Morgunblaðið - 05.09.1997, Page 48

Morgunblaðið - 05.09.1997, Page 48
'48 FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Opið bréf til forráða manna Flugleiða Frá Lennart Bernram: LAUGARDAGINN 31. maí áttu konan mín og ég að fljúga med FI 204 frá Keflavík til Kaup- mannahafnar kl. 16:00. Vegna einhverrar bilunar var tilkynnt rétt fyrir kl. 16, að fluginu hefði seinkað til kl. 17:45. Þetta þýddi að við myndum lenda í Kaup- mannahöfn kl. 23:00 og þannig missa síðasta flugið til Gauta- •..borgar. Þar sem tvær aðrar flug- vélar á leið til Kaupmannahafnar voru að því komnar að fara í loft- ið báðum við um að vera flutt yfir á aðra hvora þeirra, en feng- um þau svör að báðar vélarnar væru fullar. Af ýmsum ástæðum var mikil- vægt fyrir okkur að komast heim til Gautaborgar þetta sama kvöld og því báðum við starfsfólk við upplýsingaborð að athuga, hvort Flugleiðir gætu ekki leigt fyrir okkur bíl í Kaupmannahöfn, sem við myndum aka sjálf þá 4 klukku- stunda bílferð, sem er til Gauta- borgar. Flugleiðir myndu borga kostnaðinn af bílaleigubílnum og feijunni yfir Eyrarsund í staðinn fyrir að setja okkur á hótel í Kaup- mannahöfn. Okkur var sagt að þetta ætti vel að vera mögulegt og var lofað að símabréf með upp- lýsingum ásamt beiðni um þetta yrði sent til Kaupmannahafnar. Til öryggis báðum við um að vera bókuð á fyrsta flug til Gautaborg- ar á sunnudagsmorgni, ef þetta myndi ekki ganga. Á meðan við biðum í Keflavík heyrði kona mín, sem er íslensk, að starfsfólkið við upplýsingaborð- ið talaði saman um tóm sæti í annarri af flugvélunum, sem við áður höfðum fengið upplýsingar um að væru fullar. Flugleiðir höfðu boðið SAGA-class farþegum þau sæti, en þeir höfðu afjiakkað! Fyrsta spurning mín er: Af hveiju laug starfsfólk Flugleiða í Keflavík um þessi tómu sæti? Á Kastrup höfðum við samband við starfsstúlku Flugleiða við hlið- ið. Hún hafði fengið símabréfið frá íslandi, en sagði okkur að Hertz bílaleigunni væri lokað klukkan 22:00 (klukkan var um 23) og þar sem bílstjórinn yrði sjálfur að taka ^við bílaleigubílnum hefði ekki ver- ið hægt að gera neitt í málinu. Það eina sem var hægt að „bjóða okkur uppá“ var hótelherbergi yfir nóttina í Kaupmannahöfn. Ég bað þá um að fá að tala við einhvern ábyrgan yfirmann hjá Flugleiðum annaðhvort á Kastrup eða í Kefla- vík. Ég varð meira en lítið hissa, þegar svarið var, að Flugleiðir hafa engann ábyrgan yfirmann, sem er hægt að ná í eftir kl. 23:00 að staðartíma í Kaupmannahöfn, hvorki þar eða á íslandi! Önnur spurning mín er: Er þetta satt, eða laug hún líka? Hafa Flugleiðir engann ábyrgan “'•yfirmann sem hægt er að ná í eftir myrkur? Vita flugmálayfir- völd um þetta? Við vorum send til upplýsinga- borðs SAS á Kastrup til að fá bókun á hóteli og á flugi næsta morgun. Flugleiðir höfðu þá bókað okkur á flug til Gautaborgar kl. 10:20, ekki á fyrsta flug kl. 9:20, eins og við höfðum beðið um. Þriðja spurning mín: Af hveiju vorum við ekki bókuð á fyrsta flug eins og beðið var um, þar sem nóg var af sætum? Var verið að reyna að valda okkur vandræð- um, eða er þetta bara merki um almennt áhugaleysi gagnvart far- þegum (alltént ef þeir fljúga ekki í SAGA-class)? Það sem síðan gerði að upp úr sauð var, að á sunnudagsmorgni höfðum við samband við skrif- stofu Hertz á Kastrup og fengum það staðfest, að Heitz sé vissu- lega lokað kl. 22:00, en skrifstof- unni sé haldið opinni og beðið eftir farþegum, sem hafa pantað bíl hjá bílaleigunni, ef komu flugs þeirra seinkar!! Stúlkan, sem var hjá Hertz þennan sunnudags- morgun, hafði sjálf setið og beðið eftir farþega kvöldið áður fram til kl 23:30, af því að vél hans hafði seinkað. Hún sagði þetta vera sið, sem öll flugfélögin vissu um. Fjórða spurning mín: Af hveiju laug starfsstúlka Flugleiða á Kastrup að okkur? Var það bara af því að enginn nennti að hjálpa okkur eða hafði hún einhveija aðra ástæðu til þess? Er þetta hluti af þjónustuvilja ykkar og ímynd gagnvart farþegum? Ég hef flogið mikið með mörg- um mismunandi flugfélögum, en aldrei orðið fyrir eins miklu skeyt- ingarleysi og starfsfólk Flugleiða sýndi okkur í þessari ferð. Var það bara óheppileg tilviljun, að svona margt fólk, sem ekki er starfi sínu vaxið, var í vinnu samtímis, eða er þetta hið sanna andlit flugfé- lags, sem er nánast einokunarfyr- irtæki? Það er jú í erfiðleikum sem reynir á þjónustuandann og greið- viknina. Viðhorf stúlkunnar við hliðið á Kastrup minnti mig á það, sem maður rakst á í Austur-Evr- ópulöndum hér áður fyrr; afstöðu sem gengur ekki á vesturlöndum nútímans með síharðnandi sam- keppni. Hún var mjög slæm aug- lýsing fýrir fyrirtæki sitt. Ég vil fá spumingum mínum til Flugleiða svarað og vænti skýr- inga Flugleiða á því, sem ég hér hef lýst. Ég vil líka vita hvað Flug- leiðir hyggjast gera til að þetta endurtaki sig ekki. Ég mun auðvit- að reyna að komast hjá því að fljúga með Flugleiðum, ef ég fæ ekki tæmandi svör. í byijun júní fengu Flugleiðir í Stokkhólmi þessar spurningar. Þrátt fyrir fleiri áminningar hefur ekkert svar borist mér. Þess vegna vel ég að bera fram spurningar mínar í þessu opna bréfi til for- ráðamanna Flugleiða, eins og ég tilkynnti að ég myndi gera, ef ég fengi ekki svar, þegar ég sendi Flugleiðum bréf þetta í fyrsta sinn. Fyrirtæki eins og Flugleiðir, sem hafa nánast einokun á flug- ferðum milli íslands og umheims- ins, ber mikla ábyrgð gagnvart farþegum sínum. Það er langt að róa til íslands. LENNARTBERNRAM, Aspgatan 20, 426 77 V Frölunda. * Góðir skór á stráka og stelpur stærðir 22-36 svartir 3.990 smáskór i bláu húsi við íákafen 8Ími 568 3919 ÍDAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Stuttur afgreiðslutími MAÐUR hringdi til Vel- vakanda og vildi kvarta yfir því hve stuttur af- greiðslutími strætisvagna- skiptistöðvarinnar í Ár- túnsholti væri. Hann segir að húsið sé opnað um 8 á morgnana og því lokað á milli kl. 17 og 18. Fjöldi fólks þarf að komast ferða sinna bæði fýrir og eftir þennan tíma og þá þurfa þeir að bíða úti, og á vet- urna gjama í slæmum veð- rum. Þá er enga snyrtiað- stöðu að hafa fyrir og eft- ir þennan opnunartíma og það getur stundum verið bagalegt. Einnig minntist hann á að sér þætti stræt- isvagnarnir oft ekki nógu snyrtilegir. Fyrirspurnir MARGRÉT er með fyrir- spum til Ríkisútvarpsins, Rásar 1, um ljóð dagsins. Hún var að velta því fyrir sér hvort það væri skylda að hafa þau alltaf svona átakanleg. Margrét var að fá launa- seðilinn sinn frá Trygg- ingastofnun ríkisins 3. september. Hún spyr hvort ekki sé hægt að senda seð- ilinn heim til fólks fyrir mánaðamót þannig að hægt sé að sjá hvaða upp- hæð er útborguð 1. sept. Margrét sá myndir og auglýsingar um skólanesti bama og hún vill spyija fólkið sem sér um efni í auglýsingarnar hvort það hafi aldrei heyrt talað um gróft brauð, henni virðist allt brauð í auglýsingunum vera úr hvítu hveiti. Tapað/fundið Veski tapaðist SVART karlmannsveski með skilríkjum o.þ.h. týnd- ist í Sambíóinu við Álfa- bakka á milli kl. 16 og 17 sl. sunnudag. Finnandi er vinsamlega beðinn að hringja í síma 557-5997. Myndamöppur í óskilum TVÆR myndamöppur em í óskilum hjá Bæjarleið- um. Myndirnar í möpp- unni eru frá Bandaríkjun- um. Þeir sem kannast við að hafa gleymt mynda- möppum í leigubíl eru beðnir að hafa samband við Bæjarleiðir. Barnajakki í óskilum BARNAJAKKI, hvítur, fannst í Elliðaárdalnum. Uppl. í síma 567-0814. Leiktölva fannst LEIKJATÖLVA, Game Boy, fannst við Furagrand í Kópavogi. Uppl. í síma 557-8226. Dýrahald Krúsí er týnd KRÚSÍ sem er hvít læða týndist frá Óðinsgötu 4 að- faranótt sunnudags 31. ág- úst. Hún er 5 mánaða og er með bleika ól og grænt merkispjald. Þeir sem hafa orðið varir við hana hafi samband í síma 561-3272 eða 565-1075. Fundarlaun. Svartur kettlingur í óskilum SVARTUR kettlingur, 4-5 mánaða, fannst við Kúr- land föstudaginn 28. ág- úst. Uppl. í síma 588-8128. Högnióskar eftir heimili EINS og hálfs árs högni óskar eftir góðu heimili vegna flutnings. Hann er geltur og eymamerktur. Uppl. í síma 565-2818. SKAK limsjön Marjjcir Pétursson HVÍTUR leikur og vinnur. STAÐAN kom upp á stóra opna mótinu í Berlín í sum- ar. Rússneski stórmeistar- inn Udar Ibragimov (2.585) var með hvítt og átti leik, en Þjóðveijinn Georg Seul (2.425) hafði svart. 30. Hxg5+! - Kh7 (Þetta er engu betra en að þiggja fómina. Þá blasir mát við eftir 30. - hxg5 31. Dxg5+ - Kh7 32. Hc4) 31. Hh5 og svartur gafst upp. Skák- menn frá fyrrum Sov- étríkjum voru sigur- sælir í Berl- ín eins og svo oft áður: 1.-4. Kruppa, Savtsjenko og Lemer, Úkraínu og Tsjútsjelov, Hvíta-Rússlandi 7 'U v. 5.-22. Lajos Portisch , Ungveijalandi, Asejev, Glek, Episín, Kharitonov, Smirin, Loginov og Genba, Rússlandi, G. Kuzmin, Eingorn, Baklan og Tim- oschenko, Úkraínu, De la Riva, Spáni, David, Lúx- emborg og Þjóðveijarnir Hertneck og Siegel 7 v. Stigahæsti keppandinn á mótinu, Frakkinn Joel Lautier, var í hópi 18 skák- manna sem hlutu 6 ‘A v. Guðfríður Lilja Grétars- dóttir keppti á mótinu og hlaut fjóra vinninga. Hún byijaði vel, en tapaði tveimur síðustu skákunum. Keppendur voru 542 tals- ins. Helgarskákmót TR hefst í kvöld kl. 19.30 í félags- heimilinu Faxafeni 12. Mótinu lýkur á sunnudags- kvöld. Verðlaun eru 20 þús., 12 þús. og 8 þús. Þátttökugjöld eru kr. 1.500 fyrir félagsmenn í TR en 2.300 fyrir aðra. Fyrir 15 ára og yngri kostar 1.000 fýrir félaga í TR en 1.500 fyrir utanfélagsmenn. Öll- um heimil þátttaka. Pennavinir ÞRJÁTÍU og tveggja ára þýsk kona með áhuga á hestum, bókmenntum og kvikmyndum: Ilona Burckhart, Auf der Wirth 4, 55768 Hoppstadten, Germany. ÞÝSKUR frímerkjasafn- ari óskar eftir bréfaskipt- um við íslenska frímerkja- safnara með skiptum á þýskum og íslenskum merkjum í huga. Skrifar bæði á ensku auk þýsku: Wilhelm Burfeindt, Haydn-Strasse 18a, D-27474 Cuxhaven, Deutschland. Víkveiji skrifar... HÚN VAR tímabær umræðan um erfisdrykkjur, sem Ás- birni Björnssyni fýrrverandi for- stjóra Kirkjugarða Reykjavíkur- prófastsdæmis tókst að koma á varfærnislegan hátt á prent í Morg- unblaðinu 26. ágúst sl. Mætti hún vekja viðbrögð fleiri og fá þannig fram enn frekari umræður. Það er mikið rétt hjá honum að útfarar- kostnaður getur aukist verulega þurfi menn að leigja sal og reiða fram veitingar fyrir 100-200 manns og jafnvel fleiri. Ásbjöm vekur ennfremur athygli á þeirri gömlu, góðu venju að bjóða aðeins líkmönnum og nánasta venslafólki í erfisdrykkjur og segir að hún sé í fullu gildi, enda þótt hún sé á hröðu undanhaldi. Síðast í grein sinni nefnir hann að fleiri atriði mætti tína til en þau sem hann tiltók, þ.e. dánartilkynningar, jarðarfararauglýsingar og erfis- drykkjur. Vonandi snýr eitt af þeim atriðum, sem hann hefur í huga, að minningargreinum, þar sem æ algengara verður að nánustu ætt- ingjar, svo sem foreldrar eða börn, skrifi um hinn látna. Víkveiji treyst- ir Ásbirni fullkomlega til að fjalla um þann þátt á sama varfærna háttinn og hann gerði að þessu sinni. Öll málefni sem snúa að láti fólks, hvort sem eru jarðarfarir, erfis- drykkjur, minningargreinar eða samúð er viðkvæmt umfjöllunar- efni, sem sumir mega jafnvel ekki hugsa til að séu rædd opinskátt. Jenna Jensdóttir rithöfundur er ein þeirra sem tókst að koma sjónar- miðum sínum um minningargreinar á framfæri í Morgunblaðinu fyrir skömmu af varfærni og án þess að særa, að mati Víkveija. XXX MIKIL gróska hefur verið í ís- lenskri kvikmyndagerð á undanförnum árum, sem er af hinu góða. Nýlega var kvikmyndin Blossi frumsýnd og á næstunni er heimild- armyndin María væntanleg í kvik- myndahúsin. Myndin fjallar um ör- lög þýskrar konu, sem flýr skort eftirstríðsáranna og kemur til ís- lands að vinna á bóndabæ. í samtali við Friðrik Þór Friðriks- son í Morgunblaðinu segist hann viss um að myndin höfði m.a. til þeirrar kynslóðar, sem tók á móti þýska verkafólkinu á þessum árum. Undir þetta getur Víkveiji tekið. Hitt er annað mál að ef til vill kem- ur færra eldra fólk í kvikmyndahús- in en menn reikna almennt með. Ástæðan er ekki kvikmyndavalið heldur hávaðinn sem fylgir THX- hljóðkerfinu. xxx ÍKVERJI þekkir til fullorðins fólks sem hefur nánast ekki farið í kvikmyndahús síðan THX var tekið upp af þeirri einföldu ástæðu að því ofbýður hávaðinn. Einnig frétti Víkverji af eldri manni sem sat með stórar eyrna- hlífar af þeirri gerð, sem menn nota í frystihúsum og þegar unnið er með loftbora. Ungir krakkar spurðu hvers vegna hann væri með þetta tæki á höfðinu og hann svar- aði því til að hávaðinn væri annars alltof mikill. Væri ekki athugunar vert fyrir kvikmyndahúsin að stilla græjurnar eilítið lægra einhvern ákveðinn tíma dagsins, t.d. í „5-bíó“, svo að þeir sem hafa viðkvæma heyrn geti not- ið kvikmyndanna á sama hátt og aðrir?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.