Morgunblaðið - 05.09.1997, Síða 45

Morgunblaðið - 05.09.1997, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1997 45 FRÉTTUR Gönguferð og staðar- skoðun í Yiðey FRAMUNDAN er næstsíðasta úti- vistarhelgin í Viðey á þessu sumri. Að venju verður farin gönguferð síðdegis á laugardag og síðan stað- arskoðun heima fyrir eftir hádegi á sunnudag. Bátsferðir út í Viðey hefjast kl. 13 báða dagana og verða á klst. fresti til kl. 17 en í land aftur á hálfa tímanum til kl. 17.30. Á laugardag verður gengið frá kirkjunni kl. 14.15 austur með Við- eyjarstofu og Heljarkinn og síðan með suðurströndinni og upp í Kvennagönguhólma sem geyma ýmislegt athyglisvert. Þaðan verð- ur svo haldið austur á Sundbakka. Þar verða skoðaðar rústir þorpsins og útgerðarstöðvarinnar er þarna var í tíð Milljónafélagsins og Kára- félagsins sem voru með mikla starf- semi þarna á fyrri hluta aldarinn- ar. Ferðin tekur rúma tvo tíma. Nauðsynlegt er að vera á góðum skóm og hafa annan búnað eftir veðri. Á sunnudag verður staðarskoð- un sem hefst í kirkjunni kl. 14.15. Hún er fróðleg og öllum auðveld því lítið þarf að ganga. Þá verða gömlu Viðeyjarhúsin skoðuð, forn- leifagröfturinn og annað í næsta nágrenni húsanna. Ljósmyndasýningin í Viðeyjar- skóla er nú aðeins opin fyrir hópa sem panta fyrirfram en Hestaleig- an í Laxnesi er að störfum. Veit- ingahúsið í Viðeyjarstofu er opið frá kl. 14. Elvis! Elvis! í Norræna húsinu KVIKMYNDASÝNINGAR fyrir börn í Norræna húsinu hefjast að nýju sunnudaginn 7. september kl. 14. Að þessu sinni verður sýnd sænska myndin Elvis! Elvis! sem er gerð eftir sögu Mariu Gripe. I kynningu segir: „Elvis er sex ára og verður bráðum sjö. Hann er skírður í höfuðið á átrúnaðar- goði og hetju móður hans, Elvis Presley. Elvis er ósköp venjulegur strákur, sem tekur upp á ýmsum skemmtilegum hlutum ásamt vin- konu sinni henni Önnu-Rósu. Eina vandamálið er fullorðna fólkið, það er stundum svo skrýtið." Skáksamband Islands o g Blindrafélagið Morgunblaðið/Jón Svavarsson KENNARAR Danssmiðju Hermanns Ragnars og Dansskóla Auðar Haraldsdóttur. Tveir dansskólar í samstarfi DANSSMIÐJA Hermanns Ragnars og Dansskóli Auðar Haralds munu starfa saman í vetur og hafa aðsetur í Skip- holti 25 í Reykjavík en bjóða einnig upp á kennslu í Garðabæ, Grafarvogi, Frostaskjóli í Vest- urbæ og í Mjódd. Einnig verður kennt úti á landsbyggðinni eins og kostur er. Kennarar í skólanum eru Jó- hann Örn Ólafsson, Auður Har- aldsdóttir, Henný Hermanns- dóttir, Ólafur Geir Jóhannes- son, Unnur Berglind Guð- mundsdóttir, Jóhann Gunnar Arnarson, sem öll eru útlærðir danskennarar, og Rósa Sigurð- ardóttir, sem lýkur fyrri hluta danskennaraprófs í vor. Unnur Arngrímsdóttir mun starfa við skólana svo og aðstoðarfólk. Myndin er með sænsku tali og 101 mín. að lengd. Aðgangur ókeypis. Smáhundar í Reiðhöll Gusts SMÁHUNDASÝNING verður hald- in í Reiðhöll Gusts, Kópavogi, á morgun, laugardaginn 6. septem- ber. Sýndar verða eftirtaldar tegund- ir: Bichon frise kl. 10-10.04, chi- huahua kl. 10.04-10.28, papillon kl. 10.28-11.04, pomeranian kl. 11.04-11.24, shih Tzu kl. 11.24- 11.32, pugkl. 11.32-11.40, enskur bulldogkl. 11.32-11.40 ogcavalier king ch.sp. kl. 12.30-15.34. Aðgangur er ókeypis. Kolrassa í Hinu húsinu SÍÐDEGISTÓNLEIKAR Hins hússins hefjast að nýju í dag, föstu- daginn 5. september, eftir mánað- arfrí. Tónleikarnir verða framvegis haldnir á Geysi Kakóbar, sem er nýtt kaffihús í Hinu húsinu. Kolrassa krókríðandi spilar á þessum fyrstu tónleikum vetrarins og munu þau m.a. spila nýtt efni sem hljómsveitin hefur unnið að upp á síðkastið. Tónleikarnir hefj- ast stundvíslega kl. 17. Myndastytta hvarf úr garði STYTTA, grá úr steini 120 cm á hæð og um það bil 60 kg hvarf úr garði Vífilfells, Stuðlahálsi 1 í Reykjavík, sennilega 24. ágúst. Ef einhver hefur orðið styttunnar var er hann vinsamlegast beðinn um að láta lögregluna vita. Styttan er af konu sem ber hend- ur við höfuð. LEIÐRÉTT Ranglföðurnafn í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær er bar yfirskriftina Listin að lifa var rangt farið með föðurnafn eins viðmælandans en það var Vala Kolbrún Reynisdóttir. Var hún sögð Hreinsdóttir. Einnig var rangt með farið þegar sagt var að faðir Jóns Trausta byggi í Karmo. Stjúpfaðir hans býr þar. Beðist er velvirðingar á mistök- unum. ^ Vinna saman að fyrsta Islandsmótinu í blindskák FYRSTA íslandsmótið í blindskák, sem haldið verður í samvinnu Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á íslandi og Skák- sambands íslands, hefst föstudag- inn 5. september kl. 16. Setningin, sem og undanrásir mótsins, fer fram í Nýheijasalnum í Skaftahlíð 24 í Reykjavík. Davíð Oddsson, for- sætisráðherra, mun setja mótið með því að leika fyrsta leikinn að við- stöddum m.a. formanni Blindrafé- lagsins og forseta Skáksambands Islands. Þetta fyrsta íslandsmeistaramót í blindskák er lokað mót þar sem flestir sterkustu skákmenn landsins mæta til leiks, m.a. fímm stórmeist- arar úr ólympíuliði íslands, þeir Helgi Ólafsson, Jóhann Hjartarson, Hannes Hlífar Stefánsson, Þröstur Þórhallsson og Helgi Áss Grétars- son. Auk stórmeistaranna tefla þeir Dan Hansson, Jón Viktor Gunnars- son, Áskell Örn Kárason, Berg- steinn Einarsson og Sigurður Daði Sigfússon. Mótið fer þannig fram að tefldar verða undanrásir í tveimur riðlum dagana 5. og 6. september, að þeim loknum leika tveir efstu menn úr hvorum riðli eina útsláttarumferð. Sunnudaginn 7. september kl. 14 verða tefldar úrslitaskákir mótsins. Úrslitaskákirnar fara fram í beinni útsendingu úr sjónvarpssal Sýnar. Teflt verður með Fischer klukku og fá keppendur 10 mínútur í upp- hafstíma og eftir það 20 sekúndur fyrir hvern leik sem þeir leika. Tölvudeild Nýherja annast tæknilega hlið mótsins en skák- mennirnir munu sitja við tölvur og sjá á skjánum aðeins taflborðið en ekki taflmennina. Þeir sjá ennfrem- ur síðasta leik andstæðingsins og tilkynna um leiki sína með því að styðja bendlinum á reiti á auðu skákborðinu. Sýndir verða valdir kaflar úr undanrásunum á Sýn kl. 13 á sunnudag. Hægt verður að fylgjast jafnharðan með hveijum leik í mót- inu á veraldarvefnum á slóðinni Titaninum.islandia.is, port 5000. Nánari upplýsingar um mótið er einnig að finna á heimasíðu Skákar á íslandi á slóðinni http://www.vks.is/skak og forrit til móttöku upplýsinga á http://www.dfong.com/chess- bd/index.html. íslandsmótið í blindskák er í boði Nýheija en Búnaðarbanki Islands gefur verðlaunafé. Þó hér sé um að ræða fyrsta íslandsmótið í blind- skák á blindskák sér langa sögu hérlendis sem erlendis. Er það ætl- un Blindrafélagsins og Skáksam- bandsins að þetta verði árlegur við- burður héðan í frá og að næst verði unnt að efna til opinna undanrása og gefa þannig enn fleirum kost á að spreyta sig í þessari skemmtilegu íþrótt. Minningarsíður um Díönu prinsessu ÆGIS ehf. hefur komið upp minn- ingarsíðu um Díönu prinsessu af Wales (http://www.aegis.is/diana/), þar sem Netbúum gefst kostur á því að sýna samúð sína í verki og skrifa í Samúðarbók. Á síðunni er mynd af Díönu prinsessu og getur fólk skráð nafn sitt, netpóstfang og sam- úðarkveðju til aðstandenda Díönu. Kveðjur þessar verða sendar til réttra aðila næstkomandi laugardag, eftir jarðarför Díönu prinsessu. Á hádegi í gær höfðu yfir 10 þúsund einstaklingar og fyrirtæki heimsótt síðuna, meðal annars frá Kína, Tævan, Króatíu og Perú, en aðilar frá 50 löndum hafa heimsótt síðuna, samkvæmt því sem kemur fram í frétt frá Ægis ehf. Þar segir ennfremur: „Þess má geta að America On-Line (AOL) hefur lýst ánægju sinni með fram- takið og er síðan auglýst sérstaklega fyrir notendur AOL sem eru rúmlega 9.000.000. CNN hefur einnig aug- lýst þessa síðu ásamt öðrum síðum sem bjóða upp á samúðarkveðjur í gegnum alnetið. Síða þessi hefur verið valin „Edit- ors Choice" hjá WEB-Magazine, sem er eitt stærsta nettímarit á Vefnum og er það mikill heiður fyrir síðu sem þessa. Hægt er að skrá nafn sitt og raf- póstfang á http://www.aeg- is.is/diana/ og eru allir, sem ekki hafa sent inn sína línu nú þegar, hvattir til að gera það sem fyrst.“ Fundur um stöðuna á Norður-Irlandi ALÞJÓÐAFÉLAG stjórnmálafræði- nema við Háskóla íslands efnir til hádegisfundar föstudaginn 5. sept- ember er ber yfírskriftina Tímamót á Norður-írlandi? Hinn 15. september nk. eiga að hefjast eiginlegar viðræð- ur um framtíðarskipan mála Norður- írlands og er að sjá sem hér sé kom- ið einstakt tækifæri til að koma á langþráðum friði enda líklegt að deiluaðilar fáist nú í fyrsta sinn til að setjast niður við sama borð. Allt veltur þó á því hvort sambandssinnar samþykkja að setjast niður með full- trúum írska lýðveldishersins IRA, segir í fréttatilkynningu. Tveir munu taka til máls á fund- inum. Davíð Logi Sigurðsson sagn- fræðingur mun flytja stuttan inn- gang og spjalla lauslega um sögu Norður-Irlands auk þess sem hann mun velta upp ýmsum spurningum sem vakna á þessum tímamótum. Davíð Logi útskrifaðist með BA- gráðu í sagnfræði frá Háskóla íslnds í febrúar 1996 og stundaði sl. ár meistaranám við Queens-háskóla í ■- Belfast á Norður-írlandi í írskri sögu og stjórnmálum auk þess að gegna störfum fréttaritara fyrir Morgun- blaðið. í kjölfar Davíðs mun hr. Peter Bell fjalla um samstarf írskra og breskra stjórnvalda í friðarátt, at- burði síðustu mánaða og framtíðar- horfur. Bell gegnir stöðu aðalritara ensk-írsku samráðsnefndarinnar í Belfast auk þess sem hann er sér- fræðingur í Norður-írlandsmála- ráðuneyti bresku ríkisstjórnarinnar. Á eftir mun Bell svara fyrirspurnum fundarmanna. Allir eru velkomnir á fundinn sem fer fram á ensku og hefst í hátíðar- sal aðalbyggingar Háskóla íslands kl. 12.15. Níunda starfs- ár Dansskóla Jóns Péturs ogKöru DANSSKÓLI Jóns Péturs og Köru hefur nú í haust sitt níunda starfsár. „Hjá skólanum er sem fyrr boð- ið upp á barnadansa, samkvæmis- dansa, gömlu dansana og tjútt fyrir fólk á öllum aldri, jafnt byrj- endur sem lengra komna. Kántrý- dansar hafa að undanförnu náð mikilli fótfestu hér á landi og verður boðið upp á sérnámskeið í þeim. Fyrir þá sem ekki hafa dansfélaga eru kántrýdansar til- valdir," segir í fréttatilkynningu. Fyrir yngstu nemendurna, 4-5 ára, er boðið upp á dans, söng og leik. „Hjá eldri börnum og unglingum er strax byrjað að kenna samkvæmisdansa, þ.e. suð- ur-ameríska og standard dansa svo og helstu gömlu dansana. Samhliða því verða þeim kenndir kántrýdansar. Fyrir fullorðna verða tvenns konar námskeið í boði. Annars vegar námskeið í kántrýdönsum þar sem nýjustu dansarnir verða kenndir og liins STARFSFÓLK skólans í vetur eru Kara Arngrímsdóttir, Jón Pétur Úlfljótsson, Logi Víg- þórsson, Guðfinna Björnsdótt- ir, Karen Lind Ólafsdóttir og Stefán Guðleifsson. vegar námskeið í samkvæmis- dönsum," segir jafnframt. I framhaldshópum er haldið áfram að byggja upp dansinn á þeim grunni sem fyrir er og bætt inn fleiri dönsum og sporum. Fyr- ir utan almenna kennslu er í skól- anum æfingasalur sem er opinn alia daga vikunnar. Innritun á dansnámskeið skól- ans stendur yfir daglega frá kl. 12-19. ■ SÍÐASTA kántrýbnll sumarsins í Danshúsinu Glæsibæ verður hald- ið laugardagskvöldið 6. september. Ballið byrjar kl. 21 með danskennslu þar sem Jóhann Örn Ólafsson kennir nokkra línudansa við tónlist frá Bjarna Degi. Hljómsveitin Far- malls mun leika fyrir dansi á ballinu og Jóhann Örn leiðir dansinn. Dans- smiðja Hermanns Ragnars og Dansskóli Auðar Haralds standa fyrir uppákomu, kennslu og sýningu í Kringlunni á laugardeginum frá kl. 13. Þar verða kynnt þau fjöl- mörgu dansnámskeið sem í boði verða í vetur. ■ GÖNGUHÓPUR félngsmið- stöðvnrinnar Hólmasels heldur áfram göngu sinni í vetur. Safnast er saman við félagsmiðstöðina Hólmasel 4-6 kl. 10.30 alla laugar- dagsmorgna og gengið í u.þ.b. klst. undir stjórn Rúnu írisar Guðmunds- dóttur íþróttakennara. Byijað verður laugardaginn 6. september og eru byijendur sem og lengra komnir velkomnir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.