkona sem
bar af flestum. Sigga var hans
stolt og börnin þeirra bera beggja
merki.
En Páll gaf líka af sér til ann-
I ALEXANDER L.
GOODALL
+ Alexander Littlejohn Good-
all fæddist í Dysart, Fife, í
Skotlandi 22. mars 1930. Hann
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur
17. ágúst síðastliðinn og fór
bálför hans fram frá Víðistaða-
kirkju 26. ágúst.
Eftir langa en hetjulega baráttu
er Alexander Goodall látinn. Alex-
ander var hljóðlátur maður en til-
finningaríkur. Hann var mikill fé-
lagi Mörthu systur minnar og
mágkonu sem og barna þeirra,
James og Elísabetar. Ófáar voru
1 ferðirnar sem fjölskyldan fór til
heimalands hans, Skotlands, og
hin síðari ár í sumarbústað þeirra
fýrir austan fjall.
Alexander barðist hatrammlega
gegn sjúkdómi sínum og afleiðing-
um hans. Hinn gífurlegi andlegi
styrkur sem hann bjó yfir kom
honum oft til góða og dró hann
upp úr veikindunum hvað eftir
annað. En ekki var hann einn í
baráttunni því Mai-tha hefur staðið
eins og klettur við hlið hans og
gefið honum þann styrk sem upp
á vantaði þegar hans eigið þrek
dugði ekki til.
Alexander var góður maður og
munum við sakna hans og hans
lúmska skoska húmors. En við vit-
um að nú er baráttunni lokið og
hann hefur fengið frið. Elsku Mart-
ha, James og Elísabet, við finnum
til með ykkur í sorg ykkar og send-
um okkar dýpstu samúðarkveðju.
Guð geymi góðan dreng.
Þorkell og Grethe.
arra og ekki síst til barna. Konan
mín minnist alltaf orða hans'þegar
hún var barnshafandi og hann kom
eitt sinn til okkar í hádeginu á
Hallveigarstíginn, okkar fyrsta
heimili, og sagði við hana: „Svona
eru konur fallegastar.“
Fjölskyldan, lífið, starfið og
bækurnar gerðu Pál að einstökum
menntamanni sem ekki hefði verið
hægt að verða með þaulsetum í
hefðbundnum skólum. Þetta fund-
um við, sem urðum vinir hans,
trúnaðarmenn og jafningjar.
Fyrir hönd allra starfsmanna
Rannsóknastofunnar vil ég full-
yrða að mannlífið þar verður aldr-
ei hið sama að Páli horfnum úr leik.
Við hjónin sendum Sigríði og
börnunum, Sigurði, Köru og Sig-
rúnu, innilegar samúðarkveðjur og
biðjum þeim Guðs blessunar.
Jónas Hallgrímsson, Boston.
Afmælis-
o g minn-
ingar-
greinar
MIKILL íjöldi minningargreina
birtist daglega í Morgunblað-
inu. Til leiðbeiningar fyrir
greinahöfunda skal eftirfarandi
tekið fram um lengd greina,
frágang og skilatíma:
Lengd greina
Um hvern einstakling birtist
ein uppistöðugrein af hæfílegri
lengd á útfarardegi, en aðrar
minningargreinar um sama
einstakling takmarkast við eina
örk, A-4, miðað við meðallínu-
bil og hæfílega línulengd, - eða
2200 slög (um 25 dálksenti-
metrar í blaðinu). Tilvitnanir í
sálma eða ljóð takmarkast við
eitt til þijú erindi.
Formáli
Æskilegt er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá,
sem íjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka, og
börn, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer
fram. Ætlast er til að þessar
upplýsingar komi aðeins fram
í formálanum, sem er feitletr-
aður, en ekki í greinunum sjálf-
um.
Undirskrift
Greinarhöfundar eru beðnir
að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
Frágangur
og móttaka
Mikil áherzla er lögð á að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt að diskl-
ingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textamenferð
og kemur í veg fyrir tvíverkn-
að. Þá er ennfremur unnt
að senda greinar í símbréfi -
569 1115 - og í tölvupósti
(minning@mbl.is). Vinsamleg-
ast sendið greinina inni í bréf-
inu, ekki sem viðhengi.
Skilafrestur
Eigi minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Berist grein eftir
að skilafrestur er útrunninn eða
eftir að útför hefur farið fram,
er ekki unnt að lofa ákveðnum
birtingardegi.
Vinningaskrá
17. útdráttur 4. sept. 1997.
Bifreiðavinningur
Kr. 2.000,000_____________Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
19175
Ferðavinningur
Kr. 100.0C 0 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
11241 24309 45797 75538
Kr. 50.000
Ferðavinningur
1580 12541 28187 44849 60704 66175
7387 14472 38189 58292 60963 72443
Kr. 10.000
Húsbúnaðarvinningur
277 9815 24418 33979 46603 53731 61099 73394
341 12310 24545 34655 47693 54079 61296 74130
1494 12529 25072 35062 47950 54478 64394 76884
2306 13941 25699 35397 48192 55406 65419 78626
3129 18336 27649 36179 48706 56022 68031 78930
3934 18455 27670 37430 49227 57138 68442 79031
4858 19433 28834 40067 49429 57896 69368 79394
5185 20184 29888 40376 52316 58529 69696 79461
5563 20411 30588 41887 52520 58591 70885 79554
5850 21507 31219 42789 52855 58651 71345
7597 21629 31513 43302 53365 58716 71409
8131 21937 32122 43408 53462 59969 71929
8643 24106 33239 46383 53611 60754 72604
Húsbúnaðarvinningur
Kr. 5.0(1 0 Kr. 10. 000 (tvöfaldur)
136 10152 20983 30533 40324 51427 62352 69827
238 10636 21044 30707 40920 51640 62467 70196
806 10720 21307 31090 41326 51846 62581 70832
1166 10785 21550 31128 41582 52620 62652 71383
1777 11897 21665 31784 41703 52706 62868 71543
1804 11986 21893 31914 42653 52850 63667 71548
1818 12545 23549 32525 43235 53166 63702 72509
2019 12571 23559 33220 43610 53472 63729 72679
3015 12775 23674 33642 43667 53639 63823 72944
3308 12969 24375 33843 43793 54075 63923 73651
3451 13337 25271 34147 44155 54485 63932 73792
3650 13359 25384 34175 44270 54494 64390 73869
4178 13434 25458 34678 44276 55240 64415 73944
4981 13636 25720 34741 44357 55617 64756 74530
5058 14146 25963 34791 45736 55877 65031 75236
5352 14610 26038 34855 45807 56266 65118 76099
5917 14834 26229 34978 46287 56822 65176 76206
6119 15120 26461 34980 46471 56853 65364 76655
6124 15493 27055 35506 46510 57812 65903 76724
6396 16013 27358 35796 46720 57930 66051 77021
6713 16293 27434 35894 46942 58053 66100 77184
6724 17033 27579 36283 47150 58177 66133 77959
7112 17227 28166 36557 47343 58592 66217 78231
7249 17388 28435 36678 47479 58959 66247 78372
7786 17914 28531 37387 47629 59336 66581 78528
8009 18523 28634 37636 47977 59558 66989 79805
8204 19328 29335 38570 48402 60596 67026
8785 19815 29699 39163 48413 60680 67453
9455 20046 29789 39498 48842 61021 67685
9555 20069 30148 39675 50455 61444 68329
9820 20082 30309 39804 50879 61582 69277
9990 20463 30377 40280 51343 61845 69529
Næsti útdráttur fer fram 11. sept. 1997
Heimasíða á Intemeti: Http://www.itn.is/das/